Vísir - 26.05.1966, Blaðsíða 8
8
V í S I R . Fimmtudagur 26. maí 1966.
y
Utgefandi: Blaðaútgátan VISIR
Ritstjöri: Gunnar G. Schraro
Aðstoðarritstjöri: Axe) Thorsteinson
Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson
Þorsteinn Ó. Thorarensen
Auglýsingastj.: Halldór Jónsson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1
Afgreiösla: Túngötu 7
Ritstjóm: Laugaveg: 178. Sími 11660 (5 llnur)
Áskriftargjald: kr. 90,00 á mánuði innaniands
1 lausasölu kr. 7,00 eintakið
Prentsmiðja Vlsis — Edda h.f
„Sigrarnir"
Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins grobba mikið af
„sigrum“ sínum í bæjar og sveitarstjórnarkosning-
unum. Er allt útlit fyrir að blöðum þeirra muni end-
ast þetta efni næstu vikurnar eða lengur. En þessi
skrif eru æði brosleg þegar farið er að bera þau sam-
an. Hver um sig segir: Það var bara ég sem sigraði,
hinir hafa af engu að státa og „útreikningar“ þeirra
eru meira og minna blekkingar.
Tíminn er t. d. stórhneykslaður yfir því að nokk-
ur skuli leyfa sér að tala um sigur, nema Framsóknar-
flokkurinn. Hann sé sá eini, sem unnið hafi á. Al-
þýðuflokkurinn og kommúnistar hafi staðið í stað.
Þetta er ekki ný bóla í stjórnmálum, að menn
hagræði tölum eftir því sem hentugast þykir hverju
sinni, og framsóknarmenn hafa löngum þótt meist-
arar í þeirri grein. En rétt er það hjá Tímanum, að
Alþýðublaðið setti „dæmið“ upp mjög sér í hag, þegar
það skýrði frá kosningaúrslitunum. Það er rétt, að
Alþýðuflokkurinn fékk nú hér í Reykjavík 1718 at-
kvæðum meira en í borgarstjórnarkosningunum 1962,
en hann fékk hins vegar 51 atkvæði minna en í Al-
þingiskosningunum 1963. Það er því varla hægt að
tala um mikinn sigur, miðað við það sem síðast var
vitað um fylgi flokksins hér í Reykjavík.
Það er líka fremur ónákvæmur útreikningur hjá
Alþýðublaðinu, að flokkurinn hafi bætt við 4 bæjar-
fulltrúum á landinu. Þá er því sleppt, að hann hafði
fulltrúa í samstarfi við aðra flokka bæði á ísafirði og
Sauðárkróki, og því er ekki hægt að segja að hann
hafi unnið þar fulltrúa nú.
Um kommúnista er það að segja, eins og sýnt
var fram á með skýrum rökum hér í blaðinu í gær,
að þeir hafa staðið í stað. Sókn þeirra er að fullu
stöðvuð fyrir löngu og þeirra bíður ekkert nema fylgis
tap eftir því sem árin líða, hversu oft sem þeir skipta
um nafn og númer.
En hvað þá um Framsóknarflokkinn? Hann vann
nokkuð á sums staðar, þótt ótrúlegt sé, en ekki nándar
nærri eins mikið og Tíminn vill vera láta. Hvers vegna
er Tíifiinn að miða við tölur úr borgarstjórnarkosn-
ingunum 1962? Sé villandi hjá Alþýðuflokknum að
gera það, hlýtur að gegna sama máli um Tímann sjálf
an og efsta mann á lista Framsóknar í Reykjavík,
sem í útvarpinu miðaði fylgisaukningu flokksins nú
við tölurnar frá 1962.
í Alþingiskosningunum 1963 fékk Framsóknar-
flokkurinn 6178 atkvæði í Reykjavík. í borgarstjórn-
arkosningunum á sunnudaginn var hlaut hann 6714
atkvæði. Aukningin er því aðeins 536 atkvæði. Er
hægt að kalla það „stórsigur“? Og svo er Tíminn að
tala um að Framsókn hafi vantað „bara 386 atkvæði“
til þess að fella 8. mann Sjálfsíæðisflokksins! Er það
nú svo lítjiö, miðað við aukninguna? Nei, sókn Fram-
sóknarflokksins hér í Reykjavík er sýnilega stöðvuð,
og á næstu árum mun fylgi hans aftur fara minnkandi.
Stokkhólms
heimsókn
utanríkisráð-
herra Noregs
Samkvæmt NTB-fréttum í
gær er nú unnið af hinu mesta
kappi að því að reyna að koma
I veg fyrlr að öll starfsemi SAS
lamist, ef til verkfalls þess kem
ur, sem danskir, norskir og
sænskir flugmenn hafa boðað frá
6. júní ,takist samningar ekki
fyrir þann tíma.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum í Stokkhólmi er tal
ið, að hættan á verkfalli sé
meiri en nokkurn tíma fyrr.
Stjóm SAS ræddi vandamál-
ið á fundi í fyrradag, en hann
stóð margar klukkustundir. Rík-
isstjómir Norðurlandanna
þriggja Danmerkur, Noregs og
Svíþjóðar hafa fengið ýtarlega
greinargerð um allt varðandi
málið. — NTB-fréttastofan tel-
ur samkvæmt áreiðanlegum
heimildum , að sænska stjórnin
telji horfumar mjög alvarlegar
og muni gera allt sem í henn-
John Lyng, utanríkisráðherra Noregs.
Reynt að hindra að starf-
semi S.A.S. lamist vegna
flugmannaverkfallsins
ar valdi stendur, til þess að
greiða fyrir samkomulagi. Sam-
göngumálaráðherrann Olaf
Palme hætti við að fara á ráð-
stefnu samgöngumálaráöherra
Evrópul. sem haldin verður í
Sviss til þess að vera viðbúinn
fyrirvaralaust að veita aðstoð
sína til samninga sé þess óskað.
í sömu fréttum segir, að þótt
sænska stjórnin hafi áhyggjur
af horfunum vilji hún ekki knýja
fram úrslit með þvi að leggja
málið fyrir gerðardóm, er felli
bindandi úrskurð, því þaö myndi
valda henni stjómmálalegum erf
iðleikum, ef slík leið væri far-
in, og til slíkra úrræða hafi ekki
verið gripið í Svíþjóö á síðari
árum.
BRAATHEN-MÁLIÐ
Verkfallshótunin hefur leitt
tik þess, að í bili varð heldur
hljóðara um Braathen-málið, þ.
e. ákvörðun norsku stjómarinn-
ar um að veita Safe, flugfélagi
Braathens, aukin réttindi til inn
anlandsflugs, eða réttindi til
þess að fljúga til Norður-Noregs
þar sem SAS hefur haft sérleyfi.
John Lynge, utanrikisráðherra
Noregs hefur verið í Stokkhólmi
og rætt við sænska ráðherra og
að því er blöð herma mun hann
hafa sagt þeim einarðlega, að
hér væri i norskt innanríkis-
mál að ræða, sem hinum Norð-
urlöndunum kæmi ekki við.
Áður en þetta gerðist höfðu ver
ið rekin upp mikil óp í Svíþjóð
og Danmörku og norska stjórn
in sökuð um að hafa rofið
gerða samninga og teflt SAS í
hina mestu hættu og allri fram
tíð þess, og var tekið undir
þetta í ýmsum blöðum.
Kom mjög fram hve blöðun-
um er sárt um SAS og Dagens
nyheter í Stokkhólmi ræðir eink
um hverjar afleiðingar flug-
mannaverkfallið muni hafa fyrir
SAS.
Blaðið minnist einnig á
Braathenmálið og telur komu
John Lyng til Stokkhólms hafa
leitt til aukins skilnings á af-
stöðu aðila. Blaðinu skilst, að
norska stjómin muni nú taka sér
frumkvæði um samkomulagsum
leitanir, að ósk Svía og Dana
og verði við þessar samkomu-
lagsumleitanir reynt að fá það
leitt skýrt í ljós, hvort hér er
í rauninni um smámál að ræða
eins og Borten forsætisráð-
herra vilja vera láta, eða hvort
hér sé um „sérstakt mál“ að
ræða undantekningu, eða hvort
hér hafi, eins og margt bendir
til, verið stigið fyrsta skref til
þróunar, sem myndi grafa und
an efnahag og framtíðarmögu-
leikum SAS.
Svenska dagbladet lætur hins
vegar í ljós ánægju yfir þeirri
vfirlýsingu Johns Lyng utan-
ríkisráðherra fyrir burtför hans
að norska stjórnin sé fús til
þess að ræða innanlandsflug
Norðurlanda, og Noregur hafi
engu minni áhuga en hin Norð
urlönd á að efla samstarfið
í SAS en blöðin höfðu áöur
haft það eftir honum svo sem
fyrr var getið, að það væri
norskt innanríkismál, að Safe
Braathens voru veitt réttindi til
flugs til Norður-Noregs, þar sem
SAS var eitt um hituna. Og
þrátt fyrir þessi seinustu um-
mæli Lyngs hefur ekkert komið
fram um að hvikað verði frá
ákvörðuninni varðandi Braathen
félagið.
John Lyng hélt heimleiðis á-
samt konu sinni í gær. llin op-
inbera heimsókn hans i Stokk-
hólmi stóð í tvo daga.
Norska
stjórnin
virðist ekki
hvika frá
flugleyfi
Braathens