Vísir - 21.06.1966, Síða 2
- 3 I R . Þriðjudagur 21. júní 1966.
AKURNÍSINGAR SOTTU STIG A
/A
HEIMA VELLI" KR
Það var engu líkara en Akranes keppti á heima-
velli sínum í gærkvöldi. Samt sem áöur fór leik-
ur KR og Akraness fram á vestlægum breiddar-
gráðum höfuðborgarinnar, nánast í hjarta Vestur-
bæjarins, á Melavellinum, þar sem KR hefur löng
um fundið fyrir góða áhorfendur.
Samt sem áður voru það Skagamenn, sem áttu
fólkið í þetta sinn í furðulegu „uppgjöri“ aðalkeppi
nautanna í I. deild í meira en áratug. Og enn
einu sinni fékk fólk að sjá snörp átök og jafnan
leik. Sigurinn gat lent hvorum megin sem var, en
jafnteflið 1:1 var líklega heppilegasta lausnin.
KR-liðið lék í fyrri hálfleik móti
norðangolunni og náöi I fyrri hálf-
leik þeim tökum á leiknum að ætla
mátti að leikurinn mundi verða
þeirra undan golunni, sem var til-
valin til skota á syðra markið. Engu
að sfður voru það Akurnesingar er
sóttu meira í seinni hálfleik og var
leikur þeirra þá ólíkur fyrri hálf-
leiknum.
Baldvin Baldvinsson átti strax
á fyrstu mínútum leiksins allgott
tækifæri, þegar hann fékk boltann
fyrir markið i óvænta stöðu, en
Eyleifur stuttu síðar annað færi
við mark fvrrverandi félaga sinna
en skotið fór gróflega fram hjá.
Mark KR-inga má þakka Ell-
ert Schram, sem sótti boltann
upp að endamörkum eftir að
homspyma frá hægri virtist
ætla að fara i súginn. Ellert gaf
fallega út til Baldvins, sem var
í ágætu færi og notfærði sér
tækifærið á þann hátt að hann
sópaði boltanum yfir fætur
varnarmanna Akurnesinga og
datt boltinn inn í markið.
Bezta tilraun Akurnesinga í hálf
leiknum var skot Þórðar Jónssonar
af vítateig, en Heimir Guðjónsson,
markvörður KR. bjargaði þar úti í
bláhominu. Þá átti Sigurþór ágæta
tilraun á 27. mín. og skaut utan á
stöng, en færið var þröngt, líklega
of þröngt til að skora úr.
í seinni hálfleik var eins og Akur-
nesingar færðust í aukana, en KR-
ingar urðu fyrirferðarminni og hálf
gert slen færðist yfir liðið. Baldvin
hafði sótt upp vinstra megin á 13.
mín. og komið markinu í hættu
með skoti utan á stöng úr mjög
þröngri aðstöðu.
Mark Akurnesinga bar mjög
skjótt að. Þeir höfðu sótt upp
hægra megin, Matthías h. út-
herji skaut á markið, en Heimir
missti boltann fra sér og bak-
vörður skallaði frá, en boltinn
Ienti hjá Þórði Jónssyni, sem
drap hann niður á lærið og
skaut síðan og var heppinn að
boltinn fann leið gegnum vamar
flækjuna í markið og fram hjá
Heimi, sem lá á marklínunni.
Eftir þe'tta espuðust Akumesing-
ar upp um allan helming og sóttu
talsvert stíft til að byrja með og
vildu greinilega skora annað mark
til.
Eyleifur skapaði þó mestu hætt-
una þær mínútur sem eftir voru.
Hann átti laglegt skot af 25 metra
færi, en Einar Guðleifsson, hinn
ungi og efnilegi markvörður Akur-
nesínga bjargaði í hom.
Leikurinn í heild var mjög harð
ur og hefði dómarinn Magnús Pét-
ursson sannarlega mátt blístra
meira en hann gerði, og var þó
leikurinn oft eins og einleikskon-
sert fyrir flautu. Leikmenn beggja
liða hafa eflaust mætt til þessa
leiks með það í huga að berjast til
síðasta blóðdropa og það gerðu þeir
margir. Það er sem betur fer sjald
gæft að sjá knattspymulögin svo
fótum troðin sem gerðist í gærkv.
hvað eftir annað.
KR-liðið sýndi smákafla í fyrri
hálfleik, sem minnti talsvert á það
KR-lið, sem skemmti fólki hvað
bezt fyrir nokkrum ámm, en þráður
inn slitnaði og ekkert varð úr neinu.
Vörn KR var sterkasti hluti liðs-
ins í þessum leik, einkum Bjami
Felixson og Ársæll, en Heimir varði
vel þegar á hann reyndi. Ellert
Schram var og allgóöur og hon-
má þakka þetta eina mark, sem
skorað var. Eyleifur var sá maður
inn í framlínunni, sem barðist bezt,
en einhvem veginn er hann þó ekki
í sambandi við liðið. Hans einka
framtak var oft á tíðum glæsilegt
og hann lék oft vel á mótherja
sína, en árangurinn af öllu puðinu
var of lítill.
Akranesliðið hefur á að skipa
nokkrum kraftmiklum framh'nu-
mönnum og menn eins og Guðjón
Guðmundsson og Matthías eins og
hann lék í seinni hálfleik eru allt
af hættulegir. Þá átti Bjöm nokkuð
góðan leik. Jón Leósson stóð fyrir
sínu og Þórður Jónsson sömuleiðis,
enda þótt hann sé greinilega langt
frá því að vera í sínu bezta „formi“.
Vörnin er e.t.v. veikasti hlekkurinn
í liðinu, en markvörðurinn Einar
Guðleifsson er mjög vaxandi leik-
maður.
Áhorfendur voru margir á vellin
um í gærkvöldi eins og alltaf þegar
þessi tvö lið leika, hefur þó veðrið
áreiðanlega dregið talsvert frá.
Dómari var Magnús Pétursson og
dæmdi ágætlega þrátt fyrir erfiðan
leik, en hefði þó mátt vera ósparari
á áminningar til leikmanna um að
fara að settum reglum.
-jbp.-
Staðan
* 1. DEILII
Staðan í 1. deild er nú þessi:
KR — Akranes 1:1 (1: 0).
AKRANES 3120 4:3 4
KR 2 1 1 0 2:1 3
VALUR 3 111 4:2 3
ÞRÓTTUR 2 0 2 0 2:2 2
KEFLAVÍK 2 0 11 2:3 1
AKUREYRI 2 0 11 1:4 1
Iflæstu leikir
Þróttur — Vaiur á fimmtudag
Inn i Laugardal kl. 20.30.
Akureyri — Akranes á Akur-
eyri á sunnudag kl. 16.
Keflavík — KR. í Njarðvík
á sunnudag kl. 16.
Unglingalamls-
lið í körfu-
knattleik valið
i
Eins og sagt var frá í fréttum
í fyrra mánuði er væntanlegt til
Islands á næstunni unglinga-
úrval i körfuknattleik frá ríkinu
Rhode Island í Bandaríkjunum.
Liðlð mun leika hér 2 leiki þann
fyrri við unglingalandslið KKÍ,
en f þvi eru leikmenn 20 ára
og yngri, og einnig er áformað
að liðið leiki einn leik við ís-
landsmeistara KR.
Liðið er væntanlegt til lands-
ins hinn 23. júni og mun leika
í Laugardalshöllinni á föstudags
kvöldið þann 24. kl. 8.15 við
unglingalandsliðið og svo dag-
inn eftir við KR. Ot heldur liðið
á sunnudaginn 25. júní, og fer
í keppnisferðalag til Skotlands.
Gera má ráð fyrir að lið þetta
sé mjög sterkt og nægir að
benda á lið Kentucky State, sem
kom hingað í fyrrahaust og lék
við íslenzka landsliðið og vann
það. Er það mál manna að lið
Kentucky sé sterkasta lið, sem
til íslands hafi komið, en í
Bandaríkjunum stendur körfu-
knattleiksíþróttin með hvað
mestum blóma. Landsliðsnefnd
KKÍ hefur valið unglingalands-
liðið, sem leika á við úrvalsliðið
ameríska og eru f því eftirtaldir
leikmenn:
Hallgrímur Jónsson, Á,
Skúli Jóhannsson, ÍR,
Hallgrímur Geirsson, ÍR,
Anton Bjarnason, ÍR,
Amar Guðlaugsson, ÍR,
Agnar Friðriksson, ÍR,
Kolbeinn Pálsson, KR,
Gunnar Gunnarsson, KR,
Kristinn Stefánsson, KR, og
Sigurður Öm, KR.
Öll 16 löndin, sem berjast
munu í lokakeppninni á HM í
knattspymu i Englandl í þessum
mánuði eru nú önnum kafin við
undirbúning að keppninni og
leika hvern landslcikinn á fæt-
ur öörum í þessu skyni.-Hér fara
á eftir fréttir af undirbúningi
keppninnar.
-Á Uruguay, sem Ieikur i riöli
með Englandi, Frakklandi og
Mexikó vann i siðustu viku 2:1
landsllö Israels í Tel Aviv eftir
að hálfleik lauk 0:0. Öll mörkin
;omu á 6 mínútum í selnni hálf
eik. Fyrst skoraði hinn aldni
knattspyrnumaður Uruguay-
manna, hægri útherjinn Abbadie
á 22. min en 5 min. sföar jafn-
aöi innherjinn Spiegler fyrir ísra
el. En Abbadie var enn á ferð-
inni í næstu sókn og skoraöi sig
urmarklð. Um helgina léku Uru
uöu í Búkarest meö 0:1 og skor
aöi í Búkarest meö 0:1 og skor-
aði miöherjinn Iancu eina mark
iö á 33. min. Uruguay sótti nær
allan leiklnn, en hinn frábæri
markvörður Ionescu varði snilld
arlega og vann einvigiö við
þessa snjöllu knatt,'-''inumenn,
sem hyggjast verjn ! oiður lands
sfns, sem tvivegis hefur oröið
heimsmeistari i knattspymu.
★ V-Þjóðverjar unnu unglinga
landslið Austurrikis meö 4:0 um
helgina í Augsburg og höföu
þeir mikla yfirburöi í þessum
leik sfnum. Mörkin skomðu
Briills Held og Haller. Þjóö-
verjamir leika i rlöli með Sviss,
Spáni og Argentínu á HM.
Sveina-
meistara-
mótið
Sveinameistaramót Islands í
frjálsíþróttum fer fram í Reykjavik
dagana 25. og 26. júní n.k.
Keppt verður í þessum greinum:
Fyrri dag:
80 m. hlaup, kúluvarp, hástökk,
stangarstökk og 200 m. hlaup.
Síðari dag:
80 m. grindahlaup, kringlukast,
langstökk, 800 m. hlaup og 4x100
m. boðhlaup.
Þátttökutilkynningar sendist
Karli Hólm, c/o Olíufélagið Skelj-
ungur, Reykjavík fyrir 22. júní
1966.