Vísir - 18.08.1966, Síða 2
VtSIR - Fimmtudagur 18. ágúst 1966.
JVÖ VÍTI Á MÍNÚTU"
ÞEGAR FRAM VANN ÍBV
Vestntannaeymgar neituðu eftirvinnu í hraðfrystihúsun*
um tii að geta hvatt heimaliðið til dáða
Fram þokast nær fyrsta sætinu- í a-riðli 2. deildar. Þar hafa Framarar komizt
í hann ótrúlega krappan í sumar, enda þótt þeir eigi á að skipa langbezta liði
2. deildar-
í gærkvöldi vannst 2:1 sigur í Vestmannaeyjum, knappur sigur, en það var
dýrmætt að fara með bæði stigin af hólmi, en eins og Framarar sjálfir sögðu við
heimkomuna: „Við erum ekki komnir í úrslitin enn, — við eigum Vestmanna-
eyinga eftir á Melavellinum um aðra helgi.“
ROGER CLAESSEN, fæddur LUCIEN SPRONCK, fæddur
1941, miðherji, Valinn í lands-
lið 1961, en vegna meiðsla og
ofreynslu var hann lengi frá.
M. a. skorinn upp i hné. Hefur
æft vel að undanfömu og er
nú í fullu formi. Talar frönsku,
þýzku og ensku.
1939, miðvörður. Var í hemum
og fyrirliði knattspymuliðs
hersins í Oran 1961. Hefur oft
verið valinn í landslið. Stór
vexti og því meistari í að ná
háum sendingum. — Talar
frönsku, flæmsku, þýzku og
ensku.
Leikurinn í Eyjum fór fram í
fegursta veðri og mikill mann-
fjöidi kom til að horfa á leikinn
og hvatti allan tímann sína menn
með ráðum og dáð. Vinna átti
eftirvinnu eins og svo oft í hrað-
frystihúsum bæjarins, en starfs-
fólkið tók algjörlega fyrir það
vegna leiksins!
Það kom snemma í ljós f leikn-
um að leiknin og knatttæknin var
öll Fram-megin, en Eyjamenn
voru ívið harðari af sér. Bæði liðin
áttu sín tækifæri, en þegar yfir
lauk var greinilegt að það voru
Framarar sem farið höfðu með
réttlátan sigur af hólmi og hefði
sá sigur vel getað orðið stærri án
teljandi heppni.
• Á 31. mínútu kom eina mark
fvrri hálfleiks. Það var algjört
einstaklingsframtak hins leikna
innherja Fram, Helga Númasonar,
sem var þama að verki. Hann ein-
lék að markinu og skoraði laglega
fram hjá hinum góða markverði
Vestmannaeyinga, Páli Pálmasyni.
• Fram skoraði 2:0 á 25. mín.
í seinni hálfleik. Dæmd var víta-
spyrna á Vestmannaeyinga fyrir
hendi innan vítateigs og skoraði
Helgi Númason örugglega úr
spymunni.
• Á sömu mínútu dæmir ann-
ar Iínuvörðurinn(!) vítaspymu á
Fram, — nokkuð óvenjulegt atvik,
og skorar Viktor miðherji örugg-
lega úr þeirri spyrnu. Boltinn kom
hátt fyrir markið og ætlaði Þor-
bergur markvörður að slá boltann
frá markinu og fór yfir öxl eins af
leikmönnum Vestmannaeyinga.
Magnús Pétursson, dómari, sá að
því er virtist ekkert athugavert,
en Grétar Norðfjörð, línuvörður,
veifaði ákaft. Upp úr þessu var
dæmd vítaspyma og fannst mörg-
um að hér væm lagaverðir á hál-
um ís.
Vestmannaeyingar sóttu nú af
kappi og ógnuðu nokkuð öðru
hverju, en Fram átti sín tækifæri
en hvorugur skoraði mark eftir
þetta.
Fram fór því með stigin í þetta
sinn og hefur nú mjög góða mögu-
leika á að vinna sinn riðil og þá
ekki síður 2. deildina í úrslitum
gegn Breiðabliksmönnum í Kópa-
vogi.
Staðan
í 2. DIILD
Staðan í a-riðli 2. deildar er þessi:
St.:
f.B.V. 7 5 0 2 23:14 10
Fram 6 4 1 1 18:3 9
Víkingur 7 4 0 3 16:15 8
Haukar 8 3 2 3 19:16 8
Í.B.S. 8 0 1 7 6:35 1
► Til endurskipulagningar á hör
framleiðslunni á Norður-írlandi,
auglýsinga erlendis o.s.frv. hefur
veriö varið 18 millj. punda aö und-
anförnu. Árleg velta þessa iðnaðar
er 22 millj. punda og atvinnu í hon
um hafa 35.000 manns. Um 60%
framleiðslunnar er útflutningsvara
og fer til 150 landa.
XXX.
Við viljum leigja
til geymslu nokurn hluta af verksmiðjubyggingu okkar
sem er í smíðum í Árbæjarhverfinu. Sími 21220.
Frá leik Fram og Eyjamanna í Vestmannaeyjum í gær.
EVRÓPUBIKARINN:
Valsmenn ,,\ grænu#/ gegn
Standnrd Liege á mánudag
Það var auðheyrt á Vals-
mönnum í gærdag á fundi með
blaðamönnum, að þeir gera sér
ekki of háar hugmyndir um
Ieik sinn í Evrópubikarkeppn-
inni (bikarmeistara), sem háður
verður á mánudagskvöldið I
Laugardal. Þeir vita að STAND
ARD LIEGE, belgíski mótherj-
inn, er atvinnulið á heimsmæli-
kvarða, með sigra yfir liðum
eins og Glasgow Rangers 1
„kvartfínal“ Evrópukeppninn-
ar, sigra yfir Dukla Prag og
Notthingham Forest svo eitt-
hvaö sé nefnt.
Valsmenn munu verða í ó-
venjulegri aðstöðu í þessum
leik, — þeir leika í GRÆNU,
en „Valsbúninginn“ bera gest-
irnir, því þeirra félagsbúning-
ur er eins og búningur gest-
gjafanna og munu Valsmenn
þvi bera sinn rétta búning i
seinni leik liðanna í Liege.
Standard varð fyrst Belgíu-
meistari 1959, en hafði oft
verið í úrslitum áður. Félagið
tók þátt í Evrópukeppni 1959
og komst I „kvartfinal“, þar
sem það sigraði Stades de
Reims í Liége en tapaði i
Reims, og var þar með úr. —
1960 varð Standard aftur
Framh. á bls. 6.
LÉON SEMMELING, fæddur
1940, hægri útherji. Reglulega
valinn í landslið. Itölsk og
spænsk félög hafa mjög sótzt
eftir honum.
Stutt...
► Skíðaráð Reykjavíkur minnir
skíðakeppendur á stórsvigsmótið
i Kerlingarfjöllum á laugardaginn
kemur (20. ágúst). Mótið hefst
laust eftir hádegi á laugardaginn
og eru keppendur beönir að vera
mættir á mótsstað á föstudags-
kvöldið þann 19. — Áætlunarbíll
fer í Kerlingarfjöll frá Umferðar-
miðstöðinni á föstudagskvöld kl. 8.
Skiðafólk er minnt á að kaupa far-
seðlana á fimmtudaginn. Keppend-
ur eru beðnir að hafa nesti og við-
leguútbúnað með í förinni.
^ 3. hluti Meistaramóts íslands
fer fram á Laugardalsvellinum 20.
og 21. þ. m. Keppt verður í tug-
þraut, fimmtarþraut kvenna, 4X
800 m boðhlaupi og 10 km. hlaupi.
Jafnframt sem mót þetta er
Meistaramót íslands er þaö lands-
keppni í tugþraut milli íslands og
A.-Þjóðverja. 19. þ. m. koma til
landsins 4 Þjóðverjar, þ.e, 3 kepp-
endur og fararstjóri þeirra.
Keppendur Island hafa verið
valdir þeir Valbjörn Þorláksson,
KR, Kjartan Guðjónsson, ÍR, og
Ólafur Guðmundsson, KR. Tveim
þeim fyrstu frá hvoru landi eru
reiknuð stig í keppninni.
A.-Þjóðverjar hafa átt marga
góða tugþrautarmenn og má búast
viö mjög góðri keppni.
► Unglingakeppni FRÍ 1966 fer
fram dagana 27.—28. ágúst 1966.
Keppt verður í eftirtöldum grein-
um:
SVEINAR:
100 m hlaup, 400 m hlaup, 800
m hlaup, 80 m grindahlaup, há-
stökk, langstökk, stangarstökk,
kúluvarp, kringlukast og spjót-
kast.
DRENGIR:
100 m hlaup, 200 m hlaup, 400
m hlaup, 800 m hlaup, 1500 m
hlaup, 110 m grindahlaup, hástökk,
langstökk, stangarstökk, þrístökk,
kúluvarp, kringlukast, spjótkast,
sleggjukast.
STÚLKUR 18 ára og yngri:
100 m hlaup, 300 m hlaup, 80
m grindahlaup, hástökk, langstökk,
kúluvarp, kringlukast, spjótkast.
Æskilegt er að tilkynningar um
afrek berist frá sambandsaðilum
til FRÍ nú þegar, en fjórir beztu af
öllu landinu eiga rétt á að mæta til
úrslitakeppninnar.
Stjóm FRÍ greiðir helming af
fargjaldi þeirra, sem komast f úr-
slitakeppnina.