Vísir - 20.08.1966, Síða 16
VISIIC
Gabriei Axcl (snýr baki í
myndavélina meö derhúfu) ræö
ir við leikarana áöur en eitt
atriðiö er tekið. 'f'
Ein mesta söltunarskorpa, sem um
getur síðun siidveioar hófust
Síldarhrotan undangenginn
sólarhring er einhver sú mesta
sem komið hefur síðan síldveið
ar hófust hér við land. Sólar-
— Spjallað v/ð
nokkra s'ildar-
saltendur
hringsaflinn til kl. 8 á föstu- (eða ca. 92.000 mál). Ágæt veiði
dagsmorgun var 13.276 tonn var einnig I gær eSnkum á svæð
inu suður af Jan Mayen, en ein
hver veiði var og 100-120 míl-
ur út af Gerpi. Síldin er ágæt-
lega söltunarhæf og er nú salt
að af fullum krafti á velflestum
höfnum á Norður- og Austur-
Iandi. Síldarskipin tóku að
streyma drekkhlaðin inn á hafn
irnar um miðjan dag i gær. Sölt
unarstúlkur voru fluttar mllli
Austfjarðahafna í flugvélum eft
ir því hvar mest var um að vera
og víða var leitað eftir fólki
upp um sveitir í nágrenni síldar
bæjanna.
Allar söltunarstöðvar í Eyja-
firði fylltust af síld, og á Siglu-
firði átti að salta á 8 stöðvum.
Þaöan var leitað eftir fólki til
vinnu við aflann í sveitum
Skagafjarðar og allt vestur á
Framh. á bls. 6.
lokaatriði Raucu skikkjunnar tek-
m i
Grindavík
V'isir heimsækir kvikmyndaflokkinn
Kvikmyndun „Rauðu skikkj-
unnar“ hófst aftur í gær cftir
nokkurt hlé, en kvikmynda-
flokkurinn hefur verið fluttur
norðan úr Kelduhverfi til Grinda
víkur, bar sem seinustu atrið-
in verða tekin-hér á landi. 1 gær,
þfcgar tíðindamenn Vísis heim
sóttu kvikmyndahópinn, þar
sem hann var staddur í fjörunni
undtr Festarfjalli fyrir austan
Grindavik var mikið um að vera
og loftið lævi blandið.
Unnió var við að kvikmynda
þegar Sigurður konungur (Gunn
ar Bjömstrand) kemur ríðandi
með húskarla sína og hinn flá-
ráða Hildigísl og þeir finna
syni Sigurðar (og bræður Sig-
nýjar) og bræður Hagbarðs
vegna, en Hagbarö einan lif-
andi eftir orrustuna, sem Hildi-
gísl hafði komið af staö milli
bræðrahópanna.
Taka varö hvert atriði aftur
og aftur og var ekki laust við
að sumir leikaranna og kvik-
myndagerðarmanna yrðu smá-
vægilega herskáir. Þegar búið
var 'að snúa Gunnari Bjö.rn-
strand viö margsinnis til að ríða
með hópinn niður klif, sem ligg
ur að orrustuvellinum, mátti
heyra hans hljómmiklu rödd
langar leiðir með hljómfalli, sem
þýddi: „Nú em ek reiðr.“ —
Gunnar er einstakt prúðmenni
sögðu íslenzku leikararnir og
hefur yfirleitt verið i þeim mun
betra skapi, sem allt hefur
gengið verr, en hann er greini-
lega orðinn þreyttur.
Gabriel Axel, leikstjórinn
var einnig greinilega orðinn
taugaveiklaður. Þegar tíðinda-
maður nálgaðist hann til að
ræöa við hann nokkur orð, sagð
ist hann vona að tíðindamanni
liði vel og hvarf á brott með
það.
Þetta er alltaf svona, sögðu
þeir, sem hafa fylgt flokknum
hér á landi. Þegar skipt er um
stað virðist ætíð vera nokkur
taugaspenna meðan leikarar og
leikstjórar eru að átta sig á um
hverfinu.
Hagbarður (Rússinn Oleg Vi-
dov), Signý (Gitte Hænning) og
Hildigísl (Manfred Reddemann)
voru þó rólegri, enda eru
þau ekki enn orðin viðurkennd
ir leikarar á heimsmælikvarða
og þess vegna ekki eins vön list
rænum tilburðum.
Lokið verður við að kvik-
mynda viö Grindavík f næstu
viku ef allt gengur eins og á-
formaö er. Flýgur hópurinn þá
til Stokkhólms, þar sem inni-
atriði verða tekin. Verður vænt
anlega búiö að ganga frá mynd
inni um nýár og verður mynd
in þá frumsýnd samtímis f
Reykjavík, Stokkhólmi og Kaup
mannahöfn.
.íotary-rorsetinn í
heimsókn hingað
Á mánudaginn kemur hingaö
fil lands Richard L. Evans, forseti
Alþjóða Rotaryhreyfingarinnar.
' lun hann flytja fyrirlestra fyrir
“'/'iaryfélaga í Reykjavík og ná-
~ " ni og ræða við stjórnir klúbb-
anna.
Evans er forseti félagsskapar,
— t "ilur 600.000 félagsmenn f 12.
’ílúbbum í 133 löndum. Hann
mun í erindi sínu ræða um, hvernig
Rotaryfélagar geti þjónað þörfum
sveitarfélaganna og starfað aö
Richard L. Evans
æskulýðs-, mennta-, heilsugæzlu
og ö.ryggismálum, Kjörorð samtak-
anna á þessu ári er: Látum þetta
ár skipta máli í starfi Rotary fyrir
bættum heimi.
Evans er útvarpsmaður, sem
stjórnar og semur vikulega þætti
fyrir útvarpsstöðvakeðju í Banda-
ríkjunum. Mann er einn af leiðtog
um Mormónakirkjunnar í Utah, í
skólanefnd Utah-háskóla og i fjár-
málaráði Brigham Young háskólans
Hann er heiðursdoktor í lögum. Þá
hefur hann ritað 10 bækur.
Hann kemur hér við á ferð sinni
til 30 Evrópulanda.
Sigurður konungur (Gunnar Bjömstrand) til vinstri og Hildigísl (Manfred Reddemann) ræða við lelk-
stjórann um hvemig þeir eigi að haga sér, þegar þ eir sjá lík konungssonanna fimm.
Höfn á Bíldudal fyrir 7 millj. kr.!
Miklar framkvæmdir hafa ver
ið á Bíldudal í sumar. Verið er
að vinna að stórfelldum hafn-
arframkvæmdum á staðnum.
Verið er að ljúka viö stóra
barnaskólabyggingu, þá er og
nýbyrjað á stöðvarhúsi Pósts og
síma á Bíldudal. Mikil vinna
hefur verið við hinar ýmsu fram
kvæmdir á staðnum og einnig í
hraðfrystihúsinu, en þar hefur
verið mikil vinna, en bátar það
an hafa fiskað vel á snurvoð i
sumar. Fréttaritari Vísis á
Bíldudal símaði í gær:
Framkvæmdum við hafnar
gerðina hefur miðaö vel áfrarn
í sumar. Á þessu ári var veitt 7
millj. kr. í þessar framkvæmd-
ir, sem munu bæta mjög við-
leguaðstöðu báta við bryggjur
hér. Þegar er lokið við að reka
niður stálþil, samtals 27 m á
lengd. Er það í vinkil, fyrst 15 m
út frá gömlu steinbryggjunni og
síðan 12 m. hornrétt á það. Eft
ir er að fylla upp á milli stálbil
anna, en líklega eru um 8-10
m. á milli þeirra. Verður það
mjög mikil uppfylling. Gert er
ráð fyrir, að unnt veröi að taka
hið nýja hafnarmannvirki í notk
un fyrir vetrarvertíðina. Yfir-
verkstjóri við þessar fram-
kvæmdir hefur verið Berg-
sveinn Breiðfjörð.
Mikil atvinna hefur verið í
hraðfrystihúsinu á staðnum r
sumar. Samtals eru gerðir út 5
Framh. á bls. 6