Vísir - 22.08.1966, Blaðsíða 1

Vísir - 22.08.1966, Blaðsíða 1
VÍSIR 56. árg. — Mánudagur 22. ágúst 1966. — VíkingaskipiÖ kvikmynd að í Dyrhóiaósi í dag Taka þýzku kvikmyndarinnar „Die Niebelungen" hófst aust- ur við Dyrhólaey í gær og mun standa yfir næstu daga, en þar er m. a. kvikmyndað atriðið er Sigurður Fáfnisbani siglir skipi Myndin er tekin f morgun af hinu nýja bifreiðastæði við Iðnskólann. (Ljósm. Vísls. B. G.). sínu að landi. Var vikingaskip eitt mikið með diekahöfði smíð- að i Njarðvíkum og flutt austur, eins og skýrt hefur verið frá. Vísir hafði í morgun samband við Þorleif Hauksson sem er með kvikmyndafólkinu fyrir austan og sagði hann að allt hefði gengið að óskum til þessa. Var byrjað að kvikmynda í víkingaskipinu í gær og því fram haldið í dag og verður töku í skipinu lokið í dag eða á morgun. Var jarðýta látin stífla Dyrhólaós og skipinu siglt fvrir ósinn þannig aö liti út sem skipið kæmi af hafi. Er kvik- myndatökunni er lokið verð- ur ósinn opnaður og skipið dregið út. Síðan verða kvik- mynduð nokkur önnur atriði myndarinnar, m. a. atriðið þar sem kveikt er í „benzíneldfjall- inu“. Á 9. síðu blaðsins í dag eru viðtöl sem Visir tók við nokkra úr kvikmyndaleiðangrinum rétt áður en þeir héldu austur á Iaugardag. Stærsta bifreiðastæði borgar- innar nær íuiigert — Stendur á lóðinni milli Hallgrimskirkju og Iðnskólans. Rúmar nær 100 bifreiðir Flestir borgarbúar þekkja vöntunina fyrir bílastæöi í borg inni af elgin raun. Þó verður að segja, að nokkuð hefur á- unnizt í þelm málum í sumar, og hlýtur það að verða mjög æskileg þróun. Innan skamms verður tekið f notkun stærsta bílastæðiö í allri Reykjavíkur- borg, og mun bað taka allt að 100 bifreiðir. Bílastæði þetta er á Ióðinni milli Hallgrímskirkju og Iðnskólans á Skólavörðu- holtí. Þeir, sem hafa lagt leið sína tii messu ví Hallgrímskirkju og einnig nemendur Iðnskólans, sem margir hverjir (líklega flest ir) eiga bifreið, hafa oft ient í miklum erfiðleikum við að finna stæði fyrir bifreiðir sínar, og má því segja, að hið nýja stæði bæti úr brýnni þörf. Hið nýja bifreiðástæði mun vera ætlað til sameiginlegrar notkunar fyrir nemendur og starfsfólk Iðnskól ans og kirkjugesti í Hallgríms- kirkju. Undanfarið hefur staðið yfir malbikun bifreiðastæðisins, og mun henni nú vera nýlega lokið, en stæðið verður tekið í notkun strax og lokið er við að steypa kanta, en það verk stend ur nú yfir. Einhver fleiri bifreiðastæöi mr.iu vera í bígerð í borginni nú sem stendur, t.d. er eitt þeirra á lóðinni að Laugavegi 7, og þá má einnig benda á hið nýja skipulag hafnarinnar, sem Samþykkt var í borgarráði ný- lega en þar er gert ráð fyrir bifreiðastæðum eða geymslum ofan á þaki vöruskemmanna, sem þar eiga að rísa i framtíð- inni. Af þessu má sjá að unnið er að lausn þessa vandamáls, sem aldeilis ekki er neitt eins- dæmi hér á landi heidur er eitt aðalvandamálið í hverri =r 40 eriendir stúdentar bafa látið innrita sig í keknisfræði Innritun í allar deildir Há- skóla Islands Iauk hinn 1. ágúst s.I. Alls létu 297 nemendur skrá sig í Háskólann á haust- misseri og er það um 10 fleiri en í fyrra. Athyglisverðast við þessa skrásetningu er vaxandi aðsók.; að læknadeild skólans, en nú láta 65 innrita sig í hana. Þá er og athyglisvert, að 40 nem Hraunrennslið hefur vuxið í Surtsey Surtur gamli heldur áfram að gjósa og fór hraunrennsli vaxandi á laugardag en hefur verið nokkuð jafnt síðan, 8—10 rúmmetra á sek. að því er Árni Johnsen tjáði blað- inu f morgun. Mikið er um ferðir manna út í Surtsey um helg ina og er fjöldi vísindamanna þar við athuganir nú. Fjöldi flugvéla flaug yfir gosstaðinn um helgina og skip sem voru á ferð í nágrenni Surtseyjar sigldu nálægt landi, m. a. Ilerjólfur sem fór með farþega frá Vestmanneyjum að skoða gos- ið. endur frá hinum Norðurlöndun- um Játa innrita sig í læknis- fræði hér við Háskólann, og eru flestir þeirra Norðmenn. Annars er heildartölur þessar: Guðfræði 2 (minna en í fyrra), læknisfræði 65 (ekki meðtaldir erlendir stúdentar), tannlækningar 16 (ekki vitað, hve margir komast inn í hana, en þeir sem hafa látið innrita sig í tannlækningar, hafa inn- ritað sig [ læknisfræði til vara), lvfjafræði lyfsala 5, lögfræði 36, viðskiptafræði 25, verkfræði 32, heimspekideiid 116 (þar af Framh. á bls. 6 Tvö dröttar- vélarsiys á Snæfellsnesi Tvö dráttarvélaslys urðu á Snæfellsnesi um helgina. Hið fyrra varö um kvöldmatarleytið á laugardag. 12 ára drengur úr Reykjavík var að aka dráttarvél á túninu að Grund í Eyrarsveit og lenti vélin í skurði og varð drengurinn undlr henni. Voru þegar gerð boð eftir lækni og drengurinn fluttur á spítala í Stykkishólmi. Var læknirinn þar um tvo tíma að gera að sár um hans. Hafði hann marizt mikið og hlotiö eitt beinbrot, en var talinn úr lífshættu, þegar blaðið vissi síðast til. Hitt slysið varö að Setbergi í Skógarstrandarhreppi, Hús- freyjan á bænum Ólafía Þor- steinsdóttir varð undir dráttar- vél, sem hún hafði verið að aka eftir túninu. Er talið að kon an hafi mjaðmargrindarbrotnað. Hún var einnig flutt í sjúkrahús ið f Stykkishólmi. Bæði þessi slys eru nú í rann sókn hjá sýslumanni Snæfells- nes og Hnappadalssýslu í Stykk ishólmi. Þrjú iík bandarískra fiugmanna fundust uppi ú Eyjafjaiiajökii Lík af þremur mönnum fund ust á Eyjafjallajökli á laugar- daginn. Af hlutum, sem fund ust viö líkin má ráða að hér eru komin fram lík af bandarísk um flugmönnum, sem fórust í maí ’52. Fundust giftingarhring ir, armbandsúr, armband, pen- ingaveski og annað með nöfnum mannanna. 5 Bandaríkjamenn voru í flugvélinni þegar hún fórst 1952, en áöur hefur fund izt lík af einum, en leifar af öðrum og eru þeir því allir fundnir. Það voru tveir menn, sem unnu við jöklamælingar á skrið jöklinum, sem fellur norður úr Eyjafjallajökli, sem fundu líkin, Fundust þau um 200 metra frá lóninu, sem þar er. Líkin voru mjög illa farin og óþekkjanleg með öllu, enda hafa þau velkzt með skriðjöklinum í rúm 14 ár. í gærmorgun fór 25 manna hópur frá Flugbjörgunarsveit- inni í Reykjavík austur, en á sama tíma var farið með þyrlu frá varnarliðinu til að sækja lík in. Var farið með þau til Kefla víkurflugvallar. Bandaríska flugvélin, sem fórst var björgunarflugvél. Hún hafði aöeins veriö um viku- tíma hér á landi, þegar hún fórst hinn 16. maí 1952 og voru allir flugmenn hennar óvanir íslenzkum staðháttum. Þegar flugvélin fórst hafði hún flogið á móti annarri flugvél, sem var með bilaðan hreyfil. Þegar óttazt var um flugvél- ina, fór hópur flugbjörgunar- manna austur að Eyjafjalla- jökli. Hópurinn fór þegar fyrsta daginn uþp á jökulinn, en varð að snúa við vegna blindhríðar, sem hélzt í nokkra daga. Þegar flugvélin fannst nokkrum dög- um síðar, fannst aðeins eitt lík við flak vélarinnar, en merki sáust um, að hinir fjórir höfðu lifað af slysið. Fundust mannaspor umhverf is flugvélina, en einnig fundust merki þess að þeir hefðu sent á Ioft blys og dreka til að vekja athygli á sér. , í maí 1964 fundust leifar af manni á jöklinum, en einnig fannst giftingarhringur á staðn um með dagsteningu, sem átti við einn Bandaríkjamanninn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.