Vísir - 22.08.1966, Page 6
6
V í SIR. Mánudagur 22. ágúst 1966.
Beyer —
Framhald gf bls. 9.
svona stórt hlutverk þegar mað
ur hefur enga þjálfun sem leik-
ari og erfiðleikamir sem maður
þarf að yfirstíga em margir. —
En þetta er skemmtileg reynsla
auk þess sem kaupið freistaði.
— Ætlið þér að leika í ann-
arri mynd ef tækifæri býðst?
— Þegar maður er ekki leik-
ari er of mikið að leika í mörg
um mvndum. Auk þess get ég
ekki þjálfað mig reglulega, en
íþróttimar eru mitt aðalháhuga
mál og tómstundastarf.
—■ Hvert er aðalstarfið?
— Ég er raftæknifræðingur
og ætla mér í framhaldsnám í
þeirri grein.
Henninger —
Framhald af bls. 9.
de Bergerac, en hann er grát-
brosleg persóna með geysistórt
nef. Þegar töku „Die Niebelung-
en“ er lokið fer ég til Ziirich til
að leika Atahuslpa Inkakonung
í leikriti, sem nú er verið að
leika f National Theater í Lond
on og nefnist „The Royal Hunt
of the Sun“ — ég fer úr gervi
Giinthers konungs (Gunnars
Gjúkasonar) f gervi Inkakon-
ungs suður f Perú.
Korytowski —
Framhald af bls. 9.
iðju og ætti því ekki að skorta
eldfjall til myndatökunnar og
það meira að segja alvörueld-
fjall. Enda lét framkvæmdastjór
inn óspart í Ijósi ánægju sfna
yfir þessari stefnubreytingu
Surts kvikmyndinni f vil.
NÝ JAMES BOND-STJARNA
LEIKUR BRANDHILDAR
BUÐLADÓTTUR.
— Meðal leikendanna eru
margir þekktir Jeikarar. Fyrir ut
an þá, sem sþjallað er við
hérna á síðunni leika í myndinni
Maria Marlow, sem leikur
„Krimhild" eða Grfmhildi, Sieg
fried Wischnewski, sem leikur
„Hagen“ eða Högna.
— Álfakónginn, eða Alberich
leikur Skip Martin frægur ensk-
ur leikari, segir Korytowski,
sem hefur m.a. leikið f MGM-
myndum.
— Hann er dvergur, en dverg
ar koma mjög við sögu Niflunga
og eru raunar örlagavaldar
myndarinnar. Samkvæmt sögn-
um, sem skráðar eru Snorra-
Eddu áttu þeir gullið sem orm-
urinn Fáfnir lagðist á og baug
þann er mestri óhamingju veld
ur í sögunni, frændavígum og
mága, en þau álög fylgdu honum
að hver sá er hann eignaðist
skyldj týna lífinu.
— Þá má ekki gleyma einni
aðalstjörnunni, Karin Dor, sem
leikur Brynhildi Buðladóttur.
— Hún hefur verið að leika í
nýrri James Bond mynd, sem
tekin, er f Japan, segir fram-
kvæmdastjórinn, og kemur hing
að seinnipartinn í dag (laugar-
dag) beint frá Japan með við-
komu í Kaupmannahöfn. — Alls
er þetta 35 manna hópur, sem
kemur hingað til að vinna að
myndinni. En 15 aðstoðarmenn
íslenzkir munu einnig starfa við
hana, aðallega „statistar“. Tveir
íslenzkir hestar verða notaðir.
Það er Ragnhildur Steingríms-
dóttir sem útvegar þá.
— Það er þegar búið að vinna
í 4 mánuði við myndina f Júgó-
slavíu. Hér verðum við í 16
daga og síðan á að ljúka við
hana á einum mánuði í Júgó-
slavfu. Þar hafa verið reistar
heilar borgir, sem samræmast
riddarasögunum.
— Ég vil .taka það fram að
lokum, sagði Korytowski, að ís
lendingamir, sem við höfum leit
að til og hafa verið okkur til
aðstoðar, hafa sýnt einstaka lip-
urð og verið fljótir til að leysa
úr vandamálunum. Ég skil ekk-
ert í því að íslendingar skuli
ekki fara meira út í kvikmynda
framleiðslu. Þeir hafa greinilega
ágætt fólk til þess og svo þetta
stórkostlega landslag.
íþróttir —
-mhald af bls 2
iínuna. I heild má segja að Þrótt-
arliðið hafi komið vel frá leiknum,
Ámerískai — gluggastengur
gott verð — Vandaðar stengur.
Litaver s.f.
Grensásvegi 22-24______
Amerísk ungbarnaföt
Tilvalin til sængurgjafa
en e.t.v. var harkan í liðinu ekki
nægilega mikil á móts við Kefl-
vfkingana.
Þróttarar voru að vonum óánægð
ir með úrslitin, enda munaði
minnstu að þeir skoruðu skömmu
fyrir leikslok, en þá hefði liðið
eflaust dregið sig til baka og getað
haldið hreinu marki sfnu og stað-
án í deildinni væri þá mun sterk-
ari en hún er nú. öm Steinsen,
þjálfari Þróttar sagði að leik lokn-
um: „Við erum enn ekki fallnir
og við munum berjast til enda.
Tveir leikir en eftir og við munum
leggja okkúr alla fram f þeim
leikjum. í sambandi við leikinn í
dag verð ég að láta í ljós furðu
mfna á framkomu vallargesta í
Keflavík, sem létu glósurnar dynja
á okkur allan tímann. Það er held-
ur óíþróttamannsleg framkoma og
ber að fordæma". — Jbp —
Stúdentar —
Framhald af bls. 1.
92 f BA-deild og 24 í forspjalls-
vísindi). í öllum þessum tölum
eru erlendir stúdentar ekki
taldir með, en reiknað er með,
að fjöldi þeirar verði svipaður
og f fyrra, eða 20—30. Eru það
bæði styrkþegar ríkisstjómar-
innar og þeir, sem koma hingað
á eigin vegum. Athyglisvert er,
að 40 erlendir stúdentar hafa
látið innrita sig í lækna-
deildina hér, eru það 37 Norð-
menn, 2 Finnar og 1 Svíi. Staf-
ar þetta m. a. af þvf, að í öðr-
um háskólum á Norðurlöndum
þarf vissa lágmarkseink-
unn til að mega setjast í lækn-
isfræðideild viðkomandi háskóla
og þessi einkunn samsvarar allt
að því ágætiseinkunn. Undanfar
in ár hafa nokkrir erlendir stúd-
entar stundað nám hér við Há-
skólann f læknisfræði og er
gert ráð fyrir, að svp verði enn,
en unnt mun vera að taka við
5—6 erlendum stúdentum í
læknisfræðideildina á komandi
hausti.
Smávaxnir
innbrots-
þjófor
Innbrot var framið í sælgætis-
söluna f Laugarásbfó) á laugardag-
inn. Höfðu „innbrotsþjófamir“
brotið rúðu í hurð kvikmynda-
hússins og komizt þannig inn að
sælgætissölunni. Létu þeir greipar
sópa um sælg .tið. ■— Það komst
upp um þá, er þeir fengu maga-
pfnu nokkrum klukkustundum sið-
ar, en þeir vora aðeins 2ja og 4ra
ára.
I kvöld byrjar Jazzklúbbur
Reykjavikur starfsemi sína að
nýju, eftir tveggja mánaða hvfld i
sumar-
Á jazzkvöldinu í kvöld munu
m. a. leika þeir Þórarinn Ólafsson,
Rúnar Georgsson, Ámi Scheving
og Pétur Östlund.
Þvottahúsið LÍN auglýsir
Viljum taka að okkur þvott á alls konar stærri þvottj,
svo sem dúkum, handklæðum, þurrkum, sloppum o.fL
Erum í nýju húsnæði með mjög góðum vélum í Ár-
múla 20.
Sækjum og sendum þriðjudaga og föstudaga. Reynið
viðskiptin og hringið í síma 34442.
ÞVOTTAHÚSIÐ LÍN H.F.
Ármúla 20.
Aukin bjónusta
Á næstunni munum vér taka upp siglingar til
London. Umboðsmenn vorir í London verða:
Cutting & Co. Ltd.,
Alibion Yard,
Surrey Commercial Dock,
London S. E. 16.
Sfman Bermondsey 4361 og 4202
Telex: 21505
Símskeyti: Culcut, London.
Lestunardagar skipa vorra verða sem hér
segir:
LONDON: HULL:
Laxá 21.9 — Laxá 26.10 — Laxá 24.8. — Rangá 8.9. —
Laxá 30.11.
ANTWERPEN:
Rangá 1.9 — Selá 13.9 —
Rangá 5. 10 — Laxá 28.10. —
Selá 23.11. — Rangá 14.12.
ROTTERDAM:
Rangá 22.9 — Laxá 23.9. —
Selá 19.10. — Rangá 9.11. —
Laxá 2. }2. — Selá 28.12.
HAMBORG:
Laxá ,27.8. — Rangá 6.9. —
Selá 17.9. — Laxá 27.9. —
Rangá 8.10. — Selá 22.10. —
Laxá 1.11. — Rangá 12.11. —
Selá 19.9. — Rangá 10.10. —
Selá 24.10. — Rangá 14.11. —
Selá 28.11. — Rangá 19.12. —
Selá 2.1. ’67.
GDYNIA:
Langá í síðari hhita september.
GAUTABORG:
Skip fyrri hluta september —
Langá sfðari hluta september —
skip fyrri hluta október.
KAUPMANNAHÖFN:
Skip fyrri hluta september —
Langá sfðari hluta september —
Skip fyrri hluta október.
Selá 26.11. — Laxá 6.12. —
Rangá 17.12. — Selá 30.12.
Nánar auglýst síðar um lestunardaga í þrem
Geymið auglýsinguna
i
:
3-5 herb. íbúð óskast !
0
nú þegar eða 1. okt. í Reykjavík, Kópavogi |
eða Hafnarfirði. Uppl. í síma 20818. (i
VÖRUHAPPDRÆTII S.I.P.S.
Aðalumboð Vöruhappdrættís er flutt úr Westurveri
í AUSTURSTRÆTI 6 2 HÆÐ