Vísir - 22.08.1966, Síða 8

Vísir - 22.08.1966, Síða 8
8 V í S I R . Mánudagur 22. ágúst 1966. VISIR (Jtgefandi: BlaQaútgátan VISIR Ritstjöri: Gunnar G. Schram ABstoðarritstjórl: Axe) Thorsteinson Fréttastjóri: Jónas Kristjánsson Augiýslngastj.: Halldór Jónsson Auglýsingar Þingholtsstræti 1 Afgreiðsla: Túngötu 7 Rltstjöm: Laugavegi 178 Slmi 11660 (5 llnurt Askriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands. t lausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f Um hvað er barízt? f Þjóðviljinn hamrar mjög á því, að stuðningsblöð ísienzku ríkisstjómarinnar láti stjórnast af banda- , rískum áróðri í skrifum um styrjöldina í Vietnam. j Það kemur nú raunar úi: hörðustu átt, þegar Þjóð- ) viljinn bregður öðrum blöðum um þjónkun við er * lend sjónarmið. Ekkert íslenzkt blað hefur fyrr eða síðar þjónað erlendum skoðunum af hvílíkri kost- ' gæfni sem Þjóðviljinn. Er þess skemmst að minnast | nú fyrir fáum dögum, þegar þar voru birtar frásagn- J ir um hátíðahöldin í Austur-Berlín, í tilefni af 5 ára , afmæli „múrsins“, ásamt langri grein, þýddri, um i nauðsyn þessa mannvirkis í þágu friðar og frelsis í • heiminum. Leyndi sér ekki velþóknun blaðsins og ' bjargföst trú á „sælunni“ fyrir austan Berlínarmúr- inn. ! I Sama er uppi á teningnum þegar Þjóðviljamenn eru , að skrifa um átökin í Vietnam. Þar mætti helzt > hugsa sér að þýtt hefði verið upp úr kínverskum 1 blöðum og tínt saman það sem af mestu ofstæki hefur verið talað og ritað um þetta mál meðal komm- únista austur þar og víðar. Þjóðviljinn heldur því fram, að fari Bandaríkja- , menn með her sinn frá Vietnam, muni friður og r hamingja ríkja í landinu og þjóðin fá þá stjórn, sem hún óski. Hún muni eftir það fá að lifa óáreitt í sátt við nágranna sína og byggja upp farsælt þjóðfélag. Mikil böm mega þeir vera, sem þannig tala og , skrifa, ef þeir trúa sjálfir því sem þeir eru að segja. Allir, sem hafa opin augu og fylgjast nokkuð með gangi heimsmálanna, vita, að um leið og Bandaríkin kveddu her sinn brott frá Vietnam, mundu Kínverjar hremma landið og undiroka þjóðina. Rauða Kína fer ekkert dult með þá fyrirætlun sína, að leggja und- ir sig alla Asíu. Þeir íbúar Suður-Vietnam, sem gera sér grein fyrir þessari hættu, vilja heldur færa þær fómir, sem þeir nú gera, en lenda undir jámhæl Kfn verja. Þeir hafa t.d. heyrt um örlög Tíbetbúa og ann arra sem nú lúta valdi kínverskra kommúnista. Hvað skyldi stór hluti kínversku þjóðarinnar sjálfrar vilja fóma miklu til þess að losna undan harðstjóm þeirra? Það sem nú er barizt um í Vietnam, er hvort komm únisminn ,í sinni verstu og villimannlegustu mynd á að flæða yfir alla Asíu tálmunarlaust, eða hvort stemma skuli stigu við útbreiðslu hans. Um þetta geta verið skiptar skoðanir. Þeir, sem telja einræði og miskunnarlausa harðstjóm æskilegasta stjómarfyr irkomulagið, styðja vitanlega áform Kína, hinir, sem vilja frelsi og lýðræði, berjast gegn kommúnisma. Um þetta er barizt í Vietnam og það skiptir miklu máli fyrir allan heiminn, hvemig þeim átökum lýkur. Eldflaugastöðin á Kennedyhöfða, þaðan sem tunglfarinu verður skotið. Á miðri myndinni sést sam- setnlngarhúsið og á bak við það skotpallstum. Tunglið er girnilegt — þrátt fyrir kostnaðinn vib ferðalagið Á laugardaginn var birt hér í Vísi grein um eld- flaugastöðina miklu á Kennedyhöfða, þar sem nú er verið að vinna af kappi að undirbúningi land- göngu á tunglið. Þar var sagt, að kostnaður við fyrstu ferð mannsins til tunglsins mundi nema um 1000 milljörðum ísl. króna. Nú kunna menn að spyrja, hvað Bandaríkjamenn ætli sér að vinna á öll um þeim fjármunum, sem eytt er í tunglrannsókn- ir. T^olumbus vissi ekki hvað beið hans þegar hann sigldi vestur, og hvorki Eiríkur rauði né Leifur heppni vissu, hvað þeir voru raunar að gera, þegar þeir sigldu í vestur. Það liggur sjálfsagt í eðli Banda- ríkjamanna, sem íbúa ungrar heimsálfu * að bæta nýjum kafla viö landafundasöguna og kvitta þannig fyrir þá atburði sem færðu þeirra eigin land á landabréf. Það getur verið og er jafnvel líklegt að Bandaríkjamenn verði fyrstir til tunglsins, þótt þeir verði þar ekki með rieina einokun. Þeim hefur gengið mjög vel í öllum tilraunum og hafa sett met f ýmsu því sem skiptir máli f sambandi við tunglferðir. Þeir hafa sent í flestar geimferðir, og þeir hafa farið lengstu geimferðimar, og þeir hafa farið lengst frá jörð- inni. Geimskip þeirra hafa hitgt úti f geimnum og verið tengd þar við aðra hluti. Líklegt má teljast aö Sovétmenn séu einn- ig með hliðstæðar áætlanir, en það er ástæða til að ætla, að Bandaríkjamenn hafi á síðasta . ári komizt töluvert fram úr. Maður þekkir ekki áætlanir Sovétmanna, en njósnatungl Bandaríkjamanna mundu áreiö- anlega hafa gefið upplýsingar um sovézkar eldflaugastöðvar af þessu tagi, ef um slfkt væri að ræða. Það getur líka verið, að Sov- étmenn séu að hugsa um ein- faldari leiðir til að komast til tunglsins, að þeir reyni að eiga við tveggja þrepa eldflaugar í stað fjögurra þrepa eins og Bandarikjamenn eru með. Sovétmenn hafa sent nýlega upp Proton 3., mjög þunga eld- flaug, og það lítur út fyrir, að þeir hafi mjög kröftugar eld- flaugar, sem standist alveg samanburð við bandarískar. Tjað er einmitt talið líklegt, að Sovétmenn vilji halda upp á 50 ára afmæli byltingar- JRERCURY TH0R MESCURf ATUU ATLA% GElUHI jÁnJSH APOLLO AMX.LO RLÐSIQNC OLLIA ATIAS AGLMA CENTAUt 11TAN U I SATURM Ifi SATURN V Hér sést stærðarmunur nokkurra þekktustu geimflauga Banda- rikjamanna. Lengst tll hægri er tunglflaugin Satumus V Apollo, næst er Satumus IB Apollo, siðan Satumus I, þá Titan II Geminl, Atlas Centaur, Atlas Agena, Atlas Mercury, Thor Delta og loks Redstone Mercury. Tunglflaugin Satúmus V ApoIIo fyrir utan samsetnlngarhúsið á Kennedyhöfða. innar eftir ár, með þvi að senda rússneskan geimfara kringum tunglið, án þess að lenda. Dr. Charles Schelton sem er fulltrúi í nefndinni, sem fjallar um geimmál, lítur var- færnislegum augum á möguleika Sovétmanna til tungllendingar. Hann bendir á að Sovétmenn hafi sent upp 16 gervitungl í átt til annarra hnatta, en öll skotin hafi mistekizt, því sam- bandið rofnaði, en Bandaríkja- menn hafa í aðeins fjórum til- raunum fengið hitamælingar frá Venusi og myndir frá Mars. Hér við bætist að Bandaríkja menn hafa greinilegt forskot í hagnýtri notkun geimsins með því að nota tæknilega mjög flókin geimför til að aðstoða við símasamband, flug og veð- urfræði. Hins vegar er vitað að Sovét- menn leggja mikla áherzlu a að verða fyrstir að lenda á tungl- inu, og sérfræðingar halda því fram, að báðar þessar þjóðir hafi um 1970 sýnt fram á, að þær hafi náð tökum á geimn- flugi. Þótt Bandaríkjamenn verði aðeins á undan í kapp- hlaupinu tjl tunglsins, skiptir sá tími ekki máli, og þeir ná engri einokun á tunglferðum. Munurinn milli þeirar og Rússa verður varia meiri en sá munur sem skildi að geimflug Gagar- ins og Shepards, árið 1961, en það voru 23 dagar. TTinn þýzkættaði eldflauga- sérfræðingur dr. Wemer von Braun, sem hefur átt þátt f að smíða Satum-eldflaugarn- ar, er sannfærður um, aö fjár- festingin í geimrannsóknum muni margborga sig. Frá geimstöðvum er hægt að rann- saka heiminn, en einnig er hægt að leysa ýmis vandamáj f sam- Frh. á bls. 4.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.