Vísir - 22.08.1966, Page 9
V í S I R . Mánudagur 22. ágúst 1966.
í
ísland valið vegna SURTSEYJAR
myndafökustjórinn Kalinke voru að leggja af staO tíl Þingvalla
þegar Vísismenn komu aö Hótel Sögu á laugardagsmorguninn til aO
ná tali af kvikmyndafólkinu. Ætluðu þeir aö finna þelm Gunnari
Gjúkasyni og Siguröi Fáfnisbana hentugan orrustuvöll. Margir
sváfu enn og aðrir voru ókomnir til landsins t.d. ein aðalleikkonan.
Karin Dor sem væntanleg var með kvöldinu beint frá Japan þar
sem hún var að leika í nýrri James Bond kvikmynd. Náði Vísir
tali af þremur árrisulum úr hópnum, framkvæmdastjóranum og
köppunum Gunnari Gjúkasyni og Sigurði Fáfnisbana.
Islendingar haía góð skil-
yrði til jbess að hefia
kvikmyndaframleiðslu
— segir framkvæmdastjóri kvik-
myndatökunnar, M. • Korytowski
í anddyri hótelsins var fram-
kvæmdastjórinn við myndatök-
una, Manfred Korytowski á sí-
felldum þönum, en fékkst þó til
að staldra við stundarkom til
þess að segja undan og ofan af
tildrögum og framkvæmd þess-
arar myndar.
— Þetta er dýrasta mynd, er
Þjóöverjar hafa lagt út í eftir
seinni heimsstyrjöld, segir hann.
M. Korytowski, framkvæmda-
stjóri kvikmyndatökunnar.
Kostnaðurinn er áætlaður um 80
millj. ísl. kr. Þetta er jafnframt
fyrsta myndin, sem þýzkt einka
fyrirtæki ræðst í án opinbers
stuðnings, eða sérstakra banka-
ívilnana, en CCC-Filmkunst ber
allan kostnað og ábyrgð af
myndatökunni.
— Þýzk kvikmyndafram-
leiðsla hefur staðið nokkuð höll-
um fæti undanfarið og það hafa
yfirleitt ekki verið tök á því að
taka kvikmyndimar í þvf um-
hverfi, sem þær gerast í eða ná
réttum bakgrunni, þegar um
myndir eins og þessa er að ræða
— Hér ræðst CCC-Fiimkunst
því inn á nýjar brautir. Þau at
riði sem í Niflungasögu gerast
á Islandi verða tekin hér. Það
er, þegar Sigurður Fáfnisbani
kemur til íslands.
ELDFJALLIÐ í MVNDINNI
VERÐUR SURTSEY.
— Annars er Surtsey ein af
aðalástæðunum fyrir því að við
komum hingað, segir Kory-
towski. Við höfðum hugsað okk-
ur að ná myndum af gosinu til
þess að nota í kvikmyndinni.
Eins og komið hefur fram
f fréttum héma áður verður eld
gos eitt af atriðum myndarinn-
ar. Fulltrúar kvikmyndaframleið
endanna vom lengi vel á hött-
um eftir fjalli sem hentugt væri
til þess að nota sem eldfjall og
átti þá að sprengja I því reyk-
bombur og laða fram eldgos
á hyíta tjaldinu með tæknileg-
um brögðum eins og jafnan á
sér stað í kvikmyndaheiminum.
Nú er Surtur byrjaður sína fyrri
Framh. á bls. 6
Þeir munu berjast á Þingvöllum: Uwe
leikur Gunnar Gjúkason.
er sem leikur Sigurð Fáfnisbana og Rolf Henninger, sem
//
íslandsferðin freistaði
og ég tók tilpoðinu4
— segir Rolf Henninger,
leikur Gunnar Gjúkason
sem
— Tilhugsunin um að komast
til íslands réði því að ég tók til-
boðinu, segir Rolf Henninger, sá
er leikur Gunnar Gjúkason,
sem berjast mun við Sigurð
Fáfnisbana á Þingvöllum —
Mig hefur alltaf langað til að
kynnast landinu, en aldrei lagt
út í að fara hingað f fríi af ótta
við vont veður. Hef því heldur
viljaö fara suður á bóginn. En
ég hef ekki orðið fyrir vonbrigð-
um þennan hálfa sólarhrlng sem
ég hef verið hér og útsýnið úr
flugvélinni var alveg stórkost-
legt og sérstaklega þótti mér
gaman að sjá gosið i Curtsey.
— Hafið þér leikið í mörgum
kvikmyndum?
— Nei það er langt siðan
ég lék síðast í kvikmynd, lík-
iega ein 15 ár. Hún hét „Síð-
asta sumarið". Ég hef starfað
lengi við Schiller leikhúsið í Ber
lín og hef leikið þar fjölmörg
af stærstu hlutverkum leikhús
bðkmenntanna, en auk þess hef
ég verið leikstjóri þar.
— Hvernig finnst yður þá aö
leika aftur í kvikmynd?
— Það er skemmtileg tilbreyt
ing frá leikhúsinu. Annars skipt
ir ekki svo miklu máli hvort
maður leikur í kvikmvnd eða f
leikhúsi — aðalatriðið er per-
sónan sem maður er að túlka.
Mér finnst gaman að túlka Gunn
ar Gjúkason, hann er margslung
inn persónuleiki og reikandi f
öllum sínum gerðum.
— Hvert er eftirlætishlutverk
yðar?
— Cyrano í leikritinu Cyrano
Frh. á bls. 6.
„Erfitt að leika þegar
maður er ekki leikari"
— segir
sem
sleggjukastarinn Uwe Beyer,
leikur Sigurð Fáfnisbana
Dr. Rein] leikstjóri og Kalinke kvikmyndatökustjóri
— Það er erfitt að leika, þeg
ar maður er ekki leikari, sagði
Uwe Beyer, sem leikur aðal-
hlutverkið í myndinni, sjálfan
Sigurð Fáfnisbana, en hann hef-
ur aldrei fyrr komið nálægt
kvikmyndaleik. Hvers vegna var
hann þá valinn í hlutverkið?
— Þetta ér söguleg mynd, seg
ir Beyer, og það varö að fá
ungan mann háan og kraftaleg-
an í útliti — með útlit íþrótta-
manns. Samkvæmt skoðana-
könnun, sem gerð var, vildi al-
menningur heldur fá alveg ó-
þekktan mann í hlutverkiö en
frægan leikara — og ég varð
fyrir valinu.
Þótt Beyer sé óþekktur sem
leikari er hann þekktur i sínu
heimalandi og reyndar utan
þess, því hann hefur þrisvar orð
ið Þýzkalandsmeistari í sleggju
kasti, nú síðast fyrir nokkrum
vikum og þurfti hann þá að fá
frí frá kvikmvndatöknnni
Júgóslavfu til að taka þátt f
keppninni. Á Olympfuleikunum
varð hann þriðji og í ár hefur
hann náð þriöja bezta árangri
í heiminum.
— Eftir tvær vikur tek ég
þátt f Evrópumeistarakeppninni
í Búdapest og ég vona að ég
fái tækifæri til að þjálfa mig
hérna. Núna á eftir ætla ég t.d.
hér út á íþróttavöllinn og æfa
mig. Það er ekki nóg að ganga
inn á völlinn og kasta sleggjunni
maður verður að þjálfa sig bæði
andlega og líkamlega, þvf að
ætli maður að ná góðum árangri
verður bæði lfkamlegt og and-
legt þol að vera fyrir hendi.
auk tækninnar.
—- Hvernig hefur yður líkað
þetta nýja starf — kvikmynda-
leikurinn?
— Mér hefur þótt gaman að
því, þetta er alveg nýtt fyrir
mér. En það er erfitt að leika
Framh. á bls 6
-I
1
v