Vísir - 06.10.1966, Blaðsíða 15
V1S IR . Fimmtudagur 6. október 1966.
15
Hún opnaði dyrnar og fannst gott
að finna svalann leika um sig,
þótt hún sæi ekkert_fyrir myrkr-
inu. Hún heyrði stöðugt drunur í
fjarska — og nú sá hún glampa
á eitthvað fyrir fótum sér. 'Það
glitti í vatn og tvö neöri tröppu-
þrepin voru komin í kaf.
Ósjálfrátt steig hún aftur á bak
eitt eða tvö skref. Hún horfði út
eins og í leiðslu, sá ekkert — en
fyrir hugskotssjónum sínum sá hún
ekkert nema vatn, sem alltaf varö
dýpra og dýpra og færöi allt í kaf.
Allt í einu stirðnaöi hún af
hræöslu. Þaö stóð einhver fyrir aft
an hana — rétt fyrir aftan hana.
Óttaslegin lokaði hún augunum rétt
sem snöggvast. Var það þessi
gamla galdranom — þessi Re-
bekka Femm?
Svo heyrði hún hljóö, eins og
eitthvað dragnaöist eftir gólfinu
og heyrði þungan andardrátt, eins
og sog og nú vissi hún hvað þetta
var — það var risinn, kraftajötun-
inn, skrímslið í mannsmynd —
Morgan. Hún opnaði augun og sá
luralega hendi, hann teygði hana
fram til aö loka dyrunum — og
henni varð óglatt af daun, sem
lagði fyrir vit henni, daun sem
var sem af rotnandi hræi.
í örvæntingu sinni tók hún stökk
frá honum, en svo var sem hún
gæti ekki hreyft sig úr sporun-
um. Hún stóð þama og starði á
hann. Hana langaöi til að æpa, en
kom ekki nokkra hljóði yfir varir
sér — gat aöeins kreppt hnefana
og nælt nöglunum í hörund sér.
Kannski hafði hann ekki ætiað að
gera neitt annað cn að loka dyr-
unum. Ef hún bara stæði kyrr,
gerði ekkert .rnundi hann kannski
fara sína leið.
Og nú fékk hún þrek til þess að
ganga þvert yfir gólfið og að am-
inum. Henni fannst furðulegt hve
langt var að honum og henni rann
eins og kalt vatn milli skinns og
hörunds. Hún reyndi að stappa í
sig stálinu. Hann mundi fara, hin
mundu koma, og það væri engin
hætta á ferðum.
Hún var komin að borðinu og jók
það dálítið traust hennar, ekki
sízt vegna þess að kertaljós logaði
á borðinu. Hvaö aðhafðist hann?
Hún kipraöi saman augun og sneri
sér við og sá, aö hann stóð þama
kyrr í sömu sporum, en í daufri
birtunni sá hún hann óljóst. Hún
sá þó, að hann hallaði sér ekki
lengur að dyrastafnum, og hann
hafði snúið sér svo aö hann gat
horft beint á hana. Henni fannst,
að það hefði ekki verið eins ægi-
legt að sjá hann. ef hún hefði
getað séð hann greinilega, en að
sjá tröll þarna, eins og drang í þoku
þaö var skelfandi. Stóð hann kyrr
eða var hann að fikra sig í áttina
til hennar? Hún gat ekki séö það
greinilega, henni fannst nú allt í
kringum sig ógnum þrungið, já,
næstum sem allt í heimi ógnaði
henni því að allur heimurinn var
ógnum þranginn.
Jú, hann var að fikra sig i átt-
ina til hennar, — hún var ekki
lengur í vafa um það, færðist nær
henni eins og gríðar stór veghefill.
Hún bjóst til að hlaupa, en nú nam
hann staöar aftur um 3-4 skref frá
borðinu og nú sá hún hann greini- j
lega, hár hans, úfið, strýlegt skegg-1
ið, augun sokkhi inn í augnatótt-j
ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR
úr harðplosti: Format ir.rráKsngar bjóða upp
á annaS hundraS iegundir skdpa og litaúr-
val. Allir skópor með boki og borðplata sér-
smíffuð. Eldhúsið f*st með Itljóðeinangruð-
um stólvaski og raftækjum af vönduSustu
gerð. - SendiS eSa komið msð mól af oldhús-
inu og viS skipuloggjum eldhúsið samstundis
og gcrum ySur fast verStilboð. Ótrúlega hag-
stætt verS. Munið að söluskattur er innifalinn
í tilboðum fró Hús & Skip hf. Njótið hag-
stæðra greiðsluskilmóla og .
lækkið byggingakostnaðinn. JKjrafT€kÍ
HÚS & SKIP ,hf.- LAOGAVBGI «1 • BIMI ÍIIIS
i
j
i
í
i
irnar. Þetta var ófögur sjón en þó
var það skárra en að sjá hann óljóst
þar sem skugga bar á, — hann
Ifktist þó líka manneskju svona.
Manneskju? Hann var kannski ekki |
skrímsli í mannsmynd, bara vesa-
lings manneskja, fáviti, mállaus,
heimskur þjónn. Var nokkurt vit
í því, að vera svona hrædd?
Kannski — ef hún léti sem henni
stæði alveg á sama þótt hann væri
þar, og væri ekkert hrædd, myndi
hann fara. Óstyrk sneri hún baki
aö honum og gekk hægt að amin-
um. Svo nam hún snöggt staðar og
sneri sér við. Hann hafði flutt sig
og stóð nú, þar sem hún hafði áð-
ur staöið.
— Hvaö viljið þér? hrópaði hún
angistarfull, en svo veikum rómi,
að honum gat ekki dulizt, ef nokk
ur vitglóra væri í honum, hve ein-
mana og hrædd hún var. Ósjálfrátt
hafði hún spurt, en hann gat ekki
svarað, hann var mállaus.
Augu hans hvíldu á henni eins
og hann væri með því að reyna að
svara henni.
Svo lyfti hann annarri hendi
sinni, eins og bjarndýr þungum
hrammi. Að öðra leyti hreyfði
hann sig ekki, en þó kom eins og
korrhljóö úr barka hans. Og nú
lék glott um varir hans. y
Hver vöðvi í líkama hennar var
þaninn.
— Farið burt, megnaði hún nú
að hrópa. Og svo barst aftur að
vitum hennar þessi andstyggilega
lykt. Enn óttaslegnari en áður
reyndi hún að vera róleg á svip
og fikraði sig hægt smáum skref-
um til hægri kringum borðið, unz
það var á milli þeirra. Nú var hún
komin þangað, og hún gat komizt
að stiganum og hlaupið upp stig-
ann ef kjarkurinn og kraftamir
biluðu ekki. Philip var þar uppi
og hann gat — hlaut að vera að
koma niður.
Hún gaut homauga til Morgans.
Hann stóð enn kyrr og gaf henni
gætur. Nú sneri hún sér frá hon-
um og leit í áttina til stigans...
Hún gekk þangað — herti göng-
una, var nú aðeins einn metra frá
neðsta þrepinu. Hann veitti henni
eftirför, var nálægt henni. Hún
rak upp hræðsluvein, því að það
var sem hrammur óargadýrs hefði
verið lagður á öxl hennar, fann
nálægð skeggjaðs andlits, og
skrímslið reyndi að vefja hana
hrömmum. — I æðiskenndri reiöi
reyndi hún að slíta sig af honum,
kjóllinn hennar rifnaöi, en hún
Ipsnaði úr greipum havis og hrökkl
aðist aftur, en hann gnæfði yfir
hana og I örvilnan æddi hún fram
og tókst að komast upp fyrstu þrep
in og hrópa:
— Philip, Philip!
— Ó, hvar var hann? Því koia
hann ekki, það brakaöi í þrepun-
um er hún æddi upp stigann, hár-
ið féll laust niöur herðar hennar,
niður yfir andlit hennar líka, og
henni fannst hún sjá einhverja ljós
skímu. Hanri kom á eftir henni og
hún studdist viö handriðið og hélt
áfram upp, reyndi að komast und-
an honum. Stynjandi og másandi
kom hann á eftir, en nú var bugða
á stiganum, og hún var aftur, þar
sem skugga bar á og eftir andar-
tak yrði hún komin upp. Þótt hún
vart gæti náð andanum fyrir mæði
gat hún hrópaö: Philip, Philip —
og hún bað um að þetta seinasta
neyðaróp bærist til hans inn í þann
myrkrageim sem var þarna uppi,
sem hann hafði horfið inn í. Hann
var einhvers staðar þarna uppi og
hlaut að heyra til hennar.
9. KAFLI
Philip gekk hugsi upp stigann
á eftir Horace Femm. Hann tók
hvert skref með tregðu eins og maö
ur sem er á leið upp á aftökupall
— til gálgans, en þótt hann væri
hugsi, leið honum betur en áður
en farið var í spurningaleikinn, ef
leik skyldi kalla þarna niöri við
boröið. Honum hafði létt við að
tala þar eins og honum bjó í brjósti
Og honum skildist, aö það hefði
verið boðskapur til hans í svari
Margaretar. Og sannast að segja
hefði hann verið í þann veginn að
gera gangskör að þvi að tala viö
hana í þeim tilgangi, að þau gætu
sætzt heilum sáttum, en svo hafði
tækifærið glatazt, er ljósið slokkn-
aði og svo hafði hann séð bregða
fyrir þessu gamla yfirboröslega til
liti úr augum Margaretar. — Hvort
tveggja hafði spillt miklu, en samt
var það nú til bóta, að allir höfðu
getaö létt af sér einhverju af því
fargi, sem á þeim hvíldi. Og var
það ekki það sem mestu máli skipti
að allt gæti gengiö snurðulaust í
skiptum manna, en þá urðu menn
að vera einlægir og tillitssamir.
Þeir gengu upp stigann með út-
fararhraða hann og Horace Femm.
Þegar þeir voru komnir upp á
fyrsta stigapall, nam Horace staö
ar og hélt uppi ljósinu, eins og
til þess að gesturinn gæti litiö í
kringum sig og það gerði Philip
— og það með áhuga. Hann fór
þegar að athuga þiljurnar.
— Frá 17. öld? spurði hann.
— Já, það var víst þá, sem hús-
ið var byggt, svaraði Femm og
hreyfði sig ekki úr sporanum, eins
og hann væri áfjáður í að miðla
meiri fróðleik. Og það gerði har.n
og Philip kinkaði kolli, því að
hann hafði áhuga á öllu sem
hús varðaði og þetta hús haföi í
upphafi verið fagurlega skreytt að
innan, en allt í niðumíðslu nú, og
Philip fannst það synd og skömm.
Sjáðu, þama kemur vinkona þín að heilsa Mundu eftir þvl, elskan min, að þú ert Ég heyri að þú beitir þínum gömlu brögö-
upp á þig. Naomi hjúkrunarkona. núna konan mín. um, núna hefurðu bjargað Bilski flugstjóra.
Mér hefur verið vel launað, í fyrsta lagi
þessir fallegu vængir... svo koss frá fag-
urri konu.
IWKSH’HE-
Nú fannst honum hann skilja
hvers vegna húsið hafði þegar haft
þessi þyngjandi áhrif á hann —
allt sagði líka sömu sorglegu sög-
una. Ef gengiö heföi veriö þrifálfaga
um þetta hús og öllu haldið vel
við mundi hafa veriö unun að búa
í því. Svo sannarlega var þama
skemmtilegt viðræðuefni fyrir þau
Margaret. —
Þeir gengu eftir löngum göngum
og framhjá mörgum dyrum og er
þeir komu að þeirri síðustu benti
Korace Femm á þær og sagöi:
— Þetta er herbergið mitt og
ég gæti trúaö aö þar væri sitt af
hverju sem þér hefðuð gaman af
að sjá.
4. auglýsing
Handleggsbrotið.
Signý: Manstu eftir eldhúsi
hennar ömmu á Raufarhöfn?
Hún handléggsbrotnaði, þegar
hún ætlaði að ná í vöfflujámið
á efstu hillunni og datt við það
af stiganum.
Jón: Já, skelfing eru verkin í
gömlu eldhúsunum tafsöm og
stundum beint hættuleg. Við
verðum aö bjóða ömmu, þegar
við erum búin aö fé fallega nýja
eldhúsið okkar frá OSTA.
Signý: Gavuð- og við sem eig-
um eftir að fara til Skorra —
(aftur hjá Skorra)
Sölustjórinn: Tilboðin og
nýju teikningarnar verða tilbún-
ar eftir hádegi á morgun.
Jón: Konan min segir, að ég
eigi að ákveða, hvaða rafmagns-
áhöld vis tökum. Hún er stund-
um svo lýðræðisleg —
En hvaða rafmagnstæki eru
bezt?
Sölustjórinn: í trúnaði sagt:
öll rafmagnstæki eru bezt, öll
eldhús eru bezt — lesið bara
auglýsingarnar.
Signý: Þér ættuð þó að vita
betur.
Sölustjórinn: Þaö veit ég líka.
En ég þarf engum að segja frá
þvi. Sjáið þér til: gestir okkar
komast sjálfir að þvi, að OSTA-
eldhúsinnréttingamar henta
þeim af mörgum ástæðum bezt.
Þeir gera nefnilega samanburð.
Þess vegna panta fleiri og fleiri
hjá okkur.
Signý: Jón, undirskrifaöu.
S K O R R 1 H F.
Suðurlandsbraut 10. - Sími 38585
METZELER
hjólbarðamir eru sterkir og
mjúkir, enda vestur-þýzk gæða-
vara.
Hjólbarða- og benzinsalan
við Vitatorg. Sími 23900
Barðinn h.f.
Ármúla 7. Sími 30501
Ai "onna Verzlunarfólagið h.f.
Skipholti 15 Stmi 10199