Vísir - 20.10.1966, Side 3

Vísir - 20.10.1966, Side 3
V 1 S I R . Fimmtudagur 20. október 1966. MM—ii » irrfi'i * 1 imiMKMMaaM—MMaaaUMB.I Dymar á Hvqssaleitisskóla voru opnaðar f bvf er Mynd- sjána bar að garði — frímín- útur vom að hefjast og börn- in, sjÖ, átta og níu ára þustu út. Þau ætluðu nefniiega að nota vel bær tíu mínútur, sem þeim voru ætlaðar til leikja milli tveggja kennslustunda. Ungu dömurnar fóru með kennslukonunni í leikinn „Hann Frímann fór á engi“ og sungu og dönsuöu, en herramir vildu ekki vera með í „svona“ dansi. Þeir gripu f stað þess boltana og fóru í knattspymu á gras- lendinu sunnan við malbikaða leikvöllinn við skólann. Þeir létu sig ekki muna um að leika með marga knetta í einu, og það af svo mikilli leikni að ekki er ólíklegt að í þeirra hópi hafi veriö verðandi meistaraflokks- maður eða jafnvel landsliðsmað ur. „Að hlaupa í skarðið“ haföi meira aðdráttarafl fyrlr herrana en hann Frímann sem fór á eng- ið og þegar dömurnar vom fam ar að slá hvor aðra og hlaupa f kring vildu þeir ólmir vera með. Hringurinn stækkaði og „sláðu f mlg — slátfu í mig“ kallaöi hver f kapp við annan, þar til frímfnútunum var lokið. AUir hlupu á sinn staö f röðina og síö an gekk hver bekkur prúður og hægur inn f skólann, tilbúinn aÓ fræðast um stafi, tölur og sitthvað fleira. Allir fóru í raðir áður en gengið var inn í skólann. Dömurnar dönsuðu og sungu dansinn um hann Frímann af mikilli gleöi. fei'í 8 . >' ->> ‘‘t' ' ’ ',**»■>’’> Fótboltaliðið hafði nóg að gera með tvo bolta á einum velli. _________ Það var erfitt að ná í blýantinn, sem datt niður í grindina úti fyrir dyrum skólans. ai

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.