Vísir - 02.12.1966, Blaðsíða 1
I
VISIR
56. árg. — Föstudagur 2. desember 1966. — 277. tbl.
Erfiðleikar vegna þess að
póstmenn vilja ekki eftirvinnu
Jólapósturinn er nú senn væntan-1 hér um að ræða hvort tveggja,
legur til „udsin, Fyrs.a g„.t
magnið kemur væntanlega meö megaj starfsmanna póstsins undan
Kronprins Olaf á fimmtudaginn. Er I farið með ýmis kjaramál og munu
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur
var lögð fram með fyrirvara
■ Borgarstjóri leggur til að áætlunin verði endurskoðuð á miðju
ári, komi i Ijós, oð útsvór nái ekki áætlaðri upphæð
næsta
Fjárhagsáætlun Reykja-
víkur var lögð fyrir borg
arstjórn í gær. Geir Hall
grímsson, borgarstjóri,
haföi framsögu fyrir á-
Geir Hallgrímsson
borgarstjöri
ætluninni. Tekjur borg-
arinnar eru áætlaðar
984.1 millj. kr., sem er
16.9% hækkun frá áætl-
un yfirstandandi árs.
Rekstrargjöld eru alls
áætluð 787.189 millj. kr.,
18.6% hækkun og fært
til eignabreytingar 196.
950 millj. kr., 10.5%
hækkiin.
1 tekjum borgarinnar er á-
ætlað að útsvör nemi 636.9
millj. kr. eða hækki um 17.7%
frá fjárhagsáætlun yfirstand-
andi árs. Er gert ráð fyrir því,
að lagt verði á eftir sama útsv,-
stiga og í ár með 5% afslætti.
Mesta hlutfallsaukning tekna
er áæfluð vegna arðs af eign-
um 37.5%. Mesta aukning í
krónutölu er áætluð vegna
aukningar á tekjuskatti, 95.839
millj. kr.
Áætlað er að rekstrargjöld
hækki um rúmlega 123 millj.
kr. Rúmlega 85% af þessari
hækkun stafar af hækkun fjög-
urra gjaldaliða : Framlag til fé-
lagsmála hækkar um 33.8 millj.
kr., til gatna- og holræsagerö-
ar 30.2 milljónir, hreinlætis- og
heilbrigðismál 23.9 milljónir og
til fræðslumála um 17.5 milljón
ir króna.
Borgarstjórinn lagði á það á-
herzlu í framsöguræðu, að fjár-
hagsáætlunin væri gerð með
þeim fyrirvara að hin áætlaða
útsvarsupphæð kæmi inn með
sömu álagningarreglum og giltu
í ár. — „Framtöl einstaklinga
og fyrirtækja, er greina frá
tekjum þeirra og eignum, koma
ekki fram fyrr en í byrjun
næsta árs og verða því ekki
yfirfarin. fyrr en rétt fyrir á-
lagningu á miðju næsta ári. —
Hér er því um mikla óvissu aö
ræða.
Talið er, að tekjur einstakl-
inga hækki um 18—20%, en
hins vegar liggur ekkj fyrir á-
ætlun um afkomu félaga eða
atvinnufyrirtækja, en tæplega
er hækkunin þar meiri. Þá ber
þess að geta, að ávallt er um'
fjölgun gjaldenda að ræða frá
ári til árs og tekjuhækkun al-
mennt verður til þess að fleiri
gjaldendur komast á hærri út-
svarsstiga, en á móti því veg-
ur að nokkru skattvísitala í
Framhald á bls. 6.
starfsmenn nú neita algjörlega að
vinna eftirvinnu.
Er þetta skiljanlega mjög baga-
legt einmitt nú, þegar jólaösin er
sem mest og kemur til með að
seinka veruléga afhendingu send-
inga ef ekki rætist úr.
I morgun náðist ekki í Tryggva
Haraldsson, sem er formaður fé-
lags starfsfólks hjá póststofnun-
um borgarinnar, en nánar veröur
sagt frá máli þessu sfðar.
Lokunartími verzl-
ana fyrir jól
Stjóm Kaupmannasamtaka Is-
lands hefur ákveðið í samráði við
hin einstöku aðildarfélög og aðra
aðila, að verzlanir skuli vera opn-
ar í desembermánuöi eins og verið
hefur þ.e. laugardaginn 3. des. til
kl. 16.00, laugardaginn 10. des. til
kl 18.00, laugardáginn 17. des. til
kl. 23.00 og Þorláksmessu föstu-
daginn 23. des. til kl. 24.00.
Undanþegnar þessari ákvörðun
em þó matvöm- og kjötverzlanir
í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði,
Suðurnesjum og Akranesi, en þær
loka kl. 12.00 á hádegi alla fyrr-
talda laugardaga, en hafa opið á
Þorláksmessu föstudaginn 23. des.
til kl. 21.00.
BISKUPINN
TIL ENGLANDS
Biskup Islands herra Sigurbjörn
Einarsson leggur af stað í opinbera
heimsókn til ensku biskupakirkj-
unnar 5. þessa mánaðar. Það er
í fyrsta skipti að íslenzka kirkjan
þiggur opinbert heimboð til Eng-
Iands.
Heimsóknin stendur vikutíma og
mun biskup heimsækja helztu
kirkjuhöfðingja biskupakirkjunnar,
svo sem erkibiskupinn af Cantara-
borg, sr. Michael Ramsey, bisk-
upinn í Birmingham dr. Leonard
Wilson og biskupinn í Sauthwell.
Biskup mun meöan á dvölinni
Framhald á bls. 6.
Unnið að sfldarfrystingu í gærdag.
Ein mesta síldartörn sem komið
hefur á Fuxafióahöfnum
Unnið fram á nótt i frystihúsum
í gær var unnið fram á nótt í
flestum frystihúsum við Faxaflóa
að frystingu sfldarinnar sem bát-
amir komu með að austan í gær.
Stærstu frystihúsin tóku á móti
3—400 lestum af síld til frystingar
og svo var saltað eins og hægt var.
Törnin heldur áfram í dag og stend-
ur fram á næstu nótt,
Bæjarútgerð Reykjavíkur tók á
móti 400 lestum af tveimur skip-
um, Hafrúnu ÍS og Þorsteini RE. j
Um 50 konur unnu við að pakka!
síldinni til frystingar, en um 150
lestir af aflanum fóru til söltunar.
Bæjarútgérð Hafnarfjarðar tók á
móti 3i þúsund tunnum til frysting-
ar, sem er mesta síldarmagn sem
frystihúsið hefur nokkru sinni tek-
ið á móti. Þar unnu um 35 konur
í frystihúsinu.
3 bátar komu til Akraness,
Höfrungur II með 200 lestir, Sól-
fari með 150 og Ólafur Sigurðsson
með 190, sem ýmist fór í salt eða
frystingu.
Nokkrir bátar komu til Keflavík-
ur svo og til Grindavíkur og var
afla þeirra báta ekiö til frystihús-
anna í Revkjavík og Hafnarfirði.
Þá mun einnig hafa verið unnið
að síldarvinnslu í Eyjum.
Síldin nýtist ágætlega til vinnslu
og sagði verkstjóri hjá B.Ú.R. að
nýtingin færi upp í 85&" í vinnslu.
Engin veiði er nú fyrir austan,
stórhríð og hvassviðri búið að vera
1 á miðunum nær tvo sólarhringa og
allir bátar í landi.
/