Vísir - 02.12.1966, Side 6
[
V1SIR. Föstudagur 2. desember 1966.
t
19
o Eflaust hafa margir bíleigendur átt í erfiðleikum með bí!a sína
í morgun. Frostið í nótt varð mest 8 stig í Reykjavík, en 5-9 stig víðast
hvar um landið, mest f Kvígindisdal 12 stig.
O Slys varð í Kópavogi í gær. Fjögurra ára drengur á þríhjóli varð
fyrir stórum flutningabíl á mótum Hábrautar og Kársnesbrautar. Bíl-
stjórinn taldi að meiðsl væru óveruleg og flutti drenginn heim tii hans,
að Hraunbraut 18. Móðir hans lét síðan flytja hann á Slysavaröstofuna
og kom í ljós að hann var lærbrotinn.
@ Um 40 bílar tepptust i fyrrakvöld vegna ófærðar á þjóðveginum
skammt frá Kalastöðum á Hvalfjarðarströnd. Veghefill greiddi braut-
ina fyrir bilana. Flutningabílar úr Reykjavík voru 7 uma upp i Borg-
arnes, en þessi leiö er venjulega ekin á 3 tímum. Fólk af Akranesi á leið
á fullveldishátíð Stúdentafélags Akraness í Ferstiklu lagði af stað
kl. 18 með bíl frá ÞÞÞ, en komst aldrei á leiðarenda, varö að snúa
við og kom aftur til bæjarins kl. 23.
O „Bárður minn á Jökli“ nefnist fjórði og síðasti fyrirlestur próf.
Þórhalls Vilmundarsonar, sem hann flytur á sunnudaginn kl. 14.30 í
Háskóla íslands um svokallaða náttúrunafnakenningu sína. Öllum er
frjáls ókeypis aðgangur.
FjárhasgsáæfSun —
Framhald at bls. 1.
höfuðatriðum, svo sem verðlags
breytingar segja fyrir um.
Komj 1 ljós við álagningu út-
svara að áætluð upphæö kemur
ekki inn, hlýtur borgarstjóm
að taka áætlunina til endur-
skoðunar á miðju næsta ári“.
Jafnframt er ástæða til að
taka fram, sagði borgarstjórinn
að framkvæmdir borgarinnar
geta ekki gengið hraðar en
greiðslufjárstaðan leyfir. —
Segja má, að helmingur tekna
borgarinnax komi inn frá 1. okt.
til ársloka.-,
í upphafi framsöguræðu sinn
ar vék borgarstjórinn að af-
komu borgarsjóös yfirstandandi
ár. — 1 fjárhagsáætlun fyrir
árið 1966 voru rekstursgjöld
áætluö rúmlega 663 millj. ,kr. og
yfirfærsla til eignabreytinga
178.250 millj. króna. Heildar-
gjöld vom því áætluð rúmlega
842 ^milljónir. — Samkvæmt
bókfærðum tölum 31. okt. sl.
virðast gjöld á rekstrarreikn-
ingi þó munu fara tæpl. 40 millj
ónir fram úr upphaflegri fjár-
hagsáætlun eða hækka um 6%.
Þar af nema kauphækkanir 3.
27% éða 21.7 milljónum. Af
öðrum • gjöldum, sem hækka,
má nefna greiðslur vegna
sjúkra manna og örkumla, sem
fóru 3 milljónir fram úr áætlun
Tekjur virðast aftur á móti
aðeins munu fara' 6 hiillj. kr.
fram úr áætlun. — Niðurstaöan
verður því sú, að á eignarbreyt-
ingarreikning færast 144.390
milljónir í stað 178.250 milljóna
Sfldarlöndun var i Reykjavík í gærdag og langt fratn á icvöld Á for-
sfðn í dag er sagt frá þcssum tnikla síldardegi vlð Faxaflóa.
Þátttéku-
tilhynningar
Þátttökutilkynningar fyrir ís-
landsmótið í körfuknattleik árið
1967 þurfa að hafa borizt Körfu-
knattleikssambandi íslands fyrir
15. desember n. k. Ráðgert er að
mótið hefjist um miðjan janúar-
mánuð. Tekið skal fram, að hverju
félagi um sig er aöeins heimilt aö
senda eitt lið til þátttöku ,í hverj-
um flokki. Þátttökugjald eins og
það var ákveðið á nýafstöönu
þingi KKÍ skal greiða um leið og
þátttökutilkynning er lögð fram
eða send. Þátttökugjald er sem hér
segir:
Mfl. karla kr. 1000.00.
1. og 2. fl. karla og mfl. kvenna
kr. 250.00.
3. og 4. fl. karla og 2. fl. kvenna
kr. 100,00.
Þátttökutilkynningar skulu send-
ar til Körfuknattleikssambands ís-
lands, íþróttamiöstöðinni, Laugar-
dal, Reykjavík.
FSugmáluráðherB'ur
fjuBla um
Loffleiðamál
Deilumáli Loftleiða og SAS
vegna lendingarleyfa á Norður-
Iöndunum fyrir hinar stóru RR-
400 skrúfuvélar hefur nú verið
skotið tll fundar flugmálaráð-
herra Norðurlandanna. Var
þetta samþykkt f gær á fundi
forsætisráðherra Noröurland-
anna í Kaupmannahöfn.
Bishupiun —
Framhald at bls. 1.
stendur prédika við hátíðamessu
í St. Dunstan í London, einnig er
ráðgert að hann flytji fyrirlestur
í Nottingham háskóla. — Einnig i
mun hann nota ferðina til þess að
heimsækja enska Biblíúfélagið, en
allmikil samvinna hefur verið milli
þess og Hins íslenzka Biblíufélags,
meðal annars um útgáfu Nýja texta
mentisins fvrir böm á fermingar-
aldri, sem félagið lætur ókeypis í té.
Vegaáæflim —
Framhald af bls. 16
sérstaklega með tilliti til notk-
unar malar til mannvirkjagerð-
ar, sem steypuefni, í slitlag á
vegi o. s. frv. Rannsóknarstofn-
un byggingariðnaðarins hefur
nú tekið við þessum rannsókn-
um. Búnaðarbanki íslands og
Vegagerð ríkisins bera kostnað
af rannsóknum þessum og var
hlutdeild Vegagerðarinnar á
þessu ári 125 þús. krónur.
Þá hafa verið gerðar tilraun-
ir með ræktun flaga meðfram
vegum. Fóru tilraunir þessar
fram á vegum Landgræðslu
1 ríkisins. Tilgangurinn var að fá
úr því skorið hvaða fræ hentar
bezt og hvemig haga skuli fræ-
og áburðardreifingu.
Undirbúnar hafa verið tilraun
ir með slitlög úr asfalt „emuls-
ionum,“ upplýsingum safnað
tækjakostnaður kannaður og
steinefni send til rannsóknar til
Skotlands. Þar sem niðurstöð-
ur þeirra rannsókna lágu ekki
fyrir fyrr en í september, var
tilraunum frestað til næsta sum
ars.
Loks eru í undirbúningi rann
sóknir á burðarþoli vega, eink-
um í mýrlendi. Leitaö hefur ver
ið tilboða í mælitæki til þess-
ara rannsókna, en reikna má
með að þau veröi tilbúin til
notkunar næsta vor.
Þessar upplýsingar koma
fram i skýrslu samgöngumála-
ráðherra til Alþingis um vega-
áætlun 1966.
Gjöf fil Öryrkja
Svo sem áður er getið, mun
veggur í anddyri hins nýja Ör-
yrkjaheimilis við Hátún verða gerð
ur sérstaklega til að geyma nöfn
þeirra, sem gefa fé til byggingar-
innar. Nýlega barst Öryrkjabanda-
laginu svohljóðandi bréf:
„Á fundi, sem haldinn var í
Lionsklúbb Kjalamesþings, fimmtu
daginn 13. október 1966, var sam-
þykkt, með öllum atkvæðum, að
gefa til byggingar öryrkjaheimilis
þess, sem nú er hafin framkvæmd
við í Reykjavík, fjármuni að upp-
hæð tuttugu og fimm þúsund kr.“
Öryrkjabandalagið flytur hug-
heilar þakkir fyrir þessa rausnar-
legu gjöf, sem sannarlega kemur
í góðar þarfir.
Klábbfundur
Næsti klúbbfundur Heimdallar
verður haldinn á morgun, laugar-
daginn 3. desember í Tjamarbúð
og hefst hann með borðhaldi kl.
12.30. Gestur fundarins verður að
þessu sinni Gylfi Þ. Gíslason og
fjallar erindi hans um menntamál.
Heimdallarfélagar eru hvattir til
að fjölmenna og taka með sér gesti.
U Thant
y 7hmf sfarfar
áfram næsfu 5 ár
Öryggisráð Sþ hefur mælst form
lega við U Thant til þess að 'hann
gegni framkvæmdastjórastarfinu
áfram næstu 5 ár og er búizt við,
að hann fallist á það.,
Heildverzlun —
lönfyrirtæki
Duglegur sölumaöur óskar eftir starfi nú þeg
ar. Hefur unnið við verzlun og sölustörf und
anfarin 15 ár. Vinsamlega hringið í síma
52061.
Bifreiðákaupéndur
Athugið notuðu bifreiðimar hjá okkur.
ión Loffsson h.f. Vökull h.f.
Hringbraut 121 . Símar 10600 & 10606
RÖSK STÚLKA
óskast til afgreiðslustarfa.
Verzl. VÍÐIR
Starmýri 2 . Sími 30420
Brjjnavarðastöður
Ákveðið hefur verið að fjölga brunavörðum
í Slökkviliði Reykjavíkur frá 1. janúar 1967
að telja.
Samkvæmt 10. gr. Brunamálasamþykktar fyr
ir Reykjavík, má ekki skipa í stöður þessa/
aðra en þá, sem eru á aldrinum 22-29 ára. Þeir
skulu hafa óflekkað mannorð, vera andlega
og líkamlega heilbrigðir, og hafa fulla líkams
og starfsorku.
Laun samkvæmt kjarasamningi starfsmanna
Reykja víkurborgar.
Eiginhandarumsóknii um stöður þessar á-
samt upplýsingum um náms- og starfsferil
sendist undnrituðum fyrir 12. desember n.k.
29. nóvember 1966
Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík