Vísir - 02.12.1966, Side 8
xSIR. Föstuuagur desember 1966.
F
VÍSIR
Utgetandi: Blaöadtgátan VISIR
Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Aðsroðarritstjórt: Axei Thorsteinson
Augiýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Túngötu 7
Rltstjóm: Laugavegi 178 Símt 11660 (5 llnun
Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands
I lausasölu kr. 7,00 eintakið
Prentsmiðja Vlsis — Edda h.f.
/
Verðbólguvaki
Jslenzkt atvinnulíf mótast meira af óvissu og sveifl-
um en atvinnulíf iðnaðarþjóöa. Bæði landbúnaður og
sjávarútvegur byggjast á gjafmildi náttúrunnar. Land-
búnaðarframleiðsla er mjög misjöfn frá ári til árs.
Framleiðsla sjávarvöru er enn óstöðugri. Þar á ofan
bætist, að verðlag íslenzkra útflutningsafurða er sí-
felldum breytingum undirorpið.
Oftast eru til í íslenzku atvinnulífi einhverjar gull-
námur, störf, þar sem peningar eru skjótteknir. Síld-
veiðin hefur gegnt þessu hlutverki undanfarin ár.
Með dálítilli heppni hafa menn getað skapað sér stór-
kostlegar tekjur á síldveiðum. Oft áður hefur síld-
veiði verið almenningi gullnáma, og á öðrum tíma
hafa aðrar atvinnugreinar gegnt hliðstæðu hlutverki,
eins og t. d. „Bretavinnan" á stríðsárunum.
íslenzka þjóðfélagið er svo fámennt, að hver veit
um kjör og aðstæður hinna. Þetta hefur stuðlað að
miklu meiri launajöfnuði hér en tíðkast annars stað-
ar í heiminum. Menn vilja ekki sætta sig við miklu
lægri laun en nágranninn. Togarasjóínanninum finnst
óréttlátt, að fyrrverandi káetufélagi hans skuli hafa
á síldveiðum þrefalt meiri tekjur en hann, og því
krefst hann jafnræðis.
Slíkur launasamanburður hefur magnað um allan
helming spennuna, sem sveiflurnar í atvinnulífinu
hafa orsakað. Þeir sem starfa í „fátæku“ atvinnu-
greinunum benda á kjör þeirra, sem sitja í gullnám- ,
unni á hverjum tíma, og heimta hið sama. Þeir setja
fram launakröfur, sem eru langt yfir það, sem fyrir-
tækin geta borgað. Vinnuveitendur óttast stórtjón
af völdum verkfalls og eru stundum linir í andstöð-
unni við óhóflegar kröfur — ganga að óaðgengileg-
um samningum í trausti þess, að verðlagið jafni málin.
Það er furðulegt en satt, að kaup skuli oftar en einu
sinni hafa hækkað hér á landi yfir 20% á ári. Slíkar
hækkanir hafa vitaskuld reynzt almenningi alveg
gagnslausar.
Á síðustu árum hafa augu manna opnazt fyrir því,
að þetta ástand var ein helzta ástæða hinnar þrálátu
verðbólguþróunar hér á landi. Leiðtogar verðalýðs-
félaga hafa s.l. tvö ár fylgt hófsamari stefnu en áður.
Ef sú þróun heldur áfram og reynt verður að miða
launagreiðslur við greiðslugetu viðkomandi atvinnu-
vega en ekki stundlegar gullnámur í öðrum greinum,
er fengin forsenda þess, að atvinnulíf landsins eflist
verulega og að dragi úr neikvæðum áhrifum sveiflna
þeirra, sem af eðlilegum ástæðum eru förunautar ís-
lenzks atvinnulífs.
i <
í
.
Ohio State Uriiversity-leikfélaglð sýndl gamansöngieikinn STÖÐVIÐ HEIMINN — sem var sýndur í
Þjóðleikhúsinu í fyrra, f Andrews Theatre á Keflavíkurvelli sl. föstudagskvöld. Alis fóru níu konur
og sex memi með hlutverkin, auk tónlistarstjóra og píanóleikara og trommuleikara. Fremst á mynd-
innl eru aðalleikendumlr: Mr. Ted Tritchard og Miss Bev Petit. (mynd: stgr.)
STOÐVIÐ HEIMINN
— hér fer ég út
CTÖÐVIÐ HEIMINN — hér
^ fer ég út, gamansöngleik-
urinn, sem hefur sigrað hinn
engilsaxneska heim bæði í
London, þar sem hann gekk í
hálft annað ár í Queens Theatre
og ennfremur í Schubert-leik-
húsinu á Broadwav í New York,
þetta frumlega leikhúsverk var
sýnt í Andrews Theatre á
Keflavíkurvelli síðastliðið föstu-
dagskvöld.
Af hendingu var blaðamaður
Vísis áhorfandi að þessari ame-
rísku útgáfu af „Stöðvið heim-
inn‘ (STOP THE WORLD I
WANT TO GET OFF) eftir
brezka leikarann Anthony New-
ley, sem samdi sjóiö að stofni
til, en naut þó ríkulegrar að-
stoðar vinar síns Leslie
Bricusse, sem talinn er eiga
bróðurpartinn af söngvunum og
ljóðunum.
Amerískur leikflokkur, Ohio
State University-leiklistarfé-
lagið færði stykkiö á svið með
þokka undir stjórn dr. George
W. Caeteau, sem er prófessor f
framsögn við nefndan háskóla
(undanfarin 18 ár). Dr. Caeteau
er franskur að ætt, geöugur.
Hann sagði Vísismanni, að
„Stöðvið heiminn" — væri nú
framflutt í amerískri, breyttri
’útgáfu — og hann hefði þó
leitazt við aö yfirdrífa ekkert,
hvorki í leik né tónlist né lát-
bragðsleik. Aðalleikandinn Ted
Tridchard, sem fer meö hlut-
verkið Litli karl, spurði, hvort
hann hefði yfirleikið. Þessu gat
„leikmaður" ekki svarað sem
von var til. Bev Petit, þokka-
full ljóshærð valkyrkja, lék Evy,
stúlkuna, sem Litli karl kvæn-
ist til fjár til þess að komast
áfram í heiminum. Miss eða
Mrs. Petit, sem er ekki leik-
kona að atvinnu, en stundar
leiklist og leiklistarsögu viö
Ohio State University, ber leik-
inn uppi að sumu leyti. „Litli
karl“ eða herra hver sem er
trúðurinn í fjölleikahúsi lífsins
er merkilega ómerkileg persóna
í leikriti. Hann tjáir líf manns-
ins frá fæðingu til dauða ýmist
með söng, dansi, leik, látbragðs-
leik og öðrum kúnstum. Höf-
undar gaman-söngleiksins unnu
að leikverkinu með óvenjulegum
hætti. Þeir læstu sig inni á
hóteli í þrjár vikur og að þeim
tíma liðnum þóttust þeir hafa
skapað vísi að leikhúsi allra
lista, þar sem allar greinar leik-
listar eru 1 einni sýningu: lát-
bragðsleikur, söngur, dans, tal,
leikur. Þetta virðist þeim tví-
menningum hafa heppnazt í
einfaldleik „Stöðvið heiminn
—Verkið var frumsýnt 1961
og olli byltingu með vinsæld-
um sínum. Lögin sem Leslie
Bricusse samdi, eru smeliin
dægurlög, t. d. What kind of
fool am I (hvers konar bjálfi
er ég) og Gonna build a moun-
tain (gera fjall úr þúfu).
Annars er leikverkið einna
merkilegast fyrir ádeilu-undir-
tóninn um brezkar lífsvenjur og
brezkan hugsunarhátt, og þaö
er á hærra plani en sýnist á
yfirboröinu. — s t g r.
Evy (Bev Petit) 1 mikilvægu atriði leiksins og „Litli karl“ (Ted Trldchard) sem er samnefnari fyrir
ómerkilegheit í lifinu. Hljómlistarstjórinn Mr. Walker er á vinstri hönd. Hann lék á klarinet. —
(mynd stgr.)
ssaæfr-