Vísir - 09.01.1967, Page 6
6
V í S IR . Mánudagur 9. janúar 1967.
Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar
Kennsla hefst mánudaginn 9.
janúar.
INNRITUN NÝRRA NEMENDA
REYKJAVlK í síma
2- 03-45 og 1-01-18 kl. 1—7.
KÓPAVOGUR í síma
3- 81-26 kl. 1—7.
KEFLAVÍK í síma
2097 kl. 3—7.
S'iðasti innritunardagur er t>riðjudaginn 10. janúar. Athugið: Pantið strax.
MORÐIÐ
Framhald at bls. 16
Hjördísi Ullu Vilhjálmsdóttur,
kom hann akandi í Volkswagen-
sendiferðabíl sínum til skrif-
stofu sinnar í Hafnarstræti 3.
Hann haföi mætt talsvert stop-
ult til vinnu sinnar, síðan hann
skildi við konuna, fengið sér
drjúgt í staupinu á köflum. Engu
að síöur hafði hann unnið mik-
inn hluta desember, að því er
kunnugir herma.
Þorvaldi Ara hefur sennilega
dvalizt á skrifstofu sinni, enda
ekki óalgengt, að hann ynni þar
á ýmsum tímum. Kvöldið þar
áður haföi hann beðið einn
starfsmanna sinna að aka sér
heim að Sólvallagötu 63, þvf að
sig langaði til „að reyna að
sofa“. Undanfarið höfðu vinnu-
félagar hans gefið því gaum, að
Þorvaldur Ari virtist. svolítið
„sleginn" eins og einn þeirra
orðaði það. Engu aö síður var
hann þægilegur á vinnustað —
eða svo ber þeim félögum sam-
an um. Aldrei mælti hann
styggðarvröi við neinn þeirra.
Yfirleitt var hann afskiptalaus
viö þá, sem hann vann meö og
kom sér því vel fremur en hitt.
Hinn hroðalegi verknaöur kom
flatt upp á félaga Þorvaldar
Ara . „Gluggar hr,“. Eftir því
sem Þorvaldur Ari kom þeim
fyrir sjónir datt þeim sfzt af
öllu í hug, að hann gæti sýnt
slíka ofbeldishneigð —. „sízt af,
öllu í þessa áttina^ eins og einn
þeirra sagöi blaðinu.
Um tíu-leytið þetta umrædda
kvöld birtist hann í bamum í
Naustinu. Hann pantaöi sér tvö-
faldan viskí meö sóda og virt-
ist hinn hressasti, eins og bar-
þjónninn, sem afgreiddi hann,
sagði. Hann kom og stóð við
barinn svolitla stund og tók
mann tali, sem hann virtist
þekkja. Hann klappaði á öxl-
ina á honum og sagði: „Ef þú
værir bíll mundi ég setja á þig
hljöökút".
Nokkru síðar spyr hann bar-
þjóninn, hvort hann megi ekki
skreppa frá og koma fljótt aft-
ur. Þjónninn kveðst hafa sagt
honum, að hann skyldi bara
tala viö Hróbjart dyravörð .. •
Hann hvérfur við svo búið og
er fjarverandi um hríð.
Þegar hann kemur aftur í
Naustið, biöur hann enn um
tvöfaldan viskí. Barþjónninn
segir, að hann hafi ekki verið
áberandi ölvaður. Hann sezt
við borð hjá fólki, sem hann
þekkir, og gerist skrafhreifinn.
Hann dregur fram nokkur
kort meö mynd af Útlaganum
eftir Einar Jónsson mvndhöggv-
ara og tekur að skrifa á þau.
Hann afhendir nokkrum þessi
kort, og við einn þeirra segir
Þorvaldur Ari, að hann skuli
athuga sérstaklega orðin, sem
standa undir myndinni: „Útlæg-
ur geng ég einn og vegamóöur".
Á kortin hafði hann skrifaö
nýársóskir.
Þegar Naústinu sleppir, slæst
Þorvaldur Ari för meö fólki,
sem heldur til gleðskapar á
einkaheimili hér í borg. Var
farið í tvéim bílum og borgaði
Þorvaldur Ari fargjaldiö.
Áfengis var neytt.
Menn sungú og spjölluðu.
Einn viðstaddra veitti þvl at-
hýgli, að Þorvaldi Ara varð tíð-
gengiö til herbergis, þar sem
síminn er. Leið á nóttina.
Einn gestanna sagöi, aö Þor-
Tækifæriskaup
Vetrarkápur, verð frá kr. 995.00.
Terylene-kjólar, verð frá kr. 295.00.
Odelon-kjólar, lillabláir (unglingastærðir)
Verð frá kr. 695.00.
Dragtir, jakkar, peysur, hattar.
Allt með mjög hagstæðu verði.
FATAMARKAÐURINN, Hafnarstræti 1
(gengið inn frá Vesturgötu)
valdur Ari hefði reynt að segja
sögur.
Allt í einu tekur hann fram
kort meö mynd af Útlaganum,
og skrifar nafn eins gestanna og
eftirfarandi:
Áramót 66/67. Það fara ekki
allir á kirkjugarösballið í haust,
sem ætluðu þangaö í vor. Ára-
mótakveðjur. Þ. Ari.
Síðan segir hann: „Hefurðu
tekið eftir þessari mynd — sér-
staklega konunni?"
Við athugun hefur komið í
Ijós, að nýárskortin með mynd-
inni af Útlaganum keypti Þor-
valdur Ari daginn fyrir Þor-
láksmessu.
Vísir hafði tal af nokkrum,
sem voru með Þorvaldi Ara þá
um nóttina. Einn þeirra kvaöst
ekki muna eftir honum, enda
þótt hann viðurkenndi aö hafa
verið honum kunnugur. Hann
virtist verjast allra frétta. Ann-
ar gestanna sagði alit af létta,
sem hann mundi, m. a. frá
kortinu og ennfremur frá þvi,
þegar Þorvaldur Ari brá sér frá
kl. fjögur um nóttina til að
sækja meira vín. í þeirri ferð
hafði Þorvaldur Ari komið viö
á Hótel Skjaldbreið og kevpt
sér ölföng. Hafði hann kynnt
sig sem lögfræöing og verið
hinn kurteisasti.
Hélt Þorvaldur nú til hússins
aftur og dvelst þar til kl. tæp-
lega átta um morguninn. Síðan
lætur hann aka sér niöur á
Hótel Skjaldbreið. Frekari vitn-
eskju hefur blaðinu ekki tékizt
að afla sér um ferðir Þorvalds
Ara frá því að hann kom á
hótelið, þar til moröið var
framiö á Kvisthaga 25.
Fiskverðið —
Framhald at bls. 1.
samanburði við aðrar sambæri-
legar starfsgreinar, þar sem
þær hafa ekki notið verðlags-
uppbóta á laun, sem þær hafa
fengið á s. 1. ári. Nemur sá
mismunur um þaö bil 8% af
fiskveröi og hefur ríkisstjómin
ákveðið að beÞg sér fyrir ráð-
stöfunum til að ;afna hann og
stuðla þannig að hví að veið-
amar geti haldið áfram meö
eölilegum hætti. Er þá ráögert
að 5% verði greidd til viðbót-
ar fiskverði mánuðina marz og
apríl, en 11% aðra mánuði árs
ins. Mun ríkisstjómin leggja
fram á Alþingi tillögur um
þetta og þ. á m. um nauösyn-
legar fjárhagslegar ráðstafanir í
þessu sambandi.
Þá hefur ríkisstjómin ákveö
iö aö leita staöfestingar Alþing
is á því að 20 millj. króna af
þeirri 80 millj. króna upphæð,
sem ætluð er til aðstoðar sjáv
arútveginum í fjárlögum ársins
1967 verðj eins og á árinu 1966
notaöar til hækkunar verös á
línu- og handfærafisk".
Aö fenginni þessari yfirlýsingu
samþykkti yfirnefnd tillögu frá
oddamanni nefndarinnar, Jónasi
Haralz, forstöðumanni Efnahags-
stofnunarinnar, að með tilliti til
8%-anna úrskuröaði yfimefndin
óbreytt fiskverð á árinu 1967, að
öðm leytj en því, sem felst í sér-
stökum ákvörðunum yfimefndar
um verð á smáfiski og um önnur
atriði. Þá varö samkomulag í yfir-
nefnd um, aö verö á smáfiski yrði
14% lægra en á stórum fiski. Úr-
skurður nefndarinnar var geröur
með atkvæðum oddamanns og full
trúa fiskseljenda, en gegn atkvæði
fulltrúa fiskkaupenda. Úrskurður-
inn veröur birtur í heild hér í blað-
inu á morgun.
Kaupmátfur —
Framb bls l
ur kaupmáttur tímakaups i al-
mennri hafnarvlnnu, þar sem taxta-
tilfærslur hafa orðið mestar, hækk-
að úr 87 stigum 1963 i 92.4 stig
áriö 1964, 101.2 stig árið 1965 og í
106.8 stig árið 1966. Milli áranna
’62 og ’63 var einnig hækkun i öll-
um flokkum. 1 öllum tilfellum ér
miðað við vísitöluna 100 árið 1959,
og þá er orlof alls staðar reiknað
með.
Athyglisvert er, að kaupmáttur-
inn fór lækkandi árin á undan 1963
BÍLAR
Mikið úrval af notuöum bílum.
Komið og skoðið eftirtalda
bíla:
DODGE DART ’67
happdrættisbíll.
RAMBLER AMERICAN
’64 ’65 ’66
fallegir einkabílar.
RAMBLER CLASSIC
’63 ’64 ’65
góðir bílar.
OPEL RECORD ’64
special de luxe
OPEL CARAVAN ’64
vel meö farinn.
AUSTIN CAMBRIDGE ’63
lítil útborgun.
CORTINA ’64
góöur bíll.
Kynniö yður leigu-
ingana hjá okkur.
sölusamn-
RAMBLER-UMBOÐIÐ
JÓN LOFTSSON H.F.
Hringbraut 121 — Simi 10600.
árs og kennir bar efalaust áhrifa
af hófsamlegri samningagerð hin
síðari ár.
í skýringum tekur nefndin fram,
að samkomulag hafi orðið um að
nota kaupmátt tímakaups sem mæli
kvarða á þróun tekna, þótt hægt
sé að relkna tekjubróun á annan
hátt. Tekjuþróun er oft reiknuö
sem þróun rauntekna, og kemur
þá yfirleitt út meiri aukning en í
þróim kaupmáttar tímakaups.
Heitar
samlokur
ic Smurt brauð og
snittur
SMÁRAKAFFI
Laugavegi 178
Ham-
borgarar
Franskar kartöflur
Becon og egg
Smurt brauð og snittur
Laugavegi 178
SMARAKAFFI
Simi 34780.
Maðurinn sem annars
aldrei les auglýsingar
auglýsingar yfSIS |
lesa allir
«>-
Tveir lögreglumenn og
næturverðir myrtir í
nótt í Stokkhólmi
1 NTB-fréttum frá Stokkhólmi
árdegis í dag segir: Klukkan hálf-
sjö í morgun, er menn komu til
vinnu sinnar i verzlunarhverfið
Handen, urðu þeir þess varir að inn-
brot hafði verið framið þar í nótt,
og fundust þar lík tveggja lögreglu-
manna og næturvarða, sem þjóf-
arnir hafa skotið niður er þeir
komu að þeim. Áður hafði veriö
framig innbrot þarna og lögreglan
talið líklegt, að þjófarnir myndu
fremja nýtt innbrot s.l. nótt. Fvrr-
nefndir þrír menn áttu aö vera á
veröi í verzlunarhverfinu um nótt-
ina.
Öllum lögreglustöðvum f Sví-
þjóð hefir verið tilkynnt um morð-
ið og að málinu starfa þegar auk
lögreglunnar og rannsóknarlögregl-
unnar í Stokkhólmi, ríkislögreglan
og morðmálanefndin.
Ekki er vitag með vissu enn ann-
að en það, að það var milli kl. 22
í gærkvöldi og 6,30 í morgun, sem
morðin voru framin.
Alls var brotizt inn í fimm verzl-
anir í hverfinu og stolið vörum
fyrir samtals um 30,000 krónur.
Hinir drepnu eru: Uno Helderup,
fyrsti aðstoðarmaður viö rann-
sókn glæpamála, og Lars-Birger,
fyrsti lögregluþjónn, hinn fyrr-
nefndi 42 ára, hinn síðarnefndi 30
ára Nafn næturvarðarins hefur
ekki /erið birt enn sem komið er.