Vísir - 09.01.1967, Side 8

Vísir - 09.01.1967, Side 8
8 VÍSIR Utgefandi: BlaOaOtgáfan VISIK Framkvæmdastjórl: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson ASstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fróttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson. Auglýsingan Þingholtsstræti 1, simar 16610 og 15099 Afgreiflsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178, Simi 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands. I lausasölu kr. 7,00 eintakifl Prentsmiðja Vfsis — Edda h.f Útgerðin er undirstaðan Án þess að nokkur til'raun skuli gerö til þess að meta mismunandi gildi íslenzkra atvinnugreina, verð- ur tæpast um það deilt, að undirstöðuna sé að finna í sjávarútvegi. Þegar vel aflast og vel seist á erlend- um mörkuðum, segir gróskan til sín alls staðar í öðrum íslenzkum atvinnugreinum, verzlun og við- skiptum og hvers konar þjónustustarfsemi. Þetta end- urspeglast í vaxandi atvinnutekjum almennings, betri afkomu ríkissjóðs og bæjar- og sveitarfélaga, mei'ri framkvæmdum og vaxtarmætti almennt. Um hver áramót vinnur verðlagsráð sjávarútvegs- ins að því að ákveða fiskverðið á komandi vertíð. Ef ekki næst einróma samkomulag í ráðinu, skal vísa ágreiningsatriðum til sérstakra'r yfirnefndar. Þegar lögin um verðlagsráð voru fyrst sett, í árslok 1961, var svo fyrir mælt, að ákvarðanir verðlagsráðs um lágmarksverð á sjávarafla skyldu byggðar á markaðs- verði sjávarafla á erlendum mörkuðum. Á þessu var gerð sú breyting með lögum í desember 1964, að við ákvarðanir um lágmarksverð skuli m.a. hafa hliðsjón af markaðsverði sjávarafurða á erlendum mörkuð- um, svo og framleiðslukostnaði þeirra. Nú liggur það í hlutarins eðli, að fiskkaupendur hér, frystihúsin og fiskverkendur, geta ekki hækkað verð- ið, þegar verðfall er orðið á erlendum mörkuðum. En seljendur fisksins, útgerðarmenn og hlutasjómenn, þurfa hins vegar á hærra verði að halda. vegna þess að framleiðslukostnaður þeirra hefur aukizt. Og hvernig á þá að brúa þetta bil? Hér e'r á það að líta, sem í upphafi sagði, að út- gerðin er undirstaðan í efnahagslífi þjóðarinnar. Ef veiðarnar stöðvast, er öllum hætt. Það mundi segja til sín von bráðar alls staðar í þjóðfélaginu. Þess vegna er skynsamlegast að gera st'rax almennar ráð- stafanir, sem við það miðast, að fiskiflotinn geti stund að veiðar sínar á vertíðinni. Þá réttir aftur við eða helzt að minnsta kosti í horfinu og forðað er frá meiri skaða. Þegar á stendur eins og nú, er ekki um annað að ræða en stuðla að slíkri tilfærslu tekna og gjalda í þjóðfélaginu, er tryggi bátaflotanum viðunandi starfs- skilyrði. Ekki er nein ástæða til að ætla, að almenn- ingi skiljist þetta ekki til hlítar. Sá vandi er hins vegar á höndum nú, að engar slíkar ráðstafanir t'rufli þá verðstöðvunarstefnu, sem mestu skiptir, að bor- ið geti árangur. Annað mál er svo sá vandi, sem út- flytjendum sjávarafurða er á hendi ef áfram halda verðlækkanirnar á hinum erlendu mörkuðum. Slíkt áfall fyrir þjóðina knýr að sjálfsögðu á dyr allra, og kallar á, að því sé mætt af manndómi og festu. I I V I S1R . Mánudagur 9. janúar 1SG7. Rætt við Gunnar Torfason, framkvæmdastjóra Framkvæmdanefndar Byggingaráætlunarinnar og aðra starfsmenn stofnunarinnar, um mesta átak, sem gert hefur verið i byggingarmálum hérlendis Húsnæðismál eru oft á tíðum ein mestu vandamál, sem nútíma velmegunarþjóðir elga við að glíma. — Hafa velflestar þjóðir i Vesturálfu þurft að koma sér upp íbúöarhúsnæöi langt fram yfir það sem fólksfjölgun gefur tilefni til undanfarin ár. — 1 löndum, sem urðu hart leíkin í heimsstyrjöldinni síöari og þar sem heilu borgimar voru lagöar í rúst, þarf ekki að lelta orsakanna langt fyrir mikilli byggingaþörf. — Sömu sögu er að segja I löndum þar sem ekki hafði áður verið byggt úr varanlegu efni, eins og t.d. á íslandi. — í löndum þar sem hvorug þessara forsenda hefur verið fyrir hendi, hefur þó einnig þurft að byggja langt fram yfir fólksfjölgun. Með aukinni velmegun í þessum löndum krefst al- menningur aukins húsrýmis sér til handa. Fjórir ættliðir búa nú ekki lengur i einni og sömu ibúðinni eins og oft tíðkaðist áður fyrr. Nú flyzt unga fólkiö að heiman um leið og það hefur ein- hverja ástæðu til þess og foreldramir sitja áfram í stórum íbúðum og húsum, sem upphaflega vora sniðin fyrir miklu stærri fjöl- skyldu. — Einstaklingar, sem einhvers mega sín sætta sig ekki lengur vlð að búa t.d. í einu herbergi með aðgangi að eldhúsi. — Nú dugir ekki minna en 2-3 herbergja ibúð með öllum nútíma- þægindum. — Þannig er ástatt hér á landi nú og þannig á það auövitað að vera. I landi með óblíðu veöurfari, byggjast lífsþæg- indi að verulegu leyti á góöu húsnæöi og þess vegna getur ísland þvi aðeins kallast velmegunarland, ef nægjanlegt og gott húsnæði er fyrir hendi á hverjum tíma. unarinnar, en svo nefnist stofn un sú, sem á að sjá um fram- kvæmdir áætlunarinnar. — Þetta var Gunnar Torfason fram kvæmdastjóri Byggingaráætlun- arinnar, en til hans leitaði frétta maður Vísis fyrir skömmu til að ræða við hann um þetta mesta átak, sem gert hefur ver- ið í húsnæðisbyggingum hérlend- is. Starfsmenn Byggingaráætlunar sem hefur aðsetur sitt á neðstu hæð Iþróttamiöstöðvarinnar í Laugardalnum, eru nú orðn- ir 13, en til stendur að fjölga þeim i 17—18. — Starfa nú við undirbúning þessarar vfðtæku byggingaráætlunar, 3 arkitektar, 3 verkfræðingar, 4 teiknarar, 1 tæknifræðingur og 1 skrifstofu- stúlka, en til stendur að ráða til viðbótar 2—3 arkitekta og 2 tæknifræðinga. — Stór liður í verkefni okkar er, að reyna að lækka byggingar UPPHAF STÓR- p eysilegt átak hefur verið gert hérlendis í íbúðabygg- ingum seinasta aldarf jórðunginn. Reykjavík er t. d. vart þekkjan leg sem sama borgin eins og hún var fyrir aldarfjórðungi. Það er staðreynd, sem ekki verður á móti mælt, að hér hef- ur meir verið unnið af krafti en af viti í íbúðabyggingum. Litlar umtalsverðar breytingar hafa orðið I byggingatækni, enda er íbúöarhúsnæði óheyri- lega dýrt og reisa margir sér hurðarás um öxl, þegar þeir leitast við að byggja yfir sig. Hver einstaklingur hefur puð- að í sinni holu í bókstaflegri merkingu, byggingariðnaðurinn hefur ekki reynzt hæfur til að skipuleggja stóriðnað, sem m. a. hefur valdið því aö byggingar- kostnaður hefur farið frekar hækkandi en hitt og að byggingar framkvæmdir dragast ennþá ó- eðlilega á langinn. Hér er ekki óalgengt, að bygging ibúðarhús- næðis dragist langt fram á annað ár, eða svo. — Það er ekki lítið vaxtafé sem fer í súginn á þann hátt, en þetta getur oft á tíð- um riðið fénaumum einstakling- um að fuilu. Full ástæða er til að ætia, að mikil breyting verði á þessu næstu árin. Engin bylt- ing hefur átt sér stað, en flestir eru sammála um kosti stóriðju í byggingum, sem auk þess að spara fjárfestingu í íbúð um, getur orðiö til verulegs tíma spamaðar. Er það hið opinbera sem ríður á vaðið með upphaf stóriðju í byggingunum. TTpp úr júní-samkomulaginu 1964 var ákveðið að víðtækar ráðstafanir skyldu gerðar í hús- næðismálum, 250 milljóna króna aflað til lána árið 1965 og lán út á hverja íbúð skyldi ekki vera minna en 280 þús. kr. Tryggð skyldi bygging 1500 íbúöa á ári. — Einnig kom fram sú viljayfir- lýsing ríkisstjórnarinnar að haf- izt yrði handa um byggingu hag kvæmra íbúða fyrir láglauna fólk. Var samain byggingaráætl- un, sem gerði ráð fyrir aö byggð ar yrðu 1250 íbúöir í þessu skyni á fimm árum, en af þeim íbúðum eiga meðlimir verkalýðsfélag- anna kost á 1000 íbúðum, en lánakjör þessara ibúða verða mjög hagstæð: Árinu áður en til vonandi íbúöareigendur flytja inn skulu þeir greiða 5% af á- ætluðu íbúðarveröi og 5% á ári næstu 3 árin. Eftirstöðvamar 80%, er lánað til 33ja ára með sömu kjörum og lánakjör Hús- næðismálastofnunarinnar eru á hverjum tima. Revkjavíkurborg mun ráðstafa 250 ibúöanna m. a. til útrýmingar heilsuspillandi húsnæöis. jpyrir u. þ. b. ári var fyrsti maðurinn ráðinn til Fram- kvæmdanefndar Byggingaráætl- kostnað og fækka vinnustund- um við hverja íbúð, sögðu þeir starfsmenn Byggingaráætlunar- innar, sem Gunnar Torfason kallaði á fund fréttamanns til að ræða undirbúning og tilvon- andi framkvæmdir. — Þessir menn voru auk Gunnars þeír Bjöm Ólafs, Ólafur Sigurðsson og Geirharður Þorsteinsson arki tektar og Bjöm Ólafsson verk- fræðingur. \7'erkefni stofnunarinnar er nú tvxþætt: Annars vegar að teikna og undirbúa smíði 312 íbúða í fjölbýlishúsum á neðri hluta Breiöholtshverfis, sem þegar hef ur verið skipulagður, en hins veg ar aö skipuleggja efri hlutn K’,'”'ð holts, en þar munu 10—15.U00 manns búa í framtíöinni. — Af u. þ. b. 3000 íbúðum, sem verða á því svæði mun stofnunin byggja, teikna og skipuleggja rúmlega 900 íbúðir að öllum lík- indum mest í fjölbýlishúsum, en gera heildarskipulag af öllu svæö inu. Allt að 50% sparnaður í nokkrum efniskaupum vegna stærðar verkefnisins. — Parketgólf í öllum herbergjum, sem hingað til hefur verið talinn munaður, verður til verulegs sparnaðar. — Leit- azt verður við að verksmiðjuframleiða allt í hús- in eftir því sem aðstæður leyfa. — Burðarveggir þó steyptir á staðnum vegna jarðskjálftahættu. — íslenzkar aðstæður leyfa ekki að fjöldafram- leiðsluaðferðir annarra þjóða séu teknar hráar og óbreyttar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.