Vísir - 24.02.1967, Blaðsíða 8

Vísir - 24.02.1967, Blaðsíða 8
V1SIR . Ffistudagur 24. febrúar 1967 8 tsa ÍSIR Otgetanai: BlaOaútgðtan VISIK Framkvæmdastjórt: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjðnsson AOstoOarritstjóri: Axei rborstelnsOB Fróttaatjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþói Úlfarsson. Auglýsingan Þingholtsstræti 1, slmar 16610 og 15099 AfgreiOsla: Túngótu 7 / Rltstjórn: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur) Askrtftargjald kr. 100.00 ð mðnuOi innanlands. i lausasOlu kr. 7,00 eintaUS PrentsmiOja Vbis — Edda hi. Sjálfstæð stefna Fulbright öldungadeildarþingmaður frá Bandaríkjun- um sagði í fyrradag við íslenzka blaðamenn, að hann dáðist að sjálfstæði íslands í utanríkisstefnu. Líkti hann því við Mexíkó, sem er eina bandalagsríki Bandaríkjanna í Ameríku, er fer sínu fram í utan- ríkismálum án sérstaks tillits til Bandaríkjanna. Ful- bright er sjálfur manna sjálfstæðastur í skoðunum, eins og Johnson Bandáríkjaforseti hefur fengið að kenna á, og er því eðlilegt, að Fulbright veiti sérstaka athygli þeim þjóðum, sem hafa gott samstarf við Bandaríkin eða önnur stórveldi án þess að beygja sig undir vilja þeirra. Ummæli Fulbright um utanríkis- stefnu íslands erú sérstaklega athyglisverð, því hér er um dóm glöggskyggns gests að ræða. Fulbright sagði í ræðu sinni í hátíðasal Háskólans, að á síðustu árum hefði verið áhrifamikill ferill ýmissa smáþjóða, sem hefðu boðið stórveldunum birginn og komizt klakklaust frá því. Nefndi hann Mexíkó, Júgóslavíu, Kúbu, Rúmeníu og Kambodsíu og sagði, að bæta mætti íslandi við. Hins vegar benti hann á, að affarasælasta leiðin væri ekki að ögra stórþjóð- unum, heldur að stefna að vinsamlegu en sjálfstæðu sambandi við þær. Sagði hann ísland geta gegnt á ýmsan hátt jákvæðu hlutverki í heimsmálunum, eink- um í Sameinuðu þjóðunum og öðrum alþjóðastofn- unum. Við blaðamenn sagði Fulbright, að hann teldi Atlantshafsbandalagið mjög mikilvæga stofnun, þótt hættan af kommúnismanum hefði minnkað á ýmsan hátt. Sömuleiðis taldi hann flugvöllinn í Keflavík vera afar mikilvægan fyrir þetta varnarbandalag hinna vestrænu ríkja. Ummæli Fulbright gefa tilefni til hugleiðinga um stöðu íslands meðal hinna vestrænu 'ríkja. Þjóðin hefur skipað sér í hóp allmargra þjóða beggja vegna Atlantshafsins, en þessar þjóðir hafa með sér náið samstarf, enda er stjórnarfar og lýðræði með svipuð- um hætti í flestum þessum löndum. Stærsta framlag íslands til þessa bandalags eru afnotin af flugvellin- um í Keflavík. Rótgróin vinátta íslands við Banda- ríkin og önnur vestræn ríki hefur samt ekki leitt til þess, að íslendingar sýndu þessum þjóðum neina þjónslund. Þetta sýnir, að styrkur hins íslenzka sjálfstæðis er mikill. íslendingar hafa ekki fallið í þá freistni margra smáþjóða að vanrækja skyldur sínar á al- þjóðavettvangi og fela þær á vald stórþjóða, eins og Fulbright ræddi nokkuð um í errndi sínu. Smáþjóðir vanmeta oft aðstöðu sína af ótta við aðgerðir stór- þjóða og taldi Fulbright það bæði óþarfa og hugleysi. Ummæli hins virta öldungadeildarþingmanns frá Bandaríkjunum hljóta að ve'ra íslendingum mikill sið- ferðilegur stuðningur og hvatning til að leggja áfram ióö sitt á vogarskálina í alþjóðlegum framfaramálum og að gera það í vaxandi mæll Norrœnt námskeið fyrir unga leikstjóra í Reykjavík Norrænt námskeið fyrir unga leikstjóra, hiö svokallaða Vasa — seminarium. veröur haldiö í Reykjavík dagana 25. maí til 2. júní í ár. Þetta er í fyrsta sinn að námskeið þetta er hald- ið á íslandi, en áður hefur þaö verið haldið á öllum hinum Noröurlöndunum, fyrst i Vasa í Finnlandi, þá I Lundi, Odense og í fyrra í Osló. Um 40 leik- stjórar frá öllum Noröurlönd- unum taka þátt f þessu nám- skeiði þar sem verða fyrirlestr ar, umræður og vinnuæfingar og í þetta sinn fjallað um nú- tímavinnuaðferðir leikstjóra og leikara. Meðal kunnra leikhús- manna, sem búizt er við, aö taki þátt í umræðum og haldi fyrirlestra eru ítalski leikstjór inn, leikarinn og leikritahöfund urinn Dario Fo, brezki leik- stjórinn Joan Littlewood og franski leikstjórinn Rogger Planchon. Útlendu þátttakendurnir búa á Hótel Holt, en megnið af nám skeiðinu fer fram í Lindarbæ. í undirbúningsnefnd af Islands hálfu eru leikstjórarnir Baldvin Halldórsson, Benedikt Árnason, Gísli Alfreðsson, Helgi Skúlason og Sveinn Einarsson. Afli netabáta hefur heldur glæðzt hér í flóanum, en Faxa- flóabátamir hafa ýmist verið á veiðum hér í bugtinni eða djúpt á Tungunum og fengið þetta frá 6 og upp í 12—13 tonn. Ásþór RE kom með 22 til 23 tonn til Reykjavíkur í fyrradag, en um 20 bátar munu nú vera byrj aðir netaveiðar frá Reykjavík. Gæftir hafa verið stirðar, en virðast nú fara batnandi. Síð- ustu daga hefur verið renniblíða Umsóknir af Islands hai skulu stílaðar til fulltrua lands í Vasanefndinni — Guö laugs Rósinkranz þjóðleikhns stjóra fyrir marzlok og vorveður suðvestanlands. Nokkrir sunnanbátar hafa reynt fyrir sér á Breiðafirði, en ekki haft þangaö erindi sem erf- iði og virðist fiskur ekki geng- inn að ráði þangað. Heldur hefur lifnað yfir ver- tíðinni I Eyjum, þó að gæftir séu enn stirðar. I fyrradag vitj- uðu þar nokkrir bátar um net og nokkrir bátar róa enn m^ð línu. Aflinn var þetta upp í 12 —13 lestir. Sæmileg veiði í Faxaflóa Vel leiknar og fyndnar .gaman myndir njóta mikilla vinsælda Mikil aðsókn að kvikmynd- um eins og „Eiginmaöur að láni“ — hún hefur nú verið sýnd á siöttu viku í Stjömu- bíói — sýnir svo skýrt sem verða má, hve notalegt og skemmtilegt mörgum finnst að sjá vel leiknar og fyndnar myndir, vel falinar til skaplétt- is, gamanmyndir án öfga hinna algengu skopmynda. Jack Lemmon leikur aðal- hlutverkið í þessari mynd. Hann er fádæmavinsæll síðan hann lék lögregluþjóninn í „Irma La Douce" I Tónabíói. — Þar hafði hann Shirley MacLaine á móti sér, en hér er hann „milli tveggja elda“ — Dorothy Prov- ina, setn leikur ,,gegn-banda- ríska“ eiginkonu — og Romy Scneider, sem gædd er glað- Ieika- og fegurðarblæ fæðingar- borgarinnar, Vínarborgar. — Lemmon hefir þrívegis hlotið titilinn „bezti leikari" (1959, 1960 og 1962). Hann er fæddur í Boston og hefur getið sér orð fyrir dramatísk hlutverk ekki síður en gamanhlutv. Mikil að- sókn hefir einnig verið og er að „Gæsapabba“ í Hafnarbíói, meö þeim Cary Grant og Leslie Car- on. Það er mynd sömu tegund- ar. I rauninni er gott til þess að vita, að slíkar kvikmyndir skuli njóta almennra vinsælda en aö „kynlífs“-myndir veröa mönn- um því hvimleiðari sem fleiri eru sýndar. —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.