Vísir - 24.02.1967, Page 12
12
V1 SIR . Föstudagur 24. febrúar 1967.
með ferðum Harpers, strax þeg-
ar hann kom á flugvöllinn, og
hvort eð var, þá mundu menn
Tufans veita mér eftirför. Það bar
því ekki neina nauðsyn til að hafa
samband við hann.
Ég hraðaði mér þangað, sem
billinn var geymdur, greiddi
geymslugjaldið og settist undir
stýri. Umferðin var svo mikil, að
það tók mig tuttugu mínútur að
komast út fyrir borgina. Klukkuna
vantaði fimmtán mínútur í sex,
Þegar ég kom á móts við Yeniköy
Peugotubíllinn hinn sami og veitt
hafði mér eftirför frá Edirne, ók
enn í hóflegri fjarlægð á eftir mér.
ég hægði ferðina til að gæta á
mílumælinn og herti hana svo
aftur.
Einbýlishúsin þarna við Sæviða-
sund eru ærið mismunandi. Litlir
helgarbústaðir niðri við sundið með
bátaskýli, stór glæsileg hús og allt
upp í hallir. Mörg þeirra voru í
rauninni hallir í eina tíð, áður en
höfuðborgin var flutt frá Istanbul
til Ankara, höfðu sendiráð erlendra
ríkja aðsetur sitt í þessum glæsi-
legu stórhýsum á sumrin, þar sem
svalinn utan af Svartahafinu held-
ur hitamollunni x skefjum, þegar
ólíft mátti heita inni i siálfri borg-
inni. Hiö umrædda hús, Sardunya,
bar með sér að það mundi rekja
uppruna sinn þá leiðina.
Báðum megin við afleggjarann
stóðu steinstöplar miklir og hlið-
ið var úr beygðu smíðajárni. Af-
leggjarinn var að minnsta kosti
100 m langur, upp brekkuna, og
báðum megin við hann þéttir skóg
lundir, svo að sjálf byggingin sást
ekki af þjóðveginum. Efst í brekk-
unni stóð svo sjálf byggingin, og
autt, malborið svæði umhvérfis.
Þetta var mikið hús, hvítkalkað,
af þeirri gerð, sem sjá má í eldri
hverfum Nizza og Monte Carlo.
Franskir eða ítalskir bygginga-
meistarar hafa eflaust verið fengn
ir um aldamótin til að standa
fyrir smíðinni. Þarna gat aö líta
öl sérkenni í byggingalist á þeim
árum — súlurnar, verandir, mikl-
ar svalir, breið marmaraþrep, gos-
brunnur á garðflötinni og ekki
spillti staðsetningin, dásamleg út-
sýn yfir sundið. En við nánari
athugun kom í ljós, að kalkhúöin
var sums staðar farin að flagna
af veggjunum, það var ekki deig-
ur dropi í gosbrunninum og ill-
gresið óx upp úr malarstígnum.
Þegar ég ók heim stíginn, sá
ég að Fischer stóð upp úr sæti
sínú úti á veröndinni og gekk inn
í húsið gegnum breiðar og háar
gluggadyr í frönskum stíl. Ég nam
því staðar við marmaraþrepin og
beið átekta. Andartaki síðar kom
Harper út um aöaldyrnar óg gekk
niöur þrepin. Ég kleif út úr bíln-
um.
„Hvað tafði?“ spuröi hann.
„Þeir í bílageymslunni urðu að
skrifa 'reikning, og svo var það
umferðin,.
„Jæja ...“ Hann þagnaði viö,
.þegar hann sá að eitthvað sér-
stakt vakti athygli mína.
Kona gekk niður marmaraþrep-
in.
Hárper brosti lítið eitt. „Það
er álveg satt“ sagði hann, „þú
hefur ekki kynnzt vinnuveitanda
þínum enn. Elskan... Þetta er
Arthur Simpson. Arthur .. þetta
er ungfrú Lipp“.
Fimmti kafli.
Þeir karlmenn eru til, sem þurfa
ekki annað en líta konu til þess
aö vita aldur hennar, svo sama og
engu skeikar. Ég er ekki einn af
þeim. Geri ég ráð fyrir að það sé
af því, að innst inni ber ég virð-
ingu fyrir konum — að móður
minni undanskilinni. Já, það hlýt-
ur að stafa af því. Sé viðkom-
andi kona einkar aðlaðandi, en
bersýnilega ekki ung stúlka, geri
ég alltaf ráð fyrir að hún sé
tuttugu og átta. Ef hún er dálítið
farin að láta á siá, en þó bersýni-
lega ekki komin á kerlingaraldur-
inn, geri ég alltaf ráð fyrir því,
að hún sé fjörutíu og fimm. Þótt
undarlegt kunni að virðast, kemur
mér aldrei annar aldur í hug, og
ekkert þar á milli.
Tuttugu og átta datt mér strax
í hug þegar ég leit ungfrú Lipp.
Seinna komst ég að raun um að
hún var þrjátiu og fimm ára. Mér
sýndist hún vera tuttugu og átta
Hún var fremur há vexti, með ljóst
hár ög sló á það jarpgullinni slikju,
og þannig vaxin, að maður hlaut
að veita einmitt líkama hennar at-
hygli, burtséð frá því, sem huldi
hann. Hún hafði líka þetta augna
tillit, fjarrænt, hálfsyfjulegt og þó
glettið, og þennan hýra, ertnislega
munnsvip, sem ber því vitni að
konan veit að maður getur ekki
annað en veitt líkama hennar og
líkamshreyfingum óskipta athygli
— og að henni stendur svo ger-
samlega á sama um það þótt augna
ráðið sé nærgöngult, hún sé ósnort-
in af karlmanninum eins fyrir það.
Hún var klædd hvítum stuttbrók-
um í þetta skiptið, viðri, hvítri
treyju .-og með ilskó á fótum. Hör-
undið var brúngullið, og fegurðar-
lyf hafði hún ekki notað, nema
varalit. Það var augljóst, að hún
var nvstigin upp úr baði.
Hún kinkaði kolli til mín og
brosti. „Halló", sagði hún. „Er ekki
allt í lagi með bílinn?“ Hún hafði
svipaðan málhreim og Harper.
„Jú, ungfrú".
„Gott“ sagði hún. Það virtist
ekki koma henni neitt á óvart.
Nú kom Fischer niður þrepin.
Harper leit til hans um öxl.
„Allt í lagi, Hans“ sagöi hann.
„Þú skreppur með Arthur niður í
þorpið“. Og við mig sagði hann:
„Þú getur farið með ferjunni til
baka. Er feröalagaskfrteinið og önn
ur skilríki í hanzkahólfinu?"
„Vitanlega ekki“, svaraði ég.
„Þau plögg eru geymd í öryggis-
skáD iieima í hótelinu".
„Ég sagði þér að láta þau f
hanzkahólfiö", mælti Fischer reiði-
lega.
Ég leit fast á Harper. „Það voru
ekki þfn orö“, mælti ég. „Og þú
sagðir aldrei, að mér bæri að hlýða
skipunum einhvers af þjónum þín-
um“.
Fischer bölvaði á þýzku. Ung-
frú Lipp hló.
„Er hann kannski ekki þjónn
þinn?“ spurði ég. „Hann hagaði sér
að minnsta kosti eins og hann væri
/
aftur niöur í herbergi mitt og fékk
mér biund.
Ég hlýt að hafa veriö svefns- og
hvíldarþurfi, því að ég steinsvaf
þegar síminn hringdi um fimmleyt-
ið. Það lá .við að ég ylti fram úr
rúminu, svo brá mér við hringing-
una. En ég glaðvaknaði þegar í stað
„Arthur...“ Þaö var Harper,
sem talaði.
„Já“.
- „Þú þekkir mig ?“
„Já“.
„Bíllinn í lagi?“
„Já“.
„Hvers konar þras er þá í þér?“
„Ég hef ekki þrasað neitt.“
„Fischer segir að þú hafir neitað
að afhenda sér bílinn?"
„Þú sagðir mér að bíða nánari
fyrirskipana frá þér, svo ég beið
Þú sagðir mér aldrei að afhenda
bráðókunnugum manni bílinn, sem
ekkert hafði í höndunum, sem sann-
aði að þú hefðir veitt honum neitt
umboð ..
„Allt í lagi. Sleppum því. Hvar
er bíllinn ?“
„Hann er í bílageymslu hér
skammt frá“.
„Veiztu hvar Sariyer er?“
„Já.“
„Þá legguröu samstundis af stað
í bílnum og út á Sariyerveginn.
Þegar kemur á móts við Yeniköy
líturðu á . mílumælinn og ekur
sfðan nákvæmlega fjórar mílur í
áttina til Sariyer. Þá séröu á hægri
hönd bryggju, og er bátur bund-
inn við hana, en á vinstri hönd,
beint á móti, sérðu afleggjara upp
að stóru einbýlishúsi. Þetta hús
j nefnist Sardunya. Heldurðu að þú
munir þetta?“
„Áreiðanlega“.
„Þú ættir ekki að vera nema
j um fjörutíu mínútur á leiðinni."
„Ég legg af stað samstundis...“
Sariyer er lítið fiskiþorp við Sæ-
viðasund, þar sem sundið breikkar
út í Svartahaf, og vegurinn þang-
að frá Istanbul, liggur eftir strönd
inni Evrópumegin. Ég braut heil-
ann um það, hvort ég ætti að hafa
samband við Tufan áður en ég
héldi af stað, og segja honum á-
kvörðunarstaðinn, en komst að
þeirri niðurstöðu, að það mundi
ekki borga sig. Það mátti heita
fullvíst, að hann hefði látið fylgjast
ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR
úr harSpIasti: Format innréttingar bjóða upp
ú annað hundraS tegundir skópa og litaúr-
val. Ailir skópar með baki. og borðplata sór-
smíðuð. EldhúsiS fæst me3 hljóSeínangruð-
um stólvaski og raftaokjum af vönduðustu
gerð. - Sendið eða komið með mól af eldhús-
inu og við skipuleggjum eldhúsið samstundis
og gerum yður fast veiðtilbóð. Ótrúlega hag-
stætt verð. Munið að söluskottur er innifalinn
í tilboðum fró Hús & Skip hf. Njótið hag-
síæðra greiðsluskilmúla og /Ch|Kjg;|n:
lækkið byggingakostnaðinn. SHmtíKÍ
HÚS & SKIP Jhf.- LAUOAVaol II •. SIMI XtSIS
Kvikmyndasaga
eftir Eric Ambler
„Þetta gengur ágætlega. Þeir eru famir að
þreytast undir byrðunum og frumskógurinn
er þykkur, svo þeim sækist hægt ferðin.“
„Þeir verða að æja, þegar skyggja fer. Ég
vona að þeir verði orðnir þreyttir nema Mu-
viro og hans menn.“
BBaMMBBBHBBBBBHBBBKI^BMBE]
Seinna. „Viö munum æja hér í nótt. Vöröur
verður hafður á, svo enginn freistist til aö
ganga f svefni með gullið mitt,“ kallar Krona
þjónn ... að vísu ekki eins og góð-
ur þjónn“.
Harper rétti úr sér. „Við skulum
sleppa því, Arthur“, mælti hann.
„Herra Fischer er gestur héma. os
hann ■ vildi einungis vera okkur
hjálplegur. Ég læt sækja til bín
þessi plögg á morgun, áður en þú
ferð. Þú færð ómakslaun þín um
leið og þú afhendir þau”.
„En mér skildist að ég ætti aö
vera bílstjóri ungfrú Lipp, á með-
an hún dveldist á Tyrklandi?“
„Það er í lagi, Arthur. Ég ræð
einhvern hérlendan til þess “
„Ég get ekiö bílnum“. mælti Fis-
cher og kenndi óþolinmæði í rödd-
inni.
FSjót iireÉnsun
Nýjar vélar
Nýy hreinsilögur
sem reynist frábærlega vel
fyrir allan svampfóðraðan
fatnað, svo sem
kápur, kióla, jakka og allan
barnafatnað.
Efnalaugin LINDIN,
Skúlagötu 51.
Heilsuvernd
Síðasta námskeið vetrarins í
tauga- og vöðvaslökun og
öndunaræfingum, fyrir kon-
ur og karla, hefst miðvikud.
1. marz. Uppl. í síma 12240.
Vignir Andrésson.
i WBBi-rniBBBimrB mmm\F ■ mmmmmmnmmmmnm
j t l£/GA»
RAUDARÁRSTtG 31 SfMI 22022
DTIHURÐÍR
SVALAHURÐIR
BÍLSKÚRSHURÐIR
HUROAIDJAN SF.
AUÐBREKKU 32 KÓPAV.
SÍMI 41425
Augiýsið í Vísi