Vísir - 24.02.1967, Qupperneq 16
Sigurður Einarsson
í Nolti láfinn
Séra Si^urður Einarsson í Holti
lézt í Landspítalanum í gær 68
ára að aldri. Hafði hann legið rúm-
fastur um skeið.
Hann var fæddur að Amgeirs-
stöðum I Fliótshlíð 29. október
1898, sonur hiónanna Einars Sig-
urðssonar og Maríu Jónsdóttur.
Hann lauk stúdentsprófi 1922 og
Framh. á bls. 10
^Bukolla, the Wonderful Cow' í safni íslenzkra
þjóðsagna^sem komu út í enskri þýðingu ígær
Útgefendurnir vildu ekki „Sálina hans Jóns míns“,
talað við dr. Alan E. Boucher höfund ritsins
0 „Bukolla, the Wonderful Cow, Mead Moon-
daughter og The Deacon of Darkwater“, eru meðal
annarra íslenzkra þjóðsagna, sem voru gefnar út
í bókinni „Mead Moondaughter and other Iceland-
ic Folk Tales“, hjá Rupert Hart Davis forlaginu í
Lundúnum í gær. Þetta er fyrsta íslenzka þjóð-
sagnasafnið, sem komið hefur út í enskri þýðingu
í Bretlandi síðan 1890. Dr. Alan E. Boucher þýddi
Vilja þjóðaratkvæði
um hægri aksturinn
Andstaða gegn hægri akstri á ís-
landi virðist vera að magnast og er
máiið rætt mjög, einkum í Hópi bíl-
stjóra og beirra, sem mest afskipti
hafa af umferðarmálum og koma
mörg sjónarmið fram í rökræðum
manna á milli um þessi mál.
Á aðalfundl fulltrúaráðs verka-
Iýðsféiaganna i Á.i’essýslu var sam
þykkt áskorun á ríkisstjórn og Al-
þingi að láta fara fram þjóðarat-
kvæðagreiðslu um hægri akstur
samfara kosningum til Alþingis í
vor, og jafnframt að fresta öllum
aðgerðuíu þar til fyrir lægi vilji
þjóðarinnar í þessu stórmáli.
sögurnar og safnaði þeim saman, en hann kennir
nú ensku í viðskiptadeild Háskólans í vetur, en hef-
ur áður samið fjölmargar bækur um íslenzk efni,
þá síðustu á sl. ári, „The Hornstranders“, sem er
skáldsaga og fjallar um Hornstrendinga.
Framh. á bls. 10
Fólk þyrptist niður í Listamannaskála í morgun, þegar bókamarkaðurinn hófst.
Alan E. Boucher
Lif og fjör d bókamarkaðin-
um sem opnaöi i morgun
Bókamarkaðurinn, sem Bók-
salafélagiö heldur nú í 7. sinn,
hófst i Listamannaskálanum f
morgun. Eru þar á boðstólum
3000 bókatitlar, nær 7 hundruð
fleiri en f fyrra og hafa sennilega
aldrei fyrr verið jafnmargar
bækur á boöstólum á einum
stað hér á landl. Á bókamark-
aöinum í fyrra seldust upp síð-
ustu eintök 42 bóka og má gera
ráð fyrir að bókamarkaöurinn í
-«>
Sterk hreyfing fyrir fríverzlunar-
handalagi Norður Atlantshafsríkja
Bandarískir stjórmálamenn senda The Times bréf um NAFTA
Fjölmargir bandarískir for-
ystumenn f þjóðmálum hafa
sent brezka stórblaðinu The
Times í London bréf og lagt til
að hafnar verði viðræður um
fríverzlunarbandalag Norður-
Atlantshafsríkja. Hugmyndin er
að þetta bandalag neti náð yfir
Kandaríkin. Kanada, Stóra-Bret-
iand og önnur EFTA-lönd, Jap-
an og þau samveldislönd, sem
kynnu að æskja þátttöku i
bandalaginu.
Aðalforvfgismaður hugmynd-
arinnar er bandaríski öldunga-
deildarþingmaðurinn Jacob Ja-
vits frá New York, en ásamt
honum undirrita bréfiö ýmsir
þekktir bandarfskir ríkisstjórar,
öldungadeildarþingmenn, full-
trúadeildarþingmenn og háskóla
rektorar. Segir The Times í for-
ystugrein að bréfið kunni aö fá
mikið sögulegt gildi í framtíð-
inni.
í bréfinu er hvatt til þess að
hafnar verði viðræður um frí-
verzlunarbandalag rfkja við
Norður-Atlantshafið og Japan
og samveidislanda án tillits til
þess hver niðurstaðan verði af
viðleitni Breta til að fá inn-
göngu í Efnahagsbandalag Ev-
rópu. Er í bréfinu hvatt til aö
Bretar og Bandaríkjamenn hefji
nú þegar gagnkvæmar aðgerðir
á sviði viðskipta- og fjármála
með nýtt fríverzlunarbandalag,
North Atiantic Free Trade Area,
NAFTA, í huga. Þessi mál voru
meðal hinna þýðingarmestu,
sem rædd voru á ráðstefnu
brezkra og bandarískra þing-
manna, sem Robert Kennedy
sótti í Bretlandi fyrir skömmu.
Wilson forsætisráðherra Breta
hefur sjálfur rætt um slíkt efna-
hagsbandalag sem kost, ef ann-
að bregzt. Bendir það til þess,
að Bretastjórn hafi einkum á
seinni tímum farið að hugleiða
þessa ieið. Taki Efnahagsbanda
lag Evrópu þann kost aö stilla
sér upp sem eins konar and-
amerískt og andbrezkt bandalag
kunni fríverzlunarbandalag N,-
Atiantshafsríkja að verða raun-
hæft, segir í erlendum blöðum.
Augljóst er, að þetta mál er
aðeins á umræðu- eða áróðurs-
stigi, en bandalag af þessu tagi
með Bretum og Bandaríkjunum
mundi hafa mikla þýðingu fyrir
íslendinga, þar sem Bandaríkin
og Bretland eru okkar mestu
viðskiptalönd.
ár verði eins og í fyrra. loka-
höfn margra góðra bóka. —
Yngstu bækurnar á markaðin-
um komu út árið 1963.
Einkunnarorð Bókamarkaðsins
er sem fyrr „gamla krónan i
fullu verðgildi", en bækumar eru
ýmist seldar á upprunalegu
verði eða þá með 50 — 60% verð
lækkun.
Sú bók, sem vafalaust mun
vekja hvað mesta athygli á
markaðinum er messusöngbók-
in „Grallarinn", sem mönnum
hefur orðið tíðrætt um undan-
fariö, en hún er ljósprentuð eft-
ir útgáfu frá 1594.
Lárus Blöndal og Jónas Egg-
ertsson standa sem fyrr fyrir
markaðinum í samvinnu við
Bóksalafélagiö. Verður bóka-
markaðurinn opinn til kl. 22 í
kvöld, til 16 á morgun og kl.
9—18 næstu viku.
Rætt um Kína
á fundi Varðbergs
og SVS
VARÐBERG og SAMTÖK UM
VESTRÆNA SAMVINNU efna ti!
hádegisfundar •' Þjóðleikhúskjallar-
anum á morgun (laugard. 25. febr.)
og hefst hann kl. 12.10.
Ræðumaður fundarins er Jóhann
Hannesson, prófessor, og ræðir
hann um „Mikilvæg viðhorf í Kína"
og svarar fyrirspumum.