Vísir - 14.03.1967, Blaðsíða 16
VISIR
Þrttfndaev 14.
1967.
Sjálfstæðismaima
o Heykjovífc í kvöld
jálfstæðismenn •' Reykjavik ganga
<á alþingisframboöi sfnu á fundi í
jiltrúaráöi Sjálfstæðisfélaganna i
völd. Hefst fundurinn ki. 20.30 i
álfstæðishúsiou. Veröa iagðar fyr
r fundlnn tiiiögur kjömefndar um
..’pun framboöslista Sjáifstæöis-
okksins fyrir afþingiskoajingarn-
;r i iúnimánuði nJc. Þess er aö
ænta, aö fundurinn verði fjölsótt-
ur. Mönnum ber að sýna fulltrúa-
- kírteini við inttgangfam.
LANDGRÆÐSLA HAFIN VIÐ BÚR-
FELLSVIRKJUN í VOR
Landsvirkjun mun í
vor í samráði við Land-
græðsluna og Skógrækt-
ina hefja tilraunir með
að rækta upp land í
Þjórsárdal, við Búrfells-
virkjun, til að sjá hvort
ekki sé hægt að hefta
sandblástur og gera um
hverfið vinalegra og
byggilegra. Er þetta gert
að frumkvæði Lands-
virkjunar, sem mun
kosta tilraunina að veru
Iegu leyti, en Páll Sveins
son, landgræðslustjóri
mun taka að sér fram-
kvæmdirnar.
Gunnar Sigurösson, verkfræð-
ingur hjá Landsvirkjun, sem
hefur haft meö þetta aö gera
fyrir hönd Landsvirkjunar sagði
Vísi í morgun aö þetta hefði
lengi verið til umræðu en á-
kvö.röun um máliö hefði ekki
veriö tekin fyrr en á iiönu
hausti. Veröur fyrst um sinn aö-
eins um tilraunagræðslu að
ræða en gefist hún vel verða
stærri svæði væntanlega tekin
fyrir. Veröa í vor og sumar
tekin fyrir svæöi norðan viö
Sámsstaöamúla og ofan viö
stöövarhúsið og verður aðallega
sáð túnvingli en einnig fleiri
grastegundum svo og lúpínu.
SKILNAÐARMÁLIÐ FYRIR
HÆSTARÉTT í APRÍL
Skilnaðarmáfað, sem nýlega var
sagt frá hér 1 Vfsi, verður væntan-
lega teklð fyrir i Hæstarétti í apríl
næstkomandi, aö þvf er settur ritari
Ilæstaréttar, Gaukur Jörundsson,
tjáði Vísi. — Skilnaöarmálið snýst
um það, hvort aörtr en þjónandi
•srestar, eða sýsiumenn, bæjarfó-
,etar, borgardómarar og fulltrúar
eirra, hafl lagalegt nmboö til aö
efa saman hjóo.
Enginn vafi leikur á því að allir
vígðir prestar hafí kirkjulegt um-
boð til að gefa saman hjón og inna
önnur prestleg störf af hendi, en
þar sem hjónabandið er lagaleg
stofnun og hefur lögfylgjun, þá
mun sá sem gefur saman að þurfa
að hafa til þess lagalegt umboð.
— Skilnaðarmálið, sem verður tek-1
ið fyrir í apríl næstkomandi verð-
ur því prófmál, hvort uppgjafa-
prestar og aðrir vígðir prestar, sem
ekki eru þjónandi, hafi til þess
lagalegt umboð aö gefa saman j
mun úrskurðurinn án efa hafa al-
varlegar afleiðingar í för með sér,
því aö mikill fjöldi íslenzkra hjóna-
banda yrði úrskurðaður ólöglegur
í sömu mund.
hjón. — Reynist $vo ekki vera,
Tvö ii
a j
hálfum' mánuBi
Nú hefur tvívegis verið brotizt
inn 1 verzhmina Esjn á Kjalarnesi
meö aðeins tveggja vikna millibili.
í fvrra skiptið náðust engin
fingraför eöa öonur gögn sem gefiö
gætu upplýangar, en þá var stolið
tóbaki, vindiakveikjurum o. fl.
fyrir u.þ.b. 2S þúsund krónur.
í seinna hmbrotinu var stolið
fyrir minni upphæð, en þá munu
fingraför hafa fundizt, auk spora
eftir þjófana, og lágu sporin að
hjólförum eftir bifreið sem hafði
verið skilin eftir skammt frá verzi- j
uninni.
i
Þessi innbrot hafa komiö sér:
mjög illa fyrir eigendur verzlunar-;
innar, enda er stolið vörum semj
eru dýrar í innkaupi en fást ekkil
bættar á skömmum tíma.
Sveinn Björnsson, hjá bæjarfó-
geta í Hafnarfirði, hefur með
rannsókn seinna innbrotsins að
gera, en hann tjáði blaðinu aö þeir
yrðu að senda fingraförin til
rannsóknarlögreglunnar 1 Reykja-
«k, en þar fengist úr því skorið
hvort þau eru á skrá. Sveinn sagði
að þeir hefðu ekki ennþá komið
því 1 verk að senda gögnin til
Reykjavíkur, enda væri svo mikið
um innbrot í Hafnarfirði og suður
með sjó að þeir hefðu nóg aö gera.
Guðmundur Erlendsson, hjá
rannsóknarlögreglunni í Reykjavík
hafði meg rannsókn fyrra innbrots-
ins að gera, en hann sagði blaðinu
að ekkert hefði komiö í Ijós við þá
rannsókn sem bent gæti tif hver
þjófurinn væri.
SJstí Alþýðubonda-
bgsins á iorður-
landi eystrn
Listi Alþýöubandalagsins í Norð
urlandskjörd^smi eystra hefur ver-
iö birtur og er hann þannig skip-
aður: Björn Jónsson, alþm., Akur-
eyri, 2. Hjalti Haraldsson oddviti,
Ytra-Garðshorni, 3. Benóný Arnórs
son bóndi, Hömrum, 4. Sveinn
Júlíusson verkamaður. Húsavík, 5.
Gunnar Eydal stud. jur., Akureyri,
6. Freyr Bjarnason múrari, Húsa-
vík, 7. Angantýr Einarsson kenn-1
ari, Þórshöfn, 8. Páll Árnason:
verkamaður, Raufarhöfn, 9. Hörö-
ur Adolfsson viðskiptafræöingur,
Akureyri, 10. Sveinn Jóhannesson |
verzlunarmaöur Óiafsfirði, 11. Þór |
Jóhannesson bóndi, Þórshöfn, 12.1
Tryggvi Helgason, forseti Alþýðu-!
sambands Norðurlands. I
Þannig er umhorfs viö Búrfellsvirkjun og sést sums staðar varla sting-
andi strá.
Nýtt stjórnarfrum-
varp um vörumerki
Lagt var fram í gær á Alþingi
stjórnarfrumvarp til laga um vöru-
merki. Frumvarpið er samið af
nefnd, sem skipuð var af rikis-
stjóminni í maí 1958 til þess að
endurskoða Iögin um vörumerki
frá 1903. Lauk nefndin störfum í
október 1966, með samningu þessa
frumvarps.
Ljóst var orðið, að lögin um
' vörumerki þyrftu endurskoðunar
við. Þau voru á sínum tíma sett í
samræmi við vörumerkjalöggjöf á
hinum Norðurlöndunum, nánast
þýðing á dönsku lögunum, en síðan
hefur allmikil breyting oröið á
þeirri löggjöf þessara landa. Einnig
hafa íslendingar gerzt aðilar að
alþjóðasamningum á sviði vöru-
merkjaréttar, og því var oröin
brýn nauðsyn að endurskoða lög-
gjöfina og breyta henni meir til
samræmis iöggjöf annarra landa,
því vörumerkjaréttur er ein þeirra
greina réttarins, sem alþjóðleg
sjónarmið hljóta aö móta.
Við samningu þessa iagafrum-
varps voru Norðuriandalögin höfð
að fyrirmynd, þótt fullt tillit væri
tekið til þeirrar sérstöðu sem við
islendingar höfum.
Sigurður Benediktsson heldur iistmunauppboö í dag í Þjóðlcikhúskjallnranum kl. 5. Þessi mynd var tekin
i morgun og er Sigurður að sýna viðskiptavini nokkra af þeim munum sem þarna verða boðnir upp.
Sex þúsund hafa
séð sýningu
Þórarins
Um sex þúsund manns hafa nú
ség yfirlitssýninguna á verkum
Þórarins B. Þorlákssonar, sem
staðiö hetur yfir í Listasafni ís-
lands að undanförnu. Er þetta
mjög góð aðsókn, og hefur því verið
ákveðið að framlengja sýningun:>
allt til kvöids annars í páskum.
Tjáði Selma Jónsdóttir listfræö
ingur blaðinu að sem dæmi um að
sóknina mætti nefna að sex hundr-
ug manns að meöaltali hefðu séð
sýninguna s.l. sunnudaga.
Sýningin verður onin daglega frá
kl. 1.30—10.