Vísir - 16.03.1967, Síða 5
sem
Eitt af þolprófunartækjunum, sem notuð eru til að mæla muninn á
reykingamönnum og þeim sem ekki reykja.
V í SIR. Fimmtudagur 16. marz 1967.
|,VW/VWVWVW.V.VAWWW.W.W
Nýjar rannsóknir benda til jbess að árangri
megi ná i baráttunni gegn reykingum
„Reykingar hafa slæm áhrif á heilsu yðar,“ stendur
á auglýsingaspjöldum, sem sett hafa verið upp í
ríkinu Maine í Bandaríkjunum. Auglýsingar eru
birtar í níu hundruð útvarpsstöðvum í Bandaríkjun
um og þessar auglýsingar hljóða svo: „Ef þér reyk-
ið tvo sígarettupakka á dag eða meira, eru tuttugu
sinnum meiri líkur á því, að þér fáið lungnakrabba“
í Bandaríkjunum er baráttan
gegn reykingum aö ná hástigi.
Fjöldí samtaka og stofnanna
hefur tekið upp baráttu gegn
sígarettureykingum. Fremst í
flokki eru ameríska krabba-
meinsfélagið og ameríska hjarta
vemdarfélagið. Einnig má nefna
að bandaríska heilbrigðismála-
ráðuneytið ver andvirði yfir
hundrað milljóna íslenzkra
króna til áróðurs gegn reyking-
um.
í ljósi allrar þessarar starf-
semi kann að koma mönnum á
óvart, að sígarettureykingar
hafa ekkert minnkað, en það er
ríkjunum og annars staðar í
heiminum.
Hin fræga krabbameins-
skýrsla var birt fyrir þremur ár-
um. Síðan hefur bætzt við fjöldi
nýrra sannana gegn reyking-
um. Satt að segja er ekki leng-
ur til umræöu, hvort sígarettur
valdi lungnakrabbameini. Það er
álitið algerlega sannað mál. Það
sem vísindamenn eru nú að rann
saka er, hvaða önnur áhrif reyk
ingar geti haft.
Algengur sjúkdómur er
emphysema, sem er skemmd á
blöðrunum í lungunum og ann-
ar algengur sjúkdómur er ólækn
.J samt staðreynd bæði í Banda- andi bronkítis. Þeim fer fjölg-
Prótónubyssan í Harvar
andi meö hverju árinu, sem
deyja úr þessum tveimur sjúk-
dómum. Fyrir tíu árum dóu
4877 Bandarikjamenn úr þeim,
en árið 1964 var dánartalan kom
in upp í 20.208 á ári og enn fer
hún hækkandi. Á fundi, sem
heilbrigðismálaráðuneytið stóð
fyrir í Princeton í október í
haust komust menn að þeirri
niðurstöðu, að reykingar væru
aðalorsök þessara tveggja
sjúkdóma og að mengun and-
rúmsloftsins skipti miklu minna
máli. Eina leiðin til að losna
við þessa tvo sjúkdóma er að
útrýma reykingum, sögðu sér-
fræðingarnir.
Sönnunargögnin hlaðast líka
upp gegn sígarettum sem or-
sök hjartameina, sem víða um
lönd eru helzta dánarorsökin.
í Bandaríkjunum deyja 500.000
manns á ári úr hjartaslagi. Nýj-
ar skýrslur sýna, að miklum
reykingamönnum er þrisvar
sinnum hættara við hjartaslagi
en mönnum sem ekki reykja.
1 október var haldinn fundur
í ameríska hjartaverndarfélag-
inu. Þar voru lagðar fram skýrsl-
ur um rannsóknir, sem benda
til þess, að reykingar stuðli
að myndun stíflna í æðum, eink
um ef um miklar reykingar er
að ræða.
Á sama tíma segja samtök
tóbaksframleiðenda, að engar
vísindalegar sannanir séu fyrir
því, að tjara né nikótín sé orsök
neinna sjúkdóma mannsins.
Samt eru tóbaksframleiðendur
stööugt að reyna að minnka
tjörumagnið í sígarettunum, og
horfur eru á því, að tóbaksfram
Ieiðendur verði senn skyldaö-
ir til þess að gefa til kynna
á sígarettupökkunum, hve mikið
af tjöru og nikótíni sígaretturnar
hafi að geyma.
Mesta vandamálið er, hvernig
fá megi fólk ofan af reykingum.
Flestir áróöursmenn gegn reyk-
ingum hafa tilhneygingu til þess
að gefast upp á fullorðnu-fóiki,
í samræmi við þann málshátt,
að illt sé að kenna gömlum
hundi að sitia. Aðaláherzlan er
lögð á áróður til unga fólksins
til þess að reyna að hindra. að
það taki upp á reykingum. Einu
sinni héldu menn, að það væri
nóg aö segja unga fólkinu frá
öllum staðreyndum málsins til
þess að fá það til að hætta að
reykja, en menn hafa síðan kom
izt að því, að slíkar röksemdir
duga litt. Það hefur til dæmis
lítil áhrif að segja ungu fólki,
að reykingar geti orsakað
bronkítis eftir 30 ár. Þvi er aðal
áherzlan nú lögð á ýmis hliðar-
atriði eins og að segja ungling-
um, að þeir geti ekki staðið sig
eins vel í iþróttum, ef þeir
reyki.
Viö Wisconsin háskóla var
nýlega framkvæmd rannsókn,
sem leiddi 1 ljós, að stúdentar,
sem ekki reykja, eru greindari
að meðaltali en þeir, sem reykja.
Auk þess eru reykingar sjald-
gæfari meðal stúdenta en með-
al gagnfræðinga. Ef til vill verð
ur hægt að nota þessa stað-
reynd sem vopn í baráttunni viö
reykingamar. Það virðist held-
ur ekki vanþörf á beittum að-
gerðum. Hvað reykingar snertir
er vaninn sterkari en röksemd-
imar.
Véltæknin þróast
ört í læknisf ræði
Læknisfræði nútímans hefur tekið í þjónustu sína
f jölda nýrra aðferða og tækja, sem létta læknum að
finna, hvaða sjúkdómar séu á ferðinni og hvernig
auðveldast sé að lækna þá. Þessi þróun er eink-
um hröð í Bandaríkjunum, þar sem hún er að valda
byltingu í lækningum.
sker upp með geislum en ekki með hníf.
Læknamir þar eru t. d. farnir
að taka liti í þjónustu sína.
Ein aðferðin er að þekja húð
sjúkiings með kalksvertu og
mála síðan á svertuna fljótandi
kristalla, sem líta út eins og
tært vatn. Um leið taka krist-
allamir á sig alls konar liti
eftir því, hvert hitastig húðar-
innar er á þeim stað. Á heitum
stöðum verða kristallarnir bláir,
en rauðir á köldum stöðum.
Litbrigðin eru mjög fínleg og
má með þessum hætti finna
mun, sem nemur aðeins broti
úr gráðu.
Ef athugun þessi leiðir í Ijós,
aö óeðlilegt hitastig er á einhv.
stað húðarinnar, gefur það til-
efni til frekari rannsókna, og þá
getur t.d. komið í ljós, að krabba
niein hefur myndazt á staönum,
sem var með óeðlilegum hita.
Þannig er hægt að finna sjúk-
dóminn þegar á frumstigi.
Verkfræðingar hafa líka
kennt læknum að nota hljóð við
sjúkdómsgreiningar. Með því að
senda hljóðbylgjur í gegn um
líkama sjúklings er hægt aö
fá mynd af líkamanum.
Á öörum sviðum er tæknin
komin svo langt, aö hægt er
að skera upp sjúklinga í al-
gjörlega dauðhreinsuðu um-
hverfi. Einfalt og gagnlegt tæki
er hjartalínuritunartækið, sem
nú er farið að nota víða á
sjúkrahúsui, í Bandaríkjunum.
Eitt flóknasta tækið er pró-
trónubyssa, sem veriö er aö
reyna viö Harvard háskólann.
Prótrónum er skotið gegnum
líkama sjúklingsins og þess
gætt, að krafturinn sé nákvæm
lega nógu mikill til þess, að
þær nái þeim stað, sem þeim
er ætlsður. Geislar þessir fara
gegnum húðina, án þess að
nein spjöll verði af og losna
rAW.W.WiVV.WiiV.V.V.V.VV.V.V.W.V.VAV.WiV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.WAV.W.V.V.VV.V.VV.V.V.V.V.V.V
við orku sína á ákveðnum stað
í líkama mannsins, til dæmis
þar sem æxli hefur myndazt.
Lasergeislar hafa líka verið
notaðir eins og prótónugeislar.
Lasargeislun er notuð til að
eyða meinum, sem aðeins eru
tveir millimetrar í þvermál, og
það tekur aðeins fjóra tíma.
Beiting þessara geisla er svo m
nákvæm, að mjög lítil hætta er .J
á mistökum.
Og ný tæki eru alltaf að koma j!
fram. í október var haldinn Ij
fundur í ameríska röntgenlækna J.
félaginu og þar var sýnd ný 'J
röntgengeislavél með þrívíðri J'
geislun, Vélin er byggð upp af jl
miklum fjölda segla og linsa. .J
Þegar læknirinn horfir I tækið J*
sér hann innviðu mannsins I 'J
þrívídd, alveg eins og líkami Ij
sjúklingsins væri orðinn alveg J.
gagnsær, þó þannig, að einstök
líffærí sjást greinilega. — Með I1
þessu móti getur læknirinn séð
á augabragði það, sem hann «J
óskar að sjá og þarf ekki að JJ.
láta sjúklinginn liggja lengl I •'
hinni óneitanlega hættulegu f
röntgengeislun. JI
Verkfræðin hefur haldfð irm jl
reið sína I læknisfræðina. »J
■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■■■■■■■»- ac Kg fVMi «*