Vísir


Vísir - 16.03.1967, Qupperneq 8

Vísir - 16.03.1967, Qupperneq 8
8 VISIR. Fimmtudagur 16. marz 1967, VÍSIR Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR Framkvæmdastjðri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, simar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands í lausasölu kr. 7.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Markaðsmálin jyjarkaðsverð erlendis á lýsi og mjöli hefur haldizt \ í algeru lágmarki síðan um áramót. Framleiðsluþjóð- ( irnar liggja með miklar birgðir og Perúmenn munu ( hefja veiðar aftur í þessum mánuði, svo engar horf- / ur eru á hækkun á næstunni. Verð á frystum fiski ^ hefur enn lækkað nokkuð frá því sem var um áramót- ( in. Ástandið á mörkuðum þessara mikilvægustu út- / flutningsafurða íslands er þannig fremur versnandi, ) og ekki fyrirsjáanleg nein hækkun í náinni ) framtíð. \ Þessi þróun sýnir, hve nauðsynleg og tímabær \ verðstöðvunin var. Með henni hefur tekizt að halda ( innlendum rekstrarkostnaði í skefjum, svo að fisk- ( vinnslustöðvamar eiga hægara um vik en ella að /, mæta erfiðleikum verðfallsins. Þessi þróun sýnir einn ) ig, hve skynsamlegt var að gera ekki ráð fyrir verð- ) hækkunum, þegar gengið var frá ráðstöfunum rík- \ isstjómarinnar til stuðnings sjávarútvegi og fisk- ( iðnaði. Bæði í heild og í einstökum liðum hafa aðgerð- // ir ríkisstjórnarinnar í þessum efnum reynzt sérstak- )/ lega giftusamlegar, og eiga þar raunar einnig margir )) fleiri aðilar þakkir skilið. ) Óneitanlega er ekki bjart framundan í markaðs- \ málunum. Lága verðið virðist vera fast í sessi. Hins ( vegar hefur ástandið ekki versnað meira en svo síð- ( ustu vikumar, að enn em fullar líkur á, að ráðstafan- / ir ríkisstjómarinnar verði fullnægjandi, þótt lága ) verðið haldizt um mjög langan tíma. En allir vona, ) að þess verði ekki langt að bíða, að verðið taki að í hækka á nýjan leik. ) Reykjavíkurlistinn JTramboðslisti Sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur ) verið birtur. Sjaldan hafa menn verið jafn sammála ) um skipan framboðslista. Mikill einhugur ríkti á hin- \ um fjölmenna fundi Sjálfstæðismanna, sem ákvað ( skipan listans. Lofar það mjög góðu um úrslit kosn- / inganna í sumar. ) Að sleppa framan af ( Xíminn birti í gær í svartletursdálki sínum kafla úr ) fomstugrein Vísis um hagstjórn nú á tímum. í þess- ) um kafla var lýst kreppum eins og þær voru í Vestur- \ Evrópu fyrir nokkmm áratugum. Tíminn sleppir fram ( an af kaflanum til þess að svo líti út sem talað sé um (i efnahagsþróunina hér á landi undánfarin ár. Ódýru / aðferðimar eru aftur kómnar í fullan gang hjá Tím- ) anum, eins og hæfir því blaði. ) Alltaf erfitt að stjórna með nammim meirihluta Þegar fylgisrýmun Gaullista I Frakklandi var orðin staðreynd og augljóst var að meirihluti þeirra < fulltrúadedldinni vrði ekkl ncma 3 atkvæði lunfram samanlagt fylgi allra flokkanna og að fimm ráðherrar höfðu fall- ið, töldu menn víst, að de Gaulle myndi endurskipa stjóm sina. Einkum var búizt við, að hann yrði að láta Couve de Murville róa og jafnvel Mesmer land- vamaráðherra og haföi þó ver ið boðað — að minnsta kosti ó- beint — fyrir kosningamar, að ráðherrar í mikilvægum embætt De Gaulle í faðmi anda Aladdins-Iampans: Góði andi — settu mig aftur niður á jörðina. — Christian Science Monitor í Boston. Að loknum frönsku kosningunum um myndu ekki verða látnir víkja, þótt þeir féllu í kosning unum. Þegar þetta er skrifaö, era aftur taldar mestar líkur fyr ir að stjórnin verði ekki endur- skipuð, hver svo sem reyndin kann að verða. Það sem talið er athyglisverö ast við kosningaúrslitin, eftir er lendum blöðum að dæma og út- varpsfréttaviðaukum, er það, aö straumurinn í þjóðlifinu liggur til vinstri með mun meiri þunga en áður og eitt Norður- Iandablaðið segir frönsku þjóð ina hafa sagt við de Gaulle: — Þökk, en nú get ég tekið. Og fréttaritari blaðsins segir að eins og de Gaulle haldi ekki hátíðlegan minningardaginn um orrustuna við Waterloo, eins muni hann helzt reyna aö gleyma 12. marz 1967, en kosn- ingaúrslitin sýndu þann dag, að vinstri flokkamir fengu yfir 46% greiddra atkvæða, en Gaull istar aðeins yfir 42%. Framtíöar samstarf vinstri flokkanna Fréttaritari Politiken i París segir, aö það hafi verið þetta, sem Mendes-France vék aö í fyrstu ræðu sinni eftir að hann hafði verið endurkjörinn á þing Lecanouet — enn utan dyra í nepjunni. — en þá voru átta ár liðin frá því að hann dró sig í hlé úr frönskum stjómmálum. Hann sagði nefnilega, að sá meirihluti sem Gaullistar hefðu í fulltrúa deildinni gæfj ekki rétta hug- mynd um þjóðárfylgið, — því að vinstri flokkamir nytu nú meiri hluta fylgis hjá þjóðinni. Hann sagði, að hinn naumi meirihluti Gaullista myndi leiða til erfiö leika í fylkingu þeirra. „Þess vegna verða vinstri flokkamir að vera viöbúnir að taka viö og leggja fram áætlanir um vel skipulagðar umbætur innanlands m.a. á sviði húsnæðismála, svo þjóðinni skiljist raunverulega. að vinstri flokkamir séu viðbún ir og hæfir til þess að taka á sig ábyrgðina." M.F. hvatti því til framhalds- samstarfs milli vinstri samsteyp unnar, kommúnista og hans eig in flokks, sem er smáflokkur, PSU og krafðist sameiginlegrar stefnuskrár. Eins og mara — Fréttaritarinn segir, að með þessu hafi M.F. leitt athyglina að þeirri vofu, sem Pompidou hafi séð á sveimi I kosningabar áttunni er hann lá andvaka vegna spumingarinnar: Hvemig fer ef við töpum fylgi og sam- starfiö bilar? Og þá er komið aö því, sem áður hefur verið vikið að í frétt um hér í blaðinu, hvort svo fer. aö Gaullistar neyðist til að biðia Lecanout um stuöning, en flokk ur hans (32 þingmenn) eru klofn ingsflokkur úr Gaullistafylking- unni, — klofningsflokkur. sem lítur allt ööru vísi augum en d 1 Gaulla á stórmál svo sem NATO og aðild Bretlands að EBE Það er ávallt erfitt að stjómn með naumum meirihluta — þai’' fékk Wilson að reyna í Bret- landi • fyrir seinustu almennu þingkosningamar. Því megi ekki gleyma, að Gaullistar eru sam- fylking, en ekki flokkur — stjómin er í rauninni sam- steypustjóm, sem m.a. innifelur hina óháðu republikana Gisc- ards d’Estaings fyrrum fjármála ráðherra. Þeir höfðu aðeins 80 framjóðendur sem unnu 44 þing sæti eða 10 fleiri en á fyrra þingi. „D’Estaing lagði grunninn að þeirri fjármálapólitík, sem stöðvaði verðbólguna, en varð seinna að láta embætti sitt i hendur „erki-Gaullistans De- bré,“ og var það mikið áfall fyrir d’Estaing, sem lengi hefur mænt á forsetasessinn." Já, og amen Og í kosningabaráttunni sagði hann, að hann væri ekki með tii þess að segja „Já og amen“ viö öliu, og er sagt, að de Gaulle og Pompidou hafi ekki líkað hve títt hann lét sér þessi orð um munn fara. Og nú situr hann í hlýjunm ínnan dyra, en enn næðir um Lecanouet — utan dyra. — a. Couve de Murville gengur út úr kosningaskrifstofu sinnl eftir að hafa viðurkennt ósigur sinn.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.