Vísir - 18.03.1967, Qupperneq 1
VISIR
57. árg. - Laugardagur 18. marz 1987. - 06. tbl.
Tveir ónýtir bátar
Tveir bátar slitnuðu frá
bryggjunni á Stokkseyri i for-
áttubrimi í gærmorgun, eins og
sagði f frétt f blaðinu f gær.
Fjórir bátar lágu við bryggjuna,
þegar brimið skall á. Tveir
þeirra sluppu við iilan leik út
innsiglinguna og héldu sjó þar
fyrir utan.
Tvo 35 tonna báta sleit frá
bryggjunni og sökk annar
þeirra f brimrótiö en hinn rak
upp undir frystihúsið á staðn-
um og er hann illa brotinn og
nánast ónýtur talinn og sést
hann til hægri á myndinni, en
til vinstri sést brakið af hlnum.
(Mynd Ólafur Jónsson lögr.m.,
Selfossi).
Nýtt litablað í dag
„Vísir í vikulokin" kemur Ot í dag í fyrsta sinn
Lesendur Vísis fá í
dag með blaði sínu lit-
prentað aukablað, sem
einkum er ætlað kven-
þjóðinni. Þetta er fyrsta
eintakið af „Vísi í viku-
lokin“, sem mun fylgja
Vísi við og við á laugar-
dögum, svo oft sem við-
tökur gefa tilefni til. í
nýja litablaðinu verður
fjallað um tízku, matar-
gerð, snyrtingu, húsbún-
að og önnur áhugamál
kvenna.
Litablaðlð mun fylgja Vísi til
áskrifenda og tll að byrja með
verður það einnig Iátið ókeypis
fylgja Vísi f lausasölu, en sfðar
verður það selt sérstaklega í
lausasölu. Lesendum Vfsis er
bent á að safna þessum litablöð-
um saman. Þau eru götuð,
þannig að síðan megi geyma þau
saman f möppum. Er fólki bent
á, að gerast nú þegar áskrifend-
ur að Vfsi til þess að eiga lita-
blaðið frá upphafi. Áskrifenda-
sfmi Vfsis er I 16 60 og af-
greiösla blaðsins er f Túngötu 7
Fyrsta eintakið af ,Vísi i
vikulokin" er einkum tileinkað
páskafrfinu, en þá má ætla að
fjöldi manna sæki á skfði eða i
vetrarferðalög. Næsta eintak
kemur eftir páska. Vonar Vísii,
að þessi nýbreytni verði vinsæt
hjá lesendum blaðsins.
Camenbert kom-
inn á markaðinn
16 íslenzkar ostategundir á markaði
Nær fullskipað í páskaferðirnar
- Færri hyggja á utanlandsferð á páskum en i
fyrra - Gullfossferöirnar hafa dregið ór
Allmargir munu hugsa sér
til hreyfings á páskum eins og
áður hefur tíðkazt. Skíðalands-
mótið mun draga marga gesti til
Siglufjarðar, og sömuleiðis
munu skíðaiðkendur muna eftir
Skíðahótelinu •' Hlíðarfjalli fyr-
ir ofan Akureyri og rennifærinu
í brekkunum þar, en kafsnjór
er fyrir norðan eins og kunnugt
er. Enn munu margir gista
skíðaskálana hér sunnan fjalla,
enda betra skíðafæri nú en ger-
ist oft á þessum árstíma.
Páskaferðirnar innanlands
verða með svipuðum hætti og
vanalega. Ferðafélag Islands
efriir til tveggja Þórsmerkur-
ferða. Verður lagt af stað í þá
fyrri á skírdagsmorgun, en þá
síðari á laugardag fyrir páska.
Komið verður úr báðum ferð-
unum að kvöldi annars páska-
dags. I fyrra munu milli 40 og 50
manns hafa tekið þátt í þessum
feröum, og er búizt viö svip-
aðri tölu nú, en margir bíða
með það til síðustu stundar að
láta skrá sig í ferðirnar og er
því tala þeirra, sem leggja í
Þórsmörk að þessu sinni óviss.
Úifar Jacobsen fer eina
fimm daga ferð í Öræfasveitina
eins og hans er vandi. Verður
lagt upp í þá ferð á skírdags-
morgun. Hafa um 55 manns
Játið skrá sig í þá ferð.
<1 f~' r» 1 r»í Aí r*
ofna Ainrtia t.il SVII
ferða í Öræfasveitina og verður
Guðmundur Jónasson þar til
forystu. Er búizt við að fólk láti
skrá sig í ferðina allt til síð-
ustu stundar og er því nákvæm
tala þeirra, sem hyggja á öræfa
ferð með Guðmundi Jónassyni
ekki vituð.
Standa Lönd og leiöir einnig
fyrir þrem utanlandsferðum um
páskana. Er búizt við. að um
160—70 manns alls taki þátt í
öllum ferðunum bæði utanlands
og innan nú um páskana. Verður
haldið í fyrstu ferðina frá Lönd
um og leiðum, 16 daga ferð til
Rhodos á morgun, 1?. marz.
í aðra feröina, 9 daga ferð til
Noregs verður haldið þann 21.
marz. Verður flogið til Osló og
þaðan haldið til Gol, sem er
skíðastaður um 200 km. fyrjr
norðan Osló og þar dvalizt ai5
mestu við skíðaiðkanir.
Þriöja utaniandsferðin er til
Londan og er það 8 daga ferð,
og er lagt upp f hana þann 25.
marz.
Ferðaskrifstofan Útsýn efnir
til einnar páskaferðar til Spánar.
Verður dvalizt á Torremolinos,
litlum fiskimannabæ á suður-
strönd Spánar, skammt frá Mal-
aga og fjóra daga í London á
bakaleiöinni. Hafa 60 manns lát-
ið skrá sig í ferðina, en lagt
veröur af stað þann 23. marz
með leigufiugvél F. !.. Efndi Út-
til sviDaðrar ferðar í fyrra
og tóku þá þátt í henni 120
manns. Telur Ingólfur Guð-
brandsson forstöðumaður Út-
sýnar að Gullfossferðirnar fyrr
í vetur hafi dregið úr því að eins
margir haldi í utanlandsferð á
páskum nú og í fyrra, en með
Gullfossi fóru um 200 manns
suður á bóginn.
Framh. á bls. 10
• •
íslenzkum húsmæðrum ætti ekki
að verða skotaskuld úr því nú að
bera fram bakka þakta girnlleg-
um ostum, án þess að fá til osta,
sem bera fín nöfn og fengnir eru
frá útlandinu. Ostategundum á
markaðinum hefur farið fjölgandi
á síðustu vikum og eru nú orðnar
sextán og mun þeim væntanlega
fjölga enn á næstu mánuöum.
Tvær nýjar ostategundir frá
Mjólkurbúi Flóamanna komu á
markaðinn í Reykjavík í febrúar
og eru það Ambassador og Tilsitt-
er, sem hvort tveggja eru þekktar
ostategundir á meginlandinu. Og
nú fyrir nokkrum dögum komu
fyrstu stykkin af Camenbertost-
inum frá ostagerðinni nýju í Hvera
gerði á markaðinn í Reykjavík. Það
an eru væntanlegar fleiri tegund-
ir, m. a. Port salut og rjómaostur.
Nýju tégundirnar frá Flóabúinu
hafa hingað til nær eingöngu ver-
ið seldar í Osta- og smjörsölunni.
Sagði Sigurður Benediktsson fram-
kvæmdastjóri Osta- og smjörsöl-
unnar Vísi að Flóabúið hefði, haf-
ið framleiðslu Ambassador og
Tilsitter í smáum stíl til þess að
sjá hvernig þessum nýju tegund-
um yröi tekið og magniö veriö það
lítið að ostarnir hefðu nær ein-
göngu veriö seldir í Osta- og smjör
sölunni. Hefði framleiðslan á þess
um osti verið slitrótt vegna þess
hve mjólk hefur veriö lítil á mark
aðinum undanfariö og því lítil um-
frammjólk ,til ostagerðar, en með
aukinni mjólkurframleiðslu í vor
verður framleiðsla þessara tegunda
aukin og koma þá ef til vill fleiri
nýjar tegundir á markaðinn.
Þær ostategundir, sem nú eru á
markaðinum eru þá: 30 og 45%
brauðostur, Schweitzerostur, Tii-
sitter, Ambassador, gráðaostur,
mysingur og smurostur en undir
smurosta heyra rækjuostur, tómat-
ostur, sveppaostur, alpaostur,
kjarnaostur, sterkur ostur og góð-
ostur. Ekki má svo gleyma Cam-
enbertostinum nýja, sem vafalaust
er'mörgum fagnaðarefni
Vísir spuröist fyrir um verð á
fyrrgreindum ostategundum og er
það: 30% brauðostúr: 80.00 pr. kg.,
45% brauðostur og 45% Schweitz-
erostur kosta 106.20 pr. kg„ Til-
sitter og Ambassador kosta 131.20
pr. kg„ 180 gramma lauf af gráða-
osti kostar 35.80 og 200 g stykki
af mysingi kostar 12.40. Smurost-
arnir eru í misstórum pakkningum
og láta mun nærri að 100 grömmin
kosti um 16 krónur. Loks er það
Camenbertinn nýi en 150 gramma
stykki af honum kostar 39 krónur.
!■■■■■!
Erindaflokkur
Benedikt Sigurjónsson, hæsta-
réttardómari, mun flytja erinda-
flokk um ábyrgð farmflytjenda á
vegum Tryggingaskólans, og verður
fyrsti fyrirlesturinn fluttu* n. k.
mánudag kl. 17.15 í Átthagasalnum
að Hótel Sögu.
Öllum er heimill aðgangur. með-
an húsrúm leyfir.
r.v.vv.v.v
!■■■■■!
!■_■_■_■_■!
G0TUR IBREIÐH0L TS-
HVERFIB0ÐNAR ÚT
Reynslan sýnir að hagkvæmt er að bjóða út
verk borgarinnar, segir gatnamálastjóri
Reykjavíkurborg hefur boðið
út ailar gatnagerðarframkvæmd
ir í þeim hluta Breiöholtshverf-
is, sem lóðum verður úthlutað
í á næstunni. Eru þetta einar
mestu gatnagerðarframkvæmd-
ir, sem boðnar hafa verið út til
þessa, en útboð til bessara fram
kvæmda hófust l'yrst meö Ár-
bæjarhverfi.
Götur í Fossvogshverfi og
hluta Breiðholtshverfis eru nú
tilbúnar og lóðirnar þar því
byggingarhælar, en þessar fram
kvæmdir voru einnig boðnar út.
Ingi Ú. Magnússon, gatna-
málastjóri, tjáði Vísi í gær, að
reynslan hafi ótvfrætt sannað
að í alla staði væri heppilegra
að bjóða út verk, sem þessi,
enda væru síaukin útboð stefnu-
mál borgaryfirvaida. — Yfir-
leitt hafa fengizt hagstæð til-
boö og verkin verið fliótt og
vel unnin. — Borgin hefur tak-
markaöan mannafla tii að sinna
þessum verkutn og því dragast
þau úr hófi fratn og verða verk-
in dýrari m. a. af þeim sökum.
Verkið, sem nú er verið að
bjóða út, er lagning tæplega
tveggja kílómetra malargatna
með 7 oe 9 metra breiðum ak-
brautum, holræsi í þær og gang-
stéttir að auki. Skila á tilboðum
fyrir 3. apríl næstkomandi og
á verkinu 'að verða lokið fyrir
1. nóvember næsta haust.
Göturnar eru í raðhúsahverfi
og fjölbýlishúsahverfi. Göturn-
ar í raðhúsahverfinu eru: Álfa-
bakki, Víkurbakki, Uröarbakki,
Tungubakki, Staðarbakki Núpa
bakki, Ósabakki, Prestsbakki og
Réttarbakki. — I fjölbýlishúsa-
hverfunum Biöndubakki og Arn-
arbakki.
■ ■ ■ ■ ■ I
!■■■■■■!