Vísir - 22.03.1967, Blaðsíða 1
VISIR
miuvmuuagur ac,.
JV. Llil.
VfSIR
Næsta blað kem-
ur út þriðjudag-
inn 28. marz
Tiilögur rannsóknarnefndar Skipaútgerðarinnar:
Tvö ný ríkisskip og bætt
skipaafgreiðsla
Stjórnarfrumvarp um reksturinn komið fram á Alþingi
Lagt var fram á Alþingi í gær |
stjómarfrumvarp um Skipaútgerð j
ríkisins. I frumvarpinu er Iagt til
að skipuð verði 3ja manna stjóm-
arnefnd Skipaútgerðarinnar, sem,
undir stjóm ráðuneytis, taki ákvarð
anir um öll meiri háttar mál, sem
varða rekstur Skipaútgerðarinnar,
þ. á m. áætlanir um ferðir skip-
r.nna, far- 02 farmgjaldataxta,
breytingar á rekstri o.s. frv.
Frumvarp þetta er samið af
nefnd, sem skipuð var af sam-
göngumálaráðuneytinu, til að
rannsaka rekstur Skipaútgerðar
ríkisins og athuga möguleika á að
koma honum á hagkvæmari grund-
völl.
f nefndinni áttu sæti: Pétur
Péturss., forstjóri, Árni Vilhjálmss.,
prófessor, Matthías Bjarnass., alþm.
og Birgir Finnss. alþingis-
maður. Benti nefndin í upphafi á,
að engin lög væru til um Skipaút-
gerðina, en með frumvarpi þessu
er lagt til að bætt veröi úr þessum
ágalla.
Einn kafli greinargerðar nefndar-
innar fjallar um samkeppnisað-
stöðu og framtíöarhorfur Skipaút-
gerðar ríkisins, þar sem lýst er or-
sökum þess, að fólks- og vöruflutn-
ingar Skipaútgerðarinnar hafa farið
minnkandi. Hvernig þróun sam-
gangna á landi og í lofti hefur öllj
haft þau áhrif, að Sj^ipaútgerð-
inni hefur hnignaö. En þrátt
fyrir það leggur nefndin, sem aö
samningu frumvarpsins stóð, á-
herzlu á, að ekki verði vanmetið
þaö gildi, sem strandferðir Skipa-
útgerðarinnar hafa fyrir landið í
heild, Bendir nefndin á, að sér-
staklega verði að taka tillit til
þeirrar staðreyndar, að miðað við
veðurfar og staðhætti getur oft
farið svo hér á landi, að vegir
teppist og flug falli niður.
Nefndin bendir á, að farþega-
nýting í þeim skipakosti, sem
Skipaútgerðin á nú, hefur verið
mjög léleg, og telur í framtíðinni
enga þörf fyrir það farþegarými.
Miðar nefndin þvi tillögur sínar
við það.
Tillögur nefndarinnar eru í aðal-
atriðum:
1. Keypt verði tvö ný skip, sér-
staklega útbúin til vöruflutninga,
en einnig með nokkru farþega-
rými. V.s. Esja, v.s. Herðubreið og
v.s. Skajdlbreið verði seldar eða
þeim iagt.
2. Aðstaðan til vöruafgreiöslu í
Reykjavík, og á öðrum aðalhöfnum
verði stórlega bætt, Einnig verði
gerðar aðrar nauðsynlegar ráðstaf-
anir til að bæta samkeppnisaðstöðu
Skipaútgerðarinnar.
3. Skipulagðar verði áætlunar-
ferðir til aðalhafna og framhalds-
flutningur til annarra staða.
PÁSKA-
VEÐRIÐ
— Eins og horfir er útlit fyr-
ir að norðanátt verði f aðsSgi
næstu 1-2 daga og bá bjartviðri
og sólskin á Suðurlandi, en hætt
við éljum og nokkuð miklu
frosti norðanlands, sagði Jónas
Jakobsson veðurfræðingur blað-
inu í morgun, þegar spurst var
fyrir um páskaveðrið.
Mega þá Sunnlendingar eSga
von á góðu skíðaveðri, en skíða-
færi er allgott miðað vlð und-
anfarin ár. Hins vegar eru Norð
lendingar ekki eins heppnir, en
fljótt skipast veður í lofti hér-
lendis og muna menn ennþá um-
hleypingana um sl. helgi þótt
stillzt hafi. Þurfa beir fjöl-
mörgu, sem leggja lelð sína
norður á bóginn á skíðalands-
mót og á aðra staði bví ekki að
örvænta strax.
Dagurinn lengist nú óðum,
en i gær var jafndægri á vori og
dagurinn f dag fyrstl dagur árs-
ins 'lengri nóttunni.
í morgun snjóaði á Norður-
landi, víða um landið var 5-9
stiga frost. Mesta frostið var á
Hvolsvelli 13, stig og 12 stig á
Fljótsdalshéraði.
Fulltrúar dönsku húsaverksmiðjunnar Tjereborg Huse, Henning Jen-
sen Balsby (t.v.) og Knud Kristensen á Hótel Sögu í morgun. B
• •
• Páskastúlkan okkar, sem heitir Dóra Camílla Kristjánsdóttir
er hér með páskaeggiTi, sem hún og skólasystkini hennar í Mynd-
listaskólanum máluðu áður en þau fengu páskaleyfið. Dóra Cam-
illa á að færa öllum lesendum beztu óskir Vísis um gleði-
lega páska og hún spyr um leið hvort einhver geti tallð eggin í
skálinni.
Gleðilega páska!
AFTUR FÆRT
TIL AKUREYRAR
Öxnadalshciöi var rudd í gær-
kvöld þannig að nú er fært stórum
OLL TILSNIÐNU EINB YLISHUSIN
VERDA KEYPT Á SAMA STAÐ
Hætt við að kaupa húsin sitt úr hverri áttinni, vegna
mjög hagstæðs tilboðs frá danskri húsaverksmiðju
í gær samdi Innkaupa hönd Framkvæmda-
stofnun ríkisins fyrir nefndar byggingaáætlun
arinnar um kaup á öllum
tilsniönu einbýlishúsun-
um 23, sem reisa á í 1. á-
fanga byggingaáætlun-
arinnar í Breiðholti.
Upphaflcga var gert ráð fyrir
því, að tilsniðnu innfluttu hús-
ín yrðu fengin sitt úr hvorri
áttinni til könnunar á því hvaða
innfluttu hús hentuðu hér bezt.
en þar sem mjög hagstætt til-
Framh. á bls. 7
bílum og jeppum allt frá Reykja-
vík til Akureyrar. Austan Akur-
eyrar eru svo til allir vegir lokaðir.
Greiðfært er nú um Suðurland
allt til Víkur en þar fyrir austan
er þungfært, og veldur þar um
skafrenningur. Er þó ætlunin að
reyna að halda veginum opnum
fyrir fjallabíla þannig að þeir sem
hyggja á öræfaferð komist a.m.k
austur að Lómagnúp og Vestur-
Skaftfellingar komi mjólk á mark-
að.
Greiðfært er um Borgarfjörð og
víðast hvar á Snæfellsnesi og i
Dalina. Stórir bílar komust til
Hólmavíkur í gærkvöld. Á Vest-
fjörðum er víðast ófært, en bílar
komast þó frá Isafirði til Bolunga-
víkur og Súðavíkur og frá Patreks-
firði til Bíldudals og Örlygshafnar