Vísir - 22.03.1967, Blaðsíða 3
í S IR . Miðvikudagur 22. marz 1967,
3
:
Séð yfir Borgarnes yfir Brákarpoll. Á myndinni sjás t meðal annarra húsa: Mjólkurstöðin (fremst), hót-
elið og kirkjan uppi á hæðlnni.
.
■:■/■: ^:■■.■: y:::\
: ■
'
fremst á myndinni sést hús Jóns kaupm. frá Bæ. Ljósm. Páll Jónss.
Séö yfir Borgarnes af „Klettunum'
Borgarnes
hundrað ára
Þann 22. marz 1867 var af
Danakonungi löggiltur verzlun-
arstaður við Brákarpoll og er
þess minnzt í Borgarnesi og víð
ar um þessar mundlr. Höfðu
Borgfirðingar og Mýramenn þá
um nokkurt skeið leitað eftlr
löggildingu verzlunarstaða í hér
aðinu en orðið lítið ágengt. —
Kaupskip tóku að vísu að venja
komur ,sínar á Brákarpoll eftir
að skipaleiðin þangað Iiafði ver—
ið könnuð og skipi einu verið
siglt inn á pollinn. í bænarskrá,
sem send var um löggildingu
Brákarpolls, sem verzlunarstað-
ar sagði m. a.: „Hægð sú og
hagnaður sem Mýrasýslubúar
og Borgfirðingar sunnan Hvítár
hafa af því hlotið undanfarin
sumur, að kaupmenn vorir hafa
flutt vörur hingað á Brákarpoll,
er mjög mikill, en sá b-gnaður
gæti þó orðið meiri, ef hér væri
verzlunarstaður, því margir eru
enn um þessi byggðarlög að
fara suður í Reykjavík af því
að þeir eru einhverra orsaka
vegna háðir þeim kaupmönnum,
sem hingað ekki koma, sem
smám saman mundi líða undir
Iok, ef hér væri verzlunarstað-
ur löggiltur". Eftir aö bænar-
skjalið haföi verið samþykkt að
loknum hörðum umræðum á Al-
þingi var samin bænarskrá til
konungs, sem bænheyrði Borg-
firöinga og Mýramenn að nokkr
um tíma liðnum.
Þá var Borgames harla eyði-
legur. staður, engin hús eða
mannvirki af nokkru tagi. En
smám saman upp úr því rís hús
og hús og þama þróast
lítiö kauptún, sem nú er orðið
töluverð en mjög þýðingarmikil
miðstöð verzlunar og viðskipta
Borgfirðinga og Mýramanna. í-
búar i Borgamesi vom taldir
einn árið 1878, 50 um aldamótin
en vom samkvæmt manntali
1966 1046 talsins. Verzlanir eru
þar ýmsar, Kaupfélag Borgar-
fjarðar og Samvlnnufélag Borg-
arfjarðar, sem taka við afurð-
um bænda, Iyfjabúð og hann-
yrðaverzlun og fleiri verzlanir.
Þar er elnnig sparlsjóður,
byggðasafn, skólar, héraðsbóka-
safn, sjúkrasamlag og ýmiss kon
ar iðnaður og gistihús. Sýslu-
Framh. á bls. 13
ræktun blóma utan stofuveggjanna“ (seglr bókin um Borgames um þessa bæjarprýði i Skallagrímsdal).
Borgnesingar reistu kirkju á hæðínni vestan við Skallagrímsdal
árið 1959 og gnæfir hún tfgulega yfir kauptúnlnu.