Vísir - 22.03.1967, Blaðsíða 2
V í SIR . Miðvikudagur-22. marz 1967.
JÓN þrehkhir Reykja-
víkurmektari
Jón Árnason úr TBR fór
meö þrenn verðlaun úr Reykja-
vikurmótinu í badminton, sem
háð var um siðustu helgi. Jón
hafði talsverðá yfirburði og er
greinilegt að hann er enn i mik-
illi framför og úthald hans
bregzt ekki.
Þetta kom fram i einvígi
hans og Óskars Guðmundssonar,
en þá var lcikurinn jafn lengi
vel, en undir lokin kom styrk-
leikur Jóns í ljós.
Jón vann einliðaleikirui með
15:10 og 15:9. í tvenndar-
keppninni vann hann ásamt
Lovísu Sigurðardóttur, tviliða-
leikinn vann hann ásamt Viðari
Guðjónssyni og var leikur
þeirra við Garðar Alfonsson og
Steinar Petersen mjög skemmti-
legur. Tvíliðaleik kvenna unnu
þær Lovísa og Hulda og urðu
að leika aukaleik, sem þær
unnu 15:0 gegn Jónínu og
Rannveigu.
Friðlelfur Stefánsson vann
einliðaleik í 1. flokki. Margir
ungir og efnilegir leikmenn eru
í uppsiglingu í badminton og
verður þess eflaust ekki langt
að bfða aö badminton verði
orðin virkileg keppnisíþrótt.
Jón Ámason, TBR, þrefaldur rneistari. Hér er hann með Viðari Guð-
jónssyni (t.v.)
Tangó um páskana
Leikfélag Reykjavikur sýnir hið|
athyglisverða pólska leikrit Tangój
um páskana, bæöi á skírdag og
annan í páskum. Þetta skemmtilega
leikrit fer nú sigurför um Evrópu, j
og er sýningin i Reykjavík með1
þeim fvrri; leikurinn var t.d. frum-
sýndur í París þrem vikum eftir
að íslenzkum leikhúsgestum gafst
færi á að sjá hann, og enn er hann
ósýndur í Kaupmannah. og Stokk
hólmi, en sýningar eru í undirbún-
ingi á báðum þessum stöðum. Leik-
dómari blaðsins, Loftur Guð-
mundsson komst svo að orði um
Tangó: „Það hafa gerzt margir
merkilegir og eftirminnilegir leik-
listarviðburðir , i Iðnó. Það var
kannski ekki svo undarlegt, á með-
an Leikfélag Reykjavíkur var eini
aðilinn, sem gat átt frumkvæðið
að því að kynna reykvískum leik-
listarunnendum nýstárleg verk at-
hyglisverðra höfunda, . sem sum
hver mörkuðu straumhvörf í leilc-
list og leikritun á þeim árum, t.d.
,,Sex verur leita höfundar", eftir
Pirandello eða „Gerfimenn" eftir
Capek, — Engu að síður sýndi það
stórhug og vakandi áhuga braut-
ryöjendanna miðag við allar að-
stæður og viðhorf I þann tíð, og
hve alvarlega þeir tóku skyldur
sínar við leiklistina og leikhús-
gesti. Að slíkir atburðir skuli enn
gerast í Iðnó, jafnvel fyrst og
fremst þar, sýnir aö þeir, sem nú
hafa forystuna, eru staðráðnir í að
bera ekki merkiö lægra en braut-
ryðjendurnir, og aö þeir eru menn
til þess, Og einn slíkur atburður
var að gerast nú, þegar Leikfélagið
frumsýndi sjónleikinn „Tangó“
eftir pólska höfundinn Siawomir
Mrozek, sem er í senn nýstárlegt
verk fyrir margra hluta sakir, og
harla athyglisvert".
Myndin er af Arnari Jónssyni og
Stefaníu Sveinbjarnardóttur í hlut-
verkum Artúrs og Öllu í Tangó,
en Alla er fyrstá stóra hlutverkið,
sem þessari ungu leikkonu er
falið.
Lovísa (t.v.) og Hulda i tvfliðaleiknum. (Ljósm. Rafn Viggósson).
Stúlknalið í hand-
knattleik til Noregs
^rliilnwhgT
K.F.U.M.
Dagana 31. marz til 2. apríl n.
k. verður haldið í Eidsvall í Nor-
egi 2. Norðurlandamót stúlkna í
handknattieik. Skulu þátttakendur
vera fæddir 1948 eða síðar. Taka
öll Norðurlöndin þátt í mótinu, að
Finnum undnaksildum.
Lið íslands hefur nú verið valið
og er það sem hér segir:
Edda Halldórsdóttir, Breiöabliki,
Sigrún Guðmundsdóttir, Val (fyr-
irliði), Björg Guðmundsdóttir, Val,
Ragnheiður Lárusdóttir, Val,
Jenný Þórisdóttir, K.R., Kolbrún'
Þormóðsdóttir, K.R., Evgló Einars-
dóttir,. Ármanni, Ösk Ólafsdóttir,
Ármanni, Regina Magnúsdóttir,
Fram, Halldóra Guðmundsdóttir,
Fram, Fríða Proppé, Fram, Guð-
rún Ingimundardóttir, Fram, Guð-
björg Hjörleifsdóttir, F.H., Sesselja
Guðmundsdóttir, K.R.
Fararstjóm: Jón Ásgeirsson,
Axel Sigurðsson. Þjálfari: Þórarinn
Eyþórsson. Dómari frá íslandi
verður Magnús V. Pétursson.
Samkomur um hátíðarnar:
Skírdag kl. 8.30 e.h. Almenn sam-
koma í húsi félagsins við Amt-
mannsstíg. Sigursteinn Hersveins-
son, talar.
Föstudaginn langa kl. 10,30 f.h. —
Sunnudagaskólinn viö Amtmanns-
ktíg. — Kl. 8.30 e.h. Almenn sam-
koma. Baldvin Steindórsson og j
Páll Friðriksson, tala.
Páskadag:
Kl. 10.30 f.h. Sunnudagaskólinn. |
Drengjadeildin í Langagerði. Bama
samkoma Auðbrekku 50 Kópavogi.
Kl. 10.45 f.h. Drengjadeildin Kirkju
teigi 33. — Kl. 8.30 e.h. Almenn
samkoma. Síra Magnús Guðmunds
son, fyrrv. prófastur talar. Ein-
sömgur. Allir velkomnir.
Annan páskadag:
Kl. 1.30 e.h. Y.D. og V.D. við
Amtmannsstíg. — Kl. 8.30 e.h.
Almenn samkoma. Síra Jóhann
Hannesson, prófessor. talar. Æsku
lýðskór K.F.U.M. og K. syngur.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur K.F.U.M. verður
haldinn fimmtudaginn 30. marz
kl. 8.30 e.h. í húsi félagsins við
Amtmannsstíg.
Opel-Caravan '61
með nýjum mótor og í mjög góðu ásigkomu-
lagi til sýnis og sölu að Grettisgötu 46. Uppl.
í síma 24088.
Benz 180
Vil kaupa vél í Benz 180, benzín. Uppl. í síma
33540 eftir kl. 21.
Ibúð óskast
X \
til leigu. Uppl. í símum 38840 og 33712.
Ibúð til leigu
í Árbæjarhverfi. Uppl. í síma 40658 og 35087
\