Vísir


Vísir - 22.03.1967, Qupperneq 13

Vísir - 22.03.1967, Qupperneq 13
V1 SIR . Miðvikudagur 22. marz 1967. 13 MyneSsió — Framhald af bls. 3. maður Mýra- og Borgarfjarðar- sýslu situr í Borgamesi. Félags- starfsemr af ýmsu tagi er mikil í Borgarnesi. Ætið hefur verið talið fagurt í Borgamesi og þaðan séð. Þann ig lýsir Jón Helgason ritstj. bví í nýútkominni bók sinni, Hundrað ár í Borgamesi: „Við erum í Borgamesi á kyrrum sumardegi. Það er komíð nær miðmunda, sól í heiði útfiri sjávar og værö yfir láðl og legi. Svört sker og þangbrúnir tangar em að koma úr kafi, og inni á hrægrunnum firðinum dökknar fyrir löngum sandeyrum milli ála, bar sem letilegir mávar láta berast fyrir straumnum og nenna ekk! að blaka væng eða spyma við fit. Úti fyrir móka Borgareyjar og vitann á Miðfjarðarskeri hillir uppi“. Lýsing Jóns á því sem fyrir augu ber handan Borgar- f jarðar og inn með fírðinum gef- ur ekki síðri myndir. Þannig er Borgames um margt óvenjulegur staður. í bænum er allt þokkalegt, og sennilega er þar lifað fjölþreyttara menning- arlífi, ef svo má segja, en víðast hvar annars staðar í hliðstæðum bæjarfélögum. Framan af var tvísýnt hversu Borgamesi myndi farnast en þar hefur verið hlúð gð gróðri, sem hefur dafnað og vlrðist eiga eftir að skjóta fleiri rótum og breiða út lim sfn og blöð í framtfðinni. Hægrí umferð Framh. af bls. 5 með vinstra hjól á miöjum vegi, og er þá bíllinn réttur eða hallast aðeins til hægri. Þetta getur hver og einn prófaö á nýlögðum vegi ’með góðum vatnshalla t.d. Vífils- staöa- eða Álftanesvegi. Vel væri það ef breytingin til hægri ætti eft- ir að forða mörgum ungum öku- manninum frá bakskemmdum og iskías-gigt. Kannski væri ástæöa til að skýra nánar sum af þessum ofanskráðu | atriðum, en ég ætla aö þau séu nægilega skýrð hér aö framan. Aðeins vil ég bæta því við, að það er skiljanlegt og afsakanlegt þótt bílstjórar í sveitum og kaup- túnum sjái ekki og skilji ekki aö það sé nokkur þörf á breytingu. Umferðin hjá þeim er nefnilega á- líka lítil og róleg, eins og hún var £ Reykjavík og nágrenni fyrir 25— 30 árum. En ég held að varla sé til sá íslenzkur bílstjóri, sem ekki viö- urkennir að umferðin í Reykjavík og nágrenni er orðin gífurleg og hættuleg, og slysum fer sífellt fjölgandi. Þaö er því skvlda yfir- valdanna að taka í okkar umferða- lög allar þær öryggisreglur £ um- ferð sem viðurkenndar eru og not- aðar af menningarþjóðum, til þess að draga úr slysum og tryggja ör- yggi borgaranna. Höfum við ekki sett allar öryggisreglur? Nei, það gleymdist um áriö, þegar vinstri umferð var ákveðin hér aö setja um leið regluna um stýrið. Þess vegna er nú ástandið þannig hjá .okkur, að nærri allir bílstjórar sitja öfugu megin fyrir vinstri um- ferð en réttu megin fyrir hægri umferð. Það er' því ekkert sjálf- sagðara en að taka hér upp hægri umferð. Og þegar hún er komin hér á þá eru núverandi vfirvöld búin að gera skyldu sína og bæta fyrir gamla synd og lögleiöa allar þær öryggisreglur £ umferð. Þá höfum við lika sem þjóð gegnt þeirri siðferðilegu skyldu okkar að auka á samræmi i samskiptum þjóða, til öryggis fyrir okkur sjálf og þá sem heimsækja okkur. Hafnarfjörður Unglinga vantar til blaðburðar í Kinnahverfi, Öldugötu og Ölduslóð og götur þar í kring. Uppl. í síma 50641 kl. 7-8 Dagblaðið VÍSIR Peningar — Hagnaður Vil komast í samband við mann, sem getur lagt fram 200 þúsund krónur í mjög arðbær- an innflutning í lengri eða skemmri tíma. Al- gjört trúnaðarmál. Þarf að hafa peningana handbæra. Lysthafendur sendi nafn, heimilis- fang og símanúmer inn á augl.d. blaðsins, merkt „Skjótur hagnaður — 200“. Útgerðarstöð til sölu Eignir h.f. Miðness í Sandgerði eru til sölu, ef viðunandi tilboð fæst. Nánari upplýsingar gefur undirritaður. BJÖRN SVEINBJÖRNSSON, hrl. Sambandshúsinu, sími 12343 og 23338 F ramsóknarflokkurinn byggði skýjaborgir á nýafstöðnu flokksþingi Eftir flokksþing Framsóknar- flokksins er einkum klifað á þvi i Tímanum að þingið hafi markað „nýja umbótastefnu", að mæta verði „nýjum viðhorf- um“ með „nýjum úrræðum". Það er með öðrum orðum allt glænýtt hjá Framsóknarflokkn- um um bessar mundir, að dómi Framsóknarmanna sjálfra. Hins vegar tala "þelr ekkert um það gamla, sem hlýtur að hafa verið varpað fyrir borð til hess að hin „nýja umbótastefna“ gæti kom- 'zt að. Það er full ástæða til hess að spyrja Framsóknarmenn að þvi hver „eamla“ stefnan hafi verið. Ég þykist vita að hverjum einasta manni á hinu nýafstaðna flokksbingi að Ey- ^♦eini Jónssyni meðtöldum mundi vefiast tunga um tönn, ef hann að svara þeirrl spurningu. En hvað er þá þetta ,,nýja“ ' stefnu Framsóknarflokksins? \ð sögn Tímans er þaö eftirfar- andi: „Kjarni hinnar nýju fram- farastefnu um eflingu atvinnu- veganna er sá að miða verði efnahagsráðstáfanir við undir- atöðuatvinnnveeina og aukningu baevaxtar. framfara og fram- ieiðni án ofbenslu oe verðbólgu með. meaináherziu á nvtingu inn ; lendra hráefna Hri riáttúruauð- æfa Iandsihs.“ Nánar er þetta ~'-;i„re;nt f stiórnmáiavfirlýsingu flokksins og aftur vaknar spurn ingin: Hvað er nýtt i b^ssu?: ..Hina nýiu framfarastefnu og endurreisn atvinnuveganna verð ur að byggia á eftirfarandi sjón armiðum: Stjórn efnahags- og pertinga- mála verði við það miðuð að efia undirstöðuatvinnuvegina og stéfna að örum hagvexti, fram- förum og aukinni framleiðni án ofþenslu og verðbólgu. Lífskjör bióðarinnar baétt og tryggt, að ailir landsmenn eigi kost á fullri atvinnu. Leggja ber meg- ináherzlu á að hagnýta sem bezt inniend hráefni og náttúruauð- lindir, auka fjölbreytni og fram- ieiðni i vinnslu landbúnaðar- og sjávarafurða, flýta rafvæðingu landsins stofnsetja og efla iðn- fyrirtæki sem víðast um landið og kanna leiðir til aukinnar hag- nýtingar' orkulinda landsins og annarra náttúruauðæfa." Auðvitað er ekkert nýtt í þessu, hér er um almennt snakk að ræða og vitað mái að unnið Viðhorf og vandamál oftir Ásmund Ejnarsson hefur verið að þessum viðfangs- efnum á undanfömum árum með þeim árangri að lífskjör eru óvíða betri í veröldinni. En lát- um það vera. Aðalatriðið í fram haldi af þessu hlýtur að vera: Hvernig ætlar Framsóknarflokk- urinn að framkvæma þessa ,,nýju“ stefnu sína? Og þá kem ur í ljós að hann er ekki sjálf um sér samkvæmur. Það er algjört ósamræmi í stjórnmálaályktun Framsóknar flokksins þegar að þvi kemur að flokkurinn segi hvemig hann hyggst vinna að fram- kvæmd stefnu sinnar. Hann seg ir í öðru orðinu: „Tekin verði upp skipuleg stjórn í fjárfestingarmálum þjóð arinnar undir forystu ríkisvaids- ins í samstarfi við fuiltrúa sam- taka atvinnuiífsins". Þetta. er nánar skilgreint í '< ræðu 'Eysteins Jónssonar á fiokksþinginu þannig: „Nýjar vinnuaðferðir verða að koma til og kveðja þarf til úrvalsmenn úr átvinnulífinu, bæði af hendi atvinnurekenda og starfsfólks við atvinnureksturinn, einvalalið sérfræðinga í þeim greinum vís- indanna, sem atvinnulífið - ygrða ásgmt. fulltrúum frá rikis- j valdinu tii þess að kryfja tii mergjar vandamál hverrar at- vinnugreinar og gera sér grein fyrir því hvað aöhafast ber tii umbóta og eðlilegrar framsókn- ar í hverri grein og hvað aðhaf- ast þarf af hendi einstaklinga, félagssamtaka og ríkisvaldsins til þess að sem beztur. árangur náist“ Það á með öðrum orðum að koma á „samstarfi“ launþega og atvinnurekenda og ríkisvaldsins um áætlunarbúskapinn. En stjórnmáiaályktun Framsóknar- flokksins gengur ekki jafnlangt í hinu orðinu. þegar sagt er: „Ríkisvaldið hafi í nánu sam- starfi við einstaklingsframtak og félagsframtak forustu um ráð stafanir til eflingar og stuðnings atvinnuiífinu, og um val verk- efna og framkvæmd þeirra". Hér j er aðeins talað um ein- stanlingsframtakið og samvinnu félö.gin en launþegum sleppt. Þetta er ósamræmi, sem reynt er að breiða yfir í yfirlýsing- unni en fær ekki dulizt ef vel er að gáð. í raun og veru vita Framsókn- armenn afarlítið um það, hvem- ig þeir mundu fara að þvi að ná betri árangri en núvérandi stjórnarflokkar hafa náð með aðferðum sínum. Þess vegna verður þetta ósamræmi til, sem nú hefur verið bent á, og ný- mæli engin í stjórnmálayfirlýs- ingu flokksins. Þá er rétt að minna á að i allri stjórnmálayfirlýsingu Fram sóknarflokksins er ekki eítt ein- asta orð um það, hvernig þeir vilji hindra „ofþenslu og verö- bólgu“. Hvemig getur flokkur, sem telur verðbólguna megin- afleiöingu núverandi stjórnar- Eysteinn Jónsson — flokkur hans kann ekki aö aðhæfast nýj- um tímum og byggir skýjaborgir stefnu og er andstæður þessari stefnu, látið hjá líða að taka „verðbólgumálin“ til rækilegrar meðhöndlunar og móta ákveðna stefnu i þeim málum? Hvað er sagt um þetta atriði í stefnuyfir- lýsingu Framsóknarflokksins? Aðeins þetta: Framsóknarflokk- urinn lofar „að vinna gegn verð- bólgu og dýrtíð og jafnvægis- Ieysi í fjármálum þjóðarinnar". Þetta er allt og sumt. Ekki eitt orð um það, hvernig flokkurinn hyggst ná þessu markmiði, ef hann v^jri við völd. Hinar fátæklegu hugmyndir Framsóknarmanna um það, hvernig leysa beri veröbólgu- vandamálin birtast þezt í yfir- lýsingu Eysteins Jónssonar á flokksþinginu, þegar hann segir; ,,en íbúðarmálið er svo stórfelld ur þáttur í þjóðarbúskapnum og farsæl lausn þess svo þýðingar- mikil undirstaða, að telja má vonlaust að leysa kjaramálin og vandkvæði atvinnuveganna til frambúöar nema leiðir finnist til þess að stórauka framboð á hentugu húsnæði". Það er engin ástæða til að gera lítið úr hús- næðisvandamálum þjóðarinnar. Þau eru hvorki auðleyst né fljót- leyst þótt mikið hafi áunnizt við úrlausn þeirra á síðustu árum. Eysteinn segir heldur ekkert um það, hvemig hann vilji leysa hús næðisvandann og á það mál er vart minnzt í stjómmálayfirlýs- ingunni. Og að einblína á þetta vandamál sérstaklega sem ein- ustu forsendu fyrir Iausn þenslu vandamálsins er sama og aö neita að lita í kringum sig og horfast í augu við vandamálið í heild. Það gerir Framsóknar- flokkurinn. Hann hyggst ekki segja kjósendum hvemig hann ætlar sér að ná markmiðum sín- um. Hann ætlar að láta sér nægja að byggja skýjaborgir í von um að slík „uppbyggingar“- starfsemi gangi f augu kjósenda. Kosningamar munu auðvitað skera úr um það, hvort slíkt er ennþá hægt í kosningum á ís- landi.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.