Vísir - 31.03.1967, Page 2
2
V í SIR . Föstudagur 31. marz 1967.
Verða það 5 metrar í Laugardals-
höllinai / kvöld?
Segja má að brotið verði
blað i sögu frjálsra íþrótta
innanhúss í kvöld, þegar Meist-
aramót íslands hefst í Laugar-
dalshölllnni. Er hér um mikla
breytingu að ræða, sem gerir
það m. a. að verkum að hægt
er að keppa með ailgóðu móti
í hlaupagreinum, — og stangar-
stökk er vel hægt að iðka f
höllinni, og f því tilefni var
hingað boðið bandaríska stang-
Knattspyrnufélagiö VÍKINGUR
ÁRSHÁTÍÐ
félagsins verður haldin í Sigtúni laugardaginn 1. aprfl n.k.
og hefst með borðhaldi kl. 7.30. Fjölbreytt skemmtiatríði:
Hemmi og Villi, Ám5 og Klemenz — og ?
Aðgöngumiðar fást í Söebechsverzlun Háaleltisbraut og
S.Í.S., Austurstræti, og viö innganglnn.
Nefndin
Aðalfundur
Verzlunarbanka íslands h.f. verður haldinn
í veitingahúsinu Sigtúni laugardaginn 8. apríl
1967 og hefst kl. 14.30.
Dagskrá:
I.
Aðalfundastörf.
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans
síðastliðið starfsár.
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
bankans fyrir síðastliðið reikningsár.
3. Lögð fram tillaga um kvittun til banka-
stjóra og bankaráðs fyrir reikningsskil.
4. Kosning bankaráðs.
5. Kosning endurskoðenda.
6. Tekin ákvörðun um þóknun til bankaráðs
og endurskoðenda fyrir næsta kjörtímabil.
7. Tekin ákvörðun um greiðslu arðs.
II.
Lögð fram tillaga bankaráðs um hlutafjár-
aukningu.
m.
Lögð fram tillaga bankaráðs um stofnun
stofnlánadeildar við bankann ásamt tillögu
að reglugerð fyrir hana.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundar-
ins verða afhentir í afgreiðslu bankans.
Bankastræti 5 Reykjavík miðvikudaginn 5.
apríl, fimmtudaginn 6. apríl og föstudag-
inn 7. apríl kl. 10-12.30 og 14-16.
Reykjavík 30. marz 1967
f bankaráði Verzlunarbanka íslands h.f.
Þ. Guðmundsson
Egill Guttormsson
Magnús J. Brynjólfsson
arstökkvaranum Dennis Phillips
frá Oregon •' Bandaríkjunum.
örugglega mun þessi frábæri
stangarstökkvari aðal„númer“
keppninnar, enda hefur hann
stokkið 5.09 utanhúss og 5.03
inni, og er hann einn af fremstu
stökkvurum heims eins og gefur
að skilja.
Glerfíberstöngin hefnr veriö
notuð hér á landi í nokkur ár,
en stangarstökkvarar okkar
hafa ekki náð neinum tökum á
henni, enda sýnir árangurinn
það. Nú fáum við í fyrsta sinn
að sjá hvemig trefjastöngin er
notuð af „fagmönnum" og ná
þeir ótrúlegri sveigu og notfæra
sér kraftinn sem myndast ó-
trúlega vel.
Á meistaramótinu sem hefst
kl. 20.15 i kvöld verður keppt
í stangarstökki (aukagrein í
kvöld), kúluvarpi, 600 metra
hlaupi, langstökki án at-
rennu, 40 metra hlaupi, þrl-
stökki án atrennu og 40 metra
hlaupi kvenna og langstökki án
atrennu fyrir konur.
Á morgun hefst keppnin kl.
15.30. Þá veröur keppt í stang-
arstökki, hástökki án atrennu,
hástökki með atrennu fyrir
konur og karla, 40 metra grinda-
hlaupi, 1000 metra hlaupi og 40
metra grindahiaupi kvenna.
Sjötta umferö f ensku bikar-
keppninni, verður leikin laugar-
daginn 8. apríl n.k.
Rétt fyrir páska var útséð um,
hvaða lið leika saman í þeirri um-
ferð. Leeds sigraði þá Sunderland
í þriðju tilraun 2—1. Leikurinn var
mjög harður og grófur, þegar
Johnny Giles, hafði skorað annað
mark Leeds, úr vítaspyrnu, sner-
ist leikurinn : hrein slagsmál. Dóm-
arinn varð að vísa tveimur leik-
mönnum Sunderlands af velli,
fyrir mjög gróf brot.
í annarri umferð sigraði 1. deild-
arliðið Nottingham Forest þriðju
deildarliðið Swindon Town með 3:0.
Liðin sem Ieika saman í sjöttu
umferð eru þessi: Chelsea—Shef-
field Wed. — Leeds—Manchester
City — Tottenham—Birmingham og
Everton—Nottingham Forest.
Þessi mynd var tekin um paskana f brekkunm fyrir ofan IR-skálann i Hamragili, en fjöldi manns var þar
vlð skíðaiðkun.
Fjórðungsglíma
Vestfirðinga-
f jórðungs
Fjórðungsglíma Vestfirðinga-
fjórðungs verður háð í Stykkis-
hólmi sunnudaginn 2. april kl. 2 e.h.
Ungmennasamband Snæfellinga
sér um glímumótið.
Keppt verður um fagran silfur-
bikar sem Sigurður Ágústsson’, al-
þingismaður hefur gefið til keppn-
innar. Auk þess verða þrenn verð-
laun veitt.
Þetta er í annað skipti sem
Fjórðungsglíma Vestfirðingafjórð-
ungs er haldin.
Ræða sameigin-
leg mál varðandi
Olympíuleikana
Íslandsglíman
hóð 30. apríl
• Islandsglíman verður háð
að þessu sinni 30. apríl. Þátttöku-
tilkynningar skulu sendast til
Rögnvalds Gunnlaugssonar,
Fálkagötu 2, fyrir 22. apríl n. k.
Glímudeild KR mun sjá um mótið.
Norðurlöndin fimm munu
senda fulltrúa sína í Olympíu-
nefndunum til Kaupmannahafn-
ar um miðjan aprílmánuð
Verða þá rædd ýmis sameigin-
leg hagsmunamál landanna varð
andi þátttöku í Olympíuleikun-
um í Mexikó sumarið 1968 og
vetrarleikana í Grenoble í
Frakklandi.
Eitt aðalmálið verður það
hvernig leysa ber ferðalög hóp-
anna fimm á sem hagkvæmast-
an hátt, en undanfarin ár hafa
Norðurlöndin ferðazt saman og
sparað mikið fé á þeirri ráð-
stöfun.
Ekki er vitað hver verður
fulltrúi Islands á fundinum að
þessu sinni og samkvæmt
dönsktem blaðafregnum var bú-
ið aö tilkynna nöfn allra fulltrú-
anna nema Ísland3.
Síðast f apríl verður fundur
í Alþjóðaolympíunefndinni í
Teheran.
J