Vísir - 28.06.1967, Blaðsíða 8
8
V í SIR . Miðvikudagur 28. júni 1967.
VÍSIR
Dtgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR \
Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson f
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
ASstoSarritstjóri: Axei Thorsteinsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson
Auglýsingan Þingfaoltsstræti 1, simar 15610 og 15099
AfgreiSsla: Túngötu 7
Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur) 1
Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuSi innanlands
I lausasölu kr. 7.00 eintakiS
PrentsmiSja Vfsis — Edda h.f.
Sjá ekkerf nema ál og gúr
Þeir sjá ekkert nema ál og kísilgúr, — ekkert nema
erlent fjármagn, — þeir trúa ekki á íslenzka atviímu-
vegi! Kannast menn við þessi slagorð? Er einhver, f(
sem hefur heyrt þetta áður? I
Þjóðviljinn segir, að þúsundir ungmenna gangi at- l
vinnulausir vegna samdráttar í atvinnulífinu. Þar sem
kosningar eru nú um garð gengnar, er ekki látið
fylgja, að ríkisstjómin hafi búið til þennan samdrátt.
En hver er þessi samdráttur? Ef til vill stafar hann af ((
minni síldveiði eða af því, að hún er seinni á sér en
áður. Sjávarafli hefur að öðm leyti verið góður. Tog- ,
arar hafa fengið mokafla og þess vegna þarf fólk í
frystihúsin. Byggingavinna er sennilega nú orðin um '
það bil jafnmikil og á sama tíma í fyrra, þótt hún hafi (
í vor verið minni en á sama tíma í fyrra. (
Þegar álsamningamir voru til umræðu á Alþingi í
fyrra, hélt stjómarandstaðan því ákaft fram, að ekki ((
mætti ráðast í byggingu álbræðslu, byggingu stór- J
skipahafnar í Straumsvík, ekki svona mikla stórvirkj- )
un við Búrfell og ekki byggingu kísilgúrverksmiðj- J
unnar við Mývatn, — af því að vinnuafl vantaði. All- \
að þessar miklu framkvæmdir mundu soga vinnu- (
aflið frá sjávarútveginum og eyðileggja þar með (/
það sem stjómarandstaðan nefndi fjálglega: íslenzka /(
atvinnuvegi. ))
Auðvitað verður álbræðslan íslenzkur atvinnuveg- //
ur. Á sama hátt verður kísilgúrverksmiðjan íslenzkur J'
atvinnuvegur. Stórvirkjunin við Búrfell er og verður ((
íslenzk. Erlent fjármagn er að vísu fengið til að fram- ((
kvæma þessa hluti. Erlent f jármagn á og áhættir öllu h
í sambandi við álbræðsluna og erlent fjármagn >
er um það bil í helmingafélagi við íslendinga í Kísil-
iðjunni. En það munu menn reyna, að innan tíðar
og án þess að menn þurfi að gera um þp* •^inar grill- (
ur verður allur þessi atvinnurekstur ei 'ver ann- (
ar atvinnurekstur hér á landi, — íslenzKur atvinnu- /
rekstur, þar sem íslendingar öðlast nýja þekkingu, )
nýja tækni og skapa sjálfum sér aukið öryggi.
Og vaxi kommúnistum og Framsókn í augum at- )
vinnuskortur nú, mætti spyrja: Hvemig væri þá, ef
farið hefði verið að ráðum þeirra og hafnað öllum '
stórframkvæmdunum, sem hér hefur verið vikið að? (
Við ál og kísilgúr, stórvirkjun og hafnargerð, vinna (
þó nú á annað þúsund manns, ef allt er talið.
En tímarnir breytast. Nú er Þjóðviljinn farinn að (
prenta myndir frá Búrfellsvirkjun. Næst koma vænt- (
anlega myndir frá byggingu álbræðslunnar. Hvenær ,
Tíminn fetar á eftir, er ekki vitað.
Kína og Sovétrikin keppa
um hylli Arabaþjóða
Þaö hefur verið tallö fram aö
þessu, að Kfna getl ekki sent
Arabalöndunum nema tiltölu-
lega lftið af vopnum, og þá helzt
minni vopn, handsprengjur og
siíkt. Sjðlflr hafa Kínverjar orð
ið að flytja inn herflugvélar,
skriðdreka o. fl.
En þeir hafa reynt að ná fót-
festu með öðrum hætti, — og
það er ekki alveg ný til komið,
að Kína keppi við Sovétríkin um
áhrifaaðstöðu í Arabalöndum á
grundvelli viðskipta- og efna-
hagssamvinnu. Stórveldin hafa
þann hátt á, að bjóða efnahags-
aðstoð í margs konar myndum,
sem gert er ráð fyrir að veröi
forleikur að nánara samstarfi og
verður það nær undirtekningar
laust.
KÍNA OG SÝRLAND
Þegar árið 1963 fóru Kínverj-
ar að veita Sýrlandi efnahags-
aðstoð, en Sýrland er það Araba
landanna þar sem hefur borið
hvaö mest á tilhneigingu til að
hafa yfirgang I frammi. Kín-
verska stjómin opnaði fyrir
mörgum árum lánsreikninga fyf
ir Sýrland í svissneskum bönk-
um, lánaði þvi um 1200 milljón-
ir króna, til kaupa á matvælum.
Seinna fékk Sýrland, sem fyrr
á tíma fiutti út kom til annarra
Arabalanda — hveiti frá Kína,
um 20.000 lestir. í Sýrlandi hef-
ir og veriö komiö á fót 2—3
verksmiðjum, sem reistar eru
fyrir kínverskt fé og kínverskar
og norður-vietnamskar sendi-
nefndir, sem komu til Damaskus
til þess að ræða viðskipti gerðu
fyrir tveimur ámm samninga
við leiðtoga Palestfnu — arab-
ísku hreyfingarinnar, sem hef-
ir að markmiði að „frelsa ísrael
undan kúgunarvaldi Gyðinga",
en þaö em flugumenn Palestínu
—Araba sem valdiö hafa ísra-
elsmönnum mestu tjóni með
morð-.m, ránum og gripdeild-
um.
SÓTT FRAM FRÁ
DAMASKUS
Frá Damaskus hafa kinversk-
ir sendiráðsmenn „sótt fram“ og
reynt að fá fótfestu 1 Líbanon.
Sá árangur náðist að minnsta
kosti þar, að kommúnistaflokk-
urinn klofnaði, og fylgir annar
helmingurinn Kína að málum og
hinn Sovétríkjunum. Forsprakki
Kína-kommúnista f Líbanon er
vellríkur gósseigandi af Drúsa
stofni, en hann er talsmaöur
ýmissa þjóðemisminnihluta í
landinu.
Höfuðstöðvar Kína til út-
breiðslu era skrifstofur sendi-
manna þeirra í Damaskus, Sýr-
landi, Kairo, Egyptalandi og
Saana í Yemen.
YEMEN
varð annars fyrst Arabaland-
anna til þess að fá efnahags-
aðstoð frá Kina og undirritaöi
þáverandi ríkisarfi Mohammed
al-Badhr vináttu, viðskipta og
menningarsáttmála við Kína
1958. Stuttu sfðar fékk Yemen
10 ára lán f Kína upp á 750
Síðari grein
millj. kr. til nýrra vegalagn-
inga og til þess að koma á fót
verksmiðjum.
KONUNGUR
í VIKU
Þegar Sallal árið 1962 steypti al
Badhr, sem þá hafði verið kon-
ungur aðeins viku tíma, viður-
kenndi Kína þegar lýðveldis-
stjór.iina f Yemen. Og þangað
var sent fjölmennasta sendiráö,
sem Kfna hefir sent til nokkurs
annars lands, vafalaust til að
standa betur ag vígi i keppninni
við Rússa
HEIMSÓKN
PODGORNIJS TIL KAIRÓ
Frá þeirri heimsókn hefur
veriö sagt nokkuö í fréttum, en
það gildir um hana eins og
heimsókn Kosygins — að það
getur oft liðið nokkur tími op
stundum langur tími, þar til i
ljós kemur hvað um var samir'
— því að oft er um eitt/.vað sam
ið, sem af nauðsyn þarf að halda
leyndu, að minnsta kosti um
skeið.
I einni frétt segir, að Pod
gomij hafi haft hraöan á. aí'
fara til Egyptalands, vegna orð
rómsins um að Kína ætlaði ai'
gera Nasser tilboð um að byggja
upp vamir landsins.
ALBANÍA
Og það má ekki gleyma því,
þegar um keppni Kína og Sovét
rfkjanna um þjóðahylli er að
ræða, að Kfna á sét hauk í homi
þar sem Albanfa er, jafnan reiðu
búin til að beita kjafti og klóm
fyrir sína kínversku sálufélaga.
700 MILLJÓNIR
KÍNVERJA
Og það dunar svo að undir tek-
ur austur i Kfna, þar sem allar
áróðursvélar eru í gangi, og
hrópað til Noröur-Vietnam og
út um öll Arabalönd: 700 milli.
Kínverja eru bákhjarl yöar. En
allar þessar milljónir manna
eru fjarlægar og munu vart sjási
í fjarlægum löndum sem bar-
dagamenri, en varast ætti að
gera of lftið úr stuðningi þess-
ara milljóna. Og það gera Rúss-
ar ekki. Þeir vanmeta ekki þessa
keppinauta sfna. Og það er kann
ski ekki sízt þess vegna að leikn
um er haldið áfram og leiðtogar
Rússa halda til streitu stefnu
sinni og reyna að koma svo ár
sinni fyrir borð, að Arababiöö-
irnar telji þá sína einu, söiinu
vini — um leið og Kínverjar
saka þá um samsæri, tvöfeldm
og svik við málstað þeirra.
— Að mestu þýtt — A. Th.
Trryggdi leynivopn ísraels-
þjóð sigurinn yfir Egyptum?
Brezk blöð hafa að undan-
fömu birt pistla um þaö frá
fréttariturum sínum á Sinai-
skaga, að lykillinn aö þeirri gátu
hvemig ísraelski flugherinn gat
lamað gersamlega egypzka flug-
herinn á einum degi, væri sá,
að hann hafi haft leynivopn,
sprengjur af nýrri gerð, en
fyrirrennari þeirra var raunar
segulmagnaða tundurduflið. Hið
sama liggur til gruudvallar.
Þessar sprengjur Egypta bók-
staflega stöðvast i lofti, er þær
koma i nálægö vissra málma í
flugvélum, dragast svo að þeim
og eyðileggja þær.
Þetta er skýringin á því, að
flugvélalíkön úr tré og striga-
klædd grindalíkön sem ætluð
era til að blekkja flugmenn
árásarflugvéla, stóðu eftir ólösk
uð á flugvöllunum í Egypta-
landi, en í nálægö þeirra eyði-
lagðar dýrmætar herflugvélar í
tugatali. Á fyrstu dögum styrj-
aldarinnar eyðilögðu ísraels-
menn 427 egypzkar flugvélar —
þar af 393 á jörðu. — Þá segir
að ísraelsmenn hefðu komizt
að raun um það með njósnum
hvenær varðgæzlulið var fá-
mennast á völlunum, eða á
morgunverðartíma kl. 7.30 og
á þeim tíma vora gerðar sam
ræmdar ísraelskar árásir á 2.r>
egypzka herflugvelli.
Rodwell Rodwelle, einn af rit
stjórum Flight International
Magazine hefir skrifað um leyni
vopnið í tímaritið.