Vísir - 28.06.1967, Blaðsíða 16

Vísir - 28.06.1967, Blaðsíða 16
Sláttur hefst hálfum til einum mánuði seinna en vant er — Spretta léleg v'iðast hvar á landinu VÍSÍR Miðvikudagur 28. júnf 11>67 ðíeldnaholtsmálið ithuqad á morgun Keldnaholtsmálinu svonefnda hefur verið frestaö til n. k. fimmtudags. Fara þá fram yfir- heyrslur í málinu. Verða þá komnar fram greinargerðir deiluaðila. Óvíst er, hvort rann- sókn verður lokið fyrir réttar- hlé. Missagt var í Vísi í gær, aö bdið væri að dómtaka málið. Það er enn á rannsóknarstigi. Allar likur benda til þess, að sláttur hefiist hálfum mánuöi til mánuði seinna en venjulegt get ur talizt, samkvæmt upplýsing- um frá Búnaðarfélagi íslands. Vorið hefur verið með afbrigð- um kalt og stutt síðan hlýna tók, enda er spretta víðast hvar á landinu mjög léleg enn sem komið er. Á Norðurlandi eru beitilönd flest illa sprottin og stutt síð- an bændur hleyptu af túnum. Getur varia heitið, að þar sé komið sumar enn. Til dæmis snjóaði í fjöll um allt Norður- land fyrir síðustu helgi. Nokkur brögð eru aö því fyrir norðan, að tún séu skemmd af kali eftir veturinn. Útlit er þvi fyrir, að sláttur hefjist þar jafnvel seinna en sunnanlands. Þó hafa ein- staka bændur i innanverðum' Eyjafirðinum, sem er með hlýj- ustu sveitum á landinu, hafið slátt á smáblettum í túnum sín- um, þeim sem bezt eru sprottn- ir. Sunnanlands eru horfur ekki g eins slæmar og fyrir norðan. 1 Beitiiöndin eru þar betur sprott- | in en almennt fyrir norðan. í Þó er ekki búizt við því, að B sláttur verði almennt hafinn um E land allt, fyrr en um 10. til É 15. júlí. Um slíkt verður þó | ekki sagt með neinni vissu. I Á einni góöri viku gæti spretta | orðið svo góð, að slægt væri orðið aö henni liðinni. “ - - i Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri sýnir blaðamönnum hina nýju tannlæknisstofu, sem búin er hin- Jón Auðuns og Garðar Þorsteinsson kosnir til að endurskoða helgisiðabók Eins og áður hefur verið sagt frá í Vfsi lauk Prestastefnu Is- lands nú nýlega. Gerð var á- lyktun um aðalmál Prestastefn- unnar, endurskoðun helgisiða- bókarinnar. Segir í ályktuninni, að við endurskoðun helgisiða- bókarinnar skuli prestum og söfnuðum vera gefinn kostur á að velja um messuna eins og nú tíðkast, bæði í lcngri gerð- inni frá 1934 og hinni styttri frá 1910 og fomlútherska messu sem uppi er af hinum ýmsu þáttum, sem henni tilheyra. Þá segir ennfremur í álykt- uninni, að bæta elgi við mess- una frá 1934 trúarjátningunni og jafnframt eigi að endú'rskoða ávarp fyrir altarisgöngu. Kosnir voru tveir menn, þeir séra Jón Auðuns, dómprófastur í Reykjavik og séra Garðar Þor- steinsson, prófastur i Hafnar- firði, sem ásamt tveimur mönn- um, sem biskup tilnefnir, eiga að vinna að endurskoðun helgi siðabókar. FÍ SEMUR VIÐ BOEING-FLUGLIÐA Samningar við flugliða hjá Flugfélagi Islands eru nu á loka stigi að því er Magnús Bjöms- son, starfsmannastjóri Flugfé- lagsins, sagði VIsi í morgun. „Samningamir hafa staöið vfir í nokkum tíma, og við væntum þess, að gengið verði frá þeim samningum næstu daga“, sagði Magnús. Breyta verður samningunum nokkuð vegna komu hinnar nýju þotu, þar sem hverjir samningar gilda um ákveðna flugvélategund. Semja þarf sér- staklega um kaup þeirra, sem fljúga á þotunni og einnig um vinnutíma þeirra, sem þar vinna. Ekki hefur komið til neinna verkfallshótana hjá neinum starfshópnum, en eins og fyrr segir eru nýir samningar vænt- anlegir næstu daga. Til flugliða teljast flugmenn, flugvélstjórar, siglingafræðingar og flugfreyjur. Leiga á erlendum skemmti- ferðaskipum takmörkuð Ríkisstjómin hefur ákveöið að fyrst um sinn verði íslenzk- um aðilum ekki veitt ný leyfi tll að taka á leieu erlend skemmtiferðaskip til sigllnga með Islendinga í skemmtiferðir til útlanda. Ennfremur er ráð- gert að taka upp aukið eftlrlit með leigu islenzkra aðila á er- lendum flugvélum í sama skyni. Eftir því sem blaðið hefur fengið upplýsingar um er þessi ráðstöfun gerð á þeim forsend- um, að ekki sé ráðlegt vegna hins óvissa markaðsástands að eyða of miklu til leigu þessara farartækja. Ferðir þær, sem ákveðnar hafa verið í sumar með skemmtiferðaskipunum Regina Maris og Völkerfreundschaft verða farnar, auk þess hefur annað skip Fritz Heckert far- ið eina slíka ferð fyrr á árinu. Ekki hafa borizt fleiri beiðnir um leigu á erlendum skemmti- ferðaskipum til viökomandi ráöuneytis. Jerúsalem sameinuð með lögum Von um samkomulagstillógu á Allsherjarhinginu fyrir helgi ísraelsþing hefir sam- þykkt þrjú frumvörp , til Iaga og með þeim formlega lagt undir sig gamla borg- arhlutann í Jerúsalem, en tvenn laganna fjalla um sameininguna, og hin þriðju um verndun helgi- staða í borginni og frjálsa aðgöngu að þeim. Samkvæmt lögunum eiga nú sömu lög og reglur að gilda fyrir báða borgarhlutana og nær það til félags og menntamála. Fulltrúar gamla borgarhlutans verða skipað- ir en ekki kjörnir ein og hins. Breytingin mun leiða af sér, að fólk í gamla borgarhlutanúm fær brátt að búa við sömu skilyrði ög fólk í hinum, þar sem hrein- lætisskilyrðiySkólar og annað er í miklu betra horfi. Aðeins ísraelsk- ur gjaldmiðill gildir í borginni. Eldur í rámi olvaðs manns Slökkviliðið var kvatt aö Laugavegi 43 B, sem er bakhús neðan við Laugaveginn, síðdegis í gær, um kl. 19.40. Kom slökkvlliðiö þar aö manni, sem lá ölvaður út af á legu- bskk, en bekkurinn var farinn að loga og einnig þilið við höfðagafl- ínn. Maðurinn var fluttur á Slysa- varðstofuna, en ekki var taliö, að honum yrði neitt meint af. Eldur- inn hafði ekki náð að magnast og var slökktur á nokkrum andartök- um. lUUKUUIUUaiU UClVjUlll. ÁRÓÐRI VERÐI HÆTT. Fulltrúar Argentínu og Nigeríu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna lögðu til í gær, ag áróður vegna styrjaldarinnar milli ísraels og Ar- abalandanna verði lagöur niður og lögð öll áherzla á að ræða friðinn og hversu megi koma honum á. Nigería vill að markaðar spildur á landamærum ísraels verði I gæzlu liðs Sameinuðu þjóðanna. SAMKOMULAG UM TIL- LÖGU FYRIR HELGI ? Von er um samkomulag um til- lögu á Allsherjarþinginu, er nægur meirihluti getur sætt sig við — og verði slík tillaga lögð fyrir þingið i þessari viku. Sú er að minnsíá kosti von manna. Ellefu milljónum króna jafnað niður á Húsavík Útsvarsskráin var lögð fram á Húsavík í fyrradag og nerna út- svörin samtals 11 millj. króna sem skiptast á 542 einstaklinga. Hæstu einstaklingsútsvör bera eftirtaldir menn: Sigurður Sigurös- son, skipstjóri kr. 190 þúsund. Kristbjörn Árnason, skipstjóri kr. 126 þúsund og -Sigurður Jónsson, lyfsali kr. 100 þúsund. Rúmri milljón var jafnað niður á fyrir- tæki en hæstu útsvör greiða eftir- talin fyrirtæki: Útgerðarfélagið Barðinn kr. 468 þúsund, Raftækja- vinnustofa Gríms og Árna kr. 113 þúsund. - Aöstöðugjöld námu samtals 3,3 milljónum sem skiptust milli 102 félaga. Hæstu aðstöðugjöld greiða þessi félög: Kaupfélag Þingeyinga kr. 1195 þúsund, Fiskiðjusamlag Húsavíkur kr. 341 þúsund og Út- gerðarfélagið Barðinn kr. 178 þús- und. Álagningin fór fram samkvæmt gjaldskrá, en síðan voru útsvör- in lækkuö um fimm af hundr- aði, Elliheimilii býiur upp á tunngæzlu til viðbótar fótsnyrtingu, handsnyrtingu, hár- greiðslu, andlitsbóðum, nuddi og almennri heilsugæzlu, sem allt er látið vistmónnum i té endurgjaldslaust Á laugardaginn tekur til starfa tannlæknastofa á Elliheimilinu Grund í Reykjavík, þar sem kom- ið verður á fót ókeypis tann- gæzlu vistfólksins á Elliheimilinu. Gisli Sigurbjcírnsson, lbrstjóri Elliheimilisins boöaði blaðamenn á sinn fund í gær og skýröi frá þessu og sýndi blaðamönnum ýmislegt það, sem Elliheimiliö hefur að bjóöa vistmönnum sínum. Gísli kvaöst hafa fengið tann- lækni hér í borg, Hörð Einarsson til að taka að sér tvisvar sinnum í viku tanngæzlu vistfólksins, sem yrði eins og fyrr segir látin i té því að endurgjaldslausu. K^aðst Gísli sannfæröur um, að þessi nýja starfsemi myndi bera góðan ár- angur, þar sem m. a. heilar tennur og góð og stöðug þjónusta tann- lækna, væri ein mikilvægasta for- senda þess, aA fólki gæti liðið vel. Gísli sagöi í gær, að á vistheim- ilinu væri nú samtals 435 manns, þ.e. 376 í Reykjavík og 29 í Hvera- gerði. Gjald hvers vistmanns er Framhald á hls 10

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.