Vísir - 28.06.1967, Side 10
ru
V í S IR . Miðvikudagur 28. júní 1967.
S23r
Gyðingahatur —
Frh. af bls. 5:
öðrum mönnum, er hann frekar
f þá áttina, að þeir séu hógvær-
ari í viðskiptum. En alla vega
er sá munur óverulegur, ef ein-
hver er. Einnig er sagt, að Gyð-
ingar séu peningagráðugir.
Ekki hafa rannsóknir leitt í
ljós, að neinn munur sé á þeim
og öðrum mönnum í þeim efn-
um. Hins vegar hefur komiö í
ljós, að þeir, sem álasa Gyöing-
um fyrir þetta, eru sjálfir pen-
ingagráðugri en fólk er flest.
Er þetta gott dæmi um, að menn
yfirfæra eigin hvatir á aðra
menn.
Þáttur í rannsókn Packards
var að leita að Gyðingum i
bandarísku og evrópsku banka-
lífi. Niðurstaðan kom honum
mjög á óvart. Gyðingar eiga til-
tölulega lítinn þátt í bankastarf-
semi og eru allir helztu bankar
Bandaríkjanna í höndum krist-
inna manna af kristnum ættum.
Yfirleitt er það algild regla. að
fjármálaleg áhrif Gyðinga á
Vesturlöndum eru stórkostlega
miklu minni, en Gyðingahatar-
ar vilja vera láta.
Einstaklega gáfaðir?
Ein skýringin, sem Packard
var oft gefin á Gyðingahatri,
var, að þeir væru sniðugri og
gáfaðri en aðrir menn. Þessi
fordómur er t.d. mjög algeng
ur á íslandi, að því er ég hef
næst komizt. Rannsóknir hafa
leitt í ljós, að greind Gyðinga
er mjög svipuð og annarra
manna. Hins vegar liggja ýmsar
sögulegar ástæður, sem hér hafa
verið raktar að framan, fyrir
því, að Gyðingar hafa meira en
aðrir leiðzt út í störf, sem hafa
á sér gáfnaorð. Gyðingar hafa
í tiltölulega ríkum mæli lagt
stund á vísindi og menntir. Það
hefur verið ein af undankomu-
leiðum þeirra. Þeir eru mjög
fjölmennir í hópi vísindamanna,
lækna, verkfræðinga, rithöf-
unda, tónlistarmanna og þess
háttar manna. Þessi störf hafa
þeir getað stundað, án þes? að
vekja öfund og illgirni samborg
aranna.
Almenn undiralda
'p'ins og hér hefur verið skýrt
frá, á Gyðingahatur sér á- j
kveðnar sögulegar rætur og!
ýmsar sálrænar ástæður valda
því, að það skýtur auðveldlega
rótum. Menn þurfa t.d. ekki
annað en aö fara út á götu á
íslandi og tala við menn um
Gyðinga til þess að kynnast
margvíslegum fordómum af
hálfu manna, sem jafnvel hafa
aldrei séð Gyðinga. Þessir menn
hafa meðtekið almenna undir-
öldu frá útlöndum.
Þáttur framkvæmda-
stjórans
U Thant, framkvæmdastjóri
S.þ. tekur yfirleitt ekki þátt í
umræðum á þingi. Hann gerði
það þó tvisvar í Israelsumræð-
unum til þess aö svara gagnrýni
ísraelsmanna á hann fyrir að
kallla á brott gæzluliðið Þar er
um lögfræðilega deilu að ræða,
en samt er því lýst, að U Thant
hafi verið hrærður þegar hann
ávítaði fulltrúa ísraels Ekki
fara neinar sögur af þvi. að til-
finningar U Thants hafi ólagazt
í umræöum um aðdraganda
stríðsins, enda nefndi hann ekki
þann aödraganda. Ekki hafa til-
finningar hans heldur ólagazt
neitt út af hótunum Arabaleið-
toga um þjóðarmorð Israels-
manna. Þetta tvöfalda siðferði
er athyglisvert
Ekki síður athyglisvert er að
sjá viðbrögð ýmissa manna við
ræðum Thants. Það er gott
dæmi um dreifingu fordóma. I
blöðum, þ. á m. íslenzku dag-
blaði á sunnudaginn, var fjallað
um ræðu Thants eins og hann
hafi almennt gagnrýnt ísrael,
en ekki eingöngu verið að svara
hinu fyrrnefnda eina atriöi.
Þannig kemst sú skoðun á kreik,
að U Thant sé andvígur málstað
ísraels, sem áreiðanlega stenzt
ekki, þrátt fyrir ofuriítinn_ vott
af fordómum.
Þessa fordóma kann Thant
að hafa komizt yfir af lestri
skýrslna hershöfðingjans von
Horn, sem var einu sinni yfir-
maður gæzlusveita S.þ. á Israels
svæðinu. Von Horn hefur
greinilega fordóma gegn Gyð-
ingum eins og kemur fram í
bók þeirri, sem hann hefur
skrifað um þessi mál. Ef til vill
er þetta röng tilgáta, en alla
vega er sitthvað grunsamlegt
við frammistöðu Thants á S.þ.-
þinginu.
Tvöfalt siðgæði er mjög í
tízku á þingum Sameinuðu
þjóðanna. Fulltrúarnir láta sér
ekki bregða, þótt þar séu bornar
fram fullyrðingar, sem hneyksla
venjulega menn. Á þinginu, sem
nú stendur yfir, hefur hver
stjórnmálamaðurinn á fætur
öðrum, einkum austantjalds-
menn, ráðizt meö óþvegnu orð-
bragði að Israel. Jafnframt þykj-
ast þeir ekki sjá snefil af neinu
gagnrýnisverðu í atferli leið-
toga Arabaríkjanna. Og fulltrú-
ar Vesturlanda láta þetta gott
heita, enda eru margir þeirra
hræddir um missi olíuviðskipta
og annarra viðskipta við hin
fjölmennu Arabaríki. Ég er
hræddur um, að þaö eigi eftir
að koma Vesturveldunum í koll,
ef fulltrúar þeirra sýna ekki
hneykslun sína á fáránlegum
fullyrðingum, sem hafðar eru
uppi á þeim vettvangi.
Ekki vil ég halda því fram,
Ungtemplarar fjöl-
menna til Siglufjarðar
islenzkir ungtemplarar halda upp á ýmsu skemmtilegu á kvöld-
landsmót á Siglufirði 1. til 2. júlí vökum. Daginn áður en mótið byrj-
næstkomandi. Er búizt viö ar verður haldið ársþing ungtempl-
fjölmenni þangaö þá dagana, en ara í Gagnfræðaskóla Siglufjaröar.
14 ungtemplarafélög eru starfandi Ungtemplarafélög hafa færzt mjög
á landinu. í vöxt á undanförnum árum, en
Ungtemplarafélagið Hrönn áfélögin samanstanda aðallega af
Siglufirði sér um framkvæmd móts ungu skólafólki og þau starfa yf-
ins. Dagskráin er afar fjölbreytt. irleitt frjálslegar ep stúkurnar og
Unga fólkiö mun þar stíga dans, Góðtemplarahreyfingin.
ganga á fjöll, fara í leiki og fitja
aö Gyöingaandúð ráöi hæversku
fulltrúa Vesturlanda. En ég hef
trú á þvi, að margumrædd und-
iralda valdi því, að þeir yppta
öxlum yfir því, að reynt er aö
setja Israelsríki upp ‘við vegg ;
sem ríki árásarhneigðra fanta.
"JVFýlega hitti ég ungan og vel
menntan stjómmálamann,
íslenzkan. Hann var aö tala um
ísraelsmenn og sagöi: „Að þeir
skuli halda, að þeir geti mútaö (
íslenzkum ráðamönnum meö i
heimboöum“. Svona læöast for- |
dómarnir um eins og þjófar á
nóttu og grípa iafnvel beztu
menn.
(Helztu heimildir: Adorno o.
fl.: The Authoritarian Person-
ality. Ballachey o. fl.: Individual
in Society. Packard: The Status
Seekers. Toynbee: A Study of
History.)
J. Kr.
ISiiheimilið
AMðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför mágkonu minnar,
MAGDALENU GUÐJÓNSDÓTTUR
hjúkrunarkonu.
i
Sigfús Jónsson.
Faðir okkar og tengdafaðir
ALBERT P
verður jarðsunginn frá:
29. júm kl. 10.30.
GOODMAN
Dómkirkjunni fimmtudaginn
Oddný S. Jónsdóttir, Jón G. Sigurðsson
Guðlaug Hannesdóttir, Sigurður Jónsson.
-ramhalfl a's lö
200 krónur á dag, en sé viðkomandi
vistmaður sjúkur og þurfi um-
önnum sem slíkur væri gjaldið
310 kr. á dag. Ríki og bær leggja
fram 40 kr. á dag fyrir hvern vist-
mann.
Gísli sýndi fréttamönnum hina
margvíslegu starfsemi sem er
rekin á Elliheimilinu í sambandi
viö og sem bein þjónusta viö gamla
fólkiö, sem þar dvelst. Öll er
þessi þjónusta látin í té endur-
gjaldlaust. Má þar m. a. nefna
handsnyrtingu, fótsnyrtingu, and-
litsböö, fullkomið eftirlit meö
heilsu hvers sjúklings, nudd o. fl.
Þá er og rekið bókasafn á Elli-
heimilinu og góö aöstaða er fyrir
vistfólkið til að stunda alls konar
tómstundastarfsemi, þ.e. það sem
kærir sig um slíkt. Öll eru húsa-
kynni þessi hin vistlegustu, mjög
smekklega innréttuö og hlýleg.
Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri
Elliheimilisins Grundar í Reykja-
Vik boöaði blaðamenn á sinn fund
I tilefni þess, aö á laugardaginn
tekur til starfa tannlæknastofa á
Elliheimilinu og mun hún veita
vistfólki þess tanngæzlu.
Engin sölfun —
Framh. at bls. I
Síldarútvegsnefndar þar, Páll
Hj. Árnason, við Vísi í morgun,
sumar söltunarstöövarnar hafa
ekki einu sinni verið teknar í
gegn, eins og venja er og allt
er daufara en áður. Enda sagöi
Páll að ekki væri búizt við að
söltun hæfist fyrr en jafnvel
upp úr miöjum júlí. Síldin er
of fjarri landi ennþá til þess aö
hægt sé að sigla með hana af
miöunum til söltunar og þar aö
auki óvíst um sölur.
Síldin dreifist nú um stórt
svæði þarna noröur undir Jan
Mayen og gengur misjafnlega
að ná henni, síðasta sólarhring
fengu 13 skip afla 2280 lestir
og fór megnið af því í flutninga-
skipið Síldina, sem nú er á miö-
unum og siglir meö farm sinn til
Reykjavíkur. Inni í blaðinu er
skrá yfir skipin, sem fengu afla
i nótt. bls. 10.
Hænsnl —
Framhald ai síöu 1
aö þegar eldurinn kom upp, hafi
vaktaskipti veriö að fara fram og
hafi allt liö hvalstöðvarinnar, 30—
40 manns, farið á brunastaðinn til
slökkvistarfa. Hafi þaö gengið
fremur erfiölega 1 fyrstu þar sem
illt var aö ná í slöngurnar, sem
voru niðri á plani. Um fimmleytið
kom slökkvilið Akraness til að-
stoðar og var eldurinn þá slökkt-
ur.
Miðhús standa rétt við bragga-
hverfið í Hvalfirðinum og stóð
vindurinn beint á braggana. Var
við slökkvistarfið fyrst og fremst
hugsað um það aö verja íbúöar-
húsiö og var unnið að því að bera
allt út úr því hvert einasta tang
ur og tetur — hurðirnar líka eftir
því sem Ólafur skýrði frá.
Þessi skip fengu afla síðastliðinn
sólarhring:
Gullver 250, Sigurvon 210, Ásgeir
270, Ársæll Sigurðsson 150, Sæfaxi
II. 70, Ásbjörn 100, Guöbjörg ÍS 14
90, Arnar 130, Guðmundur Péturs
240, Baröi 200, Dagfari 290, Guðrún
Jónsdóttir 110, Sigurður Jónsson
170. — 13 skip með 2280 lestir.
Skall í
framrúðuna
Harður árekstur varð á gatna-
mótum Barmahlíðar og Stakka-
hlíðar í fyrrakvöld rétt fyrir miö
nætti. Fólksbíll, sem kom sunn-
an Stakkahiið, lenti á sendi-
ferðabifrelð, sem kom upp
Barmahlíölna, með þeim afleið-
ingum, að ökumaöur sendiferöa-
bílsins lenti fram í framrúðu og
skarst á liöfðS. Var hann fluttur
á slysavarðstoi'una. A þessum
gatnamótum hafa nokkrum sinn
um orðið árekstrar áður, en
hornið þarna er því sem næst
biint, Hvorugur ökumannanna
vissi af ferðum hins, fyrr en
um seinan. Vörublfreið haföi
veriö lagt þarna á hominu, og
skyggði hún á.
immmmu
BELLA
— Þetta er nú sú allra vit-
lausasta matreiðslubók, sem ég
hef nokkurn tíma séð. Það er
engin uppskrift í henni, sem
bragðast nákvæmlega eins, tvisv-
ar í röð, þegar ég fer eftir henni.
Veðrið
i dag
Noröaustan kaldi.
Rigning öðru
hverju í fyrstu,
en síöan skýjaö.
BífasbðiiBi í cðag
1 dag veröa skoöaðir bílar nr.
R-8701 til R-8850.
TILKYNNENGAR
Málverka og höggmyndasýning
Kristjáns Inga Einarssonar hefur
aö undanförnu staöiö yfir í Iön-
skólanum á Skólavöröuholti. Hef-
ur aðsókn verið ágæt og 11 högg
myndir og 9 málverk hafa selzt.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 14—22, og mun henni ljúka
um næstu helgi. Gengiö er inn
í skólann Vitastígsmegin.
Konur í Styrktarfélagi vangcl-
Snna Farið verður að Sólheimum
í Grímsnesi s .raudaginn 2. júlí
kl. 13 frá ‘bílastæðinu við Kalk-
ofnsveg. Fariö kostar kr. 250 —
báðar leiðir. Þátttaka tilkynnist
til skrifstofu félagsins fyrir föstu
daginn 30. júní. Feröin er einung
is fyrir félagskonur.
Stvrktarfélag vangefinna
Pósthúsiö í Reykjavík
Afgreiðslan Pósthússtræti 5 er
opin alla virka daga kl. 9—18
sunnud'ga kl 10 — 11.
Útibúiö Langholtsvegi 82: Opið
kl. 10—17 alla virka daga nema
laugardaga kl 10 — 12.
Útibúið Laugavegi 176: Opið
kl. 10 — 17 alla virka daga nemt
laugardaga kl. 10 — 12.
Bögglapóststofan Hafnarhvoli:
Afgreiösla virk: daga kl. 9—17
E3SEE_..