Vísir


Vísir - 30.06.1967, Qupperneq 8

Vísir - 30.06.1967, Qupperneq 8
00 B V í SIR , Föstudagur 30. júní 1967. VÍSIR Utgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson Auglýsingan Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 linur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands 1 lausasölu kr. 7.00 eintakið Prentszaiðje Vísis — Edda h.f. Halldór Þormar og Háskólinn Siðferði hefur batnað stórlega í embættaveitingum hér á landi. Áður fyrr þóttust ráðherrar oft geta skip- að embættismenn að eigin geðþótta, án tillits til hæfi- leika og starfsaldurs þeirra manna, sem^ til greina /i komu. Smám saman hefur þetta breytzt, enda hefur l aukizt skilningur manna á nauðsyn traustrar og á- ) byrgrar embættismannastéttar. í þessum efnum þurfa 1 íslendingar nú ekki að skammast sín í samanburði y við neinar aðrar þjóðir. Almenningsálitið hefur stuðlað mjög að þessari þróun. Þar með er ekki sagt, að almenningsálitið sé alltaf rétt. Rangt væri af ráðherrum að hlaupa á eftir því í embættaveitingum, ef það hefði í för með sér brot á hefðbundnum starfstímareglum. Það hefur t.d. bor- ið á því, þegar sýslumannsembætti eru veitt, að fólk vill heldur heimamann,aðalfulltrúa sýslumannsins, í embættið, heldur en gamalreyndan sýslumann úr öðru héraði. í slíkum tilvikum gera ráðherrar rétt í að standa gegn óréttmætum kröfum heimamanna. Einnig að þessu leyti mega embættaveitingar teljast traustar hér á landi. i Nýlega fengu landsmenn ískalda skvettu framan í sig, er veitt var starf forstöðumanns meinarannsókna- stöðvarinnar að Keldum. Þar var gersamlega vikið frá eðlilegum reglum og stigið stórt skref til baka frá hinum siðferðilegu venjum, er hafa skapazt hér á löng um tíma. Frá þessu máli hefur áður verið skýrt mjög ýtarlega á opinberum vettvangi. Um starf þetta sótti vísindamaður, sem lengi hefur starfað á Keldum, dr. Halldór Þormar. Hann hefur náð svo miklum árangri í starfi sínu, að hann hefur hlot- ið alþjóðaviðurkenningu. Er vafasamt, að fleiri en i þrír eða fjórir íslenzkir vísindamenn séu kunn- ari erlendis en hann er. Hann er einn af þeim mönn- um, sem hafa sýnt það og sannað, að íslendingar eiga skilið að vera sjálfstæð þjóð. Þessum manni var hafn- að, en valinn ungur og óreyndur læknir, vafalaust ágætur maður, en ekki sérfræðingur á því sviði, sem Keldnastofnunin starfar á. Nú um mánaðamótin tekur hinn nýi yfirmaður við y störfum, en hinn heimsfrægi vísindamaður mun ( hverfa að einhverju af þeim forstöðumannastörfum, ( sem erlendar vísindastofnanir bjóða honum. íslenzka / þjóðin glatar þarna einum af sínum beztu sonum. vegna stórfelldra mistaka nokkurra manna. Læknadeild Háskóla íslands ber þyngstu ábyrgð- ina, en hún mælti með lækninum en ekki vísinda- manninum. Virðing Háskólans hefur oft staðið tæpt, en slíkan hnekki hefur hún ekki beðið um langt skeið. Menntamálaráðherra veitti starfið að ráði læknadeild- ar, þótt honum væri bent á, hvílíkt óráð þaö væri. I þessu tilviki bar honum að þora að ganga gegn lækna- deild og víta hana jafnframt fyrir mistökin. Dapurlegt er, að atburður sem þessi skiuli geta gerzt árið 1967. Atján luku prófi i slysatrygg- ingum frá Tryggingaskólanum Átján nemendur luku prófi í slysatryggingum frá Trygginga- skólanum, sem slitió var meö samsæti í Þjóðleikhússkjallaran um 22. þessa mánaðar. — Hefur þá 71 nemandi loldð, prófi frá skólanum, en hanh tók tii starfa haustið 1962 að tilhlútan Sam- bands ísl. tryggingafélaga og hefur veriö rekinn á kostnað þess. Við skólann hafa verið kennd ar eftirfarandi tryggingagrein- ar: Brunatryggingar, bifreiða- tryggingar, skipatryggingar, frjálsar ábyrgðartryggingar, farmtryggingar og slysatrygging ar. Á seinasta kennslumisseri, sem hófst í febrúar s.l. voru kenndar tvær kennslugreinar, en&te me£i sérstöku tilHti til vá tryggingamáís og slysatrygging- ar. —. Þá fl'utti Benedikt Sigur- jónsson, hæstaréttardómari þrjá fyrirlestra á vegum skólans um ábyrgð framflytjenda og munu þeir verða gefnir út næsta vetur í bókaflokki skólans um sjó- tryggingar. Ágætiseinkunn hlutu að þessu sinni þeir Bragi Lárusson (Sam- vinnutryggingum) og Haraldur Sæmundsson (Brunabótafélagi íslands) og voru þeim afhent bókaverðlaun frá Sambandi slysatryggjenda. Skólanefnd Tryggingaskólans skipa nú: Jón Rafn Guðmunds- son formaöur, Tryggvi Briem og Þorsteinn Egilsson. Kennarar síðast liðið misseri voru Þor- steinn Egilsson, fulltrúi, sem kenndi ensku og Egill Gestsson, fulltrúi og K. Guðmundur Guð- mundsson forstjóri, en þeir önn uðust kennslu f slysatrygging- um. — Förmaður Sambands ísl. tryggingafélaga er nú Ásgeir Magnússon. Rithöfundar harma valdarán í Grikklandi Umferðamiðstöð á Dalvík Aöalfundur Rithöfundafélags islands hefur nýlega verið hald inn. Forðamur félagsins, Thor Vilhjálmsson, mlnntist Ragn- heiöar Jónsdóttur rithöfundar sem lézt fyrir skömmu. Hún var um sinn formaður félagsins. Þá rakti formaður starfið á árinu og gerði grein fyrir ýms- um helztu málum sem stjómin hefði afgreitt. Thor Vilhjálms- son var endurkjörinn formaður. Aðrir í stjóm em þessir: Elías Mar varaformaður, Kristinn Reyr gjaldkeri, Þorsteinn frá Hamri ritari, Jón Óskar með- stjómandi. Endurskoðendur vom endurkjömir: Sigriður Ein ars og Jóhann Kúld. Einar Bragi baðst undan endurkosn- ingu í stjórn Rithöfundasjóös Ríkisútvarpsins og var Stefán Hörður kjörinn í hans stað. Nokkrar umræður uröu um út- hlutun listamannastyrkja. Ýmis mál vom rædd á fund inum. Fundurinn gerði eftirfar andi ályktun: Aöalfundur Rithöf undafélags íslands harmar valdarán fasista í Grikklandi og skorar á ríkisstjórn íslands aö mótmæla eindregið á alþjóða- vettvangi þvi ofbeldi og leggja eftir megni þeim öflum lið seni vilja tryggja grisku þjóðinni lýð ræði og frelsi. Fyrir nokkrum dögum var opnuð ferðamiðstöð á Dalvik. Ferðamiðstöðina rekur Gunnar Jónsson, sem er sérleyfishafi á Dalvikurleióinni. Þania hafa s<- greiðslu áætlunarbflar, sem fara milli Akureyrar og Ólafsfjarð- ar. Myndin er af ferðamiðstöð- inni.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.