Vísir - 30.06.1967, Page 10

Vísir - 30.06.1967, Page 10
10 V lSIR , Föstudagur 30. júnf 1967. Föstudagsgrein — Framh. af bls. 5 New Jersey fylki og fengiö að láni íbúðarhús háskólarektors- ins til fundahaldanna. 4~kg þarna komu þeir svo sam- an stórmennin tvö um síð- ustu helgi og héldu tvo fundi með sér. Það virðist augljóst af fréttum, að það hafi farið ó- venjulega vel á með þeim. í allri ytri framkomu líktust þeir nýtrúlofuðu pari. Þeir sátu sam- an innilegir- og brosandi hvor til annars, borðuðu góðan mat, lambasteik, og Johnson kom sjálfur með ferskjur til eftir- réttar, sem voru nýtíndar af trjám á búgarði hans sjálfs í Texas. Það var eins og þeir gætu ekki slitið sig frá hvor öðrum, þættu hvor annar svo uppbyggilegur og skemmtileg- ur, að þeir sátu jafnvel á ein- tali með einn túlk með sér í .margar klukkustundir. Á eftir héldu þeir fund með blaða- mönnum fyrir utan rektorsbú- staðinn og virtust þar ítreka þá miklu persónuiegu vináttu, sem þeir hefðu stofnaö með sér við þetta tækifæri. Þá má bæta því viö, að Ksygin gekk um götur Glassboro þessa litla sveitabæjar, tók í hendur á fólki, klappaði börnum á koll- inn og var hylltur ákaft af mannfjölda á götunum. Á milli fundanna tveggja fór hann í skemmtiferð til að skoða Niagara-fossinn og virtist hann una sér álíka ve! og norrænir ferðamenn á Mallorka. 1 Þannig yar þessi fundur stór- mennanna alveg einstakur I sinni röð og hefur aldrei frá' stríðslokum verið túlkuð jafn- mikil vinátta og bræðralag for-! ustumanna þessara stórvelda sem á þessum fundi. þessu vináttuandrúmslöfti hefði nú mátt ætla að hægt væri að ná miklum árangri. Það virðist nú þýðingarlítiö að ætla ! að tengja friðarvonir heimsins við smáríki sem gera ekkert annað en að berjast af heift og hatri svo augu manna mæna aftur til stórveldanna. Hér voru þessir stóru menn saman komnir og brostu kankvíslega hvor til annars. Ef þeir hefðu viljað þaö, og ákveðið það að leysa deilur sínar, þá gátu þeirj gert það í einu vetfangi og stofn að þannig nýjan friðarheim. i Hugsum okkur, ef þeir hefðu ■'mið sér saman um það i snöggvast að leysa bæði Viet- nam-deiluna og Israelsdeiluna með einföldu samkomulagi sin á milli. Það hefði sannarlega ekkert verið á móti því, að stórveldin hefðu bókstaflega skipað þessum málum eftir sínu höfði, því að þarna þarf að hafa vit fyrir smáþjóðunum. Ef slfkt samkomulag hefði náöst má telja víst, að meginþorri aðildarríkja Sameinuðu þjóð- anna hefðu sameinazt og stutt slíka lausn og kannski hefði þá mátt reisa við að nýju álit sam- j takanna eftir þá niðurlægingu | sem þau hafa mátt þola að und- anförnu. > i |7n því miður, ekkert slíkt, gerðist. Þrátt fyrir vinahót voru engin deilumál leyst, allt situr við það sama. Israelsmenn halda til streitu landvinninga- kröfum sínum líkt og tiðkaðist á dögum Bismarcks og menn velta því fyrir sér, hvort land- vinningastríð eigi þá ekki að vera tákn tímanna, og austur í Vietnam halda bandarískar þotur áfram loftárásum á borg- ir og kommúnistaherir áfram að framkvæma hryðjuverk á al- mennum borgurum. Menn spyrja sjálfa sig, hvort nokkur árangur hafi i rauninni orðið á þessum Glassboro- fundi. Jú, víst er það nokkur árangur, að þessi tvö störmenni hafa nú kynnzt persónulega. Næst þegar einhver smáriki fara að ógna heimsfriðn- um geta þeir notað „heitu" símalínuna og ávarpað hvorn annan Hallo-Alex, — Hallo-Lyn! Og vissulega er nokkuð öryggi í því fólgið fyrir okkur hina. Þorsteinn Thorarensen. Bræla var í nótt á miöunum og engin veiði. Þessi skip tilkynntu um afla síðasta sólarhring (afli frá því í fyrradag): Náttfari 200 (tvær landanir), Ólafur Bekkur 100, Snæfell 46, Pétur Thorsteinsson 80, Ljósfari 100, Áseeir Kristján 140, Björg- úlfur 100. Flest skipanna lönduðu síldinni í flutningaskipin Síldina og Haförn sem eru nú á miðunum. Geimfurur — t-ramh. af bls. I að glíma við, þegar út í geim- inn kemur, þyngdarleysinu og loftbreytingunum og læra að stjórna geimfari, en allir eru þeir þaulvanir í flugi. Æfingastaðir þeirra eru víðs- vegar um Bandaríkin, þar sem þeir fá að kynnast sem ólíkustu landslagi, einnig hafa þeir verið á Hawaii í Kyrrahafinu við æf- ingar. Hér mun Sigurður Þórarins- son, jarðfræðingur, ferðast með þeim norður í Öskju en þar verða þeir á mánudag. Á morgun halda þeir til Akureyrar með flugvél úr bandaríska sjóhernum. Þeir reisa sér tjaldbúðir við öskju og aðfaranótt þriðjudagsins munu þeir sofa við Herðubreið. Þá verður haldiö með flugvél suður á Hellu og þaðan mun Guö- mundur Jónasson aka þeim á fjallabílum sínum upp að Veiði- vötnum og í Jökulheima og einni nótt munu þeir eyða í Landmannalaugum. Á sunnudag 9. júlí halda þeir síðan vestur yfir haf aftur. Helgisiðanefndin Eins og áöur hefur verið sagt frá í Vísi kaus nýafstaðin Presta- stefna tvo menn til að vinna aö endurskoðun helgisiöabókar. Hlutu kosningu prófastarnir séra. Jón Auðuns og séra Garðar Þor- steinsson. Fyrir eru í þessari nefnd biskupinn yfir Islandi, sem er for- maöur nefndarinnar, Björn Magn- ússon, prófessor og Þórður Möller, yfirlæknir og voru tveir hinir síð- astnefndu kosnir af Kirkjuþingi sið- ast liðið haust. Á Prestastefnunni, sem eins og fyrr segir er nýlokið, var biskupi heimilað að tilnefna tvo menn ti! að starfa með þessari fyrr greindu fimm manna nefnd, og hef- ur biskup ekki tilnefnt þá ennþá, að þvi er biskupsskrifstofan upp- lýsti blaðið um í morgun. Gjöf til Surtseyjur- runnsóknu Aö lokinni Surtseyjarráöstefn unni í fyrradag afhenti dr. Poul Bauer Surtseyjarfélaginu 5 þúsund dollara giöf til rann- sókna i Surtsey. Giöfin var af- hent í siödegisboði, sem ame- ríska sendiráðiö hélt vísinda- mönnum af ráöstefnunni. Steingrímur Hermannson for- maður Surtseyjarfélagsins þakk aði gjöfina og lét þess jafnframt getið að þetta væri ekki fyrsta gjöf dr. Bauers til Sursteyjar- rannsókna, en til þeirra hefur hann nú gefið 26 þúsund doll- ara, á aðra milljón íslenzkra króna. Jafnframt fjárframlögum sínum hefði Bauer sýnt íslenzk um visindamönnum margvisleg- an stúðnihg og fáir únhið annáð éins áð þvf áð kynna íslezk visindi. Auglýsið í VÍSI FERÐIR - FERÐALÖG LANDSÝN — INNANLANDSFERÐIR Daglegar feröir: Gullfoss — Geysir — Þingvellir kl. 9.00. Krýsuvík — Grindavík — Reykjanes kl. 13.30. Þingvellir um Grafnirg kl. 13.30. Þingvellir (kvöldferðir) kl. 19.30. Brottför frá skrifstofunni. LflNosy n n- FERÐASKRIFSTOFA Laugavegi 54 Simar 22875 og 22890 LANDSÝN — UTANLANDSFERÐIR Búlgaríuferðir 17 daga og lengur ef óskað er 31 júlf, 21. ágúst, 4. og 11. sept. IT-ferðir ril 9 landa i * j&L* naiga FERÐASKRIFSTOFA Laugavegi 54 . Símar 22875 og 22890 Stúlka óskast Stúlka vön kjötafgreiðslu óskast. Verzlunin VÍÐIR Starmýri 2, sími 30420 TIL SÖLU 2ja herb. íbúð við Skipasund. 2ja herb. íbúð við Þórsgötu. 3ja herb. íbúð við Mánagötu. 3ja herb. íbúð við Sólheima, glæsilegt útsýni. 3ja herb. íbúð við Stóragerði. 4—5 herb. íbúð á efstu hæð í þríbýlishúsi við Glaðheima. íbúðin er 2 stofur, 3 svefnher- bergi, eldhús og bað, stórar svalir, fallegt útsýni, hagstætt verð. 3ja herb. íbúð við Mávahlíð. 5 herb. íbúð við Rauðalæk. 5 nerb. íbúð í Háaleitishverfi. Sér hæð og ris á einum bezta stað í Vestur- bænum. 2ja og 3ja herb. íbúðir, tilbúnar undir tréverk og málningu i Vesturbænum. Fokhelt raðhús í Fossvogi. 350 ferm. iðnaðarhús til sölu eða leigu. Góðar innkeyrslur og stór lóö. FASTElGNAMtoSTOOIN AUSTURSTRÆT112 SiMI 20424 & 1 4120 HEIMASiMI 10974 BORGIN BELLA „Ha? Hvaö hann Hjálmar geröi, þegar vSö stönzuðum viö skógar- vatnið i tunglskininu? — Hann geröi bara við blöndunginn". Veðrið i dag Þykknar upp með suðaustan kalda. Hiti 8-12 stig. Bíluskoðun í dug I dag verða skoðaðir bilar nr. R-8901 til R-9050. sjúkrahúsum Borgarspitalinn Heilsuverndar- stööin: Alla daga frá kl. 2 — 3 og 7-7.30 Elliheimilið Grund. Alla daga kl. 2-4 og 6.30-7. Farsóttarhúsið. Alla daga kl 3.30-5 og 6.30-7 Fæöingardeild Landsspitalans Alla daga kl 3 — 4 og 7.30 — 8 Fæðingarheimili Reykjavíkur Alla daga kl 3.30-4.30 og fvrir feður kl 8 — 8.30 Hvitabandið. Alla daga frá kl 3-4 op 7-730 Kleppsstpitlinn Alla daga ki 3-4 op 6 30-7 Kópavogshælið Eftir hádeg’ daglega Landako*«:spitaM Alla daga ki 1—2 op alla daga nema lauear daga k' 7 - 7 30 Landssnitalinn. Alla daga kl 3 -4 og 7-7 36 Sólhelmar Alla daga frá kl 3 — 4 oe 7 — 7.30. Sjúkrahúsið Sólvangur. Alla virka daga kl. 3—4 og 7.30—8. Sunnudaga kl. 3—4.30 og 7.30—8.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.