Vísir - 18.07.1967, Blaðsíða 2
VISIR. Prfðjudagur 18. Jtm lwnr.
VAISMCNN HEPPNIR ŒGNFRAM
OG HALDA ÁFRAM TOPPSÆTINU
Framarar léku Valsvörnina sundur og saman, og tækifærin
voru þeirra, en mörkin skipfusf jofnt 1:1, — bæði skoruð
á fyrsfu 2 mínútunum
© Þeir máttu heita heppnir Valsmennirnir, sem yfirgáfu Laugardalsvöllinn í gær-
kvöldi með jafntefli gegn Fram. Allan leikinn áttu Valsmenn, íslandsmeistar-
arnir í fyrra, og liðið á toppi 1, deildar þessa dagana, í megnustu erfiðleik-
um með hina snöggu og ákveðnu Framara, sem komu mun betur frá leikn-
um, en *ókst ekki að skora nema eitt mark.
© Þeir áhorfendur, sem komu 2 mín. of seint í Laugardal í gærkvöldi, misstu
af miklu, — báðum mörkunum. Leikurinn var í rauninni útkljáður eftir 2
mín., — þ. e. mörkin höfðu verið skoruð, en samt var mikið eftir fyrir áhorf-
endur, — 88 spennandi mínútur með skemmtilegri knattspymu og miklum
tilþrifum, einkum af hálfu Fram.
Þegar á fyrstu mínútu leiksins
skoraöi Fram sitt eina mark. Það
var Helgi Númason, sem skaut
fyrir utan vítateig og hafOi heppn-
ina með sér, boltinn skoppaði undir
Sigurð Dagsson, sem virtist ekki
vita hvaðan á sig stóð veðrið, þeg-
ar Helgi skaut en flestir hefðu ef-
Iaust gefið boltann til Einars Áma-
Staðan
í /. deild er nú þessi:
★ Fram—Valur 1:1 (1:1).
Valur
Akureyri
Fram
KR
Keflavik
Akranes
2 1 14:12 10
0 3 18:10 8
4 0 8:5 8
0 3 12:11 6
2 3 5:8 6
1 0 6 7:17 2'
Markahæstu leikmenn:
Skúli Ágústsson, Akureyri,
Hermann Gunnarsson, Val,
Kári Arnason, Akureyri,
G innar Felixson, KR,
Björn Lárusson, Akranesi,
sonar, sem var vel staðsettur úti til
hægri.
Og Valsmenn voru ekki seinir að
þakka fyrir sig. Þeir skoruðu þegar
úr næstu sókn. Það var Hermann
Gunnarsson, sem notaði út í yztu
æsar augnabliks frið, sem hann
fékk með boltann rétt við vítateig-
inn og skoraði í bláhorn með föstu
og fallegu skoti, sem markvörður-
inn réð ekki viö- Þannig var staðan
1:1 þegar á 2. mínútu leiksins, rétt
eins og um handknattleik væri að
ræða en ekki knattspyrnu.
Eftir þetta gerðist margt á báða
bóga, en Framarar voru sýnu
hættulegri, þó ekki tækist að skora.
Valsmenn áttu líka sín tækifæri.
Svo eitthvað sé nefnt af þétt-
skrifuðum minnisblöðum eftir leik-
inn, þá skaut Hreinn Elliðason,
miðherjinn hættulegi, sem Fram-
arar sóttu til Raufarhafnar og
styrkir framlinuna tvímælalaust, og
boltinn eins og lyftist rétt yfir
markiö, en flestir reiknuðu með
því skoti i bláhomið. Þá ógnuðu
báðir, Hermann Gunnarsson og
Hreinn á sömu mínútunni við sitt
hvort markið. Rétt á eftir glumdi
boltinn í þverslá Fram-marksins
frá Hermanni, — stórfallegt skot.
Á 22. mín. munaði sáralitlu að
Elmar skoraði, þegar Árni Njáls-
son gerði mistök sem eiginlega
voru ákaflega ólík Árna Njálssyni,
þeim örugga varnarleikmanni.
I seinni hálflcik voru tækifærin
meira uppi við mark Vals, en allt
bjargaðist ekki sízt fyrir góðan
leik Sigurðar Dagssonar í markinu.
Anton bjargaði samt laglega á 10.
' mínútu, þegar Ingvar skaut af
stuttu færi að marki* föstu skoti.
Helgi Númason átti 2 mín. síðar
stórfallegt skot úr aukaspymu, en
! Sigurður varði fallega í horn. Á
21. mín. átti Hreinn skalla yfir
markið af stuttu færi. Tveim mín-
útum síöar varði Hallkeli, markv.
Fram, er Reynir Jónss. skaut hættu
legu skoti. Á 37. mín. þegar
virtist vera farið að draga heldur
af Framliðinu og leikurinn farinn
að jafnast, átti Elmar hættulegt
skot, en varið var. Á 39. mín. átti
Helgi Númason góða tilraun, en
boltinn hrökk í þverslá og út á
völlinn.
Þessar síðustu mínútur voru
jafnvel enn meira spennandi en
, leikurinn hafði verið tll þessa og
: úr heiðursstúkunni mátti heyra
hvatningaróp frá forystumönnum
úr Fram eins og: „Gerðu eitthvað,
Einar“, og var þar átt við Einar
Ólafsson, hægri útherja, sem þó
hafði sannarlega ekki legið á liöi
Hrannar Haraldsson leggur sig allan fram og nær skaliabolta frá Gimn-
steini Skúlasyni úr Val.
sínu, og reyndar verið bezti maður,
Iiðsins, sívinnandi. Ósanngjöm |
hvatning að flestra dómi. Undir!
lokin áttu Valsmenn síðasta tæki-
færi leiksins, Ingvar Elísson var í
færi en Hrannar Haraldsson bjarg-
aði mjög naumlega, — og þannig
lauk þessum æsispennandi leik
með jafntefli, sem var þó ekki
fyllilega réttlátt, til þess var Fram
of greinilega betri aðilinn mestall-
an leikinn.
Framlidið er sannarlega „spútn-1
ik“ síðustu ára í knattspymuheimi
okkar. Áriö í 2. deild hefur sannar-1
lega reynzt liðinu eins og bezta
„hressingar og hvíldarheimili“, —
þar hefur verið söðlað um og
starfið í 1. deild skipulagt meö ár-
angri, — og upp kom liö, sem tals-
vert kveður að. Að vísu skora
Framarar of fá mörk, en í rauninni
ætti liðið að skora mun meira. I
Hins vegar er liðiö mjög ákveðið
og leikur vel, leikmenn alls ó-
smeykir og óragir viö að komast
fram hjá keppinautum sínum.
Beztu menn Fram í gær voru þeir
i Anton og Hrannar í vörninni, Bald-
! ur Scheving sívinnandi tengiliður
og duglegasti knattspyrnumaður,
sem lengi hefur sézt. í framlín-
unni var Einar Ólafsson beztur og
líklega bezti maöur vallarins ef
undan er skilinn fyrrihlutl fyrra
hálfleiks, þegar Hermann „gaus“
eins og eldfjall svo af honum staf-
aði ógn hvar sem hann birtist.
Eimar Geirsson var og góður, en
hann ætti að vanda sendingamar
mun betur og spyman hjá honuni
virðist heldur máttlítll. Styrkur
fyrir Fram er að hafa nú fengið
Hrein EUiðason aftur til sín.
Sigurður Dagsson var góður t
marki Vals, en markið var þó há'f-
gert klaufamark. Síðar í leiknurn
margbætti Siguröur fyrir það. Vörn
Vals var oft hart leikin af sókna,-
mönnum Fram, en stóð sig þo
a.m.k. var aöeins einu sinni skor-
að. Hermann var bezti maður Vals,
meðan hann var með í leiknum.
en sá tími var of stuttur. Tengi-
liðir Vals komu sæmilega frá
hlutverki sínu, en framlínan í heild
var með daufasta móti.
Dómari var Guöjón Finnnoga-
son frá Akranesi, grelnilega eklci
í sem beztri æfingu, en slapp þó
allvel frá leiknum. Hvers vegna fá
dómarar utanbæjarliðanna ekki
fleiri verkefni en verið herurí
Áhorfendur voru mjög margir.
Sigurður Dagsson greip oft vel inn í leiklnn, eins og sjá má. Það er Hreinn Elliðason, sem sækir
að honuni.
verður lialdiö á eftirtöldum
dögum.
2. flokkur.
19. júlí:
A.B.—Valur Melavelli kl. 8 e.h.
Holbæk—Víkingur Melavelli kl.
kl. 9,15 e. h.
K.R.—Í.B.K. Keflavíkurvelli ki.
7,15 e.h.
Fram—Þróttur Háskólavelli kl.
7 e. h.
Framhald á bls. 10
Pfc’JKJgglAii'.:: ■,-ý-iVRatTg'Ært.-