Vísir - 18.07.1967, Page 9
VISIK. Pnojuuagur 10. jun isb/.
9
<
SÓLSKIN
FYRIR 25 KRÓNUR
Til sanninda um, hversu fj«lfarin leið hefir verið barna áður fyrr,
má sjá, að hestarnir hafa markað með hófunum djúpar hvilftir i
harðar klappimar. Gísli er til vinstri, en Björn til hægri, og á milli
þeirra markar mjög greinilega fyrir hestagötunni í klöppinni.
EYKJAVÍK hefir þá sérstöðu
fram yfir margar aðrar
höfuðborgir heims, að í næsta
nágrenni em stór óbyggð svæöi,
sem eru tilvalin leikvangur
þeirra, sem unna útiveru og
gönguferðum. T.d. er svæöið frá
Sandskeiði og suður að Kefla-
víkursvæðinu, svo óbyggt, að
ekki er um að ræða einu sinni
sumarbústaði. Að visu er svæö-
ið víða gróöurlítiö, en sums
staðar er líka mjög gróðurmik-
ið, jafnvel kjarr. Sérkennileg
fjöll og eldstöðvar frá fyrri tíð
em þarna margar, og er landið
svo ósnortið, að glögglega má
gera sér grein fyrir, hvernig
þessar hroðalegu hamfarir elds-
umbrotanna hafa farið fram.
Óskandi er, að þessi stóru
svæði fái að veröa ósnortin af
mannavöldum, svo að við úti-
vistar-dýrkendur fáum að njóta
lengi enn.
Ein af ákjósanlegri gönguleiö-
um á þessum slóðum er leiðin
úr Kaldárseli og suður til Sel-
vogs, eftir gamalli hestagötu,
sem er rudd og óslitin frá Set-
bergshlíöinni fyrir ofan Hafnar-
fjörö og alla leið suður úr, til
Selvogs. Leið þessi er vörðuð
svo að segja alla leiðina, og
standa flestar þeirra enn, þó að
vafalaust séu mörg ár síöan þær
voru hlaðnar.
Fyrir nokkru lögðum við þrír
göngufélagar land undir fót og
fórum þessa leið frá Kaldárseli,
en þangaö létum við aka okkur.
Ferðafélagarnir voru, auk mín,
þeir Björn Þorsteinsson sagn-
fræðingur og ’ Gísli- Sigurösson
lögregluvaröstjóri I Hafnarfirði,
sem safnað hefir örnefnum á
þessum slóðum, svo að báöir
þekktu þessir menn svo :.ð
segja hvert fótmál.
Vegarslóöinn frá Hafnarfirði
liggur í gegnum Helgadal, og
gengum við þangað frá Kaldár-
seli, og síðan með Valahnúkum,
en þar er hellir einn, sem Far-
fugiar hafa gert aö bústað
sínum með því að innrétta hell-
inn og setja í hann trégólf aö
nokkru. Fyrir nokkrum árum
var þarna mannaferð um hverja
helgi, en nú hefir þessi annars
ágæti útilegubústaöur verið
vanræktur aö nokkru. Farfuglar
kalla þetta „hreiöur" sitt Vala-
ból og er hin gamla Selvogsgata
rétt við hellinn.
Frá Valahnúkum liggur leið-
in nokkurn veginn beint yfir
hraunið og í áttina að Grinda-
skörðum Við gefum okkur
góðan tima til að skoða okkur
um. þvi aö leiðin þarna suöur
um er skemmtileg, margir hell-
ar og skútar, sumir mjög for-
vitnilegir Og sumir eiga jafnvel
sína sögu í fórum Björns og
Gísla.
Ekki er vitað, hvenær feröir
hófust þessa leið, en vafalaust
er lannt síðan. því að útræö; var
snemma frá Selvogi og Herdis-
arvík. en kaupskip komu oft i
Hafnarfjörð. Ennfremur var
þessi léiö farin til að sækja
brennistein j námurnar í
Brennisteinsfjöllum en á árunum
1860—1890 var unninn brenni-
steinn á þessum slóðum til út-
flutnings. Var brennisteininum
mokaö í poka, en síöan tóku
ýmsir hestaeigendur að sér að
reiöa brennisteininn til Hafnar-
fjarðar fyrir eina krónu hest-
burðinn. í Hafnarfirði var
brennisteininum skipað um borð
í kaupskip til útflutnings. En
nú er umferðin minni þarna um
slóðir, og segir Gísli okkur, en
hann er oft þarna á ferðinni, aö
það teljist til tíðinda, ef að fólk
sjáist á ferð um þessar slóðir.
Til sanninda um, hversu fjöi-
farin leið hefir verið þarna áður
fyrr, má sjá, að hestarnir hafa
markað með hófunum djúpar
hvilftir í harðar klappirnar.
Á meðan við erum á gangi
yfir hraunið finnst okkur hann
gerast rigningarlegur í lofti.
Það þótti góður og gegn siöur,
áður fyrr, að heita á helga menn
og kirkjur sér til fulltingis, ef
á lá, og finnst okkur það vel
við eiga, eins og á stendur að
gera áheit, ef veður haldist
bjart og rigningarlaust á ferö
okkar suður yfir fjöllin. Ekki
kemur okkur saman um á hverja
só bezt aö heita, en við ákveö-
um aö heita tuttugu og fimm
krónum hver. Gísli telur
Strandakirkju öruggasta, en ég
haföi áöur heitið á heilagan
Þorlák með •góöum árangri undir
svipuöum kringumstæðum.
Taldi Gísli þá, aö ekki lægi á
að ákveða til hverra áheitið
skyldi renna, en það tók Björn
af, því að það gæti kostað átök
á himnum, ef við ákvæöum
ekki sjálfir fyrirfram, hverjir
skyldu fá krónurnar. Varð það
að samkomulagi, að viö Björn
skyldum heita á heilagan Þor-
lák, en Gísli skyldi senda sínar
tuttugu og . fimm krónur til
Strandakirkju, ef við fengjum
sólskin.
Vegarslóðinn upp í Kerlingar-
skaröið er í ótal krákustígum
vegna brattans. Ömefni eru
þarna mörg, enda blasa hnúk-
amir og skörðin vel við frá
Stór-Reykjavík. Flestar em hæö
irnar gamlar dyngjur og eld-
fjöll, sem gosið hafa fyrr á öld-
um, sum jafnvel fyrir ísöld. ör-
nefni eins og Bollarnir, þeir eru
einir sex, Kerlingarskarö,
Draugahlið, og mörg fleiri heyr-
ast af vörum Bjöms og Gisla,
þegar við göngum suður í gegn-
um skarðið.
En hnúkarnir blasa einnig við
langt utan af sjó, og sjómennirn
ir þekktu þá ekki alltaf til sömu
örnefna og þeir, sem á landi
ferðuðust. Höfðu þeir sinn hátt
á í nafngiftum og til útskýring-
ar á góðum fiskimiðum. Sem
dæmi má nefna, að utan úr
Faxaflóa þóttust þeir sjáÞykkva
læri og Þunnalæri, en á milli
þeirra var auðvitað Klofiö. Þetta
voru hnúkarnir í Grindaskörð-
um, en hins vegar var einn
Valahnúka öðrum meiri, frá
þeim að sjá, enda e*. hann
mörgum kílómetrum nær sjó.
Var sá kallaður Drellir á sjó-
mannamáli. Þegar Drellir bar
neöan til í Þykkvalærið, töldu
sjómenn sig vera á öruggri
fiskibleyöu út í Faxaflóa, í
rennunni á milli hrauna, eins og
það var kallaö. Þarna voru
fengsæl togaramið, og fengu
margir glöggir fiskimenn á tog-
aratímanum góða afladaga á
þessum slóðum, fyrr á árum. En
tímarnir breytast og örnefnin
á þessum slóðum hætta að hafa
þá þýöingu í daglegu starfi
manna, sem þau höfðu.
Ofanvert i Grindasköröum
skiptist vegurinn, en slóöinn
suöur í Brennisteinsfjöllin liggur
til vesturs, en leiðin til Selvogs
áfram í suður. Við höldum á-
fram til suðurs.
•
Þrátt fyrir áheitin hafði Björn
verið svo hygginn að hafa með
sér feikimikla regnhlíf af enskri
gerð, forláta grip, sem spann-
aði faðm eða meira í þvermál.
Við Gísli efuðumst um, að slíkir
gripir heyrðu ferðaútbúnaði til,
en Björn taldi einmitt siíkan
grip skara fram úr öðrum að
notagildi, og það sannaði hann,
þegar við settumst til að borða
nesti okkar, en þá spennti hann
út regnhlífina góðu og snæddi
í skjóli. En Björn hefir aldrei
verið talinn feta troðnar slóðir
í ferðamennsku, enda nefir
hann til dæmis fariö Sprengi-
sandsleið á reiðhjóli, áður en
ferðir almennt hófust þá leið,
farnar af skemmtiferðamönnum.
Þó að ekki væri alltaf greiö-
fært að hjóla, að þá bar hjólið
þó ætíð byrðarnar, en ferða-
langarnir önnuðust aöeins það
að styðja hjólið. I ánum var
hreint afbragð að styöja sig við
reiðhjól. Þegar Sprengisandur
gerðist þungfær vegna bleytu,
brugöu þeir ferðalangar sér upp
á Hofsjökul, en þar reyndist af-
bragðs færi og hjóluðu þeir fé-
lagarnir yfir jökulinn á tveimur
tímum og miðaði vel til norður-
lands. Er þetta eina dæmiö, sem
ég veit um hjólreiðar á jökla-
feröalagi hérlendis.
Við félagarnir fórum okkui
heldur hægt, þurftum margt aó
athuga á leiðinni, og margt aó
ræða, enda var okkur fæst mann
legt óviðkomandi. Þpir Gisb og
Björh vitnuðu gjarnan til t'yri
tíma og fornra heimilda, en þa
varð ég að hafa mig allan vió.
því að þar stóð ég svo langt a<.
baki, hvaö allan fróðleik snertir.
En á söguslóðurri eru sagn-
froðir menn í essinu sínu, svo
að þessu sinni skipaöi ég sæti
hins forvitna hlustanda.
Við gengum á Kóngsfell, sem
er þarna á miðri heiði. Það er
gamall reglulaga gígur, sem
hefur merkilegu hlutverki að
gegna að vera landamerki á milli
Krýsuvíkur, Herdísarvíkur og á
milli sýslnanna, Árnessýslu og
Gullbringusýslu. Þaðan var gott
útsýni yfir heiðina, en ekki er
Kóngsfell svo tígulegt, að það
veiti manni útsýn til höfuðborg-
arinnar, enda. sést Kóngsfellið
ekki frá Reykjavík. Á þessum
slóðum er margt furðulegra
steina, sem gaman er að skoða,
en gjallið úr gígnum hefir tekið
Framhald á bls. 10.
Bjöm sannaöi ágæti þess að hafa með sér regnhlífar í ferðalögum, þegar við settumst til ag snæða,
spennti hann út regnhlífina góðu og snæddi í skj'óli.