Vísir - 18.07.1967, Page 13
13
VÍSIR. Þriðjudagur 18. júlí 1967.
ÝMISLEGT
Reglur um stofnun ávís-
Heimssýningarbloð af lceland Review
anareikmnga
Eins og kunnugt er hafa bankar
og sparisjóðir um árabil haft sam-
starf í þeirri viðleitni að gera tékka
sem gagnlegast og öruggast greiðslu
tæki. Hefur Samvinnunefnd banka
og sparisjóða sett reglur um tékka-
viðskipti og er dagleg framkvæmd
þeirra annars vegar hjá innláns-
stofnunum sjálfum og hins vegar
hjá Seðlabankanum. Reglumar lúta
að stofnun reikninga, notkun tékka
og aðgerðum gegn misnotkun, ef
um hana er að ræða. Hafa í þessu
sambandl farið fram alls 15 skyndi
kannanir tékka frá 1963 og frá
1964 hefur Seðlabankinn á gmnd-
velli sérstakrar iagaheimildar, inn-
heimtalla innstæðu lausa tékka sem
borizt hafa um dagleg ávísanaskipti
í Reykjavík. Hefur þeirri innheimtu
einkum verið beint gegn útgefend-
um innstæðulausra tékka.
Þó að dregið hafi verulega úr
misnotkun tékka, fer fjarri að þessi
mál séu komin í viðunandi horf.
Hefur nú verið ákveðið ag gera
veigamiklar breytingar á umrædd-
um reglum. Aðhald verður stórlega
aukið og aögerðir gegn misnotkun
vemlega hertar. Verða kærur til
sakadóms fyrir misnotkun sendar
strax eða með mjög stuttum um-
liðunarfresti. Auk þess verður fjár-
hæ6 tékkanna innheimt miklu fyrr
hjá framseljendum en verið hefur.
Þykir rétt að kynna hér almenn-
ir^i og sérstaklega þeim, sem hafa
tékkareikninga eöa skipta mikið
með tékka, aðalefni þeirra reglna,
sem nm er að ræða.
Við stofnun tékkareikninga ber
þess sérstaklega að gæta, að:
Framvísa ber nafnskírteini.
Meðmæli tveggja manna, sem
stofnun viðurkennir, fyigi umsókn
ólftmns aðila.
Lágmarksstofnfé sparisjóðsávis-
anareiknings er hækkaö í kr.
5.000,00.
Lágmarksaldur reikningshafa er
21 ár og fjárræði verður að vera
óskert.
Aðalefni reglna varðandi misnotk-
un og innheimtu innstæðulausra
tékka:
Lokun tékkareiknings vegna mis-
notkunar og kæra til sakadóms
veldur því, að hlutaðeigandi fær
hvergi tékkareikning.
Eftir eðli brots er trékkareikn-
ingi lokað í fyrsta, annað eða í
síðasta lagi í þriðja sinn, þegar
innstæðulaus tékki berst. Reikningi
er lokað við fyrsta brot, ef öðrum
reikningi sama aðila hefur áður
verið lokað, eða brot er gróft og
ásetningur auðsær.
Öllum tékkareikningum aðila við
allar stofnanir er lokað, ef hann
er kærður fyrir útgáfu innstæðu-
lauss tékka eða annað brot á
tékkareglum.
Kæra til sakadóms er send að
liðnum nokkrum dögum frá þv£ að
tékki er áritaður um greiðslufall
og er frestur til að greiða slfka
tékka verulega styttur frá því sem
verið hefur.
Útgefandi innstæðulauss tékka
er krafinn um greiöslu innheimtu-
gjalds, sem nemur 10% tékkafjár-
hæðar, auk stofngjalds frá 250,00
til 1.000,00 kr. og dráttarvaxta.
Bankar og sparisjóðir skiptast á
nauðsynlegum upplýsingum um
þessi mál og í þvi sambandi starf-
rækir Samvinnunefndin upplýsinga
miðstöð.
Skyndiávísanaskipti á vegum
Seðlabankans halda áfram, þegar
'tilefni þykir til og munu einnig
fara fram utan Reykjavíkur, þegar
ástæða er til.
Ennfremur munu bankar og spari
sjóðir í ríkara mæli en áður áskilja
framvísun nafnskírteina við mót-
töku tékka frá ókunnum aðilum.
Vonum vér, að hin breytta fram-
kvæmd mæti skilningi viðskipta-
manna banka og sparisjóða.
Reykjavík, í júlí 1967.
Samvinnunefnd
banka og sparisjóða.
18000 krónum
stolið úr bifreið
Lögreglunni var tilkynnt í fyrradag
að stolið hefði verið 18 þúsund kr.
úr kyrrstæðri bifreið, sem skilin
hafði verið eftir á Sölvhólsgötu,
skammt frá verkstæði Landssím-
ans. Hafði eigandinn brugðið sér
úr bifreiðinni og skilið j^kann sinn
eftir í henni með peningaveski sinu.
Þegar hann kom aftur, var veskið
horfið, en í þvi voru 18 þúsund kr.
Ekki hefur tekizt að hafa upp á
þjófnum, enn sem komið er.
Nýtt hefti af ICELAND
REVIEW er komið út og er það
að nokkru helgað þátttöku Is-
lands í heimssýningunni i
Montreal.'
Elín Pálmadóttir skrifar um
íslenzku sýningardeildina í skála
Norðurlanda, Sigurður Magnús-
son skrifar grein um Islendinga
og þjóðareinkenni — og tvær
greinar eru um þá meginþætti
í náttúru landsins, sem leitazt
er við að vekja athygli á í sýn-
ingardeild okkar I Montreal.
Önnur greinin, baráttan við eld-
inn í iðrum jaröar, er eftir dr.
Sigurð Þórarinsson. Hin greinin,
um heita vatnið og nýtingu
þess, er eftir Sveinbjörn Björns-
son á jarðhitadeild Raforku-
málaskrifstofunnar.
Allar þessar greinar eru mjög
myndskreyttar, bæöi með svart-
hvítum myndum og litmyndum.
Loks er viðtal við sendiherra
íslands í Bandaríkjunum og
Kanada, Pétur Thorsteinsson, og
þar er fjallað um samskipti ís-
lendinga við vesturheim, gömul
og ný tengsl okkar við „nýja
heiminn“ — m. a. afstöðu Ve»t-
ur-íslendinga til „gamla lands-
ins“.
I þetta hefti skrifar dr. Gunn-
ar G. Schram einnig grein um
íslenzka sjónvarpið og birtast
þar fjöhnargar myndir úr fyrstu
vetrardagskrá sjónvarpsins.
Greinar eru um Útvegsbanka
íslands og starfsemi Sláturfé-
lags Suðurlands. Auk þess
flytur ritið nýjar fréttir frá Is-
landi í samþjöppuðu formi, bæði
almennar fréttir og fróöleik um
sjávarútveg. Frímerkjaþáttur er
í ritinu og margt fleira. Það er
veglega myndskreytt og snyrti-
legt að öllum frágangi eins og
jafnan áður. Á kápu er nýtízku-
leg táknmynd jarðhitans, sem
• Barbara Stach og Gísli B.
Björnsson gerðu.
Ritstjórar Iceland Review eru
Haraldur J. Hamar og Heimir
Hannesson. Ritið er prentað í
Setbergi.
Gamalt
íbúðarhús
brennur
Hið gamla íbúðarhús eyöibýlis-
ins „Brú“ í Stokkseyrarhreppi
brann um helgina til grunna. I hús-
inu hefur ekki veriö búið í mörg
ár, en eigendur býlisins eru bænd-
urnir í Holti. Húsið brann áöur en
nokkrum slökkvitilraunum yrði
komið við, enda óhægt um aðgerðir
þar sem enginn vegur liggur heim
að bænum. Ekkert var vitaö um
upptök eldsins, en talið líklegt, að
tveir piltar af næstu bæjum, sem
þama höfðu verið við veiðiskap
um helgina, hefðu kannski í óað-
gætni skilið eftir eld í húsinu.
NJÓHÐ IIFSINS,
þið erað á Pepsi aldrinum.
ROTHO GARÐHJÓLBÖRUR
komnar aftur, lægsta fáanlega verð,
70 ltr. kr. 895.— Kúlulegur, loft-
fylltir hjólbaröar, vestur-þýzk úr-
valsvara. Varahlutir. Póstsendum.
INGÞÓR HARALDSSON H.F.
Snorrabraut 22, sími 14245.
MÚRBROT
SPRENGINGAR
J.
VANIR MENN
NÝTÆKI
TRAKTORSGRÖFUR
TRAKTORSPRESSUR
LOFTPRESSUR
GROFTUR
ÁMOKSTUR JÖFNUN LÓÐA
I I
VÉLALEIGA
simon simonar
SÍMI 33544
ím