Vísir - 03.08.1967, Blaðsíða 7
7
VtSIR • Fimmtudagur 3. ágúst 1967.
‘gun
útlönd í mórg-un
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
Búizt við árás á Port au Prime tií
að steypa Duvalier forseta Haiti
í fréttum I gær frá Dominikanska
lýðveldinu — nágrannaríki Haiti —
segir, að yfir vofi að árás verði
gerð á Port au Prince, til þess að
steypa Duvalier forseta Haiti.
Duyalier er sagður hafa viðbún-
að til 'þess að hrinda árásinni. Það
mtm vera árás skaeniliða sem hér
er um að ræða. Handtökur hafa átt
sér stað í lýðveldinu að undanfömu
og um 100 menn handteknir, sem
grunaðir eru um að vera í tengsl-
Japönsk stálfélög
scnneinast
Japönsk stálfélög hafa samein-
azt, eða 3 meðal hinna stærstu
þeirra, sem framleiða samtals 12
milljónir lesta á ári.
Hið nýja samsteypufélag verður
fjórða mesta stálframleiðslufélag í
heimi. Framleiðsla þess verður um
18.7% af allri stélframleiðslu í land
inu. Þrjú stærstu stálfélög heims
era Hnited States Steel Corporat-
km,>Betiehem-félagið handarfska og
japanska Magið Yawata Iron and
Steel Co. {framleiðsla þess er
k8!9% af áríegri stálframteiðslu í
Jhpan).
Hið nýja samsteypufélag >í Japan
,befir aö marki að auka státfram-
leiðslvina upp- í 13 milij. lesta.
um við skæruliða. Útgöngubann er
í Port au Prince og vegatálmunum
hefir verið komið upp. .
30. júlí var gerð tilraun til að
myrða Duvalier.
Sagt er aö í fyrra mánuði hafi
nokkrir þingmenn á Haiti verið
teknir af lífi og 15 vikið frá störf-
um.
Enn barizt í Wuhan
Fréttir frá Kína benda til, að
barizt sé áfram í Wuhan og að
andstæðingar Mao tse Tung gegni
þar enn mikilvægum embættum.
Eru þeir hvattir til þess að hverfa
frá viliu síns vegar, segir í frétt
frá Peking.
í Shantung var rannsóknarnefnd
frá Peking rænt og nefndarmenn
sættu misþyrmingum.
Utanrikisráðherra Tunis i Khartoum:
Arabalöndin geta sjálfum sér um
keant hrakfarirnar í styrjökfinni
Á ráðstefnu utanríkisráðherra
Arabalanda f Khartoum hvatti ut-
anríkisráðherra Túnis leiðtoga Ar-
aba til þess að horfast i augu við
þá staðreynd, að þeim sjálfum væri
um að kenna hrakfarimar I styrj-
öldinni, og hætta að bera fram á-
sakanir á Bandaríkin. Hann kvað
Arabalöndin ekki geta vænzt sam-
úðar á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna meðan þeir héldu uppi áróðri
► í Ungverjalandi hafa 3 menn
verið teknir af lífi, en þeir voru
forsprakkar í ungverska fascista-
flokknum á tíma síðari heimsstyrj-
aldar og voru sakaðir um þátltöku
í morðum 250 kommúnista og Gyö
inga.
til þess að tortíma ísrael. I íraks hafa bent á alvarlegar af- )! ..ínsins á olíusölu til vestrænna
Utanríkisráðherrar Marokko og | leiöingar dvínandi olíutekna vegna ■ landa.
Fyrirskipar Johnson forseti
hté á loftárásum á Norður
Vietnam ?
Nokkrar h'kur eru á að Johnson
forseti fyrirskipi hlé á loftárásum
á Norður-Vietnam að loknum kosn-
ingunum í Suður-Vietnam í næsta
mánuði.
„Fyrir þessu eru 50% líkur“, seg-
ir í NTB-frétt frá Washington, og
ef af þessu verður geri Johnson
forseti sér von um, að það brejrti
afstöðu stjórnar N-Vietnam.
Háttsettir embættismenn í Wash-
ington sögðu >þó i gær, að þeir vissu
ekki til neinna áforma í þessa átt.
ORRUSTUSKIPIÐ
NEW JERSEY
Bandan'ska orrustuskipið NEW
JERSEY, sem kom við sögu í síð-
ari heimsstyrjöld, verður tekið i
notkun og sent til Norður-Vietnam.
Um þetta var birt frétt í fyrra-
dag. Fallbyssur skipsins eru svo
langdrægar, aö þær ná með skotum
sínum til allra staða í Norður-Viet-
nam, sem loftárásir eru gerðar á.
Það muá taka nokkra mánuði,
að útbúa skipið til þessa hlutverks.
Einnig hefir veriö sagt frá skorti
á þjálfuðum fluggmönnum í Banda-
rikjunum, en ekki var tekið fram
í fréttum, aö það væri þess vegna,
sem orrustuskipið veröur tekið í
notkun.
Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna
hefur neitað, að Johnson forseti
hafi í undirbúningi nýjar tilraunir
til þess að koma á friði í Vietnam
og muni fyrirskipa hlé á loftárás-
um í því skyni, en talsmaður ráöu
neytisins kvað stefnu forsetans ó-
breytta, þ.e. að setjast að samninga
borði, ef Noröur-Vietnam kæmi til
móts við Bandaríkin.
Fréttaritari brezka útvarpsins
símar frá Washington og segir þaö
skoðun manna, að í rauninni sé
ósvaraö þeirri spurningu hvað sér-
legir sendimenn forsetans séu aö
gera í ferð sinni til Suðaustur-Asíu
þeir Maxwell Taylor og Clifford.
Vantar yður góðan bíl?
ÞESSA VIKU BJÓÐUM VIÐ MIKIÐ OG GOTT ÚRVAL AF GÓÐ-
UM NOTUÐUM BIFREIÐUM MEÐ SÉRSTAKLEGA HAGSTÆÐ-
UM KJÖRUM. TALIÐ ÞVÍ VIÐ OKKUR STRAX í DAG SVO ÞÉR
MISSIÐ ÉKKI AF ÞESSU EINSTAKA TÆKIFÆRI.
Jón Loftsson h.f. —, Vökull h.f.
Hringbraut 121 — sími 10600
A___'
HIIPPDRIEtll SíBS
VEGNA VERZLUNARMANNAHELGARINNAR ER
EKKI UNNT AÐ DRAGA FYRR EN Á HÁDEGI
N.K. ÞRIÐJUDAG.
EHDURIIVIUn LVKUR I
n HflDEGI DRfllinRDRGS