Vísir - 14.08.1967, Síða 1
IM
vism
57. árg. - Mánudagur 14. ágúst 1967. - 183. tbl.
Slld veiðist við
Hrollaugseyjar
Nokkur skip fengu afla norö-
austur í íshafinu nú um helgina.
Síldin virðist heldur þokast í átt
að landinu, en hún hreyfir sig afar-
hægt suð-vestur á bóginn.
Fáein skíp eru að veiðum í Norð-
ursjó og fengu tvö skip þar afla
um helgina, þeir Jón Kjartansson
og Gísli Árni. Einn bátur, Sunnu-
tindur, fékk afla við Hrollaugseyj-
ar, en þar hefur lítið sem ekkert
fengizt f sumar. Síldin kvað vera
þar smá og á grunnvatni svo aö
erfitt er að ná til hennar.
Þessi skip tilkynntu um afla yfir
helgina:
Bjarmi II 200 tonn, Börkur 310
tonn, Sveinn Svéinbj. 230 tonn,
Gísli Ár'ni 200 tonn, (úr Norðursjó).
Barði 250 tonn, Ásborg 240, Júlíus
Geirmundsson 230, Sólrún 170,
Bára 170, Hafdís 180, Sunnutindur
125 (við Hrollaugseyjar), Jón
Kjartansson 400 (úr Norðursjó).
75. ráðstefna norrænna biskupa:
Eiitii biskupanna með að-
skilnaði ríkis og kirkju
Nýlokið er nú 15. ráöstefnu nor-
rænna biskupa í Tönsberg í Nor-
egi. Eitt aðalviðfangsefni hennar
var aðskilnaður kirkju og ríkis.
Biskup íslands, herra Sigurbjörn
Einarsson sat ráðstefnuna og pré-
dikaði hann i dómkirkjunni í Töns-
berg.
Hinn norski biskup, Fridtjov
Birkell, sem er formaöur í siöa-
bótanefnd kirkjunnar, segir, aö
þessi aðskilnaöur sé ekki ný hug-
mynd i Noregi og kveðst sjálfur
vera hlynntur hægfara breyting-
um og þróun kirkjunnar, sem sjálf
stæðrar stofnunar með samvinnu
við ríkið. í Svíþjóö hafa rannsókn-
ir sýnt, að 90% íbúanna Vilja ó-
háöa þjóðkirkju, og segir Birkell
ástæðu til að ætla að svipað muni
vera um Norðmenn. Sænski bisk-
upinn Lindström hefur sagt, að
hann telji ekki ástæðu til að vinna
að aðskilnaði kirkju og ríkis f Sví-
þjóö.
Eftir því sem fregnir af ráöstefn
unni herma, hefur aðeins einn af
biskupunum, sem þátt taka í ráö-
stefnunni verið hlynntur algjörum
aðskilnaði kirkju og ríkis, og er
það sænskur biskup.
Myndin er tekin stuttu eftir að fyrsti laxinn tók hjá Haraldi.
(Ljósm. R. Lár.)
Haraidar og Bjami skildu jafnir
— veiddu sina 5 laxana hvor / Haffjarðará
Klukkan rúmlega fimm á laug
ardag kom Haraldur krónprins
að Haffjaröará, ásamt Bjama
Benediktssyni forsætisráðherra.
Án efa hafa þeir báðir verið
fegnir að komast út í óspillta
náttúruna, eftir stranga dagskrá
undanfarinna daga
Innan stundar höfðu þeir
skipt um föt og skrýðzt veiði-
gallanum og héldu hvor í sína
áttina, Haraldur fór niður með
ánni, en Bjarni fór hina leið-
ina. Þeir vom við veiöar fram
á kvöldið en gistu síðan í veiði
húsinu við ána. Um morguninn
héldu þeir aftur á veiðar og
voru að til hádegis.
Eins og gefur að skilja mun
nokkur eftirvænting hafa ríkt
um það, hvor yrði fengsælli,
norski ríkisarfinn, eða íslenzki
forsætisráðherrann. Ríkisarfinn
hefur orð á sér fyrir aö vera
fengsæll laxveiðimaður, en for-
sætisráðherrann hefur hingað til
veriö þekktari fyrir annað en
laxveiöar og bjuggust því flest-
ir við sigri hins fyrmefnda.
En íslenzkum til mikillar
ánægju fóru leikar svo, að báð-
ir fengu fimm laxa og má segja
að forsætisráðherrann hafi sigr-
að i viöureigninni, þar sem hann
veiddi þyngsta laxinn sem vó
sex og hálft pund.
Laxinn sem Haraldur veiddi
var sendur til Reykjavíkur, en
þar verður hann settur í frysti
og mun Haraldur ætla að gefa
föður sínum einn eða tvo laxa.
Haraldur veiddi alla sína laxa
á flugu, en ekki er oss kunnugt
hvaða beitu forsætisráðherrann
notaði.*
Klukkan rúmlega hálf fjögur
í gær lenti Blikfaxi á flugvell-
inum á Stóra Kroppi í Reyk-
holtsdal til að sækja Harald
krónprins og flytja hann tii
Akureyrar.
Framhald á bls. 10.
Brauzt inn til fyrr-
verandi eiginkonu
— lagði hendur á hana og veitti áverka
Krónprinsinn kemur út úr bflnum á flugvellinum á Stóra-Kroppi.
Maöur nokkur, fyrir nokkru frá-
skilinn, brauzt inn tii fyrrverandl
konu sinnar aðfaranótt laugardags
og Iagöi á hana ' Hafði hann
brotið upp læsia: uyrnar, þegar
hann komst ekki öðruvísi inn til
hennar. Varð að lokum að kveöja
lögreglu til og tók hún manninn
í sína vörzlu. Kom í ljós að mað-
urlnn var undir áhrifum áfengis,
og gisti hann hjá iögreglunni um
nóttina. Nokkuð sá á konunni eftir
átök mannsins, en hún hafði þó
ekki hlotið nein teljandi melðsli.
Situr maðurinn nú í gæzluvarðhaldi
fyrir meint innbrot og líkamsárás
og er mál hans í rannsókn.