Vísir - 14.08.1967, Blaðsíða 7

Vísir - 14.08.1967, Blaðsíða 7
V'í'S rR. Mánudagur 14. ágúst 1967. morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd MÁLALIÐARNIR BJÖRGUÐU LÍFI EVRÓPUMANNANNA Hermenn Kongóstjórnar gerðu húsleit og drápu hina hv'itu Flóttamenti frá Kongó sögðu í Bruxelles í gær, að málaliðar Jean Schrammes ofursta hefðu bjargað lífi þeirra er málaliðam ir tóku landamæraborgina Buk- avu herskildi í vikunni sem leið. Sprengia í 10 knt. fjnr&ægð frá BCinn 1 gær réðust bandarískar herflug- vélar á skotmörk í Norður-Viet- nam í aðeins 10 km fjarlægð frái landamærum Kína. Svo nálægt kín- versku landamærunum hafa þær ekki áður varpað sprengjum. Skot-, mörldn voru járnbrautir. Málaliðarnir komu í veg fyrir, að hermenn Kongóstjórnar dræpu hvíta fólkið í Bukavu. Landbún- aðarsérfræðingur í hópnum sagði, að þaö heföi aðeins munað hárs- breidd, aö Evrópufólkiö hefði týnt lífi. Áður en málaliöarnir komu þangað, hafði Evrópumönnum ver- ið bannaö að fara út fyrir húsdyr. Hermenn Kongóstjórnar gerðu hús leit hjá þeim og drápu fjölda manns. Þessir hermenn höföu ver- ið fluttir loftleiöis til Bukavu, og aö nokkru leyti í flugvélum, sem Bandaríkjastjórn hafði látið Kongó stjóm í té. Það tók Schramme ofursta og menn hans fáar klukkustundir aö hertaka Bukavu. Kongóhermenn- imir veittu nær enga mótspymu. I fylgd með málaliðunum var fjöldi hvítra gísla, sem látnir voru lausir i Bukavu og leyft aö fljúga til Bruxelles. Flóttamennirnir höfðu þá verið í fimm vikur á feröalagi með málaliðunum gegnum frum- skóginn. Sluppu heim þótt stýrimaðurinn vildi ekki bera merki Maos Sjö kínverskir dráttarbátar, hlaðn ir rauðum varðliðum, fylgdu í gær sovézka flutningaskipinu „Svirsk“ úr höfninni í Dairen út á opið haf. Skipið, sem rauðir varðliðar skemmdu fyrir helgina, er nú á leið ■ ■ c ,';• .. c. • . YM\ SLÉóf ROTHO GARÐHJÓLBÖRUR komnar aftur, Iægsta fáanlega verð, 70 ltr. kr. 895.— Kúlulegur, loft- fylltir hjólbarðar, vestur-þýzk úr- valsvara. Varahlutir. Póstsendum. INGÞÓR HARALDSSON H.F. Snorrabraut 22. sfmi 14245. I VERKTAKAlí! — HÚSBYGGJENDUR! IIiAMKVÆ.MtjM AI.LSKONAR 'JARÐVTI'VINNU UTAN L’ORGAR SÉM INNAN ^fatjnís S X 005 SÍM' a3*BO — |««lt Vlnniivélap iH (elgu * '*pF Rafknúnlr múrhamrar með borum og fleygum. - Stelnborvélar. - Steypuhrærívéfar og hjólbörur. - Raf-og benrínknúnar vatnsdælur. Vlbratorar. - Stauraborar. - Upphltunarofnar. - Trúin flytur fjöll. — Við Hytjum allt annað SENDIBlLASTÖOIN HF. BÍLSTJÖRARNER AÐSTOÐA VANIR MENN Nf TÆKi TRAKTORSGRÖFUR TRAKTORSPRESSUR LOFTPRESSUR VELALEIGA snnnsnnBr til Vladivostok á strönd Síberíu. , Skipstjórinn hefur tilkynnt, aö j öll áhöfnin sé um borö. Hann og i þrír aðrir skipverjar höfðu setiö í gæzluvarðhaldi hjá kínverskum yf- irvöldum. Skipið félck síðan aö fara úr höfn, innan 24 klukkustunda; frá þvi að Kosygin, forsætisráð-' herra Sovétríkjanna, hafði sent Kín verjum "harðorð mótmæli vegna i meöferðarinnar á skipverjunum. Svirsk kom til Dairen 22. júlí til þess að lesta salt handa sovézk-! um skipum á Kyrrahafi. Kínverjari kröfðust þess, aö annar stýrimaður \ gæfi sig fram við lögregluna, vegna j þess að hann hefði „sært fullveldi Kína“. Glæpur hans var fólginn í þvf, að hann hafði neitað aö bera merki Maos formanns á brjóstinu. Skipstjórinn hafði neitaö aö verða við þessari kröfu. Á föstudaginn var skipstjórinn handtekinn, þegar hann fór i land að skrifa undir brottferðarskjölin. Stuttu síðar safnaðist fjölmennur hópur varðiiöa saman og réðst út í skipið og spillti mörgu. Jarðskjáiffi í Frakklandi Einn maður fórst og minnst 30 særðust í jaröskjálfta i suðvestur- hluta Frakklands í gærkvöldi. Ferða mannabærinn Aretta eyöilagðist að einum þriðja hluta. Interpol handsamar menn úr alhjóðlegum fölsunarhring Tökum að okkur hvers konar múrbro' og sprengiviimu f húsgrunnum og ræs um. Leigjum út loftpressur og vibra sleða. Vélaleiga Steindórs Sighvats sonar. Álfabrekku við Suðurlands braut, slmi 30435 Interpol er á hælunum á alþjóð- legum fölsunarhring. Það eru Suö- ur-Ameríkumenn, sem stjóma hringnum, er hefur bækistöðvar víða um Evrópu. Talið er, að hann hafi einnig teygt anga til Norður- landanna. Sex Suður-Ameríkumenn hafa verið handteknir í Luzem í Sviss og Madrid á Spáni. Glæpaflokkur- inn lét prenta um milljón af fölsuð- um ferðatékkum. Hljóðuðu beir upp á 100 dollara hver og aö Bank of America væri útgefandinn. Interpol hefur í yfirheyrslum komizt að því, að hringurinn starf- ar í þremur hópum, sem hafa skipt Evrópu á milii sín. » BIAiFRAMENN SIGURSÆLIR Útvarpið í uppreisnarríkinu Bi- afra í Nageríu skýrði frá því i nótt, að hersveitir ríkisins væru á leið til hins mikilvæga bæjar Lokoja i Norður-Nígeríu. Þessi sókn hers- ins hefur komið á óvart á sama hátt og sókn hans um daginn, er hann hertók nokkra mikilvæga staði í Miðvestur-Nígeríu. Ef hin nýja sókn tekst, ná Biaframenn yf- irráöum yfir siglingaleiðum á tveim stærstu fljótum ríkisins, Niger og Benue. Ú INDVERJAR VILJA VÖNUN Heilbrigöismálaráðherra Indlands dr. Sripati Chandrasekhar, tilkynnti í gær, ag 15 af 17 forsætisráðherr- um ríkja Indlands væru fylgjandi þvf, að foreldrar þriggja barna eða fleiri yrðu skyldaðir til að láta gera sig óhæfa til barneigna. » SEGIR MANN SINN GÓÐAN Japansku. fréttamaður segir, að eiginkona forseta Kína, Liu, hafi variö mann sinn í bréfi til rauðra varðliða. Konan játaði, að honum hefðu orðið á einstök mistök, en hann væri ekki óvinur byltingar- innar. Það er ekki heldur rétt, að hann sé undirróðursmaður og valda gráðugur. Annar japanskur. frétta- ritari sagði, að Chen Yi utanríkis- ráðherra hefði gagnrýnt sjálfan sig á 10.000 manna fundi í Peking á laugardaginn. Ráðizt að rithöfundi fyrir skrif um Gyðingaofsóknir Sovétstjórnin i köldu stribi v/ð Gyðinga 1 Sovétríkjunum er á ný hafiö kalt stríð gegn hinum þremur millj- ónum Gvðinga, sem enn búa þar, þrátt fyrir ofsóknir, fyrst nazista I og síðan kommúnista. Kalda stríð- ið hófst aftur eftir sigur Israels- n.anna yfir hinum arabísku ná- grannalöndum þeirra. Þetta kom fram á óháðri alþjóöa- ráðstefnu í gær, en þar er verið SIMI 33544 að rannsaka stöðu Gyðinga í Sovét- ríkjunum. Ráðstefnan, sem haldin er í New York, ákærði Sovétríkin fyrir að skipuleggja í blöðum og tímaritum áróðursherferð gegn Gyð ingum. Jafnframt berast þær fréttir frá Moskvu, að hermannatímarit i Sovétríkjunum, „Sovét-hermaður- inn“, hafi ráðizt að sovézka rit- Verzlun til sölu Kvenfataverzlun við Laugaveginn, í fullum gangi, til sölu. Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlegast sendi nafn og heimilisfang til augl.d. Vísis fyrir 20. þ. m., merkt „Verzlun — 257“. höfundinum Kuznetsov fyrir að hafa lagt of mikla áherzlu á örlög Gyöinga í seinni heimsstyrjöldinni í skáldsögu sinni Babi Jar, þar sem segir frá moröi á 100.000 Gyöingum í einum bæ á stríðsárunum. ÖNNIIMST ALLA HJÓLBARÐANÓNUSTU, FLJÓTT OG YEL, MEO NÝTÍZKU T/EKJUM NÆG BÍLASTÆÐI OPIÐ ALLA DAGA FRA kl. 7:30-24.00 HJ0LBARDAVIO6€RD KOPAVOGS Kársnesliraiit 1 Sími aonps

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.