Vísir - 14.08.1967, Qupperneq 9
V1SIR . Mánudagur 14. ágúst 1967.
laugardagsmorguninn lagði
Haraldur krónprins upp í
ferðalag um landsbyggðina, sem
hófst á siglingu upp í Hvalfjörð
með varðskipinu Þór. í fylgd
með Haraldi voru forseti ís-
lands, herra Ásgeir Ásgeirsson,
forsætisráðherra, Bjami Bene-
diktsson, dómsmálaráðherra Jó-
hann Hafstein, Sigurður Nordal
prófessor, hinn íslenzki fylgdar-
maður krónprinsins, Páll Ásgeir
Tryggvason, Hörður Bjarnason
húsameistari ríkisins, o. fl. Veð
ur var heldur hráslagalegt þeg-
ar krónprinsinn gekk um borð,
en þar tóku á móti honura Jón
Jónsson skipherra, Pétur Sig-
urðsson forstjóri Landhelgis-
gæzlunnar og fleiri. Var siglt út
úr höfninni um hálf ellefu og
gengu menn fljótlega niður í
skipið, enda var orðið talsvert
hvasst ofan þilja. Var snæddur
hádegisverður um borð, og eftir
tveggja tíma siglingu var lagzt
að bryggju í Hvalfirði. Var stór
hópur manna samankomin við
bryggjuna er krónprinsinn gekk
upp að Hvalstöðinni en þarna
tók Loftur Bjamason útgerðar-
maður á móti Haraldi, og var
síðan fylgzt með því, er C2 feta
langur búrhvalur var dreginn
upp á'planið og byrjað að skera
hann. Ekki virtist krónprinsinn
kippa sér upp við lyktina þarna,
og munu víst ýmsir viðstaddra
hafa glevmt henni meðan hinn
tigni gestur stóð þar við. Voru
síðan þegnar veitingar hjá Lofti
Bjarnasyni og síðan lagði bíia-
lestin _af stað upp í Reykholt.
Var nú veður mjög tekið að
batna og hefur Haraldur varla
verið svikinn af hinní íslenzku
náttúrufegurð á þeirri leið. en
ekið var um Geldingadraga og
Hestháls. Skein sól alla leiðina.
Á hlaðinu í Reykholti tóku á
móti Haraldi sr. Einar Guð-
mundsson prófastur, Vilhjálmur
Einarsson skólastjóri, Jönas
Amason alþingismaout', Hapald
ur Jónasson fulltrúi sýslumanns
og Sturla Jóhannsson hrepp-
stjóri. Hópur þýzkra ferðamanna
var staddur þarna og þóttust
ferðalangarnir heldur en ekki
heppnir að fá þarna að sjá
norska krónprinsinn og hina ís-
lenzku ráöamenn. Einnig stóðu
45 uppklæddar telpur á hlaðinu,
en þær dveljast í sumarbúðum
í Reykholti. Prófastur Einar Guð
mundsson og prófessor Sigurður
Nordal fylgdu nú Haraldi um
staðinn og fræddu hann á sögu
Hvalstöðin skoðuð. Loftur Bjarnason, úigm., talar við Harald og forseta íslands. Við hlið krónprinsins
er Bjami Benediktsson.
Reykholts. Var Snorralaug skoð
uð, gengið inn í Snorragöng, og
síðan var gengið að styttu
Snorra Sturlusonar, en sem
kunnugt er færði Ólafur kon-
ungur íslendingum hana ag gjöf
frá norsku þjóðinni árið 1947.
Gekk Haraldur inn í kirkjuna og
skrifaði í gestabók og skoðaði
síðan Sturlungagrafreitinn í
kirkjugarðinum. Að endingu
vom þegnar veitingar hjá Ein-
ari rófasti, sem bauð Harald
velkominn og flutti stutt ávarp,
þar sem hann vitnaði í kvæði
norska skáldsins Amulf 0ver-
land sem hann orti til Hákonar
VII. en þar segir: „Du horer
ipg^,., klggge, men hele folket
i gl“, Skoðaði Haraldur ljósnrent
aö handrit Reykholtsmáldaga,
sem mun vera elzt íslenzkra
handrita, elzti hluti þess skrifað
ur um 1185. Kvaddi nú Haraldur
þá Reykholtsmenn, svo og mest-
an hluta fylgdarliðs síns, sem
nú ók til baka til Reykjavíkur.
Var nú ekið sem leið liggur vest
ur að Haffjarðará á Snæfells-
nesi, en þangað var komið kl.
rúmlega fimm, og haldið sem
Ieið lá í .veiðihúsið vig ána.
Koma krónprinsins til Haffjarö
arár hafði verið undirbúin vel
og veiðitæki voru tilbúin og biðu
þess að verða reynd.
Eftir að Haraldur haföi skipt
um föt og klætt sig i veiði-
gallann. var haldig niður með
ánni, að svonefndu Grettis-
hlaupi en þar hefur löngum ver
ið fengsæll veiðistaður. Hallgrím
ur Hallgrlmsson ók með prins-
Framhald á hls 10.
Krónprmsinn með einn af löxum sínum.
Bílalestin við Hvalstöðina.
Sigurður Nordal leiðbeinir Haraldi við Snorralaug.