Vísir - 03.10.1967, Blaðsíða 4

Vísir - 03.10.1967, Blaðsíða 4
auraæta eignast afkvæmi í dýragarði Það heíur aðeins eínu sinni , komid fyrir áður, að mauraæta af þeirri tegund, sem á heim- kynni í Suður-Afriku,. hefur eign- azt afkvæmi í dýragaröi. Þessi dýr eignast varla afkvæmi, ef þau njóta ekki þess frels- is, sem náttúran ætlar þeim. Því vakti það mikla athygli. þegar slík mauraæta í dýragaröin um í Miami eignaðist ljósrauöan lítinn unga, sem strax varð uppá- hald allra. Hann er við beztu heilsu, en lítill, vegur aðeins tvö kíló. I Grandon-garðinum í Miami eru fjórar fullorðnar mauraætur, en forstjóri dýragarðsins veit þó ekki með neinni vissu, hver faðirinn er. Hinn unginn, sem fæddist i dýragarði , dó fjórum dögum eftir burðinn. Það var í Frankfurt 1912. STÓRAR VATNA- LILJUR í Stuttgart er dýragarður, þar sem er að finna stóra tjörn. í tjörninni vaxa risastórar. austur- lenzkar vatnaliljur, og í blöðuro vatnaliljanna situr ung stúlka. Hún veifar og brosir til þess að sýna þeim, sem fram hjá fara, að blöðin geta haldið henni á floti. ' , i/. vt j. iA/irJ Bollaleggingar um „veiðiþjófa“. Dagblöðin hafa því hlutverki að gegna meðal annars að færa fólkinu fréttir af atburðum og þróun ýmissa mála, sem gerjist meöal okkar. í blöðum er því lýst höppum og óhöppum, sam komum og frapikvæmdum o. s. frv. Afstaða fólksins 02 skoð- anir bess mótast bví oft af því, hvernig blaðamennirnir bera fréttirnar á borð, fréttir af at- burðum, sem oft eru vegna ein- hvers, sem gerist viðs fjarri. Starf blaðamannanna er því ekki lítiil ábyrgðarhlúti, því oft þarf að rekja atburðina jafnvel í gegnum síma, eftir lýsing- um sjónarvotta, sem ekki lita hlutlausum augum á suma at- burðina, og á ég þar við, þegar um er að ræða samskipti manna og hagsmuni. Eri hagsmunirnir ráða oft skoðunum manna, það þarf vart að ræöa. — Hlutverk biaöamannanna er því oft að vega og meta uppiýsingar, sem berast ósamhljóða um sama at- burðinn frá mörgum aðilum. En hvers vegna slfkar bolla- leggingar? Jú, vegna þess að norðan af landi hafa öðru hvoru borizt hráar fréttir í flcstum dagblöðunum um allmiklar afla fréttir á Þistilfirði. Fiskað var í nót, söeðu fyrstu fréttir biátt áfram og myndir blrtust af drekkhlððnum bátum. Yfirleitt þykja fiskifréttir góöar frétt- ir, ekki sízt, þegar um er að ræða aflaieysi yfirleitt, og hálfgerð óáran er talin vera á mörgum sviðum, lafnvel telja sumir að kreppa tröllríði öliu okkar pjóðiífi. Blaðamennirnir hlutu því að keppast við að birta fréttir um göð aflabrögð, þv( að aukinn afli hlýtur að koma öllum til góða! En vlti menn! í öllu aflaleys- inu eru hinir fáheyrðu atburðir kærðir, þvi að þaíð hafði verið drepinn fiskur af annarri „sort“ heldur en fyrirhugaö var að veiða, og auk þess var fisk- urinn ekki af réttri stærð, því hann revndist of smár. En þetta kom fram í seinni fréttunum, en þá fvisdi fréttum, að „bölvuð“ nótin var lika me'* . v’itlausr!“ möskvastærð, minni heldur en löglegt er samkv. alþjóöalögum, veiðarfæri til að „giipa" nær- tækan afla. Þannig eru frétt- irnar stundum, og bví skyldum við vera að hugleiða bær frek- ar, bví að barna fvrir norðan eru bara menn, sem unnið hafa til óhelgi gagnvart lögum og rétti. Vafalaust má bannig oft velta vöngum vfir fengnum fréttum, en ég get ekki að þvi gert, að ég gat varla sett þessa karla fyrir norðan á sakamanna fregnum, en ég hef enga þekk- íngu á eðli málsins að öðru leyti, né þeirra, sem þarna eiga hlut að máli, hvort þarna er um harðsoðinn „glæp“ að ræöa eða um vanþekkingu á lögum og reglugerðum. Ég þykist þekkja nokkuð til sjómanna, og ég þykist vita að margir þeirra muni undir slikum kringum- stæðum eiga fá rök önnur en þau, að þeir hafi ætlað að enda vafalaust verið gripiö til nærtækrar nótar. En samkvæmt lögum áttu mótorbáta-karlarnir auðvitað að þekkia slíkar regl- ur. f Og svo líðr dagarnir, og enn koma fréttir að norðan, því að þessi afli á Þistilfirði var ekki lengur gleðilegar aflafréttir, heldur óafsakanlegur „glæpur", sem þegar hefur verið kærður og fram hefur farið rannsókn „í héraðl“. Og loks koma svo frétt ir um að rannsókn sé lokiö og málinu hafi verið vísað saksókn ara til umsagnar. Þannig fáum við fréttirnar, hverja aí annarri, án bollalegg- inga, án þess að nokkur af- staða sé tekin, enda varöar fæsta um ónólltískt mál, nema þá, sem hagsmuna hafa að gæta, þó að nokkrir sjóarar noröur á Þistilfiröi geri einhvern skollann, sem þeir eiga ekki að gera. En hugsið ykkur „karlana" fyrir norðan, sem glaðzt hafa yfir góðum afla, en eru síðan allt í einu orönir „sakamenn“ af því að þeir gripu nærtækt bekkinn án skýringa, og það mun varla nokkur maður gera, sem hugsar bessi mál ofan. í kjölinn, ef þá nokkuö er að marka fréttirnar, sem borizt hafa, og eitthvað hefur dulizt varðandi framkvæmd „glæps- ns“. Það hefur ávallt þótt sjálf- sögð sjálfsbjargarviðleitni að draga þann afla að landi, sem föng eru á, a. m. k, á meðal þeirra, sem hafa þurft að draga fram lífið af því, sem sjórinn hefur verið svo gjöfull að veita. Þegar vertíðir gerast brigðular, þá verður að grípa til annarra veiðiaðferða og sækja á önnur mið. Spurningin hlýtur því að vakna um, hvort þetta hafi ver- ið óeðlileg tilhneiging hjá flski- mönnunum fyrir norðan að grfpa til nærtækrar nótar eða var það „glæpsamleg" tilhneig- ing, sem þeir gerðu sér grein fyrir, þegar bcir notuðu of smá- riðna nót og fengu aðra tegund af fiski en beir retknuðu með að færu x torfunum? Þessar bollaleggingar mfnar eru aðeins bvggðar af blaða- „krækja“ sér í fljótfenginn afla, sem öllum yæri heimill, sem bæ sig ejftir honum. En það sem margur ekki áttar sig á, stundum í einfeldni, er, aö við erum orðnir „þýðingarmikill“ hlekkur f alþjóðlegri samvinnu á þessu sviðinu og hinu, og við höfum skuldbundið okkur til að hlíta ýmsum reglugerðarákvæð um, eins og t. d. um möskva- stærð, sem ekki eru öllum ljós, nema „flibbamönnum", sem sitja ráöstefnur um takmarkan- ir og bönn, og um hagsmuni þessa hóps eða hins, þannig getur „móderniseringin“ gert menn af ,.gamla“ skólanum af- brotamenn, án þess að þeir sjálf ir geri sér grein fyrir þvi, að þeir eru f rauninni að fram- kvæma „glæpsamlegar“ athafn- ir. Og svo er rokiö upp til handa og fóta vegna ólíklegustn til- efna. Það er einmitt þetta sem slævir siðferðið. Afbrotin eru jafnvel gerð óvart, eða a* ó- kunnugleika eöa af þvi, að héfð eða það, 'sem hefur talizt óátal- ið, verður lögbrot. Hefðir geta orsakað að i hugarfari manna stangist á lagalegur og siðferði- legur réttur. Á þann hátt hengj- ast auðveldlega bakarar fyrir smiði. En einhvem veginn finnst mér, að þama fyrir norðan sé varla um svo alvarlega „glæpi“ að ræða, sem fréttimar hafa gefið til kynna, og þar á ég við, að „réttarfarið“ (af ásettu ráði í gæsalöppum) eigi þarna í svo gffurlegum vandræðum, eins og fréttirnar hafa i fljótu bragði gefið til kynna. Hefð og fordæmi eigá of oft mikinn þátt i því, hverjir gerast óhelgir innan þjóðfélagsins, en þeir, sem dómana fella. hafa auðvitað ekki önnur „mannleg" sjónarmið en lagadoðrantana sína, því þeir eru sú eina „reynsla“ sem dómaramir „verða“ að styðjast við, og því er ekki á öðru að byggja. Og nú bíðum við aðeins næstu frétta vegna þessa vo- veiflega veiðiþjófnaðar norður á Þistilfirði. Kannski verða saka- mennimir settir á bekk með þeim verstu, eða bara næst- verstu, en alla vega hafa þeir verið stimplaðir óheiðarlegir. Þó að dómarinn muni ekki gera það, þá hafa blööin gert það. En þetta hlýtur að koma í ljós, því að samkvæmt síðustu upp- lýsingum frá einhverjum full- trúa réttvísinnar, því að máliö var í rannsókn hjá hvorki meira né minna en þremur sýslu- mnnsembættum, ' Þingeyjar- sýslu, Eyjafjarðarsýslu og Skagafjarðarsýslu, sem rannsak að hafa málið auðvitað gaum- gæfilega, þá segir heimildin, að málið sé í pósti!!! Það er ekki aö furða, þó að íslendingar beri virðkigu fyrir lögum og rétti. Þrándur í Götu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.