Vísir - 04.11.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 04.11.1967, Blaðsíða 1
VISIR 57. árg. — Laújjfardagur 4. nóvember J967. ,.254-tbl. „Engin hætta á að trommuleikarinn detti í þaö“ „Róbot-trommari" í reykvískri hljómsveit Tóna-tríóið í Reykjavik hefur nú fengið allnýstárlegan hljóm- sveitarmeðlim, en það er raf- magnstrommari einn amerískur, sem ekki þarf annað en að stilla á þann takt, sem á að leika og síðan snilar tilskilinn takt, þar til slökkt er á honum. Hann er mjög fjölhæfur þessi trommari, spilar ekki færri en 16 mismun- andi takta, allt frá vinarvölsum upp í Bossa-Nova og trommu- tegundimar sem hann leikur á em tiu talsins. Við brugðum okkur á leik og skoðuðum þennan náunga, sem reyndist vera kassalagaður og ótrúlega fyrirferðarlítill, og upp lýsti hljómsveitarstjóri Tóna-trí- ósins (sem er nú raunar ekki tríó lengur) Amþór Jónsson, að trommarinn væri tengdur við magnara, og væri hægt að stilla tónstyrkinn og hraða taktsins ••••••••«••••••••••••• Enska kennd eftir vild. Aörir meðlimir hljóm- sveitarinnar en trommarinn og Framh. á bls. 10. Tónatríóið á æfingu með nýja trommuleikaranum, sem er kassinn til hægri á myndinni. Áætlun Efnahagsstofnunarinnar um ibúðabörf 1967 -1971: Byggja þarf wn 1700 íbúiir á árí Efnahagsstofnunin hefur gert áætlun um íbúðaþörf íslendinga á næstu árum og gerir ráð fyrir, að byggja þurfi 1615—1725 í- búðir að meðaltali á ári tímabil- ið 1967-1971. Frá þessu segir í grein eftir Pétur Eiríksson hagfræðing í ný- útkomnum Fjármálatíðindum. — Er þar fjallað um ástandið í íbúða- málum síðan 1950 og gerð áætlun um framtíðarþróútÍTna. Er í áætl- uninni lögö til grundvallar spá um mannfj. og tíöni nýrra hjónabanda. Er gert ráð fyrir 1500—1600 full gerðum íbúðum árið 1967 1600 —1700 íbúðum hvort áranna 1968 og 1969 og 1700-1800 íbúðum hvort áranna 1970 og 1971. í greininni segir, að húsnæðis- ástandið hafi lítið breytzt á tíma- bilinu 1951 — 1954. Á þeim tíma hafi hlaðizt upp mikil eftirspurn eftir íbúðum. Næsta tímabil. 1955 — 1960 batnaði húsnæðisástandið mikið og einnig á tímabilinu 1961 — 1966. í þjóðhags- og fram- kvæmdaáætluninni fyrir árin 1963 —1966 var gerð spá um ibúðabygg i verulegar íbúðabyggingar 8% fram ingar á tímabilinu og fóru raun- úr áætlun. Vísir í vikulokin kemur út eftir viku Vegna breytinga á vélakosti í prentsmiðiu getur „Vísir í vikulokin“ ekki fylgt blaöinu i dag. Kemur hann næst út á laugardaginn kemup OR síðan á tveggja vikna fresti eins og venja hefur verið. Lesendur eru beðnir að at- huga, að lokið er kynningar- tíma „Vísis í vikulokin“ og fylgir hatuj nú blaðinu ókeypis aðeins til fastra áskrifenda. i sionvarpmu Enskukennsla sjónvarpsins hefst klukkan sautján, klukkan fimm í dag (laugardag) og verð ur framvegis vikulega á þeim tíma á laugardögum. 1 dag verð- ur fluttur fyrsti þáttur þessa enskunámskeiðs, sem er snið- ið við hæfi byrjenda, eldri og yngri. Heimir Áskelss. mennta- skólakennari hefur tekið að sér að vera leiðbeinandi við kennsl- una, en notuð verður kennslu- bókin Enska í sjónvarpi — Walter og Connie. Til marks um væntanlega tölu nemenda má geta þess, að þegar hafa *selzt nær þrjú þúsund eintök af þessari enskunámsbók. — Hún kom nýlega út hjá bóka- útgáfunni Setbergi, sem hafði samvinnu við sjónvarpið um út- gáfuna. Nauðsynlegt er, að hafa þessa kennslubók við hendina og kennarinn ráðleggur vænt- inlegum nemendum að kynna sér fyrsta kaflann áður en kennslan hefst í dag. „Straumur erlendra ferðamanna vai engu minni í október en í ágúst" — Segir Emil Guðmundsson, móttökustjóri hjá Hótel Loftleiðum Loftleiðir hafa á þessu ári flutt hingað mikinn fjölda far þega, sem hafa dvalið hér um stundarsakir á leið sinni aust ur eða vestur yfir haf. Eru gistinæturnar í Loftleiðahót- elinu orðnar yfir 11.000 tals- ins hjá þessum hópi farþega.. Þaö furðulegasta er ef til vill það, að í októbermánuði varð ekkert lát á farþegastraumnum á Loftleiðahótelinu, og var þá engu minna um manninn en í ágústmánuði, SOP-farþegarnir reyndust áöeins einum færri í október en í ágúst! Emil Guðmundsson, móttöku- stjóri Hótel Loftleiða sagði blað inu í gær, að samkvæmt ,,stat- istik“, sem hann hefur útbúið, séu Bandaríkjamenn í áberandi meirihluta gesta, ca. 500 á mán- uði ,en þar á eftir koma þjóð- verjar 250 — 300 á mánuöi til jafnaðar, mikið ber á Svisslend- ingum, Austurríkismönnum, fólki frá austantjaldslöndunum, — og fyrir kemur að þjóðemi^- lausir menn, vegabréfslausir menn á leiö til Bandaríkjanna, komi þar við. Norðurlandamenn eru fremur sjaldséðir. I gær voru meðal gesta á hót- elinu 50 mexíkanskir kennarar á leið heim til sín eftir Evrópu- ferð, og fyrir nokkru kom 100 manna hópur hótelmanna frá heimssýningunni í Montreal, og voru á leið til Parísar, en höfðu viðdvöl í Reykjavík áður. Heimir Áskelsson, fyrsti sjónvarpskennarinn, við töfluna, sem notuö verður í sjónvarpinu. Sinubruni nálægt bensinstöð Kallaðir þrisvar á sama brunastað Slökkviliðið í Reykjavík var kallað þrisvar í gær á sama brunastaðinn, skammt fyrir innan bensínstöð Skelj- ungs við Mildubraut. Þar höfðu börn eða unglingar gert sér að leik að kveikja f mjög loðinni sinu, sem reynd ist hinn ákjósanlegasti eíds- matur og var í öll skiptin talsverður eldur og erfitt að slökkva. Var liðið kallað út fyrst um 11-leytið í gærmorgun á þenn- an stað, síðan eftir hádegið og kl. 8.30 í gærkvöldi sagði varð- stjóri slökkviliðsins að bílar hefðu þá nýverið farið á stað- inn til ag slökkva. Drengirnir, sem þarna hafa verið að verki voru alltaf horfnir af staðnum, þegar þeir heyrðu brunalúðrana gjalla. Benda má á, að eldur nálægt bensínstöð getur auðveldlega valdlð miklum eldi. í gær var vindáttin frá bensínstöðinni og olli eldurinn því ekki hættu. Slökkviliðið var í gær kallað tvívegis í Kópavog, en í bæði skiptin var um lítinn eld að ræða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.