Vísir - 04.11.1967, Blaðsíða 16

Vísir - 04.11.1967, Blaðsíða 16
r**caB Gin- og klaufaveiki- faraldur í Bretlandi Þykir óvenju alvarlegur Um 11.000 húsdýrum hefur ver- ið slátrað undanfarið í Bretlandi, vegna gin- og klaufaveiki, sem hefur komið upp þar og þykir ó- venju alvarleg. Á hinu frjósama landbúnaðar- svæði milli Liverpool og Birming- ham f vesturhluta Englands hafa fundizt 58 sjúkdómstilfelli og þar af 11 síðasta sólarhring. — Farfuglar smitberar 1 landbúnaðarráðuneytinu var sagt í gaer, að aldrei áður hefði orðið vart svo margra tilfella af gin- og klaufaveiki á svo takmörk- uðu landssvæði. — Véikin virðist breiðast út. f ráðuneytinu er tal- ið, að farfuglar beri smitið í þetta sinn, og geri það allar aögerðir sérlega erfiðar. Laugardagur 4. nóvember 1967. Páfi skorinn upp í ntorgun? i gærkveldi undirbjuggu lækn- ir Páls páfa uppskurð á honum, •'sgna bólgu í blööruhálskirtli hans. ,-ór undirbúningurinn fram með -nestu leynd og var því hvorki átað né neitað, að uppskurður- nn ætti aö fara fram fyrir há- 'egi í dag. Engin yfirlýsing verð- tr gefin út um uppskurðinn fyrr ■n honum er lokið. Páll páfi, sem r sjötugur að aldri, hefur ekki erið við góða heilsu síðan 4. sept- nber i haust. iongferðir vöru- '?iiu bunnuður í Þýzkulundi Vestur-þýzka ríkisstjórnin bann- aði í gær langferðir vöruflutninga- bifreiða. Markmiðiö er að' létta umferðina á þjóðvegum landsins og veita vöruflutningunum til rík- isjárnbrautanna, sem reknar eru með miklum halla. Kiwanis-klúbbur stofnaður í Eyjum Mikill áhugi vaknaður fyrír upp- i>i. iaugardag var haldin fullgild- ngarhátíð hins nýstofnaða Kiw- anisklúbbs í Vestmannaeyjum. — Heitir klúbburinn HELGAFELL. Hátíðin hófst með veglegu borð- haldi. Mættir voru 18 Kiwanisfé- lagar úr Reykiavík ásamt konum sínum, en hófið sátu um 80 manns. Eullgildingarskjalið afhenti Einar A. Jónsson, umdæmisstióri Kiw- anls á Norðurlöndum. Auk hans fluttu ávörp: Bæjarstjórinn ‘ Vest- mannaeyjum. Magnús H. Magnús- son, formaður AKOGES, Heið- mundur Sigurmundsson og for- seti Rotaryklúbbs Vestmannaeyja, séra Þorsteinn Lúther Jónsson. Kveðjur frá Kiwanisklúbbunum í Reykjavík fluttu þeir Ásgeir Hjör- leifsson, varaforseti Kiwanisklúbbs ins Kötlu, Þórir Hall varaforseti Framh. á bls. 10. Myndirnar tvær sýna Skarphéðinsfélaga að störfum. Pilturinn fer létt með áburðarsekk, en stúlkan er til- búin til að hefja sáningu og er heldur en ekki vígreif með fötuna meg grasfræinu.. HagkauD testur upp nýja verziunarhætti Ambussador lapan ifhendir trúnaðar- bréf sitt Herra Michitoshl Takahashi, sem undanfarið hefir verið sendiherra Japan á Islandi, afhenti í dag forseta íslands trúnaðarbréf sitt, sem ambassador Japan á íslandi við hátiólcga athöfn á Bessastöö- um, að viðstöddum utanríkisráðh.<£>- □ Hagkaup stígur í tlag fyrsta skrefið til þess að veita al- menningi aðild að viðskiptum með sérstökum hætti, áður óþekktum hér á landi. Viðskiptum, sem miða að Iækkun vöruverðs. □ Gefst mönnum kostur á í dag, og í framtíðinni, að leggja inn í verzlunina við Miklatorg 1000 kr., 2000 kr., 3000 kr. o. s. frv. og fá í staðinn kvittun fyrir upphæðinni — þátt- tökuskírteini — sem veitir þeim rétt til þess að verzla ár- lega fyrir tífalda þá upphæð. Fá þátttakendur vörur verzl- unarinnar á 10% lægra veröi, en þeir, sem ekki eru þátttak- endur í henni. Að ári liðnu geta menn svo fengið nýtt þátttökuskírteini, án þess að leggja inn meira fé, eða með uppsögn hætt þátttöku og fengið endurgreitt það fé, sem þeir hafa lagt inn í fyrirtækið. „Þessir verzlunarhættir hafa lengi tíðkazt erlendis og þykja vera neytendum mjög hagstæð- ir. Með þeim mun verða hægt að lækka verulega flestar neyzlu vörur (matvörur, hreinlætisvör- ur og því um líkt) og sumar þeirra mjög mikið,“ sagöi Valdi- mar Kristinsson, viðskiptafræð- ingur á fundi, sem hann og eig- andi Hagkaups, Pálmi Jónsson, héldu með blaðamönnum í gær. ,,Að undanförnu hefur Hagkaup gert nokkrar tilraunir með sölu matvæla á lágu verði og hefur nú ákveöið að stórauka þann rekstur með milliliðalausum inn flutningi þeirra matvörutegunda sem ekki eru framleiddar í land inu, en jafnframt er ætlunin að hafa á boðstólum innlendar framleiðsluvörur. En til þess að unnt sé að bjóða upp á úrval af matvörum, hreinlætisvörum og öörum neyzluvöirum, þarf að koma upp miklum vörubirgðum og skapa aöstöðu til þess að hægt sé að gera innkaup í stór- um stíl. Erfitt er að útvega allt það fé, sem til slíks þarf og þvi er hugmyndin, eins og víða hef- ur verið gert erlendis, að leita til almennings og gefa honum kost á þátttöku í þessum við- skiptum." Jafnframt því, sem þátttak- endur fá þátttökuskírteini, sem veitir þeim rétt til þess að verzla fyrir tífalda þá upphæð, sem þeir hafa lagt inn, með þessum góðu kjörum, þá fá þeir einnig viðskiptaspjald, þar sem hver vöruúttekt verður skráð. Fyrst í stað verður öörum en þátttak- endum einnig velkomin verzlun Frh. á bls. 13. hefði ekki neinar félagsdeildir úti á landi, og hefði því snúið sér til ungmennafélaganna, og varð það úr, að 30—40 piltar og stúlkur úr Skarphéðrii fóru í þessa ferð, sem var eingöngu farin í tilraunaskyni. Var flæm- ið síðan afgirt skömmu eftir sáninguna, og er girðingin um 10 kílómetrar. Næstu 6—7 vikurnar kom varla dropi úr lofti og veðrið var eins óhagstætt og frekast gat orðið og að sögn Ingva hef- ur annar eins uppblástur sjald- an sézt á afréttarlöndunum og eftir þennan tíma. Bjuggust nú flestir við að fræið og áburður- inn hefðu fokiö veg allrar ver- aldar. Þegar Ingvi skoöaði svæð ið reyndist að vísu nokkuð fok- ið, en svæðið engu að síður iöja- grænt á samfelldum svæðum. Greinilegt var, ag fræin höfðu ekki spírað fyrr en í ágústlok. Er því greinilegt að starf sem þetta er sannarlega háð duttl- ungum öræfaveðranna. Ingvi sagði, að hann hefði í, haldið fund með hópnum frá l í; sumar og skýrt frá niöurstöð- 'í unum. Var mikill hugur í mönn- | um, enda þótt segja megi að i árangurinn hefði getað orðið ; betri og var hópurinn ákveðinn i > aö fara í aðra slíka ferð að j: sumri. Þá má geta þess að á landsfundi UMFÍ fyrir nokkru var þetta mál eitt af aðalmálun- um á dagskrá og ályktun gerð þess eðlis að stórauka beri þátt ungmennafélaganna á næsta ári. Þá má geta þess, að Lyons- hreyfingin hefur sýnt þessu máli góðan skilnirig undanfarin ár. Eitt kvað Ingvi þó dragbít á starfi þessu, en það er að ekki er hægt að kaupa harðgert, ís- lenzkt fræ til að sá, en notast verður við danskt fræ, sem er mun linara af sér en t. d. fs- lenzka snarrótin. — Kvað Ingvi þetta mál vera eitt af brýnustu verkefnum bæöi varðandi upp- græðsluna og eins landbúnaðinn í heild. B græðslu landsins Tilraun ungmennafélaga bar góðan árangur brátt fyrir slæm veðurskilyrði / sumar yf. Það hefur vakið talsverða athygli, að í sumar var efnt til hópferðar félaga í Ungmennafélag- inu Skarphéðni upp á Kjöl, en þar dreifðu félag- arnir um eina helgi um 11 tonnum af grasfræi og áburði, — og árangurinn, þrátt fyrir hina miklu þurrka í sumar, hefur reynzt furðugóður og hefur greinilega blásið lífi í félaga ungmennafélagshreyf- ingarinnar, því á aðalfundi UMFÍ nýlega var mikið rætt um þessi mál og ákveðið að gera enn stærra átak í landgræðslu þegar næsta sumar. Ingvi Þorsteinsson, magister, var með ungmennafélögunum, þegar þeir störfuðu við Kjöl júlíbyrjun sl., en getið hefi veriö um þá ferð i blöðum. Ingvi sagði, aö Landgræðslan

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.