Vísir - 04.11.1967, Side 9

Vísir - 04.11.1967, Side 9
V í SI R . Laugardagur 4. nóvember 1967. Q VK „ Unga fólkið þarf a meiri þátt í störfum kirkjunnar jjinn almenni kirkjufundur, sem haldinn er annað hvert ár í Reykjavík, var haldinn dagana 29. október til 1. nóv- ember sl., og sóttu hann um 70 manns, kariar og konur víðs vegar af landinu. Allir fundir voru opnir, og mörg mál tekin til umræðu, en aðalmál fundarins voru: A. Ábyrgö þjóðar- innar á æsku, trú og tungu. B. Minning siðbótarinnar. - Tíð- indamaður blaðsins hitti nokkra fundarmenn og ræddi við þá um fundinn og ýmis önnur málefni, er varða kirkju og trú- mál. HJÖRTUR E. GUÐMUNDSSON 'l/'ið byrjuðum á því að fá nokkrar upplýsingar um fundinn hjá Hirti E. Guðmunds- syni, en hann hefur unnið mik- ið að undirbúningi þessa fundar. Sagði hann okkur aö 7 manna nefnd ynni aö undirbúningi fyr- ir hvem fund, en fundirnir eru haldnir annað hvert ár, eins og fyrr segir. Þessi fundur er hinn 16. f röðinni. Próf. JÓHANN HANNESSON Prófessor Jóhann Hannesson er einn nefndarmannanna og spurðum viö hann um tilgang þessa funda og áhrif þeirra: „Skipulag kirkjufundarins hefur jafnan verið í nokkuð lausu formi, en aöaltilgangur fundarins er sá, að fá sem flesta' lelkmenn til að koma og ræða þau málefni, sem ofarlega eru á döfinni hverju sinni. Um áhrif fundarins er auðvitað erfitt að dæma, en ég get þó nefnt eitt mál, sem kirkjufund- inum tókst að koma í veg fyrir að kæmi til framkvæmda, en það var þegar átti að fækka prestum í landinu.“ „Finnst ykkur ungt fólk sýna nægan áhuga á málefnum kirkj- unnar?“ „Við viljum mjög gjárna fá fleira ungt fólk til að sækja þessa fundi, og raunar fer ungu fólki mjög fjölgandi í himnn ýmsu störfum innan kirkjunn- ar. Má þar nefna ýmis æsku- lýðsstörf og sumarbúðastörf, sem þekktust ekki áður fyrr.“ „Svo að við víkjum að öðru, hver er skoðun yöar á aðskiln- aði kirkju og ríkis og teljið þér að slíkur aðskilnaður sé tíma- bær á íslandi?" „Ég tel aöskilnað ekki tíma- bæran eins og stendur, en þaö getur orðið síðar. Slíkt tekur áratuga undirbúning, og það getur vissulega orðið nauð- synlegt þegar fram líöa stund- ir.“ Sr. GÍSLI H. KOLBEINS Við þökkuðum nú próf. Jó- hanni fyrir spjallið og hittum því næst séra Gísla H. Kol- beins, sóknarprest aö Melstað í Húnavatnssýslu og spuröum hann frétta úr sinni heimasveit. „Ég starfa meðal mjög góös fólks. Ég hefi nú verið prestur að Melstað í 13 ár frá síðustu fardögum, og á þessu tímabili hafa tvær nýjar kirkjur verið vígðar í sókninni." „Teljið þér að vandamál HÓLMFRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR Næst hittum við unga stúlku, Hólmfríöi Pétursdóttur, en hún er nýskipaður skólastjóri hús- mæðraskóla kirkjunnar að Löngumýri í Skagafirði. Það bar raunar til tíðinda á þessum kirkjufundi að í fyrsta sinn voru kosnar konur í undirbún- ingsnefnd og var Hólmfríöur önnur þeirra. Hólmfríður er eini íslendingurinn sem hefur hlotið sérstaka menntun í æskulýðsstörfum. „Álítiö þér að konur hafi næg afskipti af starfsemi kirkj- unnar, t.d. í sambandi við trú- arbragðafræðslu barna?“ „Mér finnst konur ekki hafa sýnt þessum málum nægan á- huga, og þá sérstaklega hvaö snertir uppeldisskyldu kirkj- unnar gagnvart börnum og unglingum. Þetta mál ætti þó að standa konum mjög nærri Jóhann Hannesson prófessor Sr. Gísli H. Kolbeins unglinga séu þau sömu til sveita og í borgunum?" „Um það er erfitt að dæma, en þaö gefur auga leið að að- stæðurnar eru mjög ólíkar. í sveitum haldast kynslóðirnar i hendur, þar sem börnin eru mjög mikiö meö foreldrum sín- um við ýmis störf. Þetta upp- eldishlutverk lendir meira á skólunum í kaypstööunum og hlýtur það aö verða noþkuð annars eðlis.“ Hólmfríöur Pétursdótti^ skólastýra og þær hafa vissulega betri aðstöðu en karlmenn í þessum efnum. Konur ættu að taka meiri þátt í þessari starfsemi, jafnt utan kirkju sem innan.“ PÁLL KOLKA Páll Kolka, læknir, var einn af fundarstjórum kirkjufundar- ins og ræddum við við hann um stöðu kirkjunnar í nútlma þjóðfélagi. „Við viljum leggja áherzlu á að kirkjan sé ekki rofin úr teigslum viö þjóðfélagiö,“ sagði Páll. „Það er virðingar- leysi gagnvart sögu landsins. Þaö er vafamál hvort nokkur þjóð á meira að þakka kirkju sinni. Við getum nefnt Noreg til samanburðar, sem átti enga norska biblfuþýðingu og þurfti að sækja menntun presta sinna til Danmerkur, enda glötuðu Norðmenn sinni fomu tungu. Við íslendingar höfðum snjalla biblíuþýðingu Guðbrands bisk- ups, kjarnyrtar predikanir meistara Jóns og trúarljóð Hallgríms Péturssonar, sem voru tungutöm hverju manns- barni. Kirkjan bjargaði tung- unni, þegar danskan var orðin ráðandi í lagamáli og viö- skiptum." Páll Kolka læknir „Teljið þér að litúrgía kirkj- unnar, eða kirkjusiöirnir sjálfir séu staðnaðir í formi og ástæða tii að taka upp nýtízkulegra messuform?“ „Ja, þaö fer hver prestur sinu fram í þessum efnum. Ekki dettur mér I hug að ráð- leggja öllum sjúklingum mín- um sama meðal, og þaö er eins um prestana, það er ekkj. hægt að skipa þeim öllum að hafa sama hátt á messum sínum. Allir þessir skrautlegu munir eiga sína symbolik, táknandi ýmislegt sem stundum er ekki hægt að tjá í orðum. En sumir álíta þetta allt ,saman hé- góma, alveg eins og einstaka maður telur skáldskap og list- ir hégóma. Þetta fer eftir geös- lagi manna og uppeldi.“ „Að lokum, Páll, hver er skoöun yðar á hinu marg- Sr. Ingólfur Guðmundsson umtalaða Baha’i-brúðkaupi, sem fór fram í Árbæjarkirkju í sumar?“ „Mér finnst nú að það hafi verið gert of mikið veöur út af þessu. Að vísu var þetta dálítið ósmekklegt, en ég tel enga ástæðu til að endurvígja kirkj- Sr. INGÓLFUR GUÐMUNDSSON Að sfðustu hittum við ungan prest, séra Ingólf Guömunds- son, en hann var prestur í Mos- fellsprestakalli, en dvaldist í Þýzkalandi s.l. ár á prestaskóla lúthersku kirkjunnar i Pullach. „Teljiö þér æskilegt að prest- a í sveitum stundi búskap jafnframt preststörfunum?". „Nei, þaö tel ég ekki vera æskilegt. Að vísu getur veriö um undantekningar aö ræða, en nú er- svo komið að flestir prestar vinna mikið að fræöslu- málum í sveitum sínum, t. d. við bamakennslu og það eru oftast gerðar kröfur til að þeir geti tekið slíka kennslu að sér.“ „Fá verðandi prestar nægan undirbúning í námi sínu til aö geta tekið að sér kennslu?“ „Nei, ég tel mjög æskilegt að guðfræöinemar fái meiri undirbúning hvað varðar kennslu barna og'unglinga." Taka móti úrgangssíld Blaðinu hefur borizt eftirfar- andi ályktun: Á félagsfundi 2. nóvember var eftirgreind ályktun samþykkt: „Til þess að firra þá aðila erfiöleikum, sem þegar hafa haf ið veiöar og vinnslu Suðvestan- lands síldar í frystingu og sölt- un, hafa síldarverksmiðjur Suð- vestanlands ákveðið að hefja móttöku úrgangssíldar frá vinnslustöövum. Þessi ákvörðun er tekin i trausti þess, aö Verðlagsráö sjávarútvegsins verðleggi úr- gangssíld frá frystingu og sölt- un á lægra verði til bræðslu en síld upp til hópa frá veiðiskip- um, þar sem mun rriinna lýsi fæst úr úrgangssíldinni. Það skal tekið fram, aö úr- gangssíldin er óverðiögð frá 1. nóvember". (Félag Síldar- & fiskimjöls- verksmiöja á Suður- og Vesturlandi). /

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.