Vísir - 04.11.1967, Page 3
V í S IR . Laugardagur 4. nóvember 1967.
Sendum gegn póstkröfu nvert á
land sem er.
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTAN
viö Vitatorg, — sími 14113.
Höggvarar aftan
á vörubílana?
NÝJUNGAR 771 ÞESS AÐ DRAGA ÚR SLYSAHÆTTU
HÖFUM FYRIRLIGGJANDI
finnsku Hakkapeliitta snjó-
dekkin með finnsku snjónöglunum
Hálf negling ca. 80 nagiar
Fuli negling ca. 160 naglar.
IVin tíðu og oft hryllilegu slys,
sem orðið hafa í umferð-
inni, hafg á undanfömum árum
sameinað fleiri og fleiri ein-
staklinga og aðila undir vígorð-
ið: Meira öryggi i umferðarmál-
um! Meira öryggi á vegum! —
Vegna þe-ss, hve mjög þeim hefur
fjölgað, sem láta sig þessi mál
skipta, hefur þeim fjölgað, sem
leggja sig fram við að bæta ör-
yggisútbúnaði bifreiða.
Fleiri vinna nú að uppfinn-
ingum á þessu sviði og á síðustu
árum hafa komig fram ýmsar
nýjungar, sem margar hverjar
þykja draga mjög úr slysahættu.
Bílaframleiðendur lögðu meiri
áherzlu á öryggisútbúnað i bif-
reiðum sínum af árgerð 1968
heldur en þeir hafa nokkum
tíma gert við framleiðslu fyrri
árgerða, og þannig gætir áhrifa
þessarar stefnu til aukins ör-
yggis á fleiri sviðum í umferðar-
málum.
1 þessum anda var gerð at-
hyglisverð tilraun á tilrauna-
brautum ensku Ford-verksmiðj-
anna við Dagenham í Englandi
ekki alls fyrir löngu. Sú tilraun
var gerö að tilhlutan Fords í
Englandi og voru þá hafðar í
huga afleiðingar bifreiöa-
árekstra, ser> veröa meö þeim
hætti, að fólksbifreið lendir aft-
an á vörubifreið — undir vöru-
pall hennar. Árekstrar, sem
verða með slíku móti, hafa oft-
ast mjög alvarlegar afleiðingar
' í för með sér, eins og hér á
landi finnast dæmi, um. Er þar
skemmst að minnast dauðaslyss
ins, sem varö á Reykjanesbraut
nú í vikunni.
Þarna á tilraunabrautum
Fords var fólksbifreiöum ekið
aftur undir vörubifreið, sem
höggvari (stuðari) hafði verið
settur á. Höggvaranum var kom
ið fyrir undir vörupallinum, en
hann náði þó aftur fyrir og skag
aði nokkuð aftur úr. Honum var
ætlað að vama þvf, að fólksbif-
Þegar fólksbifreiðinni var ekið á höggvarann, urðu afleiðingarnar
ekki aðrar, en myndin sýnir. Að innan skemmdist hún ekkert. Sjá
má, ef myndin prentast vel, hvernig höggvarinn hefur svignað nið-
ur á við, en endinn á honum sést framan við framhjói fólksbílsins.
reiö, sem æki aftan á vörubfl-
inn, rynni undir pallinn.
Tveimur bílum af Anglfa-gerö
var ekið aftan á vömbílinn. 1
fyrra tilfellinu var höggvarinn
hafður á vömbílnum, en í því
síðara ekki. Anglía-bflunum var
ekið á 48 km hraöa á klukku-
stund. Það leyndi sér ekki, að
mikill munur var á afleiðingun-
um. Höggvarinn varnaði fólks-
bílnum algerlega frá því að
lenda alveg undir pallinn. —
Skemmdirnar, sem urðu á fólks-
bílnum, komu allar fram á fram
enda hans og framrúðan brotn-
aði, án þess þó að hrökkva úr
umgjörð sinni. — Vömbíllinn
hrökk áfram þrjú fet, þótt hann
væri hafður í handbremsu. —
Það gegndi öðru máli um afleiðingarnar, þegar hinni fólksbifreið-
inni var ekið aftan á vörubílinn, án þess að höggvarinn væri hafður
á. Sést vel, hvemig stýri og annað hefur keyrzt aftur og þrýstir að
fótum „ökumannsins“.
Vömbifreiðin, sem notuð var við tilraunina. Höggvarinn skagar
nokkuð aftur undan pallinum, þótt það sjáist ekki svo vel á mynd-
inni.
Innra skemmdist fólksbíllinn lft-
ið, sem ekkert.
I hinu tilfellinu, þegar högg
varinn var ekki haföur á, lenti
fólksbíllinn alveg undir vöru-
pallinn með þeim afleiðingum,
að yfirbygging fólksbílsins keyrð
ist aftur og framendi bílsins
einnig. Var auðséð, að ökumað-
ur hefði að minnsta kosti meiözt
á fótum, en við tilraunirnar
voru notaðar brúður í stað lif-
andi mannvera. í hvorri brúðu
var komið fyrir sérstökum högg
mæli, sem gjaman er notaður
við tilraunir, þar sem árekstrar
eru látnir gerast með vilja.
Verkfræðingar Fords í Eng-
landi sáu það af þessum til-
raunum, að ekki mætti höggvar-
inn vera gerður úr of sterku
efni. Hann verður að vera eftir-
gefanlegur, en samt veita nógu
mikið viðnám bflnum, sem ræk-
ist aftan á, þannig ag hann
eyddi höggkrafti hans. Of sterk-
ur höggvari gæti unnið meiri
skaða en þegar enginn væri
hafður.
Þetta var þó aðeins frumtil-
raun, sem framkvæmd var
þarna á Fordbrautunum, en hún
gaf þó. von um, að þarna væri
ef til vill að finna öryggisút-
búnað, sem gæti dregið úr
mestu slysahættunni vegna þess
konar árekstra. Fjögur lönd i
Evrópu hafa þó fyrir lagaskyldu
að vörubflar séu með svona
höggvaraútbúnað. Belgía, Hol-
land, Luxemburg og Frakkland.
En þaö mun þó vera nýtilkom-
ig og ekki beinlínis komið vel
f ljós, hvernig sá útbúnaður hef-
ur gefizt þar. Samgöngumála-
ráðuneyti Breta hefur þessa hug
mynd nú til athugunar um þess-
ar mundir.
i*ssm