Vísir - 04.11.1967, Qupperneq 10
V1SIR. Laugardagur 4. nóvember 1967.
IÖ
Flugvél Susan Oliver lenti hér í
gær eftir hrakninga yfir
Atlatshafi
Sjálf flaug leikkonan með farþegavél vestur
Lítil flugvél lenti hér á Reykja-
víkurflugvelli í gær á leið sinni
til Ameríku. Nokkuð er liðið síð-
an flugvél þessi lenti hér síðast,
en þá fiaug henni kunn sjón-
varpsstjarna, Susan Oliver, og
í gær var undirrituö i Reykja-
vík bókun um viösl ' iti íslands og
Tékkósl ukíu. Samkvæmt 4ra ára
viðskiptasamningi landanna. sem
geröur var haustiö 1966, skulu
samninganefndir þeirra koma sam
an árlega til þess aö ræða ástand
og horfur í viðskiptum landanna.
Hafa samninganefndir landanna
•aldig fundi í Reykjavík undan-
fariö og orðiö sammála um áö-
urnefnda bókun, sem undirrituð
var í dag að viðstöddum Emil
Jónssyni, utanríkisráöherra. For-
maður tékknesku samninganefnd-
arinnar var Josef Keller, forstjóri
i tékkneska utanríkisviðskipta-
ráöuneytinu, og undirritaði hann
bókunina af hálfu Tékkóslóvakíu.
í tékknesku nefndinni, en hún
var skipuð sjö mönnum, voru nú
var að koma frá Ameríku á leið
til Moskvu.
öllum er nú kunnugt um, hvern-
ig fór fyrir þeirri ráöagerð sjón-
varpsstjörnunnar, en Rússar frá-
báðu sér þangaðkomu hennar. Sá,
m.a. t'orstjórar tékkneskra viö-
skiptafyrirtækja, sem ræddu hér
viö helztu útflytjendur og innflytj
endur sem viöskipti eiga við
Tékkóslóvakíu, og könnuðu mögu
leika á auknum viöskiptum á báða
bóga. Dr. Oddur Guðjónsson, við
skiptaráöunautur ríkisstjórnar-
innar, undirritaöi bókunina af Is-
lands hálfu, en auk haris voru í
íslenzku samninganefndinni: Björn
Tryggvason, aðstoöarbankastjóri
Seðlabanjíans, Árni Finnbjörns-
son. framkvæmdastjóri SH, Bjarni
V. Magnússon, framkvæmdastjóri
Sjávarafurðadeildar SÍS, Pétur
Pétursson, forstjóri, Erlendur Þor-
steinsson, formaöur Síldarútvegs-
nefndar og Björgvin Guömunds-
son deildarstjóri í viöskiptaráðu-
neytinu.
sem lenti flugvél hennar hér í gær,
er atvinnuflugmaður, B. Wrinkle,
sem hér var staddur um daginn,
þegar leikkonan kom hér við. Fór
hann með henni til Prestvíkur,
þegar hún fór héðan.
„Boy, oh boy! Hún er löngu kom
in til Bandaríkjanna. Hún flaug
þangað með farþegavél frá Kaup-
mannahöfn fyrir einum þrem vik-
um og er viö beztu heilsu, eftir
því, sem ég bezt veit“, sagði hr.
Wrinkle, þegar blaöamaður Vísis
innti hann eftir ferðum leikkon-
unnar.
Wrinkle kom hingað kl. 4 í gær-
dag, en hafði lagt af staö frá Diiss-
eldorf kl. 6, miöað viö staðartíma
þar.
„Ég er aðeins að flytja vélina
fyrir leikkonuna vestur. 1 Prestvík
skildu leiðir okkar og ég fór með
sams konar vél til Suður-Afríku.
Síðan fór ég til Þýzkalands og var
þá beðinn um aö sækja þessa vél
til Kaupmannahafnar. Hún fór í
viögerð f Þýzkalandi og þaðan kem
ég meö hana.“
Flugamðurinn sagði sínar farir
ekki sléttar úr ferðalaginu, en hann
haföi komizt í hann krappan þeg-
ar hann átti eftir um það bil 400
mílur hingað. — Um hálftommu
þykkt lag af ísingu settist á vélina
og þyngdi hana ískyggilega mikið.
Varð hann að fljúga neðar skýj-
um i uyi það bil 500 metra hæð,
til þess að bræöa ísinguna af vél-
inni. Auk þess var talstöð hans bil
I uð og hann var ekki lengur orð-
inn viss á stefnunni.
Sagðist hann hafa orðið mikið
, feginn þegar flugvél frá sjóhern-
| um (frá Keflavíkurflugvellil fann
í hann og vísaöi honum leiðina.
Iftyndarleg hluta- |
velto í Listcamanna-'
tkálununi á morgun
Kvennadeild Rauða
krossins hyggst koma
á stofn sjúkrahjálp
Ein myndarlegasta hlutavelta,
sem verið hefur í Reykjavík til
þessa verður f Listamannaskálan-
um á sunnudaginn kl. 2 og stendur
Kvennadeild Rauða kross Islands
fyrir henni. 10 þúsund munir hafa
verið gefnir til hlutaveltunnar og
mun drátturinn kosta 10 krónur
og verða engin núll. Munirnir, sem
eru á hlutaveltunni, eru sérlega veg
legir og vandaöir, má nefna mál-
verk eftir þá Jón Engilberts, Magn-
ús Árnason o. fl., nýjar peysur og
annan ógallaðan fatnað, bækur,
kaffikönnur, nýjar barnaúlpur, skó
og margt fleira, að ógleymdum alls
kyns leikföngum.
Ágóði af hlutaveltunni rennur til
sjóðs, sem mun notaður í þágu
sjúklinga, aðallega aldraðs fólks,
en Kvennad. Rauða krossins hefur
í hyggju að koma upp skipulagðri
hjálparstarfsemi fyrir langlegu
sjúklinga og gamalmenni. Þess skal
getið að lokum, að þetta verður
líklega síðasta hlutaveltan, sem
haldin verður í Listamannaskálan-
um, þar sem í ráði er að rífa hann
áður en langt um líður.
Vinsældalistinn —
Framh. af bls. 2
13 Baby Now That Fve
Found You
— Foundations
14 Zabadak
— Dave Dee ...
15 The Day I Met Marie
— Cliff Richard
16 Black Velvet Band
— Dubliners
17 Let’s Go To San Fran-
cisco — Flowerpot Men
• 18 Blue Joe
— Bobby Shappy
19 You, We Not Changed
— Sandie Shaw
20 King Midas In Reverse
— Hollies
21 Just Loving You
— Anita Harris
22 I’ll Never Fall In Love
Again — Tom Jones
23 Love Letters In The
Sand — Vince Hill
24 Five Little Fingers
— Frankie McBride
25 San Francisco
— Scott MaKenzie
Róbot —
Framhald af bls. 1.
Arnþór eru þeir Kristján Ingv-
arsson, sem hefur dvalizt í tíu
ár í Brazilíu, og sá hann um
kaupin á trommaranum og Guð-
mundur H. Jónsson, en hann
er aðalsöngvari hljómsveitarinn
ar.
„Við spilum alla tónlist, en
þó kannski hvað helzt suðræna,
þar sem Kristján er sérstakur
snillingur í að leika hana eftir
alla dvölina í Brazilíu. Við er-
um mjög ánægðar yfir að hafa
náð í þennan rafmagnstromm-
ara, og ég veit ekki til að slíkt
tæki hafi nokkum tíma verið
notað hér á landi fyrr. Þetta
er mjög líkt og rafmagnsorgel,
og kemur orgelleikarinn til með
að stjóma tækinu"
„Hvem telurðu aðalkostinn
við þetta tæki umfram venju-
legan trommara af holdi og
blóði ?“
„Ja, nú er sko engin hætta á
að trommarinn detti í það, ætli
það sé ekki helzti kosturinn
við svona rafmagnskalla".
Kiwanis —
Framh ar Dls 16.
Kiwanisklúbbsins Heklu og Páll H.
Pálsson, fyrrverandi forseti Kötlu.
í Kiwanisklúbbnum Helgafelli í
Vestmannaeyjum eru nú starfandi
26 menn, en hann er þriöji Kiw-
anisklúbburinn, sem stofnaður er
hér á landi. I heiminum eru nú
starfandi um 6000 klúbbar með á
Tjórða hundrað þúsund félögum.
Stjórn Kiwanisklúbbsins Helga-
fells skipa þessir menn: Garðar
Sveinsson framkvæmdastjóri, for-
seti. Guðmundur Guðmundsson yf-
irlögr.þjónn, varaforseti. Tryggvi
Jóriasson erlendur ritari, Gunn-
laugur Axelsson, innlendur ritari.
Bárður Auðunsson, gjaldkeri og
Aðalsteinn Sigurjónsson, féhirðir.
í dag munu Flugbjörgunarsveitarmenn halda út á götur höfuðborgarinnar og bjóða merki til styrktar
^ stiarfsemi sinni, og víöa úti á landi munu merkin verða seld. Á morgun munu konur sveitarinnar •
j halda kaffisölu í Hótel Loftleiðum, og á myndinni eru hinar myndarlegu Flugbjörgunarkonur, en •
• eitt ár er nú liðið siðan þær stofnuðu deiid innan Flugbjörgunarsveitarinnar. •
SUSAN OLIVER — myndin tekin áður en hún lagði í sögulegt ferðalag
yfir Atiantshafið. — Oliver kaus að fljúga í þægilegri þotu heim aftur.
Bókun um viðskipti ís-
ands og Tékkoslóvakíu
Ég er hrædd um að Lona hafi
ekki látið athuga gleraugun sin
í lengri tíma ...
Þakkarorð.
Nú þegar kraftarnir eru þrotn-
ir og ég hefi nær þvi hálfnað
hinn níunda áratug, og vona að
stutt sé eftir af þessari jarðnesku
vegferð minni þá finnst mér ég
ekki mega fresta því lengur aö
færa hinum mörgu og góðu vel-
gerðarmönnum mínum margfald-
ar þakkir fyrir þegnar velgerðir
fyrr og síðar á lífsleiðinni.
Sumir af þeim eru komnir
heim til sælunnar bústaða og
minnist ég þar sérstaklega frú
Krisfínar sálugu Ólafsd. og frú
Ragnh. sál. Olsen, — blessuö sé
minning þeirra ...
Reykjavík 2. nóv. Marta Mark-
úsdóttir.
Vísir 4. nóv. 1917.
felagsiif
K.R. — Knattspyrnudeild.
ÆFINGATAFLA.
5. flokkur:
Sunnudaga kl. 1.
Mánudaga kl. 6.55.
Föstudaga kl. 6.55.
4. flokkur:
Sunnudaga kl. 1.50.
Fimmtudaga kl. 7.45.
3. fiokkur:
Surinudaga kl. 2.40.
Fimmtudaga kl. 8.35.
2. flokkur:
Mánudaga kl. 9.25.
Fimmtudaga kl. 10.15.
1. og meistaraflókkur:
Mánudaga kl. 8.35.
Fimmtudaga kl. 9.25.
Harðjaxlarnir:
Mánudaga kl. 7.45.
5., 4. og 3. flokks-drengir, athugið
breyttan æfingatíma.
K.R. — Knattspymudeild.