Vísir - 17.11.1967, Blaðsíða 2

Vísir - 17.11.1967, Blaðsíða 2
V í SIR . Föstudagur 17. nóvember 1967. Verða svertingjamir ekki með í OL-liði Bandaríkjanna í Mexíkó? SVARTUR og HVÍTUR hliö viö hlið — félagar og keppinautar á hlaupabrautinni — óvinir strax og komiö er í búningsklefann? Q Bandaríkjamenn standa nú frammi fyrir miklu - vandamáli, — svo getur farið, að svertingjarn- ir í Olympíuliðum þeirra neiti að vera með á næstu Olympíuleikjum, en þeir hafa einmitt oftast fært Bandaríkjamönnum fjölmarga verðlaunapeninga eins og kunnugt er, ekki sízt í frjálsum íþróttum. $ Bezti spretthlaupari í heimi um þessar mundir, Tommie Smith, sem á 9 heimsmet, og félagi hans Lee Evans, sem báðir stunda nám við San Jesé háskólann í Kaliforníu, hafa báðir verið hvattir af svörtum leiðtogum stjórnmálasamtaka til að taka ekki þátt í Mexíkóleikunum. Smlth segir hreint út um þetta: Þaö er til að draga úr manrri kjarklnn og áhugann að véra í Iiöi með þeim hvítu. Á hlaupa- brautinni er maður, Tommy Smith, fljótasti hlaupari heims- ins, en þegar inn í búningsherb- ergið er komið, er maður litiö ann'ð en „skitinn negri“. Færi svo, að hinir svörtu spretthlauparar Bandaríkjanna hættu viö þátttöku, mundl keppni lcikanna sannarlega verða farsakennd, svo ekki sé meira sagt. Gullverðlaun færu til manna, ^em alls ekki hefðu roð við svörtu hlaupurunum, sem væru þá ef til vill heima hjá sér, eða jafnvel í hópi á- horfenda. Ralph Boston, heimsmethaf- inn og gullverðlaunamaðurinn frá Tokyo, hefur reynt að fá kynbræður sina til að vera ekld meC i ýmsum mótum innan Bandarikjanna. Þegar „Ólympíuleikar“ stúd- enta fóru fram í Tókyo var Tommy Smith spurður spjörun- um úr af japönskum blaðamönn um, m. a. um kynþáttamálin í Bandaríkjunum. Svariö var, að þau væru „lousy“. Síöan hefur Smith látið hafa eftir sér, að hann sé ekki tals- maður fyrir þvi, að negramir taki ekki þátt í Olympíuleikun- um. Hins vegar sagði fyrirliði OL-liðs Bandaríkianna á Stúd- entamótinu í Tokyo, að „mögu- leikinn væri sannarlega fyrir hendi“. Hin 19 ára Madeline Mann- ing, ein af beztu 800 metra hlaupurum heimsins í kvenna- flokki, sagöi: — Það verður erfitt að skor- ast undan, ef okkar fólk fer fram á að við verðum ekki meö. Æft fyrir OL i Grenoble ■Ar Norskur þjálfari hefur að undanfömu verið að æfa þýzka skautamenn undir Vetr- ar-ólympíuleikana í Grenoble. ; þjálfunin hefur fariö fram í Inzell og þar hafa allir beztu skautamenn og konur v.-Þjóð- verja æft af kappi. Á þessari m-nd eru Gerhard Zimmer- mann, Herbert Höfl, Giinter Traub og Jiirgen Traub í við- bragði og eru léttklæddir, enda sumarhiti þar syðra, en svellið er vélfryst. Fran-ka ólympíu- liðið hefur einnig verið á æf- ingum í Inzell nýlega. /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.