Vísir - 17.11.1967, Side 10
10
V í SIR . Föstudagur 17. nóvember 1067.
Efri deild
Björn Fr. Bjömss. (F) mælti í
gær fyrir frumvarpi sínu um breyt
ingu á lögum um stýrimannaskóla
í Vestmannaeyjum, sem gerir ráð
fyrir, að kostnaður skólans greið-
ist úr ríkissjóði og kennarar verði
opinberir starfsmenn. Frumvarpinu
var vísað til 2. umræðu og sjávar-
útvegsnefndar.
Neðri deild
Áfram var haldið 2. umræöu
efnahagsaðgerðafrumvarps ríkis-
stjórnarinnar. Ræðumenn: Vilhjálm
ur Hjálmarss.(F), Halldór E. Sig-
urðss.(F), Magnús Kjartanss. (Ab),
Lúðvík Jósefss. (Ab). Lúðvík Jósefs
son lagði fram breytingartillögu
við frumvarpið, sem gerði ráð fyrir
heimild til ráðherra, til þess að
greiða verðbætur á frystar síldar-
afuröir, en Lúðvík dró svo tillög-"
una til baka við atkvæðagreiðslu.
FIutBiingabilcir —
Framhald af bls. 1.
ekki hafi endanlega tekizt að mæla
burðarþol þeirra og sé um ágizkun
að ræða. Við höfum rætt við ráða-
menn og þingmenn á Austurlandi
vegna stöðvunarinnar, en vitum
ekki ennþá hvaö verður gert. Fjall-
vegir fyrir austan eru færir núna,
til dæmis Lónsheiði, Fjarðarheiði
og Oddsskarð og má nærri geta
hversu bagalegt það er að vera
strandaður hér. Þess má geta að
vigtarmaðurinn hjá Vegagerðinni
hefur sjálfur ekið um fyrrgreindar
brýr með álíka hlass og við erum
með, þegar hann hefur verið að
aka efni til Vegagerðarinnar vegna
brúarsmíða o. fl, Þeir halda strang
an vörð um okkur og sváfu til
dæmis ekkert í nótt af ótta viö að
við mundum stinga af austur á
bóginn.
Blaðið ræddi næst við Þorstein
Kristjánsson frá Egilsstöðum, en :
Þorsteinn sagði m. a.: — Þessi !
kafli sem um er að ræða er sá
eini á landinu sem ekki hefur ver-
ið veitt undanþága að aka með
16 tonna heildarþunga. Vegna
þrýstings frá íbúum viðkomandi.
staða var leyft að aka til ísafjarð- !
ar o'g Hornafjaröar frá Reykjavík,
með 16 tonna hSildarþunga, * en
bessi kafli frá Klaustri að Núps- i
stað skilinn eftir af þeirri einföldu
ástæðu að svo til engir vöruflutn- !
ingar fóru um hann. Ég talaði við.l
Vegagerðina tii þess aö vita hvað j
mætti bjóða þessum brúm sem um |
er að ræða, og fékk það svar að
þeir vissu ekki hvað þær þyldu
og væri um ágizkun að ræða. Nú t
vantar alls staðar vörur fyrir aust-
an, verkstæöi eru að stöðvast,
skipasmíðastöðvar og búast má við
aö flotinn stöðvist ef varastykki
og annað efni kemst ekki á áfanga-
stað. Þess má geta, að það er ó-
framkvæmanlegt aö flytja minna
hlass en við gerum, vegna þess.
að það hreinlega borgar sig ekki.
Aö lokum vil ég taka það fram
að hingað til hafa brýrnar, sem
um er að ræða, verið notaðar eins
og hverjum hefur hentað, en það
var ekki fyrr en ferðir okkar fóru
að vekja athvgli, að ráðstafanir
voru gerðar. Viö munum dvelja
hér þar til við fáum undanþáguna,
enda fer prýðilega um okkur hér
á Klaustri.
Að lokum hafði blaðið samband
við vegamálastjóra og sagði hon-
um frá afstöðu bifreiðastjóranna.
Vegamálastjóri sagði m. a.: — Síð-
astliðið sumar voru takmarkanir
á vegum hérlendis auglýstar í Lög-
birtingablaðinu og ennfremur lét
Vegageröin útbúa sérstök upplýs-
ingakort sem bifreiðastjórum var
bent á að hafa í skráningarvottorð-
um bifreiða sinna.
Rætt hefur verig við marga þess-
ara bifreiðastjóra sem um ræðir og
vöruafgreiðslur hafa verið aövarað-
ar I þessu sambandi. Austur aö
Kirkjubæjarklaustri er leyfður 10
tonna öxulþungi, en frá Klaustri
að Núpsstað er aðeins 7 tonna öx-
ulþungi leyfður, miöag við aftur-
öxul. Þess má ennfremur geta, að
við eina brúna er merki sem gefur
til kynna að 6 tonna öxulþungi er
leyfilegur yfir hana. Að lokum má
geta þess, aö viöast hvar í Evrópu
og í Bandarikjunum er aðeins 10
tonna öxulþungi leyföur.
Fróðlegt veröur að fylgjast með
framgangi þessa máls og alvarlegt
verður það að teljast, þar eð brýn
nauðsyn er á að vörur þær sem bif-
reiðarnar flytja komist á áfanga-
stað, en meðal þeirra eru lyfjavör-
ur og matvörur auk annarra nauð-
synja.
Neyðarblys —
Framhald af bls. 1.
ir, var ekig inn í Laugarnes og
nugaö út á Sundin. Ekkert sást
þar óvenjulegt og var þá ekk-
ert Irekar gert.
Mikill kostnaður og fyrirhöfn ,
vegn... slíkra „neyðar“merkja,
sem hafa svo enga merkingu
haft, hefur orðið til þess, að
menn eru ekki lengur neitt upp-
vægir, þótt blys sjáist á lofti.
Að vísu er brugðið við í hvert
sinn, en menn veigra sér orðið
við að kalla út heila hópa manna
frá skyldum sínum annars stað-
ar eða úr bólunum, til þess að
eltast svo við einhver blekk-
ingarljós.
Þégar menn senda upp slík
ljós, án þess að láta t. d. lög-
reglu vita, eru þeir í rauninni
að „gabba slökkviliðið", sem
hingað til hefur veriö litið alvar-
legum augum. Víða liggur blátt
bann við að senda upp svona
ljós og er þar gengið ríkt eftir
því, að því banni sé hlýtt.
Uggur —
Framhald af bls. 1.
mundu skemmast — yrði það
milljónatjón.
Takmarkaðar birgðir eru nú
eftir af olíu á Seyðisfirði eöa
um 4 þúsund tonn. Þar liggja nú
inni um þrjátíu síldarskip og
segir Ottó Magnússon afgreiðslu
maður Olíufélags íslands á Seyð
isfirði, að hann búist við að þeir
taki um 60 þúsund lítra, og
fljótt muni saxast á birgðirnar.
Fjórir olíubílar eru auk þess
í flutningum frá Seyðisfirði með
olíu upp á Hérað, þar sem olía
er víða þrotin.
Velfært er nú á milli fjarða
þar eystra, en hins vegar hefur
verið þungfært yfir fjallvegi
norður. Samgöngur hafa því ver
ið góðar á landi og hvergi ber
ennþá á verulegri vöruþurrð, en
menn kvíða þar löngu farmanna
verkfalli, þar sem aöflutningar
á vetrum eru einkum um sjóveg.
Er sýnt að brátt mun skorta
nauðsynjar þar á Austfjörðum
og raunar víðar úti á landi, ef
verkfall helzt.
Vestmannaeyingar fá til dæmis
mjólk flutta loftleiðis og aðrar
nauðsynjavörur, sem skortir.
Vöruflutningar Flugfélagsins
út á land hafa stóraukizt síö-
ustu daga, að því er Sverrir
Jónsson, afgreiðslustjóri félags-
ins, tjáði b'aðinu í morgun. —
Sagði hann að flutningur heföi
aukizt mjög á alla staði úti um
land, bæði austur á firði og á
Vestfirði, norður og eins til Vest •
mannaeyja. Þangað flytur félag-J
ið tíu tonn af vörum f dag, í •
þremur ferðum, sem er óvenju- •
lega mikið. ?
Iðnaður — :
•
Framh at ols. 16. ®
anir, tryggingar, fasteignarekstur*
o. fi. :
I Iandbúnaði starfa 13.7%, en*
nokkurrar óvissu gætir hvernig*
meta ber þann lið, að hversu miklu •
leyti skuli telja vinnu eiginkvenna*
bænda. Þessi liður getur því hlaup- ^
ið á bilinu frá 15.8% til 11.6%,;
en álitið er nærri lagi að þessi •
lður sé 13.7%. ^
í byggingastarfsemi eru um»
11.7%, í samgöngum 9.4% (flutn-:
ingastarfsemi og póstur og sími), •
í varnarliðsvinnu 1.3% og í raf-«
magns-, gas, vatnsveitum, götu- og^
sorphreinsun o. fl. um 0.8%. ;
Fjöldi slysatryggðra vinnuvikna •
ér tekin saman eftir skattafram-J
tölum. Fjöldi vinnuviknanna var»
4.082.124 samtals árið 1965, en varj
3.915.358 áriö áður. VinnuvikumJ
hefur samkvæmt þessu fjölgað um«
tæplega 4.3% frá árinu áður. Gert:
er ráð fvrir að þessi aukning stafi;
að einhverju leyti af betri fram- •
tölum almennt. Vinnuvikum fjölg-J
.aði mest í Reykjavík, eða um •
5.9%, í öðrum kaupstöðum um
5.7% og um 1.2% í sýslum. Ef»
litið er á einstaka atvinnuvegi, er^
aukningin mest í viðskiptum;
(11.2%), en annars eru ekki mikl-*
ar tilfærslur milli atvinnuvega. J
BELLA
Ég ætla að labba héma fram
í herradeildina. Ég skal svo segja
ákveðið hvort ég kaupi þau þegar
ég kem aftur.
BASAR
Húnvetningar! Munið basar-
inn í félagsheimilinu, Laufás-
vegi 25, sunnudaginn 19. nóv.
kl. 2. Komið og kaupið jóla-
gjafirnar hjá okkur.
Veðrið
i dag
Minnkandi suð-
vestan átt og skúr
ir fvrst. Vaxandi
sunnan átt síðdeg
is. Hvass si.fvest
an eða sunnan átt
og rigning í kvöld
og nótt.
TIL LEIGU
nokkur risherbergi i stóru steinhúsi. Á sama staö er
til leigu gott geymsluherbergi. Uppl. á Njálsgötu 49
milli kl. 8 og 10 e. h.
F./jL Loftskeytamenn
FRAMHALDSAÐALFUNDUR F.Í.L. verður
haldinn að Bárugötu 11 kl. 14.00 sunnudaginn
19. þessa mánaðar.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
S t j ó r n i n
Okkar blað er Vísir í vikulokin
Einstakt tækHæri — Grípið það strax!
DAGBLAÐIÐ VÍSIR
Nú gefst tækifæri til að fá ókeypis 15
tölublöð, sem út hafa komið af „Vísi í
vikulokin“, í fallegri, áletraðri möppu,
sem síðan má bæta f nýjum tölublöðum.
Þennan myndarlega kaupbæti fá nýir á-
skrifendur að dggblaðinu Vísi, ef þeir
greiða strax fyrstu tvo áskriftarmánuð-
ina.
Tilboð þetta stendur meðan endist hið
takmarkaða upplag af „Vísi f vikulokin".
Hringiö strax i síma 1 16 60 og þér fáið
senda heim möppuna með blöðunum i
í möppunni með „Vísi i vikulokin" hafið þér
mikið safn af skemmtilegum mataruppskrift-
um, leiðbeiningum um snyrtingu, tfzku-
myndum, ráðleggingum um heimilishald og
fleira efni fyrir konur.