Vísir


Vísir - 22.11.1967, Qupperneq 4

Vísir - 22.11.1967, Qupperneq 4
J Barna-betl og fjárkúgun 1 samfélaginu höfum við ara- grúa af alls konar góðgerðar- félögum fyrir utan öll hin fé- lögin, sem hafa hitt og þetta á stefnuskrá sinni. ÖH þessi félög þurfa peninga til starfrækslu sinnar. og þurfa því bæði að stofna til sérstakra fjáröflunar- daga og hefja „herferðir" til styrktar starfseml sinni. Klass- iskar fjáröflunar-aöferðir eru hlutaveltur, happdrætti og merkjasölur og væri ekki nema gott um þetta að segja, ef þessi félög væru ekki orðin það mörg að safnanir þessar eru orðnar plága. Yfirleitt er ekki heimilis- friður einn einasta sunnudag fyrir þessum herferðum. Sunnu dag eftir sunnudag koma sömu krakkaskinnin, stundum blá af kulda, bjóðandi merki eða happ- drættismiöa fyrir hin og þessi góðgeröarfélög. Pað er bara orð ið svo oft, sem bankað er upp á cð þetta barna-betl er orðið plága. Stundum er iafnvel gert ónæði snemma á sunnudags- morgnum. Líklega eru mörg þessara söfnunarfél. farin að finna fyrir því, að barna-betlið gengur verr en áður, því að nú er orðin algeng sú aðferð í sölu happ- drættismiða hjá mörgum fé- lögum að senda bara í pósti 10 miða eða meira, og ætlast til að fólk standi í því að selja miðana, eða kaupi þá öðrum kosti. Það þykir jafnvel ná- nasarskapur að skila slíkum mið um eöá senda þá aftur, sérstak lega ef um er að ræða þessi virkilegu góðgerðarfélög. sem hafa „stóru“ niálin á dagskrú. En þeir góðu menn, sem „her- ferðunum" stjórna verða bara að gera sér grein fyrir því, að fólk er almennt orðið þreytt á þessum sníkjum. og ennfrem ur er getan ekki eins mikil núna f augnablikinu, svo að þessum söfnunum vcrður aö linna í bili, og bessar sendingar á happdrættismiðum þegjandi og hljóðalaust er nánast kurt- eisleg fjárkúgun, því ef menn eru svo dónalegir að endur- senda þá eru þeir taldir nízkir, en ef þeir trassa endursendingu, þá eru beir taldir skuldugir fyr- ir miðunum. Óánægjuraddir fólks heyrast hvarvetna, því að fólk hefur ekki peninga til að styrkja alla félagsstarfsemi, sem æskilegt væri, a.m.k. ekki í augnablik- inu. Hinir áhugasömu fjármála- menn hinna ýmsu félaga verða því að finna önnur „snjallræöi“ til fjáröflunar, en barna-betl í formi merkjasölu eða happ- drættis. Ennfremur ættu póst- scndingar á happdrættismiðum alls ekki að eiga sér stað, því þær eru bað lang ósvífnasta af því öllu. Það er þvi mjög almenn ósk fjölda fólks til hinna ýmsu fjármála „snill- inga“ hinna ýmsu félaga, að þeir linni látum. Þrándur í Götu Xjtötuh&r GötU Umberto, fyrrverandi Italiukonungur ar því hefur hann lagt fram vott- orð frá heilsuhæli í Madrid. Dóm stólarnir hafa ekki látið sér vott- orð nægja, heldur krafizt pess að öll Savoj-ættin yrði yfirhevrð, til þess að ganga úr skuggs um það hvort Maria er vitskert eða ekki. )Það mundi þýða, að hægt væri að kalia fyrir réttinn belgísku kon- ungshjónin núverandi, fyrrver- andi konung Belgíu Leo'pold og fyrrverandi drottningu Búlgaríu, Giovanni, og þá auðvitað Um- berto sjáifan, en á því eru vissir erfiðleikar, því að hann er út- læ"ur úr ítalíu. Maria, prinsessa og Arena hafa verið á stöðugu ferðalagi nú í hálfan mánuð. s;ðan Arena nam hana á brott úr hressingarhæli í Róm þar sem Maria hafði verið lögð inn. Þar átti hún s*ð ganga undir nuddmeðferð til varna gegn blindu, eða svo var sagt, en talið er aö blindan hafi verið Arena. Annie Oakley byssukvendið fræga, virðist vera fyrirmynd kvenna í Scott-sýslu í Iowafylki' í Bandaríkjunum. Það úði og grúði af gluggagægjum og kyn- ferðislega brengluðum afbrota- mönnum í sýslunni, sem lögðu í einelti einstæðar konur grasekkj- ur og fleiri, og þrátt fyrir ýmsar aðferðir lögreglunnar höfðu kon ur engan frið fyrir þessufn mönn um. Þær gripu þá til sinna ráða og áður en varði voru öll nám- skeið f skotfimi, sem haldin voru í sýslunni, þéttsetin konum. Eru þær nú komnar í yfirgnæfandi meirihluta á námskeiðum þessum en ekki hefur hins vegar liðið nægilega langur tími til þess að séð yrði hvaða áhrif þetta hefur haft á gluggagægja hvort úr þeim hafi dregið kjarkinn. í fimm ár hafa þau dansað saman, Margot Fonteyn og Hróðólfur Nure- jev, mestu dansarar okkar tíma. Núna eru þau stödd í Stokkhólmi, og hafa hlotið .rábærar viðtökur. Þessi mynd af hjúunum var tekin, þegar þau héldu til náttverðar hjá enska ambassadornum í Stokkhólmi. í Madrid er mikið vandamál komið upp. ítalska menningar- stofnunin hefur fengiö leyfi til að sýna kvikmynd Fellinis „La dolce vita“ (Hið ljúfa líf) í einn dag. Fram til þessa hefur myndin verið stranglega bönnuð á Spáni, en yfirvöldin veittu þessa einu undanþágu. En vandamálið er það, sagði einn af starfsmönnum stofnunarinnar, að í kvikmynda- húsinu eru aðeins 150 sæti, en meira en 1000 miðapantanir hafa borizt. Philip prins, eiginmanni Eng- landsdrottningar barst ekki alls fvrir löngu boð frá iðjuhöldin- um, Bill Kirk. eiganda Midlands verksmiðjanna miklu, um að ger- ast hjá honum iðnverkamáður. Bill Kirk gramdist ræða. sem prinsinn hafði flutt um slælega stjóm fyrirtækja í Bretlandi, og hafði í boði sínu beinlínis ögrað prinsinum og skoraö á hann að reyna sjálfur. Prinsinn skrifaði honum svarbréf og afþakk- aði boðið. Kvaðst hann óttast að hann yrði mun ergilegri og ringl aðri á óstjóm verksmiðjanna. ef hann kynntist þeim betur andvigur giftingu dóttur sinnar Undanfarið hefur Umberto fyrr um konungur Italíu verið mikið í fréttum erlendra blaða. Hann hef ur barizt með oddi og egg gegn því, að 24 ára gömul dóttir hans Maria Beatrix giftist ítölskum kvikmyndaleikara, Maurizio Ar- ena, vöðvafjalli nokkru, sem far ið hefur með hlutverk Tarzans í ítölskum kvikmyndum. Umberto hefur tekizt fram til þessa að hindra að skötuhjúin næðu að ganga í hjónaband með al annars á grundvelli þess, að Arena væri giftur fyrir, en fyrir nokkru sló Arena það vopn úr hendi konungsins fyrrverandi, þegar hann leiddi í ljós, að til þess hjónabands hefði verið stofn aö til að blekkja blöð og almúga. Hann hafði fengið leikkonu og 'sett á svið sjónarspil í Tokýó, þótzt kvænast henni til þess að leiða hugi manna frá sambandi sínu við dóttur Umberto. Þau hjónaleysin, María og Ar-( ena, hafa víða komið við til þess að fá einhvem til þess að gefa þau saman, en ávallt hefur eitt- hvað orðið til þess að koma í veg fyrir að af því yrði. Síðast reyndu þau í smáborginni, Rcad- ing í Bretlandi, og var ekki ann- að séð, en þar myndu þau ná tak marki sínu. Svo varð þó ekki, þvi, eins og áður, varð eitthvert smáatriði því valdandi, að úr hjónavígslu varð ekki. Fógetinn, sem þau höfðu leitað til, tjáði þeim það, að hann gæti ekki gefið þau sam- an, því að þau hefðu ekki búið í Reading í 15 daga, en það væri skilyrði til þess. að það væri hægt. Maria og Arena hafa þó ekki misst 'móðinn, heldur ætla þau sér samkvæmt því, sem síðast heyrðist frá þeim, til Gretna Green í Skotlandi, en þar mun fólk vera gefið saman án þess að fyrir það séu lagðar alltof margar óþægilegar spurningar áður. Umberto sem situr í útlegð i Portugal, hefur reynt fyrir dóm- stólunum í Róm að fá dóttur sína svip'. forræði á grundvelli þess, að hún sé haldin stundarbrjál- semi, forfallin drykkjusjúklingur og éiturlyfjaneytandi. Til sönnun Viis

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.