Vísir - 15.02.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 15.02.1968, Blaðsíða 1
VISIR 58. árg. - Fimmtudagur 15. febrúar 1968. - 39. tbl. Fegurðar- samkeppnin 1968 GÆÐINGAR HVíRFA MEÐ DULARFULLUM HÆTTI Nærri 20 hrossa saknað úr Reykjav'ik, Mosfellssveit og Borgarfirði Upp á síðkastið hefur farið að bera á undarlegu hvarfi gæðinga úr Reykjavík, Mosféllssveit, Borgarfirði og austanfjalls, en samkvæmt upplýsingum, sem Vísir hefur aflað sér er hátt í 20 reiðhesta saknað a.m.k. All'r sem Vísir hefur rætt við, um hvarf hrossanna, telja það með ólíkindum að hrossin hafi horfið án þess að menn hafi komið þar nærri, en grunurinn um, að hross unum hafi annað hvort verið slátrað eða seld í aðra Iandshluta hefur sífellt ágerzt, eftir bví að vitneskja um hvarf fleiri hrossa hefur borizt. Það er á engan hátt óeðlilegt að eitt og eitt hross hverfi, en þegar fjöldi þeirra er orðinn slíkur, sem nú er, fara óhjákvæmilega aö vakna ýmsar grunsemdir. Sérstaklega vekur það grunsemdir, að það virðast aðeins vera tamdir gæð- ingar, eða bandvanir ungir hest- ar, sem hafa horfið en aðrir hestar hafa ekki horfið. Margir hestanna hafa horf'ð úr girð- ineum. Aðalsteinn á Korpúlfsstöðum, gat gefið blaðinu þær upplýsingar, að 8 tamin hross hafi horfið í Mos- fellssveit síðan í sumar, en öll hross in hafa horfið úr girðingum. Mikil leit hefur verið gerö að sumumhros anna og m.. a. leitað úr lofti um ailt landnám Ingólfs. — Það var Jón Halldórsson, rannsóknarlög- reglumaður, sem leitaði að hross- unum úr fiugvél, en hann hefur auk þess leitað vítt og breitt á Framhald á bls. 10 53 myndir nf íslenzkum fyrir- sætum í sumu bluði íslenzkar ljósmyndafyrirsætur | vinsælar. Á Kvennasíðunni í dag er rrí.a. 1 sagt frá því að í nýjasta tölu- | blaði hins heimsfræga franska i tízkublaðs, Elégance, eru hvorki 1 meira né minna en 53 myndir | af tveimur íslenzkum l jósmynda i fyrirsætum, þeim Guðrúnu 1 Bjarnadóttur, sem á 41 mynd af | sér í blaðinu, og Thelmu Ingvars i dóttur sem á 12 myndir af sér í blaðinu. 50 milljón króna mistök hjá |fiÍSk-l — Landsbankinn og Seðlabankinn eru að hefja rannsókn á fisksölum Sambandsins til Bandarikjanna Þessa dagana hefur komið í ljós, að Sam- band íslenzkra saiiivnnu félaga hefur fengið miklu lægra verð fyrir freðfisk í Bandaríkjun- um en reiknað hafði ver- ið með. Kom þetta mjög flatt upp á viðskipta- banka SÍS, sem hafði veitt afurðalán út á hærra fiskverð. Mun þarna vera um að ræða tap, sem er ekki fjarri því að nema 50 milljón- um íslenzkra króna. Rannsókn þessa ein- kennilega máls er nú að hefjast. SÍS mun hafa tjáð frystihús- íum sínum, að þau fengju sama verð fyrir fiskinn á Bandaríkja- markaði og frystihúsiri á vegurp Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna fengu. Þá mun SÍS einnig hafa fengiö fyrir frystihús sín afurðalán hjá Landsbankanum, sem miðað var við þetta verð. Þegar til kastanna kom, náöi SlS mun verri sölum en SH. Stafaði það m. a. af því, aö ein hverra ástæðna vegna var fisk- réttaverksmiðja SlS í Ameríku miklu siðbúnari að hefja fram- leiðslu en reiknað hafði veriö með. Féll verðið mjög frá þvj» að SH seldi og þangað til SiS seidi. Blaðið hefur ekki getað aflað sér nákvæmra upplýsinga um upphæðina, sem þarna ber á milli. Hún skiptir örugglega tugmilljónum fsienzkra króna og hefur talan 50 milljónir ver- iö nefnd. Frystihús SÍS hafa sem sagt fengið há afurðalán og verða að greiða þau aftur af miklu lægri tekjum en búizt var við. Ekki er vitað, hvar tjónið lendir um síð- ir, á frystihúsunum, SÍS eða Landsbankanum. Landsbankinn og Seðlabankinn Framhald á bls. 10 □ Hélen Iínútsdóttir, sein tekur þátt í Fegurðarsam- keppninni 1968, starfar sem hárgreiðslunemi í hárgreiðslu stofunni Björk á Grundarstíg 2. Þar var hún önnum kafin, þegar blaðamann og ljós- myndara bar að garði, en þeir voru aðgangsharðir, og hún komst ekki hjá því að svara nokkrum spurningum. — Hvar og hvenær ert þú fædd, Helen? — Ég er fædd 21. maí, 1950 í Kaupmannahöfn. — Og hverjir eru foreldrar þínir? — Það eru Knútur Vilhjálms son og Elíh Bjarnadóttir. — Hvenær byrjaðir þú að læra hárgreiðslu? — Ég byrjaði á því 1. júni í sumar,- eftir að ég lauk gagn- fræðaprófi frá Lindargötuskól- anum. — Hvað gerir þú helzt í tóm- ■fundum? — Drottinn minn dýri, það er svo margt. Ætli fegurðarsam- keppnin sé ekki mitt helzta tómstundagaman um þessar mundir. Svo fæst ég auðvitað Framhald á bls. 10. Brezkt eftirlitsskip komið á að sjá um að brezkir togarar leiti vars i óveðrum Skipverjar héldu strangan vörð við morgun, á meðan beðið var eftir yfirmanninum frá brezku strandgæzlunni. Brezka veðureftirlitsskipið, | Weather Reporter, sem á að líta eftir brezkum toeurum á miðun- um fyrir norðan island kom til iReykjavíkur í morgun. — Hlut- verk skipsins veröur að vara brezku togarana við óveðrum á hafinu norðan við landlð og sjá til þess að þeir leiti vars í tæka tíð. Þetta er í fyrsta skipti í sögu brezka sjávarútvegsins að slíkri gæzlu er komið á. Hér mun skipið taka um borð yfirmann, J. A. Douglas, sem ver- ið hefur varaforstjóri í strand- gæzlu Breta síðan 1963. — Auk þess fer um borð í skipið hér í Reykjavík ráðgjafi frá brezka fisk- iðnaðinum. Skip þet-ta er búiö fullkomnum\ veðurathugunar og siglingatækjum og er þess vegna talið bezt fallið til slíks eftirlits, en til stóð að senda hingaö frystitogarann Ross Valient með yfirmann frá strand gæzlunni um borð til þess að taka eftirlitið að sér. Skipið hefur hér stutta viðstööu, Framhald á bls. 10

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.