Vísir - 15.02.1968, Page 3
VlSIR. Fimmtudagur 15. febrúar 1968.
3
\
MYNDSJ
Séð yfir salinn,
TyTikiO annrlki hefur verið hjá
skákmönnum undanfama
daga, enda skal til mikils vinna.
Skákþing ReykjaVíkur, sem nú
stendur yfir gefur tveimur
mönnum rétt til þátttöku í stór-
móti, sem halda á hér í vor, en
þar mæta erlendir meistarar
ásamt hinum sterkustu hér-
lendra skákmanna.
Talsverð sþenna hefur veriö
í þessu móti, sem telft er í
nýjum húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur og Skáksambands
íslands við Grensásveg.
íslandsmeistarinn, Björn Þor-
steinsson er efstur í b-riðli
meistaraflokks, en hefur þó orð-
ið að þola óvænt skakkaföll i
þings Reykjavíkur verður hald-
ið sjö umferða Monrad skák-
mót með þátttöku ungs skák-
manns frá Færeyjum, Rubek
Rubeksen. Verður væntanlega
reynt að fá nol kra af hinum
reyndari skákmönnum til þátt-
töku í því móti.
Myndirnar voru teknar í
næstsíöustu umferð undanúrslit-
anna, sem tefld var á sunnu-
daginn.
Seinasta umferðin veröur
tefld í kvöld.
mótinu, tapaði meðal annars
fyrir nýliöa i meistaraflokki.
Bragi Kristjánsson sækir fast
á eftir Birni og eru þeir tveir
ásamt Jóni Kristinssyni öruggir
um að komast í úrslitakeppnina,
en fjórir efstu menn úr hvorum
riðli tefla til úrslita um titilinn
„Skákmeistari Reykjavíkur
1968“.
I a-riðli ‘er Guðmundur Sigúr-
jónsson sigurstranglegastur. —
Gunnar Gunnarsson hefur einn-
ig tryggt sér þátttökuJ. úrslita-
keppninni, um þriðja sæti
bítast þeir Björgvin Víglundsson
og Benóný Benediktsson, sá
kunni bragðarefur í skáklistinni.
Jafnframt úrslitakeppni Skák
Guðmuniur Sigurjónsson hefur staðið sig með afbrigðum ve •
í þessu móti, engri skák tapað og aðeins gert eitt jafntefji
- í þessari umferð vann hann Stíg Herlufsen, sem situr á
móti honum við borðið.
Á borðinu nær eigast þeir við Hermann Ragnarsson, sem stýrir hvítum niónnum og Jón
ÞorvaidSson, sem hefur svart. Svartur vann þessa skák. Fjær kljást þeir Björn Jóhannsson
og Jón Kristinsson.
Jón Pálsson fór vel út úr þessari umferð, vann Björgvin Víg-
lundsson, einn af þrem efstu mönnum í A-riðli, enda er hann
íbygginn á svipinn yfir skákinni... * baksýn sér á einkennis-
stafi Taflfélags Reykjavíkur.
Benóný Benediktsson glottir við tönn yfir skákinni. Hann á þama í höggi við Stíg Her'
lufsen ... Kannski hefur hann séð fram á tapað tafl, alla vega varð endirinn sá í betta sinn